Dagur - 05.07.2000, Qupperneq 11
i
T^wr
MIÐVIKUDAGUR 5- JÚLÍ 2 00 0 - 11
on og Haraldur Harlandsson, stjórnarformaður landsmóts 2000, riðu í broddi fylkingar, auk sjö ráðherra og Ingibjargar Sól-
ra, kemur aftur inn á skeiðvöllinn í Víðidal eftir hringferð að Rauðavatni.
félagar bara úr Fáki hafi verið um
300-400 hundruð, þannig að við-
tökur félagsmanna eru mjög góð-
ar. Þetta var í alla staði mjög
ánægjuleg og hátíðleg athöfn í
Víðidalnum, þar sem þeir Harald-
ur Haraldsson, stjórnarformaður
Landsmóts 2000, Herra Olafur
Ragnar Grímsson, forseti Islands,
Halldór Blöndal, landbúnaðarráð-
herra og Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, borgarstjóri fluttu ávörp,
auk þess sem séra Valgeir Astráðs-
son, sóknarprestur í Seljasókn og
félagi í Fák, stjórnaði helgistund,"
sagði Bragi.
Keppendur aldrei fleiri
Keppnisdagskráin hélt áfram strax
á eftir setningunni, enda veitir
víst ekki af að halda vel á spöðun-
um þar sem keppendur hafa
aldrei verið fleiri á Landsmóti. „Ef
við tökum kynbótahrossin, þá er
um helmings fjölgun kcppnis-
hrossa frá síðasta móti, sem var
haldið á Melgerðismelum. Um
250 kynbótahross unnu sér rétt til
að keppa á mótinu í ár, en voru
110 á síðasta móti. Allur þessi
starfsstúlkurnar þær Ingibjörg Magnús-
Iga B. Helgadóttir, gátu varla litið upp.
fjöldi setur töluverða pressu á
mótshaldið, þannig að við verðum
að keyra þetta mjög vel áfram al-
veg frá morgni til kvölds,“ sagði
Bragi.
Erlendir gestir aldrei fleiri
Um væntanlegan gestafjölda á
landsmótið, sagði Bragi að mjög
erfitt væri að gera sér grein fyrir
því. „Við værum mjög ánægðir
með og treystum okkur vel til að
taka á móti fimmtán þúsund
manns á einum og sama deginum
ef allt gengur upp. Hápunkturinn
á þessum mótum er yfirleitt á
sunnudögunum og þá væri
ánægjulegt að sjá fólk fjölmenna t
Víðidalinn."
Eins og áður segir vekur mikill
fjöldi útlendinga á mótinu athygli
og að sögn Braga þá hefur hann
aldrei séð þá eins marga á fýrsta
degi landsmóts. „Það er reyndar
mjög eðlilegt þar sem hróður ís-
lenska hestsins hefur borist víða á
síðustu árum. Sem dæmi, þá eru
starfandi 24 íslandshestafélög í
heiminum í jafnmörgum löndum,
sem sýnir að áhuginn er sífellt að
aukast. Þetta fólk kemur víða að,
en þó mest frá Evrópulöndunum.
Líklega flestir frá Þýskalandi og
Norðurlöndum. Svo er hér líka
fólk sem kemur lengra að, eins og
frá Bandaríkjunum og Austur-
Evrópu. Svo eru hér einnig er-
lendir dómarar sem taka þátt í að
dæma töltið, en þar eru starfandi
fimm dómarapör, frá Austurríki,
Þýskalandi og Noregi og tvö ís-
lensk, þannig að segja má að þetta
sé í leiðinni alþjóðlega samvinna í
dómaramálum."
Frá Lómagnúpi
til Hvalfjarðarbotns
Að sögn Braga eru það 16 hesta-
mannafélög á svæðinu frá Ló-
magnúpi að Hvalfjarðarbotni sem
stofnuðu með sér hlutafélag um
rekstur landsmótsins, en Fáks-
menn leggja til svæðið, sem hefur
verið í stöðugri uppbyggingu síð-
ustu þrjú árin, með góðri aðstoð
Reykjavíkurborgar. „Takmarkið er
að halda gott landsmót, vonandi
það besta hingað til, íslenska hest-
inum og okkur öllum til góða,“
sagði Bragi að lokum. — EK
Grímur í íspan segist aldrei láta sig vanta á landsmót og var mættur manna
fyrstur i gærmorgun.
Dagskrá
landsmótsins
Miðvikudagur til sunnudags:
Miðvikudagur. 5. júlí
Brekkuvöllur:
09:00 - 11:30 B-flokkur gæðinga - forkeppni, nr. 1 - 30
12:30 - 15:00 B-flokkur gæðinga - forkeppni, nr. 31 - 60
15:30 - 18:00 B-flokkur gæðinga - forkeppni, nr. 61 - 89
Brekkubraut:
08:00 - 12:00 Hæfileikadómar kynbótahrossa: 5 vetra hryssur
13:00 - 17:00 Hæfileiltadómar kynbótahrossa: 6 vetra hryssur
17:00 - 19:00 Hæfileikadómar kynhótahrossa: 7 vetra og eldri hiyssur, fyrri hl.
Skeiðvöllur:
20:00 - 21:00 Kappreiðar - 300 m stökk og 800 m stökk, undankeppni
Hvammsvöllur:
10:00 - 12:30 Ungmennaflokkur - forkeppni, nr. 1 - 30
13:30 - 16:00 Ungmennaflokkur - forkeppni, nr. 31 - 61
Fimmtudagur. 6. júlí
Brekkuvöllur:
09:00 - 1 1:30 A-flokkur gæðinga - forkeppni, nr. 1 - 30
12:30 - 15:00 A-flokkur gæðinga - forkeppni, nr. 31 - 60
15:30 - 18:00 A-flokkur gæðinga - forkeppni, nr. 61 - 90
20:00 - 20:40 Tölt, B úrslit
Brekkubraut:
08:00 - 12:00 Hæfileikadóm. kynbótahrossa: 7 vetra og eldri hryssur, seinni hl.
13:00 - 15:00 Hæfileikadómar kynbótahrossa: 4 vetra stóðhestar
15:00 - 17:00 Hæfileíkadómar kynbótahrossa: 5 vetra stóðhestar
17:00 - 19:30 Hæfileikadómar kynbótahrossa: 6 vetra og cldri stóðhestar
Skeiðvöllur:
21:00 - 22:00 Kappreiðar - 150 m og 250 m skeið tveir sprettir, undankeppnir
Hvammsvöllur:
09:00 - 12:30 Unglingaflokkur - forkeppni, nr. 1 - 36
13:30 - 16:00 Unglingaflokkur - forkeppni, nr. 37 - 65
16:30 - 17:10 Ungmennaflokkur - B úrslit
Föstudagur. 7. iúlí
Brekkuvöllur:
08.00 - 12:30 Yfirlitssýning kynbótahrossa: 7 vetra og eldri og 6 vetra hryssur
13:15 - 16:00 Yfirlitssýning kynbótahrossa: 5 og 4 vetra hryssur
16:00 - 17:00 Bæktunarbússýningar
17:30 - 18:30 Ræktunarbússýningar
19:00 - 19:40 B-flokkur - B úrslit
20:00 - 20:40 A-flokkur - B úrslit
Skeiðvöllur:
21:00 - 22:00 Kappreiðar - 150 m og 250 m skeið tveir sprettir, milliriðlar.
Hvammsvöllur:
13:00 - 15:00 Kynning: börn, unglingar, ungmenni
15:00 - 15:40 Unglingaflokkur - B úrslit
17:00 - 17:30 Barnaflokkur - B úrslit
23:00 - 03:00 Reiðhöll, hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
Laugardagur. 8. júlí
Brekkuvöllur:
11:00 - 12:00 Yfírlitssýning kvnbótahrossa: 4 vetra stóðhestar
13:00 - 14:00 Yfirlitssýning kynbótahrossa: 5 vetra stóðhestar
14:00 - 15:15 Yfirlitssýning kynbótahrossa: 6 vetra og eldri stóðhestar
15:30- 17:00 Afkvæmasýnd hross
Hryssur með afkvæmum, heiðursverðlaun
Stóðhestar með afkvæmum, 1. verðlaun
Stóðhestar með afkvæmum, hciðursvcrðlaun
18:30 - 19:10 Unglingallokkur - A úrslit
19:30 - 20.10 Ungmennaflokkur - A úrslit
20:30 - 21:10 Tölt-Aúrslit
Skeiðvöllur:
21:30 - 22:15 Kappreiðaúrslit - 300 m stökk, 800 m stökk, 150 m skeið og
250 m skeið
23:00 - 03:00 Reiðhöll, Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
Sunnudagur. 9. júlí
Brekkuvöllur:
12:00 - 12:40 B flokkur gæðinga - A úrslit
13:00 - 13:40 Barnaflokkur - A úrslit
14:00 - 17:00 Kynbótahross, verðlaunaafhending : 4, 5, 6, 7 vetra og eldri
hryssur - 4, 5, 6 vctra og eldri stóðhestar
17:15 - 18:00 A flokkur gæðingá - A úrslit
18:00 Mótsslit