Dagur - 05.07.2000, Blaðsíða 14
1
Sigrún Arna Am-
grímsdóttir
mezzosopran erað
læra að verða söng-
kona. Hún stundar
nám við Welsh Col-
lege ofMusic and
Drama í hinni miklu
tónlistarhorg Cardijf.
Um þessar mundir
syngur hún aðalhlut-
verkið íglæsilegrí óp-
eru skólans.
Sigrún hefur verið syngjandi
síðan hún var barn og á ekki
Iangt að sækja söngáhuga sinn.
Faðir hennar, Arngrímur Jó-
hannsson flugmaður, var í
barnakór Akureyrar og söng víða
einsöng. „Pabbi var sópran og
þótti hafa góða rödd. Þá söng
mamma, Matthildur Sigurlaug-
ardóttir, með kvennakórnum
Gígjunni heima á Akureyri og
hún er enn syngjandi. Sem
krakki fór ég með henni á æf-
ingar. Þegar ég var 14 ára byrj-
aði ég svo í kór hjá Jakobi
Tryggvasyni," segir Sigrún sem
aldrei ætlaði að verða söngkona,
enda menntaður garðyrkjufræð-
ingur. „Þetta bara gerðist," segir
hún og hlær.
Sigrún er mezzosópran og
lauk í fyrra 8. stigi frá Tónlistar-
skóla Akureyrar. „Eg tel mig
heppna að hafa haft tvo af-
„Pressan kemur á frumsýninguna sem er mikilvægt fyrir mig því mér er sagt
að tóniistarheimurinn sé ekki jafn stór og ég hélt að hann væri, “ segir söng-
konan Sigrún Arna Arngrímsdóttir.
bragðsgóða menn mér við hlið
síðustu tvö árin heima, þá
Michael Clarke söngkennara og
Richard Simm píanóleikara.
Það kom að því að Michael
sagði að ég væri búin að læra
allt sem hann gæti kennt mér.
Asamt Jóhanni Smára ýtti hann
mér svo út í þetta og þannig
varð draumurinn um söngnám
úti í heimi að veruleika síðast-
liðið haust.“
Svolítið gamaldags
Sigrún hefur fengið styrki frá
KEA, Sparisjóði Norðlendinga
og úr svokölluðum Þorgerðar-
sjóði á Akureyri og hún er þakk-
Iát þeim sem stutt hafa við bak-
ið á henni. Það er dýrt að fara
út í nám og ekki síst þar sem
fjölskyldan fylgir. Því er eins
gott að hugsa sig vel um áður en
skólinn er valinn. „Ég hafði
fengið inni í Royal College of
Music í London, en var þá bent
á þennan skóla. Ég skoðaði
báða valkostina og valdi Cardiff,
scm er mun rólegri en London.
Það kcmur sér vel fyrir dóttur
mína, Matthildi sem er átta ára.
Hún settist með mér á welskan
skólabekk síðastliðið haust og
gengur alveg ljómandi vel.
Skólakerfið hér er reyndar svo-
lítið gamaldags en á móti kemur
að þau eru ári á undan hérna,
þannig að viðbrigðin urðu tölu-
verð. Eg held að hún eigi eftir
að græða heilmikið á þessu.“
Óþægi krakkinii
Söngnámið í Welsh College of
Music and Drama tekur tvö ár
og Sigrún er því liðlega hálfnuð.
Henni hefur gengið allt í hag-
inn hingað til og það kom Sig-
rúnu þægilega á óvart þegar
henni var boðið aðalhlutverkið í
lokaverkefni skólaársins, óperu
sem verður frumsýnd í kvöld.
Verkið heitir L’enfant et Ies
sortileges (Rarnið og töfrarnir)
og er eftir Ravel, sem sennilega
er almenningi kunnastur fyrir
hinn seiðmagnaða Bolero."
Þetta er ópera eða ævintýri sem
fjallar um sex ára óþægan strák.
Hann er Iíka vondur við dýrin
og þar kemur að allir í umhverf-
inu taka sig saman um að refsa
drengnum. Ég leik og syng þetta
óþæga barn en svo eru þarna
íkornar, húsgögn, klukkur og
bækur áberandi."
Sýningin er Iíka verkefni fyrir
búninga- og sviðshönnunar-
deild skólans og þykir leikgerðin
afar skrautleg. Sigrún segir
undirbúninginn hafa verið
strangan en sérlega skemmti-
legan. „Það eina sem skyggir á
er að maðurinn minn og dóttir
eru bæði farin heim í sumarfrí
og komast því ekki á frumsýn-
inguna.“ Foreldrar Sigrúnar
hyggjast hins vegar sjá 2. sýn-
ingu hjá dótturinni í Cardiff.
Var komin með kútinn
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Sigrún tekur þátt í óperu, því í
fyrravetur tók hún þátt í upp-
færslu Tónlistarskólans á Akur-
eyri á Brúðkaupi Figaros. „Jó-
hann Smári setti verkið upp
með aðstoð Helgu Völu Helga-
dóttur leikkonu og þessi reynsla
á eftir að nýtast mér vel. Ég var
því komin með kút og kork áður
en mér var varpað út í djúpu
laugina." Sigrún hefur einnig
sungið í tvígang á sviði með
Leikfélagi Akureyrar. I síðara
skiptið í Söngvaseið, þar sem
hún söng og lék hlutverk systur
Margrétar við góðan orðstír.
Hvað tekur svo við eftir að
námi lýkur?
„Það verður eiginlega bara að
ráðast. Islenskir söngvarar hafa
náð að skapa sér gott orð, svo
það kemur til með að hjálpa
mér. Þá er aldrei að vita hvað
gerist eftir þessa sýningu hérna
í Cardiff." Pressan kemur á
frumsýninguna sem er mikil-
vægt fyrir mig því mér er sagt að
tónlistarheimurinn sé ekki jafn
stór og ég hélt að hann væri,“
segir söngkonan.
Þeir sem hafa áhuga á að
heyra Sigrúnu syngja geta
hlustað á hana á geisladisknum
Dýrð, vald, virðing, sem
kirkjukór Akureyrarkirkju gaf
út. Þá verður hún með tónleika
í Deiglunni í ágúst.
- GJ
Marea Weekend ELX estiva
Ótrúlega vel
útbúinn á kr:
1.495.000.-
Fjórir loftpúöar
Loftkœling með hitastýringu (AC
Stillanlegur hitablástur afturí)
Þrjú þriggja punkta belti í aftursœti
Fimm hnakkapúöar
Lúxuslnnrétting
Samlitir stuðarar
Samlitir speglar og hurðarhandföng
Flalogen linsuaðalljós
Rafstýrðir og upphitaöir útispeglar
Rafstýrðir bílbeltastrekkjarar
Vökvastýri
Fjarstýrðar samlœsingar
Geislaspilari 4x40 wött
Fjórlr hátalarar
Rafdrlfnar rúður að framan
Snúningshraðamœlir
Útihitamœlir
103 hestafla 1.6 lítra 16 ventla vél
Tölvustýrð fjölinnsprautun
ABS hemlalœsivörn
EBD hemlajöfnunarbúnaður
Flœðarstilling á ökumannssœti
Rafstýrð mjóbaksstilling
Armpúðl í aftursœti
Vasi á miðjustokk
Vasar aftan á framsœtisbökum
Hœðarstilling á stýri
Lesljós í aftursceti
Litaöar rúður
Þakbogar
Rceslvörn í lykll
þriðja bremsuljósið
Hiti, þurrka og rúðusprauta á afturrúðu
14" felgur
Stillanleg hœð aðalljósa
Tvískipt aftursœti
Hellklœtt farangursrými
Geymsluhólf í farangursrými
Tvískiptur afturhleri
Mottusett
Galvanhúðaður
8 ára ábyrgð á gegnumtceringu
Eyðsla skv. meginlandsstaðli 8,3 1/100 km
Holdur ehf. 461-3000
Istraktor
B I L A R
IÐSBÚÐ2 - GARÐABÆ -
20