Dagur - 19.08.2000, Page 1
H A F Ð U G Æ
I N M E Ð
M V IM
a-áöai
Geislagötu 14 • Sími 462 1300
Verðhækkun talin
Banaslys vlð
Dettifoss
Israelsk ferðakona á sjötugsaldri
hrapaði í Jökulsárgljúlur austan
við Dettifoss og lést urn miðjan
dag í gær. Lögreglunni á Húsavík
barst tilkynning um slysið um ld.
14.45 og komu björgunarsveitir
og lögreglumenn á staðinn rúm-
um klukkutíma síðar. Þá var þyrla
Landbelgisgæslunnar ræst út
enda vissi enginn í hvaða ástandi
konan var. Hún var í hópi ferða-
manna á svæðinu en ekld Iá Ijóst
fyrir hvort vitni höfðu orðið að at-
vikinu.
Erfiðar aðstæður voru á slysstað
í gær, sleipt og varasamt að síga
niður í gljúfrið. Þegar björgunar-
rnenn komust að konunni, var
hún úrskurðuð látin. Talið er að
hún hafi hrapað 50-60 metra nið-
ur í urð.
Slysið vekur upp enn frekari
spurningar um öryggi ferðamanna
hérlendis. Eins og frant kom í
Degi í gær hefur samgönguráð-
herra kallað á úttekt vegna slysan-
na undanfarið. - BÞ
Fimm útlendingar hafa á
skömmum tíma látist af slysförum
og fjöldi Islendinga. Margir hafa
að auki verið hætt komnir en ver-
ið bjargað við ólrúlegar aðstæður.
bþ
Endurbyggingu pakkhússins sem stendur við hliðina á Hafnarhúsinu í Reykjavík er lokið og hefur því verið gefið
nafnið Grófarhús. Þangað eru nú flutt þrjú söfn I eigu Reykjavíkurborgar, aðalsafn Borgarbókasafns, Borgarskjala-
safn og Ljósmyndasafn. Sjá bls. 4
Fábreytni og
metnaðarleysi
nýju miðlanna
„Sjálfur var ég eindreginn tals-
maður aukins frjálsræðis í út-
varpsmálum. En hinir nýju miðl-
ar hafa flestir valdið mér von-
brigðum sakir fábreytni og metn-
aðarleysis. Eg verð þess ekki var
í almennri umræðu að meirihluti
þjóðarinnar telji ástæðu til mik-
illa grundvallarbreytinga," segir
Markús Orn Antonsson, útvarps-
stjóri, í helgarviðtali Dags. Þar
ræðir hann meðal annars um
framtíð ríkisútvarpsins og segir
að ef hafnar verði útsendingar á
nýrri rás þá muni hún einkum
sinna fræðslumálum og fjar-
kennslu.
Götuóeirðir, skotbardagar, og
skriðdrekar voru hluti af daglegu
lífi Jóns Kr. Valdimarsson lög-
regluvarðstjóra sem var við störf
í friðargæslusveitum Sameinuðu
þjóðarnna í Kosovo. Hann segir
lesendum helgarblaðsins frá
þessari eftirminnilegu reynslu.
Hvar og hvenær kviknaði ástin
og hvernig á að láta hana endast?
Þjóðþekktir Islendingar segja
Iesendum helg-
arblaðsins frá
ástinni sinni, en
þau eru Karl Sig-
urbjörnsson og
Kristín Guðjóns- Karl biskup og
dóttir, Óssur Katrín: hvar
Skarphéðinsson kviknaði ástin?
og Arný Erla —
Sveinbjörnsdótt-
ir, Guðjón Pedersen og Katrín
Hall, og Helgi Björnsson og Vil-
borg Halldórsdóttir.
Náttúrulegar snyrtivörur Astu
Sýrusdóttur og Andre Raes hafa
slegið rækilega í gegn hér heirna
og nú eru eru þau á Ieiðinni til
Belgíu.Nánar um þau hjónin í
helgarblaðinu.
Ragna Björgvinsdóttir á bæn-
um Kálfsá í Olafsfirði framleiðir
hunang úr túnfíflum og sitthvað
fleira hnossgæti, eins og gerist
oft á íslenskum sveitaheimilum.
Nánar um það í Matargati helg-
arblaðsins.
Margt fleira - góða helgi!
RáDIOrMOST
rýra sætanýtingu
Akvörðim Flugfélags
íslands um verðhækk-
un sætir ámæli. Neyð-
arráðstöfun að sögn
markaðsstjóra félags-
ins.
10% hækkun Flugfélags Islands
á fargjöldum mætir harðri and-
stöðu og vonbrigðum. Forseti
bæjarstjórnar á Egilsstöðum seg-
ir Austfirðinga grama og sára og
framkvæmdastjóri Neytenda-
samtakanna segir að skoða þurfi
starfshætti flugfélagsins betur.
Markaðsstjóri Fí segir á hinn
bóginn að ef félagið bregðist ekki
við taprekstri og auknum kostn-
aði, fari það sömu leið og Is-
landsflug, þ.e.a.s. neyðist til að
hætta flugi innanlands.
Ný verðskrá FI sýnir svo dæmi
sé tekið að 18.600 kr. kostar að
fljúga frá Reykjavík til Egilsstaða
fram og til baka og 16.400 til Ak-
ureyrar. Með ákveðnum kvöðum
er hægt að lækka þetta verð tölu-
vert. Þannig kostar Reykjavík-
Akureyri tæpar 10.000 krónur
fram og til baka ef greitt er við
bókun og gist er tvær nætur.
Barnafar-
gjöld eru að
meðaltali
5.000 til
6.000 krón-
ur eftir
áfangastöð-
um.
Engin
samkeppni
er lengur á
innanlands-
flugsmark-
aði sem heit-
ið getur.
Þetta er
önnur far-
gjaldahækkunin hjá Fí á skömm-
um tíma og segir Jóhannes
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Neytendasamtakanna, að fyrir-
tæki með einokunarmarkaðs-
stöðu þurfi lítt að velta vöngum
yfir afleiðingum verðhækkana.
„Staða Flugfélagsins gerir það að
verkum að eftirlitsaðilar líkt og
Samkeppnisstofnun hafa auknu
hlutverki að gegna gagnvart
neytendum við að skoða starf-
semi þess,“ segir Jóhannes.
Soffía
Lárusdóttir,
formaður
bæjarráðs á
Egilsstöð-
um, segir
verðhækk-
unina koma
sérlega illa
við Austfirð-
inga, þar
sem þeir eigi
lengst að
sækja til
Reykjavíkur.
“ÖIl hækkun
leiðir til
skerðingar á lífsafkomu fólks
þannig að þetta eru mikil von-
brigði." Soffía telur að nú sé svo
komið að Austfirðingar eigi
raunhæft val milli þess að aka til
Reykjavíkur fremur en að fljúga.
„Þannig að ég spái því að verð-
hækkunin muni draga úr nýting-
unni í fluginu," segir Soffía.
Neyðarráðstöfun
Arni Gunnarsson, markaðsstjóri
Flugfélags Islands, segir að
hækkunin hafi verið nauðsynleg
til að bregðast við auknum
kostnaði, einkum eldsneytisverði
og nýjum álögum, þ.e.a.s. 40
milljóna króna flugleiðsögu-
gjaldi. Spurður hvort aðrar leiðir
en verðhækkun hafi ekki komið
til greina, t.d. að breyta áætlun,
segir hann svo hafa verið. M.a.
standi til að bjóða út flugið frá
Akureyri.
Arni hafnar því að einráð
markaðsstaða valdi hækkunum
núna. Staða rekstrarins sé ein-
faldlega alvarleg. „Við getum
ekki frekar en önnur fyrirtæki
verið með fasta verðstefnu óháða
afkomu. Við ætluðum að ná okk-
ar markmiðum með því að fjölga
farþegum frekar en að hækka
fargjöldin en það hefur sýnt sig
að afkoman er ekki viðunandi.
Þetta er neyðarráðstöfun. Ef við
myndum ekki grípa til hennar,
færi einfaldlega eins lyrir okkur
og Islandsflugi,“ segir markaðs-
stjórinn. - BÞ
Hörð andstaða er gegn hækkun
Flugfélagsins.