Dagur - 19.08.2000, Qupperneq 5
LAUGARDAGUR 19. ÁGtíST 2000 - S
FRÉTTIR
Hvítt kjot á að
lækkaíverði
Heyskapur hefur gengið vel í sumar en magnið hefur minni áhrif en
endranær, þar sem kjarnfóðurverð er í sögulegu lágmarki. Samkeppnis-
staða sauðfjár- og nautakjötsframleiðenda veikist gagnvart kjúklingum og
svínum.
Sögulegt lágmark á
verði kjamfóðurs inn-
anlands. Raskar sam-
keppnisstöðu milli
framleiðeuda.
Verð á kjarnfóðri er í sögulegu
Iágmarki sem stendur vegna
mikillar framleiðslu og hag-
stæðra flutninga til landsins.
Þessi staðreynd getur orðið til
þcss að lækka verð á tilteknum
Iandbúnaðarafurðum. Ekki síst
er hugsanlegt að verð á kjúkling-
um gæti snarlækkað innan tíðar,
þar sem framboðsaukning verð-
ur í þeim geira innan skamms.
Ofan á það bætast svo hagstæð
fóðurskilyrði.
Ari Teitsson; formaður
Bændasamtaka Islands, segir
heyskap hafa gengið vel og víða
séu mikil hey. Heyfengur skipti
hins vegar minna máli nú en oft
áður. „Það er vegna þess að
kjarnfóðurverð er í sögulegu lág-
marki, kornverð hér sker sig ekki
úr eins og var. Þetta gefur mögu-
leika á að lækka verð á þeim af-
urðum sem byggja mest á korni,
þ.e.a.s. fyrst og fremst hvíta kjöt-
ið og það hefur reyndar neikvæð
áhrif á þá sem eru í samkeppni
við þá. Annars vegar erum við að
tala um svín og hænur og hins
vegar nauta- og kindakjöt," segir
Ari.
Þótt heyskapur hefur almennt
gengið afar vel á landsvísu urðu
hlýindin og úrkomuleysið norð-
anlands og austan í sumar til
þess að uppskera varð rýr á
nokkrum búum vegna þurrka.
Ari segir að sums staðar hafi tún
brunnið og sprottið hægt og illa
en það séu undantekningar frá
mjög góðu framleiðslusumri.
Bruni verður einkum þegar tún
standa í hrauni eins og í Mý-
vatnssveit eða á sandlendi, t.d.
austanlands.
Regnið vel þegið
Guðmundur Steindórsson, ráðu-
nautur í Evjafirði, segir veður-
blíðuna norðanlands búna að
vera einstaka en að magni til sé
ekki um neinar sögulegar stærð-
ir að ræða. Líkt og Ari nefnir
hann dæmi um að þurrkur hafi í
nokkrum tilvikum háð uppskeru
en rigningarnar að undanförnu
verði til þess að tún nái sér aftur
á strik.
Athugun Dags á Suðurlandi og
Vesturlandi bendir til að þar hafi
heyskapur gengið mjög vel.
Búlluheyskapur hefur aukist
með ári hverju og hefur verið
skotið á um 80% af öllu heyi séu
nú verkuð í rúllur. — BÞ
Þorsteinn Már Baldvinsson.
Samherji
í fiskeldid
Samherji hf. hefur fest kaup á
helmingi hlutaljár í Islandslaxi hf.
í Grindavík og 85% hlutafjár í Vík-
urlaxi ehf. í Eyjafirði. Samtals
nemur fjárfesting Samherja í
þessum félögum nemur um 215
milljónum króna. Fyrir er Sam-
herji næststærsti hluthafinn í
Fiskeldi Eyjafjarðar með um 11 %
hlutaljár.
„Það hefur verið mikill vöxtur í
fiskeldi í heiminum síðustu miss-
eri og við höfum trú á að sú þróun
haldi áfram,“ segir Þorsteinn Már
Baldvinsson, forstjóri Samherja.
„Aðstæður til fiskeldis hér eru
góðar og öll skilyrði fýrir hendi til
að atvinnugreinin eflist til muna í
náinni framtíð."
Hann segir að margt bendi til
þess að á komandi árum muni æ
stærri hlutur þess fisks sem fer á
markað koma úr fiskeldisstöðvum.
„Samherji hefur að undanförnu
verið með umfangsmikla starf-
semi í Grindavik og með kaupun-
um á hlut í Islandslaxi eykur félag-
ið þátttöku sína í atvinnurekstri á
svæðinu enn frekar," segir Þor-
steinn Már.
Politilais á ann-
arri hverri síðu
íslenskir stjómmála-
menn em fyrirferðar-
miklir í umfjölliin
fjölmiðla ekki síst
Dags, þar sem stjóm-
málamaður kemst á
aðra hverja síðu.
Alls voru 101 stjórnmálamaður -
30 konur og 71 karl - nefndir
samtals 236 sinnum í dagblöð-
unum þrem, vikuna frá 31. jan-
úar til 6. febrúar í vctur. Sömu
viku var 48 sinnum rætt við eða
tjallað um 26 stjórnmálamenn
(13 konur og 13 karla) í sjón-
varpsfréttum og 84 sinnum um
44 stjórnmálmenn í útvarpsfrétt-
um. Þessar tölur er að finna í
skýrslunni: Islenskir stjórnmála-
menn og fjölmiðlar: Ein vika í
janúar-febrúar 2000, sem unn-
in var fyrir Nefnd um aukinn
hlut kvenna í stjórnmálum.
Pólitik á annarri hverri síðu
íDegi
Hlutfallslega má segja að Dagur
geri stjórnmálamönnum hæst
undir höfði því á 180 síðum
blaðsins þessa viku var 84 sinn-
um rætt við/um stjórnmálmenn,
eða að jafnaði á nær annarri
hverri síðu. A 594 Morgun-
blaðssíðum voru nefndir I 18 (á
5. hverri síðu) og á 280 síðum
DV 34 (á 8. hverri síðu). Hlut-
fall kvenna var líka ívið stærra í
I/algerður Sverrisdóttir var fjöl-
miðladrottningin, var 17 sinnum í
fréttum i könnunarvikunni.
Degi (38%) en hinum blöðunum
(37% og 32%). Blöðin nefndu 5
konur og 4 karla sex sinnum eða
oftar og myndir af konum voru
merkjanlega tíðari. Konurnar
voru líka almennt yngri, flestar
35-50 ára en flestir karlar 50-65
ára.
Ráðherrar með fjórðung
fréttanna
Valgerður Sverrisdóttir var „fjöl-
miðladrottning" vikunnar: var 9
sinnum í blöðunum, 5 sinnum í
útvarpi og 3-svar í sjónvarpi eða
alls 17 sinnum í fréttunum.
lngibjörg Sólrún borgarstjóri og
Arni Mathiesen sjávarútvegsráð-
herra voru 16 sinnum og tugur
annarra 10 sinnum eða oftar.
Ráðherrarnir fengu rúman fjórð-
ung stjórnmálafréttanna en
sveitarstjórnarmenn (756) tæp-
an þriðjung. Þessa viku var mest
var fjallað um sjávarútveg, en
innlend stjórnmál, heilbrigðis-
mál og sveitarstjórnarmál komu
næst í röðinni. En 7 konur og
10 karlar voru nefnd oftar en
einu sinni. Ekkert samhengi
fannst milli kynferðis frétta-
manns og kyns umfjöllunarefn-
isins.
Fleiri kannanir væntanlegar
„Fjölmiðlar hafa gegnum tíðina
fjallað í rfkari mæli um karla en
konur og ég er því miður þeirrar
skoðunar að sú sé raunin enn í
dag," sagði Una María Óskars-
dóttir verkefnisstjóri Nefndar
um aukinn hlut kvenna í stjórn-
málum.“ Hún sagði hér sé um að
ræða innihaldsgeiningu einnar
viku. En til að gefa gleggri mynd
af hlut stjórnmálaflokkanna
þurfi fleiri kannanir og býst Una
María við að nefndin muni gang-
ast fyrir því.
„Það sem ég hef líka vaxandi
áhyggjur af er orðfærið sem not-
að er, um útlit og persónuein-
kenni sem er fléttað við í um-
fjöllun um konur. 1 dag sá ég
t.d. að kona þótti fýsileg í emb-
ætti vegna kyns, aldurs og
„áferðar". Una María sagðist
þeirar skoðunar að fjölmiðlar
gegni mikilvægu félagsmótunar-
hlutverki og ég tcl það „skyldu
þeirra að vanda orðfar sitt um
kynin.“ - HEI
Árétting
Að gefnu tilelni vill Dagur ítreka að blaðið stendur að öllu leyti við frétt
sína um að vinnutími flugmannsins, sem fórst í Skerjafirði nýverið, hafi
veriö yfir mörkunum. Misskilningur virðist hafa orðið til þess að á ein-
um ljósvakamiðlanna var haft eftir formanni Rannsóknarnefndar flug-
slysa að efnisatriði í fréttinni væru röng. Þessu vísar Dagur á bug, enda
var hclsti heimildarmaður fréttarinnar fyrrgreindur rannsóknarmaður.
Konu er leitað
Umfangsmikil leit hefur staðið yfir að roskinni konu sem síðast sást til
í Fossvogsdal í fyrrakviild. Tugir björgunarsveitarmanna hafa leitað kon-
unnar en hún er með alzheimer sjúkdóm sem orsakar minnisleysi. Kon-
an er um 1 50 cm á hæð og var klædd í ljósbrúna úlpu og brúnar buxur
með pijónahúfu. Þeir scm kynnu að hafa upplýsingar um málið eru
beðnir um að hafa samband við lögreglu.
Sveitarfélögin fá 140 milliónir
Stjórn Eignarhaldsfeíagsins Brunabótafélag íslands hefur ákveðið að
greiða aðildarsveitarfélögum sínum samtals 140 milljónir króna í ágóða-
hlut í ár. Greiðslan rennur til þeirra 86 sveitarfélaga sem aðild eiga að
Sameignarsjóði EBI í réttuhlutfalli við eignaraðild þeirra að sjóðnum.
Greiðslur af þessu tagi hófust árið 1934 með samningi Brunabótafé-
lags Islands við sveitarfélög um fjármögnun slökkvitækja. Því mælast
stjórn og fulltrúaráð EBl til þessvið sveitarfélögin að þau verji framlag-
inu meðal annars til forvarna, greiðslu iðgjalda af tryggingum sveitar-
stjóma og bmnavarna í sveitarfélaginu.
Að þessu sinni er það Akureyri sem fær hæstu greiðsluna, eða rúmar
15 milljónir króna. Til Kópavogs renna rúmar tólf milljónir, Reykjanes-
bær fær tæpar tíu milljónir í sinn hlut, lsafjarðarbær tæpar sjö milljón-
ir og Vestmannaeyjabær tæpar sex milljónir. — GJ
Vilja fordæma stjömustríð
Vinstrihreyfingin - grænt framboð krefst þess í sérstakri samþykkt sem
gerð var á fundi þingmanna og varaþingmanna brevfingarinnar í gær, að
íslensk stjórnvöld fordæmi stjörnustríðsáform Bandaríkjastjórnar og lýs-
ir því yfir að ekki komi til grcina að aðstaða eða búnaöur hér á landi
tengist áætluninni
„Atburðir síðustu daga minna á mikilvægi þess að menn haldi vöku
sinni gegn vígbúnaðaráformum og kjarnorkuvá," segir í samþykkt VG
framboðsins.