Dagur - 19.08.2000, Síða 6
6 ■LAUGARDAGVR 19. ÁGÚST 2000
ÞJÓDMÁL
MM£
Útgáfufélag:
Útgáfustjóri:
Ritstjóri:
A ðstoðarritstjóri:
Framkvæmdastjóri:
Skrifstofur:
Símar:
' í
DAGSPRENT
EYJÓLFUR SVEINSSON
ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
BIRGIR GUÐMUNDSSON
MARTEINN JÓNASSON
STRANDGÖTU 31, AKUREYRI,
GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK
OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK
460 6100 OG 800 7080
Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is
Áskriftargjald m. vsk.: 1.900 kr. Á mánuði
Lausasöiuverð: 150 kr. OG 200 kr. helgarblað
Grænt númer: boo 7080
Netföng auglýsingadeildar: augl@dagur.is-gestur@ff.is
Símar auglýsingadeildar: (REYKJAVíK)563-1615 Ámundi Ámundason
(REYKJAVÍK)563-1642 Gestur Páll Reyniss.
(AKUREYRI)460-6192 Karen Grétarsdóttir.
Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161
Simbréf ritstjórnar: 460 6i7i(AKUREYRi) 551 6270 (REYKJAVÍK)
Harmleikur í hafinu
í fyrsta lagi
I dag er liðin heil vika frá því að öflug sprenging varð um borð
í kjarnorkukafbátnum Kursk í Barentshafi. Þær upplýsingar
sem nú liggja fyrir benda til að kafbáturinn hafi sokkið á svip-
stundu, en hann liggur á 108 metra dýpi. Því miður hafa rúss-
nesk yfirvöld brugðist skyldum sínum hrapalega, gefið mis-
vísandi og stundum beinlínis rangar upplýsingar um slysið og
dregið dögum saman að taka boði um alþjóðlega aðstoð við að
bjarga þeim skipverjum á Kursk sem sluppu lifandi úr spreng-
ingunni. Þótt aðstandendur haldi enn í vonina, eru líkurnar á
björgun hluta áhafnarinnar afar litlar.
í öðru lagi
Kursk er nýlegur kafbátur og átti að vera tákn um þá endur-
reisn rússneska hersins sem Vladimír Pútín, forseti, hefur
boðað. En hörmungarnar í Barentshafinu eru ekki aðeins
harmleikur fyrir skipveijana og fjölskyldur þeirra, heldur sýna
þær einnig í hnotskurn hvernig komið er fyrir hernaðarmætti
þessa fyrrum risaveldis. Jafnvel nýjustu stríðstólin bregðast og
má þá gera sér í hugarlund ömurlegt ástand hinna eldri. Talið
er að um eitt hundrað rússneskir kafbátar ryðgi nú við Kola-
skaga, og að í helmingi þeirra sé enn kjarnorkueldsneyti sem
geti reynst umhverfinu hættulegt. Hafa Rússar þó þegar sökkt
sautján kjarnakljúfum í Karahafið og nokkrir kjarnorkukafbát-
ar þeirra liggja á hafsbotni hér og þar um heiminn.
1 þriðja lagi
Margir leggja lítinn trúnað á fullyrðingar um að ekki stafi mik-
il mengunarhætta af Kursk. Þannig hefur Bellonastofnunin
norska þegar krafist þess að Kursk verði náð upp á yfirborðið
aftur. Til langt tíma litið telja sérfræðingar stofnunarinnar
verulega hættu á mengun í hafinu. Þannig gæti kjarnakljúfur
kafbátsins hreinlega spurngið og valdið alvarlegu tjóni á lífríki
Barenthafs, en þar eru sem kunnugt er mikilvæg fiskimið. Is-
lendingar hafa mikilla hagsmuna að gæta á þessu svæði og
þurfa því að þrýsta á um viðunandi lausn.
Elias Snæland Jónsson
Af Gustavsbergs
haugsugum
Garri stóð með Svíum! Og
hann hefur hugrekki til að við-
urkenna það, þó hann viti að
þessi játning á eftir að koma
honum í koll. Hundrað tal-
frelsismenn munu snimmend-
is iletta upp í G-hluta síma-
skrárinnar og síðan hringja
uppstyttulaust í Garra á öllum
tímum sólarhringsins og ausa
hann svívirðingu. Og ekki get-
ur Garri farið huldu höfði á
mannamótun, enda þekktur
einstaklingur í þjóðfélaginu og
eins vísl að á börum og pöhh-
um verði Garri barinn í spað
af þjóðhollum Is-
lendingum fyrir
meint landráð. En
Garri stendur á sinni
sannfæringu, rétt
eins og Emile Zola á
sínum tíma og að
hluta til Galileo.
Það er erfitt að vera Svíavin-
ur á Islandi. Þá stendur maður
einn og óstuddur þó hugsan-
Iega sýni Hrafn Gunnlaugsson
málstaðnum smáskilning og
Njörður P. Njarðvík bjóði
manni kannski far með lest-
inni til Lundar.
AbbaogBubbi
En Garri styður Svía gegn ls-
Iendingum á öllum sviðum og
telur sig ekki verri íslending
fyrir vikið. Garri metur sem sé
mannfólkið ekki á mælikvarða
þjóðernis, heldur gæða. Og
Svíar eru bara mildu betri en
við á öllum sviðum. Abba er til
dæmis betri en Björk og Bubbi
og Baldur og Konni. Bellmann
var miklu öflugri drykkjumað-
ur en Jónas Hallgrímsson.
Kong Karl Gústaf er kannski
ekki greindari en Ólafur Ragn-
ar, en á ýmsan hátt mildu
smartari maður. Ingmar Berg-
V
mann er miklu fyndnari
filmumakari en Friðrik Þór.
Ingrid Bermann var mun betri
leikari en Brvnjólfur Jóhann-
esson og sætari líka. Að
minnsta kosti á yngri árum.
Og Strindberg valtaði yfir
Matthías Jochumson í sápu-
óperugerð.
Þess vegna er Garri Svíavin-
ur. Svíar eru betri en við á öll-
um sviðum. Og ekki síst, þið
fyrirgefið að minnst er á það
hér, í handbolta.
Ekki Dani líka!
Vissulega unnu Is-
lendingar Svía í fót-
bolta í vikunni eftir
49 ára bið og Rikki
skoraði nú eins og
þá. En hvað er langt
síðann við höfum
unnið þá í hand-
bolta? Og söngvakeppni Evr-
ópu? Og í golfi? Og tennis? Og
borðtennis?
En þetta vilja Islendingar
auðvitað ekki rifja upp. Og af-
leiðingar j)ess að Svíar álpuð-
ust til þess að tapa fyrir Is-
lendingum í þetta eina skipti á
þessu eina sviði, fótboltanum,
verða skelfilegar hér á íslandi.
Þjóðremban á eftir að rísa upp
á afturlappirnar og við mun-
um telja okkur trú um að við
séum Svíum fremri á öllum
sviðum. Að Björk sé betri en
Abba. Að heimasmíðaðar
haugsugur séu vandaðri hrein-
Iætistæki en það besta sem
Gustavsberg hefur upp á að
bjóða í vatnssalernum. Og svo
framvegis.
Guð forði okkur frá því að
vinna Dani í fótbolta á næst-
unni. Þá fyrst verður þjóðern-
isfjandinn laus. GARRI
3 v JÓHANNES
SIGURJÓNS
\ ... SON
skrifar
Fyrir utan stjórnmálamenn verð-
ur sennilega engin starfsstétt
manna fyrir meira aðkasti en
knattspyrnudómarar. Og raunar
er hlutskipti dómara jafnvel sýnu
verra en pólítíkusa. Þannig þurfa
alþingismenn yfirleitt ekki að
eiga það á hættu þegar þeir eru
að taka sínar, oft fáránlegu
ákvarðanir í þinginu, að fá yfir
sig fúkyrðaflaum á borð við: Þú
er staurhlindur, helvítis drullu-
háleisturinn þinn! Og þingmenn
eða ráðherrar eru yfirleitt ekki
uppstyttulaust á sínum vinnu-
stað vændir um mútuþægni eða
efast um faðerni þeirra, eins og
títt er á vinnustað dómaranna,
knattspyrnuvellinum.
Ahorfendur, leikmcnn, þjálfar-
ar og fleiri ausa dómara auri,
ekki bara á vcllinum og í hita
leiksins, heldur frussa þeir for-
inni yfir [>á í Ijölmiðlunum. Og
nú jrykir knatttspyrnuforystunni
„Þetta em asnar,
Guðjón!“
nóg komið af svo góðu. Og korn-
ið sem fyllti mælinn var sú fróma
yfirlýsing fyrirliða Vals í DV að
dómarar væru asnar.
Óorð á leildim
Sjálfsagt myndu
allir dómarar
landsins fagna því
sérstaklega ef
„asnar“ væri versta
svívirðing sem yfir
þá dynur inni á
vellinum, en eins
og allir vita þó öðl-
ast orð ekki varan-
legt gildi fyrr en það er komið á
prent, þannig að asni f DV er
miklu verra skammaryrði en
staurblindur og vangefinn skít-
buxi úr munni áhorfanda. En
KSI forystan segir hingað og ekki
lengra og hefur skipað nefnd til
að stemma stigu við svívirðing-
um í garð dómara í fjölmiðlum.
Hér er að mörgu að hyggja og
nauðsynlegt að fara varlega. I
Englandi eru leikmenn sektaðír
fyrir jafnvel rökstudda gagnrýni
um félaga sina, þjálfara, eða
dómara. Og það er
líka hægt að sekta
þá fyrir það sem
Bretinn kallar:
„Bringing the
game into disrepu-
te“, sem merkir að
koma óorði á leik-
inn sjálfan. Þessi
breska leið hefur
manni ætíð fund-
ist vera skýlaust brot á mannrétt-
indum og tjáningarfrelsi einstak-
lingsins og hana þarf að varast
hér.
Asnavamarnefnd
í annan stað mega menn ekki
vanmeta skilning dómara og al-
mennings á jna' að menn láta
ýmis miður heppileg orð falla í
hita leiksins. Þess vegna auðvit-
að sitja fjölmiðlar um að ræða
við leikmenn strax að leik lokn-
um þegar enn brennur á þeim
reiðin yfir óréttlæti heimsins og
dómgæslunnar. Og þá geta dag-
farsprúðustu menn notað orð á
borð við asna, orð sem þeir
myndu aldrei taka sér í munn 1-
2 tímum seinna þegar mesti
berkserksgangurinn er runninn
af þeim.
Asnavarnarnefnd KSI verður
því að hugsa vel sinn gang áður
en hún fer að semja lög og regl-
ur um málnotkun fólboltamanna
í fjölmiðlum. Fótboltamenn
verða, eins og aðrir landsmenn,
að fá að segja sína meiningu til-
tölulega umbúðalaust, hvursu
vitlaus sem hún er. Og síðan
standa sjálfir ábyrgir orða sinna.
Það er skýlaus réttur þeirra.
rD^ftr
Hvaó ætlarþú að sjá á
menningamótt?
Tiiina Guimlaugsdóttir
leikkotm
“Eg hef nú
ekki tekið
neina ákvörð-
un um hvað ég
ætla nákvæm-
lega að gera en
ég fer örugg-
lega eitthvað
út á lífið.
Menningarnótt er æjög
skemmtilegt framtak sem lífgar
upp á götulífið hérna hjá okkur.
Mér finnst jákvætt að ýta undir
að sýndir séu listviðburðir sem
víðast um borgina og mitt fram-
lag verður eins og vonandi sem
flestra að fara af stað og sjá hvað
í boði verður."
Þórey Vilhjálmsdóttir
anrnr eigenda Eskimo Models.
„Eg ætla að
byrja nóttina
snemma og
fara og sjá
tískusýningu
TopShop og
Futurice sem
haldin verður á
Ingólfstorgi
klukkan 17. Síðan ætla ég bara
að Iáta nóttina sjálfa ráðast. Eg
býst við að fara með son minn á
röltið og við munum vafalaust
þefa uppi skemmtilega viðburði.
Eg hef hingað til verið nokkuð
virk þessa nótt og ætla að vera
það Iíka í ár. Sérstaklega bíðum
við mæðgin spennt eftir flug-
eldasýningunni."
Þröstur Emilsson
ritstjðri Reykjavtk.com
„Eg er ákveðin
í að fara í bæ-
inn með fjöl-
skylduna og sjá
hvað í hoði
verður. Ég hef
ekki skoðað
dagskrána
nægjanlega vel
til að vera búin að ákveða hvað
ég ætla að sjá nema hvað ég er
ákveðinn í að fara niður að Is-
landsbanka um klukkan átta til
að hlusta á Halldóru Geirharðs-
dóttur lesa út bankabókum
landsmanna. Síðan munum við
að sjálfsögðu ekki missa af flug-
eldasýningunni. Ætli maður
skrölti síðan ekki bara snemma
heim enda að verða gamall mað-
ur rneð börn í eftirdragi."
Jónína Benediktsdóttir
eigandi Planet keðjunar.
“Ætli ég
j>vælist ekki
eitthvað um
borgina. Eg
hef aldrei áður
verið í bænum
á menning-
arnótt og er
því mjög
spennt. Það sem meira er þá eru
börnin mín líka spennt og ]>að
eru meðmæli með nóttinni. Ætli
við föruni ekki á Borgina að sjá
Helga Björns og Berg|>ór Páls
syngja og svo er það flugeldasýn-
ingin sem er víst sú stærsta og
flottasta."