Dagur - 19.08.2000, Side 11
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Al Gore hreif flokksfélaga sína í fyrrakvöld, en repúblíkanar tæta í sig ræöuna hans.
Næst verða það
sj ónvarpsemvígm
Eftir ræðn Als Gore á
landsþingi demókrata
er beðið eftir næstu
sko ð aiiíiköiimmum,
og síðan taka við
sj ónvarpseinvígin.
Bæði demókratar og repúblikan-
ar í Bandaríkjunum bíða nú
spenntir eftir áreiðanlegum
skoðanakönnunum á fylgi for-
setaframbjóðandanna. Fyrstu
skoðanakannanir eftir að báðir
frambjóðendur, þeir George W.
Bush og A1 Gore, hafa flutt
stefnuræður sínar á landsþing-
um flokkanna, teljast ekki gefa
mjög áreiðanlega mynd af stöð-
unni. Þó virðast flestir vera á því
að nokkuð hafi dregið saman
með þeim í fylgi.
I gær sagðist George W. Bush
vilja mæta A1 Gore í þremur
sjónvarpseinvígum áður en for-
setakosningarnar verða haldnar
þann 7. nóvember næstkom-
andi. Gore hefur fallist á það.
Sömuleiðis er von á því að vara-
forsetaefni þeirra, þeir Dick
Cheney og Joseph Lieberman,
hittist tvisvar í sjónvarpi til þess
að ræða málin.
Gore flutti stefnuræðu sína á
landsfundi Demókrataflokksins
á fimmtudagskvöld, og sló svo
sannarlega í gegn meðal flokks-
bræðra sinna. Honum þótti
takast vel upp við að gefa kjós-
endum dálítið aðra mynd af
sjálfum sér, þar sem hann verður
í aðalhlutverki í stað þess að vera
maður númer tvö á eftir Bill
Clinton forseta.
Hann byrjaði á því að þakka
íjölskyldu sinni og vinum, og Iof-
aði störf Clintons forseta en
bætti því síðan við að nú væri
nýr kafli að hefjast. „Þessar
kosningar eru ekki verðlaun fyrir
fyrri frammistöðu," sagði hann
og hann vildi ekki láta kjósa sig
vegna þess hve efnahagsástandið
væri gott.“
Gore minntist heldur aldrei á
mótframbjóðanda sinn, Bush,
en gat þó ekki stillt sig um að
skjóta aðeins á flokkinn.
Repúblikanar voru hins vegar
snöggir upp á lagið að tæta ræðu
Gores í sig. Frá kosningaskrif-
stofu Bush bárust þau boð að í
ræðunni væri „meira af klisjum
en sannfæringu'*.
Aberandi er hve mikill munur
er á stíl forsetaframbjóðendanna
tveggja. Bush fór mikinn í ræðu
sinni, og lagði m.a. áherslu á að
koma persónutöfrum sínum til
skila að hætti flestra þeirra sem
setið hafa á forsetastóli í Banda-
ríkjunum undanfarið. Gore hef-
ur hins vegar þótt þumbaralegur
og með frekar lítinn skammt af
persónutöfrum, en reyndi í engu
að draga úr því. Þvert á móti við-
urkenndi hann galla sína, en
forðaðist annars að leggja of
mikla áherslu á sjálfan sig og
einbeitti sér þess í stað að því að
tala um þau málefni sem hann
ætlar að leggja áherslu á í for-
setastarfinu, nái hann kjöri.
Þeir Gore og Bush höfðu líka
ólíkan hátt á því að semja ræður
sínar. Bush lét sérstaka ræðu-
skrifara að mestu unt verkið, en
snurfusaði síðan ræðu þeirra til
og bætti inn í persónulegum at-
hugasemdum. Gore skrifaði hins
vegar sjálfur niður allt það sem
hann vildi hafa í ræðunni, en lét
síðan ræðuskrifarana um að laga
textann til, stytta og bæta.
Var aldrei mikil von
MURMANSK - Vladimir Putin forseti
Rússlands sagði slegnum almenningi í
Rússlandi í gær að það hafi frá upphafi ver-
ið afar lítil von um að hægt væri bjarga
mönnunumll8 sem sukku til botns á
Barentshafi með kafbátnum Kursk. Putin
sagði í gær þar sem hann var staddur f
sumarhúsinu við Yalta að hann hefði spurt
varnarmálaráðherrann Igor Sergeyev að því
hverjar líkurnar væru á björgun mannanna
strax og hann frétti af því að báturinn hefði
sokkið. „Svarið var: „Það eru sáralitlar lík-
ur á björgun, en þó ekki alveg útilokað,““
sagði Putin. Hins vegar sagði forsetinn
klárt að engin hætta væri á því að geilsavirk
efni Iækju út úr bátnum. Putin varði líka þá ákvörðun sína að halda
áfram í sumarfríi þrátt fyrir að þetta neyðarástand hafi brostið á.
„Auðvitað var það mér ofarlega í huga að fljúga á staðinn og vera
þarna til staðar," sagði hann sorgmæddur á svip. En hann fór hins
vegar ekki, eins og pressan hefur verið dugleg að benda á.
Ross reynir enn
JERUSALEM - Dennis Ross, sérlegur full-
trúi Bandaríkjaforseta í austurlöndum nær
sagði í gær að enn væri of snemmt að gefa
út yfirlýsingar um hvort flötur væri á að
koma friðarviðræðum í gang á ný eftir að
viðræður Ieiðtoganna sigldu í strand í
Camp David á dögunum. Ross var varkár í
yfirlýsingum í gær og sagði einungis að enn
væru erfiðleikar sem menn yrðu að yfir-
stíga. Hann hitti Moshe Katzav forseta
Israels í Jerúsalem í gær á öðrum degi ferð-
ar sinnar sem farin er til að reyna að snúa
í gang friðarviðræðurnar.
Herþota ferst á flugsýningu
LONDON - Tveggja sæta tékkneskherþota hrapaði í sjóinn suðaust-
ur af Englandi í gær J>egar hún var að sýna listir sínar á flugsýning-
unni í Eastbourne. I gær hafði lík sem talið er vera af flugmannin-
um fundist. Hér var um að ræða L39 herþotu tékkneska flughersins
og fór hún í sjóinn rétt utan við þar sem heitir Austur Sussex. Flug-
maðurin hvar einn um borð. Talsmaður lögreglunnar sagði að lík
hefði fundist en Rugvélin hefði sokkið. „Þúsundir voru að horfa á
sýninguna en enginn áhorfenda meiddist við þetta slys,“ sagði tals-
maðurinn ennfremur. Hætt var við flugsýninguna eftir að slysið
varð.
MiMll viðskiptahalli
WASHINGTON - Viðskiptahallinn er víðar vandamál en á íslandi en
í gær voru birtar tölur um viðskiptahallann í Bandaríkjunum. Nýtt
met var slegið í júní en hallinn nemur 30.62 milljörðum Bandaríkja-
dala. Þetta gerist á sama tíma og hækkandi olíuverð vegur upp á
móti hagnaði Bandaríkjamanna af auknum viðskiptum við Kína og
Kanada, sem nú munu hafa orðið meiri en nokkru sinni fyrr.
FRÁ DEGI TIL DAGS
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST
232. dagur ársins, 134 dagar eftir.
Sólris kl. 5.32, sólarlag ld. 21.29.
Þau fæddust 19. ágúst
• 1826 Helgi Hálfdánarson sálmaskáld.
• 1871 Orville Wright, annar Wright-
bræðra sem bjuggu til fyrstu flugvélina
sem virkaði nokkurn veginn sem skyldi.
• 1914 Baldur Möller ráðuneytisstjóri.
• 1940 Ginger Baker, trommuleikari.
• 1943 Þór Whitehead sagnfræðingur.
• 1947 William Jefferson Clinton, forseti
Bandarfkjanna.
Þetta gerðist 19. ágúst
• 1561 tók Marfa við krúnu Skotlands.
• 1871 stofnuöu alþingismenn Hið ís-
lenska þjóðvinafélag.
• 1934 var samþykkt í þjóðaratkvæða-
greiðslu í Þýskalandi að Adolf Hitler
lengi öll framkvæmdavöld í hendur.
• 1960 dæmdi dómstóll í Moskvu banda-
rískan flugmann, Francis Gary Powers,
sekan um njósnir.
• 1964 var Bítlamyndin A Hard Days
Night frumsýnd í Tónabíói í Reykjavík,
en hún sló öll sýningarmet.
• 1993 kom Shimon Peres utanríkisráð-
herra ísraels í opinbera heimsókn til Is-
lands.
Vísa dagsins
Fyrst vér sjáurn sannletkann,
er sárt vér þráum,
þegar losna líkamsböndin,
lyftir sér til himins öndin.
Valilimar Ásmundsson og Guðmundur
Guðmundsson (úr Alþingisrímum)
Afmælisbam dagsins
Tipper Gorc gæti orðið næsta rorsetafrú
Bandaríkjanna, eftir að hafa verið vara-
forsetafrú í átta ár. Frú Gore er 52 ára f
dag, og fær því að vera afmælisbarn
dagsins. Hún ólst upp í bænum Arl-
ington í Virginíuríki, og hét upphaflega
Mary Elizabeth Aitcheson. Það var
móðir hennar, sem gaf henni gælunafn-
ið Tipper. Hún er með M.A.-próf í sál-
fræði, en starfaði sem ljósmyndari á
dagblaði þangað til eiginmaður hennar,
A1 Gore, var kosinn á bandaríska þingið
árið 1976.
Þegar við minnumst þess að við erum öll
vitskert, þá hverfa allar ráðgátur og lífið
blasir við okkur útskýrt að fullu.
Mark Tvvain
Heflabrot
I venjulegum spilastokk eru gosarnir þan-
nig að á tveimur þeirra sjást bæði augun.
en aðeins annað augað sést á hinum gos-
unum tveimur. Hve mörg augu sjást þá
samtals á gosaspilunum fjórum?
Lausn á síðustu gátu: Hann Þórður get-
ur hyrjað á því að kveikja á einum rofanum,
beðið síðan í góða stund, slökkt svo á þeim
rofa en kveikt á öðrum í staðinn. Sfðan þarf
hann að drífa sig niður f kjallaraherbergið.
Ef kveikt er á perunni þegar hann kemur
niður, þá er rétti rofinn fundinn. Ef peran
er heit, þá er rétti rofinn sá sem hann
kveikti á fyrst. En ef hvorki er kveikt á per-
unni né hún heit, þá er þriðji rofinn sá
rétti.
Veffang dagsins
Ágæta ensk-pýska og þvsk-enska orðabók
er að linna á http://dict.leo.org/