Dagur - 22.08.2000, Blaðsíða 9
ÞRIÐJVDAGVR 22. ÁGÚST 2000 - 9
Andy Cole skorar fyrir Manchester United gegn Newcastle á sunnudaginn.
Utlendingamir
stálu senunni
Um helgina var flautað
til leiks í ensku úrvals-
deildinni og var fátt
um óvænt úrslit. Liðin
sem spáð hefur verið
hestu gengi í deildinni
í vetur unnu öll sína
leiki, nema Arseanl,
semtapaði O-lgegn
Sunderland. Erlendir
leikmenn voru mjög
áberandi í leikjum
umferðarinnar.
Það má segja að erlendu leik-
mennirnir í ensku úrvalsdeildinni
hafi stolið senunni í 1. umferð
deildarinnar sem fram fór um
helgina. Þeir komu mikið við
sögu í flestum leikjum og sönn-
uðu sig svo um munar sem hinar
nýju stjörnur enska boltans.
Þar fóru fremstir í flokki Króat-
inn Mario Stanic og Hollending-
urinn Jimmy Floyd Hasselhaink
sem báðir leika með Chelsea, en
þeir skoruðu auk Italans Gian-
franco Zola mörk Lundúnaliðsins
í 4-2 sigri þess gegn West Ham á
Stamford Bridge á laugardaginn.
Milljónamaðurin, Hasselbaink,
kom útiendingaherdeild Chelsea
á bragðið á 31. mínútu úr víta-
spyrnu og var það eina mark fyrri
hálfleiksins. ítalinn Paolo di
Canio jafnaði síðan fyrir West
Ham rétt eftir leikhlé, áður en
þeir Zola og Stanic, með tvö
mörk, komu Chelsea í 4-1. Það
var síðan enn einn útlendingur-
inn, Frakkinn Frederic Kanoute,
sem minnkaði muninn í 4-2 fyrir
West Ham á 85. mínútu.
Boksic skoraðitvö
A Highfield Road í Coventry, var
það Króatinn Alen Boksic, fyrrum
framhcrji Lazio, sem skoraði tvis-
var fyrir Middlesbrough í 1-3 sigri
gegn Coventry. Kamerúninn Jos-
eph Desire Job kom Boro yfir í 0-
1 á 20. mínútu, áður en John
Eustace jafnaði fyrir Coventry á
41. mínútu. Boksic bætti síðan
við tveimur mörkum á fjögurra
mínútna kafli í seinni hálfleik á
59. og 62 mínútu og tryggði Boro
sigurinn. Frakkinn Christan
Karembeu þótti spila vel lýrir
Boro í sínum íýrsta deildarleik
með liðinu síðan hann var keypt-
ur frá Real Madricl í sumar.
Metaðsókn á Old Trafford
Englandsmeistarar Manchester
United byrjuðu titilvörn sína í
ensku úrvalsdeildinni á sunnu-
daginn með 2-0 heimasigri á
Nescastle United. Metaðsókn var
á leikinn og voru 67477 áhorf-
endur mættir á Old Trafford.
Norðmaðurinn Ronny Johnsen
skoraði fýrra mark United með
skalla á 21. mínútu, en Andy Cole
það seinna á 70. mínútu. United
var betra liðið í leiknum þrátt fyr-
ir góða byrjun Newcastle og geta
gestirnir þakkað markverði sín-
um, Shay Given, að mörkin urðu
ekki fleiri, en hann hann varði oft
vel.
Dwight Yorke, nýkominn frá
þátttöku í Iandsleikjum með
Trinidad og Tóbago, þurfti að
verma varamannabekkinn hjá
United í leiknum og kom það í
hlut Teddy Sheringhams að spila
í fremstu víglínu með Cole. Fyrir-
liðinn Roy Keane var í byrjunar-
liði United þrátt fyrir meiðsli, en
Denis Irwin gat ekki leikið vegna
meiðsla sem hann hlaut í ágóða-
leiknum gegn Manchester City á
dögunum og leysti Phil Neville
hann af.
Barthez byrjar vel
Newcastle byrjaði leikinn með
miklum látum og virtust leik-
menn liðsins ætla að hafa í fullu
tré við meistarana. Bobby Rob-
son, stillti upp nýju mönnunum
Carl Cort og Daniel Cordone, en
enski landsliðsmaðurinn Kieron
Dyer var öllum til mikillar furðu
ekki í byrjunarliðinu, cn kom inn
á í byrjun seinni hálfleiks. Alan
Shearer náði góðu skoti strax á
þriðju mínútu, sem Jaap Stam
blokkeraði skotið og nokkru síðar
varði Fabien Barthez gott skot frá
Cordone. Bartez var enn á ferð-
inni á 15. nu'nútu þegar hann
varði glæsilega frá Rob Lee af
löngu færi.
Vörn Newcastle með þá Nikos
Dabizas, Marcelino og Alair.
Goma í aðalhlutverkum virkaði
sannfærandi í upphafi leiks, en
gaf svo eftir þegar leið á hállleik-
inn og við það komust leikmenn
United meira inn í leikinn.
Ferguson hælir Bartliez
Sir Alex Ferguson, stjóri
Manchester United, hældi nýjum
markverði liðsins, Fabien
Barthez, mjög eftir leikinn og
sagði að hann væri síst minni
„karakter" en Peter Schmeichel.
„Það besta við Bartez er að hann
kemur til okkar eftir glæsilegan
feril og með mikla reynslu. Hann
hefur leikið til úrslita í stærstu
keppnunum eins HM og EM og
hefur einnig leikið í úrslitum Evr-
ópubikars félagsliða með
Marseille. Hann hefur líka unnið
til fimm meistaratitla í Frakk-
landi. Þar fyrir utan er hann dá-
samlegur „karakter" eitthvað í lík-
ingu við Peter Schmeichel. Hann
er í einu orði sagt frábær leikmað-
ur sem á örugglega eftir að reyn-
ast okkur vel. Það sýndi hann
strax í fýrsta leik og hann minnti
mig oft á Schmeichel, sérstaklega
þcgar hann var að hirða fyrirgjaf-
irnar,“ sagði Ferguson.
Að sögn Bartez sjálfs hefur
hann strax fundið sig vel í enska
boltanum. „Enski boltinn hefur
engu breytt um minn eigin stíl og
mun ekki gera það,“ sagði Bartez,
sem sýndi það strax í fyrsta deild-
arleik að það er hann sem ræður í
teignum. Hann hundskammaði
sina eigin varnarmenn fyrir
minnstu mistök, sérstaklega í lok
leiksins þegar leikmenn
Newcastle voru nálægt því að
skora.
Úrslit leihja:
Man Utd - Newcastle 2-0
Johnsen (21), Cole (70) Áhorfendur:
67477
Derby - Southampton 2-2
Strupar (32), Burton (49) - Kachloul
(15 og 22) Áhorfendur: 27223
Sunderland - Arsenal 1-0
Quinn (53) Áhorfendur: 46347 -
Rautt: Vieira (90)
Tottenham - Ipswich 3-1
Anderton (30 víti), Carr (31), Ferdin-
and (82) - Venus (9) Áhorfendur:
36148
Chelsea - West Ham 4-2
Hasselbaink (31 víti), Zola (59), Stan-
ic (78 og 90) - Canio (48), Kanoute
85 Áhorfendur: 34914
Charlton - Man City 4-0
Hunt (10), Robinson (42,) Kinsella
(72,) Stuart (80 víti)Áhorfendur:
20043
Leeds - Everton 2-0
Smith (16 og 37) Áhorfendur: 40010
Coventry - Middlesbrough 1-3
Eustace (41) - Job (20), Boksic ()
Áhorfendur 20624 - Rautt: Thomp-
son (71)
Livcrpool - Bradford 1 -0
Hcskey (67) Áhorfendur: 44183
Leicester - Aston Villa 0-0
Áhorfendur: 21455
Metþátttaka í
maraþoninu
Um 2900 manns voru mættir í
miðborg Reykjavíkur á laugar-
daginn til að taka þátt í árlegu
Reykjavíkurmaraþoni sem nú var
haldið í sautjánda sinn. Það er
mun meiri fjöldi en þátt tók í
hlaupinu í fyrra og hefur þátttak-
an í heilu og hálfu maraþoni til
dæmis aldrei verið meiri, eða um
560 manns. Þar af tóku um 220
manns þátt í heilu maraþoni,
sem er metþáttaka.
Hlaupið fór fram við bestu að-
stæður, enda fádæma veðurblíða
í höfuðborginni. Engin brautar-
met voru þó slegin, en margir að
ná sínu besta árangri.
Fyrstur í mark í heilu mara-
þoni karla varð Bretinn Charles
Hubbard á 2:34,42 klst., en
hann tók nú þátt í Reykjavíkur-
maraþoni í fyrsta sinn. Fyrstur
íslensku þátttakendanna í heilu
maraþoni og þar með Islands-
Heilt maraþon
Konur 18-39 ára
1. Samia Quershi, Bretl. 3:10,12
2. Jackie Bale, Bretl. 3:20,37
3. Ruby Bode, Bandar. 3:26,25
4. Erla Gunnarsdóttir 3:29,17
7. Helga B. Ólafsdóttir 3:56,31
14. Haila G. Pálsdóttir 4:13,17
Konur 40-49 ára
1. Gunnur 1. Einarsdóttir 3:40,26
2. Daniela Lazzaro, ítal. 3:41,01
3. Ria Tijskens, Belg. 3:41,53
4. Aðalbjörg Hafsteinsdóttir 3:47,17
5. Sif Jónsdóttir 4:08,46
Konur 50 ára og eldri
1. Vera Voget, Þýskal. 4:04,23
2. Dawn Brown, Bandar. 4:14,03
3. Rosemary Fajen, Bandar. 4:45,41
Karlar 18-39 ára
1. Charles Hubbard, Bandar. 2:34,12
2. Pekka Honkanen, Finnl. 2:41,14
3. Lárus Thorlacíus 2:48,33
5. Ingólfur G. Gissurarson 2:51,35
10. Hrólfur Þórarinsson 3:08,42
Karlar 40-49 ára
1. Terence Knightley, Bretl. 2:46,02
2. Sigurður P. Sigmundssin 2:55,34
3. Frederic Martinez, Frakkl. 3:00,37
7. Pétur H. Helgason 3:04,16
9. Trausti Valdimarsson 3:08,49
Karlar 50-59 ára
1. Andreas Mazzocchi, ítal. 2:56,59
2. Guy Vallet, Frakkl. 3:12,13
3. Svanur Bragason 3:22,42
9. Davíð H. Haraldsson 3:34,18
11. Ólafur K. Pálsson 3:41,40
Karlar 60 ára og eldri
1. Otello Pieri, Ital. 3:26,07
2. Jurriaan de Bruin, Holl. 3:52,25
3. Lothar Deiters, Þýskal. 3:54,09
4. Ingólfur Sveinsson 3:57,01
6. Stefán Briem 4:11,00
10. Jón G. Guðlaugsson 4:54,03
Hálft maraþon
Konur 18-38 ára
1. Una H. Valtýsdóttir, 1:29,42
2. lngibjörg Kjartansdóttir, 1:34,50
3. Rannveig Oddsdóttir, ísl. 1:39,05
Konur 40-49 ára
1. Helga Björnsdóttir 1:32,08
2. Hildur Ríkarðsdóttir 1:41,10
3. Valgerður E. Jónsdóttir 1:41,20
Konur 50 ára og eldri
1. Margrét Jónsdóttir 1:57,35
2. Ágústa G. Sigfúsdóttir 2:02,02
3. Svava K, Valfells 2:02,55
Karlar 18-39 ára
1. Paul Freary, Bretl. 1:11,16
2. Daníel S. Guðmundsson 1:14,12
3. Ólafur Th. Árnason 1:17,27
5. Bjartmar Birgisson 1:19,54
Karlar 40-49 ára
1. Guðmann Elísson 1:20,04
2. Örnólfur Oddsson 1:20,46
3. Daði Garðarsson 1:24,19
Karlar 50-59 ára
1. Edward Hoffman, Bandar. 1:30,11
2. Birgir Sveinsson, 1:3032
3. Richard Hale, Bretl. 1:30,39
4. Ómar Kristjánsson, 1 ;34,08
5. Sigurður K. Jóhannsson 1:34,44
meistari í
greininni,
varð Lárus
Thorlacíus á
2:48,22 klst,
en hann kom
fjórði í mark.
I kvenna-
flokki sigraði
Samia Quers-
hi frá Bret-
landi, en hún
hljóp á
3:10,12 klst.
Islandsmeist-
ari í heilu
maraþoni kvenna varð Erla
Gunnarsdóttir á 3:29,17 og kom
hún fjórða í mark.
Hér að neðan sjáum við verð-
Iaunahafana í Reykjavíkurmara-
þoni eftir greinum og flokkum og
einnig þrjá fyrstu íslensku kepp-
endurna í hverri grein.
Karlar 60 ára og eldri
1. Peter Rasching, Þýskal. 1:50,27
2. Júrgen Pruschwitz, Þýskal. 1.55,48
3. Berghr. G. Þorsteinsson 1:56,07
4. Haukur Sigurðsson 1:57,15
5. Magnús Bjarnason 2:03,35
10 km hlaup
Konur 14 ára og vngri
1. Helga K. harðardóttir 51:30
2. Jóhanna M. Pálsdóttir 54:02
3. Kristín Gunnarsdóttir 54:45
Konur 15-17 ára
1. Rakel Ingólfsdóttir 41:54
2. María B. Ginnarsdóttir 44:44
3. Líney H. Kristinsdóttir 53:06
Konur 18-39 ára
1. Fríða R. Þórðardóttir 37:42
2. Gerður R. Guðlaugsdóttir 39:50
3. Jóhanna Skúladóttir 42:09
Konur 40-49 ára
1. Anna Jeeves 40:44
2. Hjördís Magnúsdóttir 51:04
3. Guðrún M. Runólfsdóttir 51:08
4. Guðrún Geirsdóttir 51:58
Konur 50-59 ára
1. Elín Hjaltadóttir 49:46
2. Ursula Junemann 55:10
3. Þórhildur Sigurðardóttir 55:26
4. Guðrún Sverrisdóttir
55:43
Konur 60 ára op eldri
1. Emilía S. Emilsdóttir 59:05
2. Birgitte Dressel, Þýskal. 60:08
Karlar 14 ára og vngri
1. Kári S. Karlsson 39:30
2. Haukur Lárusson 44:04
3. Sigurður L. Stefánsson 46:14
Karlar 15 til 17 ára
1. Valur Sigurðarson 43:47
2. Gunnar Eyþórsson 43:56
3. Garðar Stefánsson 45:22
Karlar 18 til 39 ára
1. Sveinn Margeirsson 33:04
2. Burkni Helgason 33:47
3. Gauti Jóhannesson 35:30
Karlar 40 til 49 ára
1. Sigurjón Sigurbjörnsson 37:39
2. Jón Jóhannesson 38:22
3. Sighvatur Dýri Guðmundsson 39:51
Karlar 50 til 59 ára
1. Jóhannes Guðjónsson 38:59
2. Stefán Hallgrímsson 43:42
3. Magnús Dan Bárðarson 44:14
Karlar 60 ára og eldri
1. Eysteinn Þorvaldsson 49:02
2. Werner Eckert, Þýskal. 50:24
3. Unnsteinn Jóhannsson 50:26
4. Svanbjörn Sigurðsson 51:20
10 km Iínuskautar
Konur
1. Helga Björk Árnadóttir 28:24
2. Inga Margrét Friðriksdóttir 29:05
3. Erika Stefanía Pétursdóttir 30:47
Karlar
1. Steinn Sigurðsson 22:30
2. Helgi Páll Þórisson 23:41
3. Orri Pétursson 23:46
Lárus Thorlacíus,
íslandsmeistari í
heilu maraþoni
karla, kemur í
mark.