Dagur - 22.08.2000, Síða 11
ÞRIDJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
L
Fylgi Gore eykst
eftír flokksþmgið
Al Gore og Lieberman varaforsetaefni hans fagna á flokksþingi demó-
krata í Los Angeles.
Gore hefur imnið upp
forskot Bush í skoð-
anakönuunum með
frammistöðu simii á
flokksþingiuu.
A1 Gore, forsetaframbjóðandi
demókrata í Bandaríkjunum,
náði mjög að styrkja stöðu sína á
flokksþinginu sem útnefndi
hann fyrir helgina og mælist nú
meira fylgi en helsti keppinaut-
urinn, George W. Bush, fram-
bjóðandi repúblíkana - en Bush
hafði fyrir flokksþingið verulegt
forskot á Gore.
Tímaritið Newsweek hefur
birt könnun um afstöðu skráðra
kjósenda í Bandaríkjunum og
samkvæmt henni nýtur Gore nú
48% stuðnings en einungis 42%
styðja Bush. Neytendafrömuð-
urinn Ralph Nader, sem er for-
setaframbjóðandi græningja,
hefur 3% fýlgi í könnuninni, en
Pat Buchanan, frambjóðandi
hins hægrisinnaða Umbóta-
flokks, fékk 1% f könnun blaðs-
ins.
Gallup og CNN-sjónvarps-
stöðin hafa líka birt nýja könn-
un, en þar voru líklegir kjósend-
ur spurðir. Þar var Gore einnig
með meira fylgi en Bush, þótt
aðeins munaði einu prósentu-
stigi. Gore var með 47% en Bush
46%, Nader 3% og Buchanan
2% íýlgi.
Þótt almennt hafi verið búist
við fylgisaukningu frambjóðanda
demókrata í kjölfar flokksþings-
ins, þá er þessi niðurstaða veru-
leg lyftistöng fyrir Gore. Hans
bíður nú það erfiða verkefni að
halda þessu forskoti og styrkja
það - því eins og kosnsingastjóri
hans benti á eru það einungis
tölurnar sem koma upp úr kjör-
kössunum 7. nóvember næst-
komandi sem skipta máli.
Næstu vikurnar munu fram-
bjóðendur beggja stóru flokkana,
Gore og Bush, ferðast mikið um
þau ríki Bandaríkjanna þar sem
úrslit eru tvísýn. Þegar nær dreg-
ur kjördegi munu þeir eigast við
í kappræðum f sjónvarpi, og er
talið að frammistaða þeirra þar
geti ráðið miklu um hvor þeirra
fer með sigur af hólmi í nóvem-
ber. FuIItrúar þeirra eru nú að
semja nánar um fyrirkomulag og
tímasetningu kappræðnanna.
„Hjálpin“ eykur
skuldabyrði
Áætlanir alþjóðasamfélagsins
um að fella niður erlendar skuld-
ir sumra fátækustu ríkja heims
hafa í för með sér að sumar þjóð-
irnar verða að borga tugi millj-
óna dollara meira til skulda-
nauta sinna á Vesturlöndum.
Þetta fullyrða bresku hjálpar-
samtökin Oxfam.
Talsmaður samtakanna sagði
að ekki væri hægt að kalla þá
áætlun um niðurfellingu skulda,
sem Alþjóðabankinn og Alþjóða
gjaldeyrissjóðurinn hafa lagt fyr-
ir stjórnvöld í Zambíu, annað en
„svindl.“ Hann vitnaði til
leyniskjala frá Alþjóða gjaldeyris-
sjóðnum sem samtökin höfðu
komist yfir, en þau sýni að þótt
þetta fátæka ríki verði eitt þeirra
sem fái niðurfellingu erlendra
skulda muni vaxtagreiðslur
landsins hækka verulega á
næstu árum, og það vegna
skuldar við sjóðinn sjálfan.
Efnahagur Zambíu er mjög illa
farinn og lífskjör fara þar stöðugt
versnandi. Þannig minnka
lífslíkur íbúanna ár frá ári, enda
þjást sífellt fleiri böm þar af
vannæringu. Skuldabyrðin er
slík að á næstu árum ætti þjóðin
að greiða tvöfalt meira til vest-
rænna skuldunauta en fer til
heilbrigðisþjónustunnar.
Þótt margir mánuðir séu síðan
Ieiðtogar ríkustu þjóða heims
lofuðu hinum fátækustu niður-
fellingu skulda, hafa ríku þjóð-
irnar ekki enn náð samkomulagi
um framkvæmdina.
Debbie í Kaxabíska hafinu
MIAMI - I gær var gefin út alvarleg stormviðvörun fyrir margar eyj-
anna í norðausturhluta Karabíska hafsins vegna þess að hvirfilbylur-
inn Debbie stefndi þangað.Viðvörunin náði til hollensku svæðanna í
kringum St. Maarten og einnig til samveldissvæðanna á Puerto Rico
og Jómfrúreyjum.
Ahöfn Kuxsk talin af
MURMANSK - Norskir
embættismenn gáfu í gær
út formlega yfirlýsingu um
það að enginn úr áhöfn
rússneska kafbátsins Kursk
væri á lífi, níu dögum eftir
að slysið varð. Norskir kaf-
arar sem unnu við björgun-
arstörf komust að því að
sjór hafði flætt inn í bátinn.
„Við höfum komist að því
að allur kafbáturinn er full-
ur af vatni,“ sagði talsmað-
ur norska hersins, John
Espen Lien, í samtali við
norska ríkisútvarpið í gær.
Þá höfðu kafarar farið inn í
bátinn og rannsakað hann.
„Við teljum engar líkur á að
einhver finnist á lífi,“ bætti
Lien við. Yfirmaður Norð-
urflota rússneska hersins, Mikhail Motsak staðfesti einnig í gær yfir-
lýsingar Norðmannanna um að enginn hefði komist af. „ Níunda
hólfið í bátnum er líka fullt af vatni og við teljum okkur geta séð, eft-
ír að hafa opnað neyðarlúguna, að það er ótvírætt að áhöfnin sem þar
starfaði hefur farist. Það er mín persónulega skoðun að sömu örlög
hafi beðið þeirra áhafnarmeðlima sem störfuðu í öðrum hlutum
bátsins," sagði Motsak. Lúgan sem um er að ræða er innri öryggis-
lúga kafbátsins og þegar hún var opnuð kom í ljós að báturinn var
fullur af vatni. Kafbáturinn liggur á 108 metra dýpi á botni Barents-
hafsins.
Nýtt pax eða baxa vinix?
LONDON - „Islandsvinurinn' og hjartaknúsarinn Robbie Williams
lýsti því yfir í gær að hann gæti aldrei orðið annað en vinur Geri Hall-
iwell, fyrrum kryddpíu, jafnvel þótt hún væri bæði „kynæsandi“ og
„fögur“. Síðdegisblöðin í Bretlandi hafa birt myndir af þeim skötu-
hjúum þar sem þau eru í sólarfríi í Suður Frakklandi og þar með
komið af stað mildum vangaveltum um hvort þau eigi í ástarsam-
bandi. „Þetta er allt mjög erfitt vegna þess að hún er fögur, frábær
persónuleiki, og kynæsandi, en hún er samt aðeins félagi minn,“
sagði Williams í viðtali við Radio Times. „Við höfum ekki sofið sam-
an eða verið að kyssast. Hún er góð stúlka sem ég get ekki verið að
spila með. Svoleiðis hluti hef ég reynt í fortíðinni en nú vil ég full-
orðnast," sagði þessi vinsæli söngvari ennfremur í viðtalinu. I fyrra
átti Halliwell í stuttu en vel kynntu ástarsambandi við breska sjón-
varpsmanninn Chris Evans en Williams var síðast orðaður við ástar-
samband með Nicole Appelton úr hljómsveitinni All-Saints. I fyrr-
nefndu viðtali sagði Williams að þau Halliwell hefðu vissulega farið
saman í frí, en þau svæfu þó hvort í sínu herberginu.
Móðir eins skipverjanna á Kursk fær frétt-
irnar um að kafbáturinn sé fullur af vatni.
■ FRÁ DEGI TIL DflGS
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST
235. dagur ársins, 131 dagur eftir.
Sólris kl. 5.41, sólarlag kl. 21.18.
Þau fæddust 22. ágúst
• 1862 Claude Debussy, franskt tónskáld.
• 1902 Leni Riefenstahl, þýsk kvikmynda-
gerðakona, frægust fyrir heimildar-
myndir sem lofsungu Hitler og nasista-
hreyfinguna.
• 1904 Deng Xiaoping, leiðtogi Kína frá
því seint á áttunda áratug aldarinnar og
til dauðadags árið 1997.
• 1908 Henri Cartier-Bresson, franskur
ljósmyndari.
• 1917 John Lee Hooker, bandarískur
blústónlistarmaður.
• 1920 Ray Bradbury, bandarískur rithöf-
undur.
• 1934 Norman E. Schwarzkopf, banda-
rískur hershöfðingi.
• 1949 Þórarinn Eldjárn skáld.
Þetta gexðist 22. ágúst
• 1485 féllRíkarður þriðji Englandskon-
ungur í orrustu og lauk þar með Rósa-
stríðunum svonefndu.
• 1809 var Jörundur hundadagakonungur
hrakinn frá völdum.
• 1846 innlimuðu Bandaríkin Mexíkó.
• 1864 voru alþjóðasamtök Rauða kross-
ins stofnuð í Genf.
• 1922 var írski byltingarmaðurinn Mich-
ael Collins myrtur.
• 1943 rak um 800 marsvín á land við Bú-
landshöfða á Snæfellsnesi.
Vísa dagsins
Fyrir vestan fjöll og höf
fullkomnað er skeiðið;
systur minni’ er grafin gröf
gleymist brdðum leiðið.
Páll Ólafsson.
Afmælisbaxn dagsins
Þýska tónskáldið Karlheinz Stock-
hausen fæddist f Iitlu bæjarfélagi sem
heitir Mödrath, nálægt Köln, þann 22.
ágúst árið 1922. Hann lærði píanóleik í
Köln og lagði einnig stund á tónlistar-
fræði og heimspeki við háskólann f
sömu borg. Fyrstu tónverkin eftir hann
litu dagsins Ijós árið 1950, og tók hann
sjálfur þátt í flutningi þeirra. Tónlist
hans þótti afar frammúrstefnukennd og
hefur verið mörgum tónskáldum og
tónlistarmönnum innblástur, sem hafa
viljað gera tilraunir og fara óhefð-
bundnar leiðir í tónsköpun.
í óbyggðunum er varðveisla heimsins.
Henry David Thoreau
Heilabxot
Spurt er um sjö félaga, sem standa saman f
röð. Sá fyrsti er í sál, en ekki í anda. Annar
er í afa, en ekki í ömmu. Sá þriðji er í laxi,
en ekki silungi. Fjórði er í leyni, en ekki í
felum. Sá fimmti er í nefi, en ekki eyrum.
Sá sjötti er f sveit, en ekki borg. Sá síðast.
er í súrkáli, en ekki rauðkáli. Saman mymda
þeir nafn á þekktum rithöfundi.
Lausn á síðustu gátu: Augun sem sjást
hljóta að vera tólf, því það eru tveir gosar ;
hverju spilakorti.
Veffang dagsins
Flestir lenda einhvern tímann í því að
þurfa að binda hnúta, sem verða að geta
haldið. Þeir sem kunna það ekki, geta leit-
að sér fróðleiks á vefsíðu dagsins, þar sem
er kennt er hvernig hnýta skal hnúta. Skýr-
ingarmyndir íylgja, meira að segja hreyfi-
myndir: www.boatsafe.com/kids/knots.htm