Dagur - 16.12.2000, Page 1
Ákvörðun Samkeppnis-
ráðs að haliia banka-
samnmanum er kol-
röng og á skjön við álit
samkeppnisyfirvalda
nágrannaríkjanna að
mati bankastjóra
Landsbankans. Málinu
ekki lokió.
Halldór Kristjánsson, bankastjóri
Landsbankans, er ósáttur við nið-
urstöðu Samkeppnisráðs og telur
hana ranga. Viðhorf íslenskra sam-
keppnisyfirvalda sé greinilega á
skjön við álit kollega þeirra í ná-
grannaríkjunum en hins vegar
breytist aðstæður á fjármálamark-
aði hratt og málinu sé ekki endi-
lega lokið.
„Báðir bankarnir hafa verið í
mikilli sókn á innlendum og er-
lendum mörkuðum að undan-
förnu og það var
sameiginleg niður-
staða bankaráða
og bankastjórnar
bankanna að sam-
runi myndi best
tryggja áframhald-
andi sókn, auka
hag hluthafa og
styrkja vinnustað-
ina í sessi fyrir
starfsfólkið. Þess
vegna er þetta álit
Samkeppnisráðs
vonbrigði og ég er
algjörlega ósam-
mála mati ráðsins.
Það tekur ekkert
tillit til þeirrar eðlilegu þróunar
sem orðið hefur í nágrannaríkjun-
um, þar sem samkeppnisyfirvöld
hafa alls staðar leyft tiltölulega
stórar einingar til þess að tryggja
bætta alþjóðlega hæfni fjármála-
fyrirtækjanna," segir Halldór.
Bankastjóri Landsbankans telur
að samruni hefði verið rökrétt
skref af hálfu
bankanna en nú
þurfi Landsbank-
inn tíma til að gera
grein íyrir sjónar-
miðum sínum og
afstöðu til úr-
skurðarins. Hann
sé ítarlegur og að
mörgu leyti vel
unninn, en niður-
staðan sé kolröng.
Forsendur breyt-
ast skjótt
Sér Halldór ein-
hver teikn á lofti
um að samruna-
málinu sé ekki lokið, heldur aðeins
slegið á frest?
„Fjármálastarfsemin er sú starf-
semi sem er að taka hvað hröðustu
breytingunum og forsendur á þess-
um markaði munu breytast hraðar
á næstu 12 mánuðum en þær hafa
breyst síðasta ár. Breytt skilyrði
geta á skömmum tíma breytt mati
á reglum um samkeppni í fjár-
málastarfsemi.
Auk þessa er rétt að komi fram
að í málsmeðferðinni var aðeins
leitað álits hjá samkeppnisyfirvöld-
um. Þetta er ekki bindandi
ákvörðun heldur álit og því verður
trúlega ekki áfrýjað samkvæmt
samkeppnislögum. Það þarf að
fara nákvæmlega yfir hver staða
málsins er. Það eru það miklir
hagsmunir að baki þessu máli fyrir
Ijármálamarkaðinn og hluthafana
að þetta hlýtur að verða tekið til
gagngerrar skoðunar."
Ræðst ekki af tilíiiiniiiginu
Spurður hvort Halldóri virðist sem
vilji Búnaðarbankans sé nægilega
mikill til að hugmyndir um sam-
runa séu pólitískt gerlegar, svarar
hann: „Það verða þeir að tjá sig
um. Að rnínu mati ræðst þetta mál
ekki af tilfinningum og vilja heldur
af því sem er rökrétt og skynsam-
Iegt.“ - BÞ
Sjá ítarlega um málið bls. 29.
Halldór Krlstjánsson.
Miki! vonbrigði.
Vilja lausn
ádeiluuni
Nokkur félög framhaldsskóla
gengust í gær fyrir friðargöngu í
Reykjavík til að leggja áherslu á að
fá niðurstöðu í kennaradeiluna.
Frekar fámennt var í göngunni,
einungis nokkrir tugir, en veður var
leiðinlegt. Samtök kennara studdu
nemendur í þessari göngu og
hvöttu til þátttöku í henni. Gangan
hófst við Hallgrímskirku um ld.
18:00 og var gengið niður Skóla-
vörðustíginn og endað á Ingólfs-
torgi. Fulltrúár frá öllum helstu
aðilum sem tengjast verkfallinu
fluttu ávörp á þessari samkomu en
frá nemendum talaði Jónína Brynj-
ólfsdóttir formaður INSÍ, en auk
hennar flutti Þórhildur Guðrún
Olafsdóttir ávarp. Það gerðu líka
Guðrún Ebba Ólafsdóttir frá
Kennarasambandinu, Illugi Jök-
ulsson fyrir hönd foreldra og Jón-
ína Bjartmarz fyrir hönd Samtak-
anna heimilis og skóla. Engin tíð-
indi eru úr verkfalli framhalds-
skólakennara en „hver dagur í
verkfalli er skemmd“ eins og fram
kemur í fréttaviðtali á bls. 4
Úr friðargöngunni í gær. - mynd: ingó
Jón Steinar Gunnlaugsson: Hand-
talning er tímafrek og hætt við
mistökum.
Ríifræn
atkvæði?
Jón Steinar Gunnlaugsson, for-
maður yfirkjörstjórnar í Reykjavík,
telur æskilegt að breyta tilhögun
við sveitarstjórnar- og alþingis-
kosninga þegar tæknin leyfi. Hann
segir æskilegt að rafrænt form
verði á kosningum framtíðarinnar,
þannig að atkvæði kjósandans
kæmist strax til skila.
Handtalning hefur þann ókost
að hætta er á mannlegum mistök-
um, auk þess sem ferlið er tíma-
frekt. Forsetakosningarnar í
Bandaríkjunum hafa hreyft mjög
við umræðu um þessi mál en enp
sem komið er hefur lítið verið rætt
um breytingar hérlendis.
Jón Steinar leggur áherslu á að
öryggishliðin verði í öndvegi og
sama eigi við ef kjósendum mun
bjóðast að nýta sér atkvæðisréttinn
á Internetinu eins og surnir sjá fyr-
ir. I Bandaríkjunum hafa tölvusér-
fræðingar haldið því fram að að-
eins sé áratugur í þetta en Jón
Steinar nefnir sem dæmi að fyrst
verði að tryggja að sami kjósandinn
geti ekki kosið tvisvar.
Svo er félagslega hliðin við það
dubba sig upp og greiða atkvæði
sitt undir íslenska fánanum allt
önnur hlið á málinu og kann sitt
að sýnast hverjum um slíkt. — BÞ
Hertar reglur
um flugelda
Blaðsíða 25
Stéttafélags-
gjöld á ný
Blaðsíða 4
GuðniviU í
BukoHu
Blaðsíða 3