Dagur


Dagur - 16.01.2001, Qupperneq 2

Dagur - 16.01.2001, Qupperneq 2
2 - ÞltlDJUDAGUR 1 6 . JANÚAR 200 1 Ðagtar FRÉTTIR Sambúðin þyngist á stj ómarhetmilmu Forinaður Sambands ungra framsóknar- manna segir ágrein- ing stj órnarílokkanna ineiri en nieim þori að hafa á orði. Halldóri sennilega ekki skemmt við kveðju SUF. Samband ungra framsóknar- manna gefur lítið fýrir þau orð forsætisráðherra að enginn ágreiningur hafi verið í ríkis- stjórninnni um viðbrögðin við dómi Hæstaréttar vegna öryrkja- málsins. SUF hefur sent frá sér harðorða ályktun, þar sem segir m.a. að stjórnarstarfinu skuli frekar slitið frcmur en að fórna réttindum þeirra sem verst eru staddir í samfélaginu. „Stjórnin hvetur þingmenn og ráðherra Framsóknarflokksins til að sýna fulla hörku í þessu máli og láta hvergi undan frjálshyggjuöflun- um í Sjálfstæðisflokknum," segir orðrétt í ályktun frá SUF. Dagur er í hópi þeirra fjöl- miðla sem skrif- að hefur fréttir þess eðlis að ágreiningur hafi verið um málið innan ríkisstjórn- arinnar. Davíð Oddsson forsæt- isráðherra sagði hins þegar við- brögðin við dóm- inum voru kynnt, að engin stoð væri fyrir slíkum fréttum. Þær væru annaðhvort uppspuni eða byggðar á mis- notkun heimild- armanna. Hall- dór Ásgrímsson, formaður Fram- sóknarflokksins, hefur einnig sagt að sátt hafi verið um málið. Má ekM segja upphátt 1 ályktun SUF er hins vegar lagt út af áherslumun stjórnarflokk- anna og segist Einar Skúlason, formaður SUF, ekki í nokkrum vafa um að skoðanir hafi verið: skiptar. „Það er mjög auðvelt að skoða stefnuskrá flokkanna og' álykta út frá því. Málflutningur margra þingmanna innan beggja; flokka sýnir líka hvernig Iínurn- ar liggja." - Þú telur sem sagt að ekki sé hægt að hlása þetta ágrein- ingsefni af líkt og forsætisráð- herra gerði? „Eg held að það sé grund- vallarágreining- ur milli flokk- anna í málum sem varða vel- ferðarkerfið. Það hefur tekist ágætlega að leysa úr þeim ágreiningi hingað til en þótt menn vilji ekki tala um það upp- hátt þá heyrir maður á málflutn- ingi þingmanna að ágreiningur- inn er fyrir hendi," segir Einar. Sumum ekki skenunt Einar stendur við að betra væri að ríkisstjórnin sliti samstarfinu fremur en að framsókn Iendi undir. Ríkisstjórnin hafi fjar- lægst félagshyggjumarkmiðin sem séu einn helsti hornsteinn stefnu Framsóknarflokksins. En hvaða skýringu hefur SUF á því að enn hafi engin opinber rödd innan flokksins kannast við að ágreiningur hafi verið um ör- yrkjamálið? „Það er ekkert búið að afgreiða málið, það er bara verið að bregðast við dóminum. Nú eru menn að híða eftir endurskoðun almannatryggingalaganna sem er enn mikilvægara mál að mínum dómi. Þetta er það stórt mál að mér finnst að það þurfi að taka tíma til að afgreiða það. Mér finnst ekki tímabært að menn æsi sig strax.“ - En erttð þið ekki sjálfir að æsa ■ykkur? „Jú, við erum að árétta félags- hyggjuskilaboðin, við erum að senda frá okkur varúðarraddir." - Þið takið djúpt i árinni - held- urðit t.d. að orð ykkar muni vekja ánægju hjá formanni flokksins? „Þetta gerir honum örugglega ekki auðveldara fyrir, enda erum við ekkert að velta því fyrir okk- ur.“ Einar sagðist í gær allt eins bú- ast við símtali sfðar um daginn, enda yrðu slík viðbrögð á tíðum þegar forystu flokksins væri ekki skemmt. - BÞ Einar Skúlason: Vaxandi ágreiningur bak við tjöidin. Búið að „opna“ Kára Stefánsson, forstjóra /£ DeCode bréf úr læsingu I dag verður fyrsti leyfilegi við- skiptadagur með nokkurt magn hlutabréfa í DeCode, bréfa sem keypt voru áður en fyrirtækið fór á Nasdaq-hlutabréfamarkaðinn og hafa verið í „læsingu" síðan. Verðbréfasalar búast við all- nokkrum viðskiptum með þessi bréf og að gengi þeirra lækki - en það var við lok viðskipta fyrir helgi skráð 9,50 dollarar á hlut, eftir að hafa farið á tímabili nið- ur fyrir 7 dollara. Reiknað er með því að það verði einkum þeir sem slógu dýr lán fyrir bréfunum sem eru í þeirri stöðu að verða að selja. Þau Ián eru mörg með gjalddaga um þessar mundir og voru tekin þegar gengi bréfanna f DeCode var allmiklu hærra - nokkrir tug- ir dollara á hlut. Má búast við því að í sumum tilfellum dugi sala bréfanna alls ekki fyrir nema broti af afborguninni og við taki gósentíð innheimtuiög- manna. Aðrir eru í þeirri stöðu að hanga á bréfunum í von um kraftaverk frá Kára. - FÞG Uggur vegna pen- ingaþvottsmáls Adalmedferd peninga- þvottsmálsins af stað. Tannlæknir, lögmað- ur og öldruð kona meðal ákærðra. Lög- mannastéttinn óttast afleiðingar sektar- dóms yfir lögmannin- um. Aðalmeðferðir í peningaþvotts- málinu svokallaða eru hafnar í Héraðsdómí Reykjavíkur. í raun er um fimm ákærumái að ræða, sem fjalla um peningaþvætti og fíkniefnamisferli og tengjast þessi mál hinu svokaliaða stóra fíkniefnamáli (eða Samskipa- máli), þar sem fjöldi ungmenna hlaut þunga dóma. I peningaþvottsmálinu er Egill R. Guðjohnsen tannlæknir ákærður fyrir að hafa á tann- læknastofu sinni mótttekið lið- lega fjórar milljónir króna í reiðufé frá Sverri Þór Gunnars- syni, sem ákærði telst hafa vitað að var ávinningur stórfelldra fíkniefnabrota Sverris. Egill gcymdi peningana í bankahólfi þar til Sverrir var úrskurðaður í gæsluvarðhald. Lögfræðingur, Sigurður Guðmundsson, er ákærður fyrir að hafa gert mála- myndakaupsamning um kaup Sverris á einkahlutafélaginu Rimax fyrir sömu upphæð og fvr- ir að hafa í framhaldi af þva' tekið Tanniæknir og lögmaður eru meðal ákærðra i sérstæðu sakamáli. vörslur peninganna með því að varðveita lykil bankahólfsins. Akæran gegn Sigurði hefur vakið mikla athygli innan lögfræðinga- stéttarinnar, cnda talið að sektar- dómur þar geti haft mikil og hamlandi áhrif á stöðu lögfræð- inga gagnvart skjólstæðingum, sínum. Gæti það haft alvarleg áhrif á vinnuhrögð innan stéttar- innar. Hlutabréf og heiniilismunir Egill og Geir H. Ericsson eru og ákærði fyrir að hafa tekið við tveimur milljónum króna af Sverri Þór sem var greiðsla Sverris fyrií 30% hlut í Rimax ehf., en ákærðu teljast hafa vitað að peningarnir voru ávinningur Sverris af sölu fíkniefna. Geir er ákærður fvrir að hafa tekið við kæliskápi, uppþvottavél, litasjón- varpi, myndbandstæki og sjón- varpsskáp Irá Sverri, sem töldust ávinningur af sölu fíkniefna. Egill og Geir eru og ákærðir fyrir fíkniefnabrot, Egill fyrir að hafa keypt og móttekið samtals um 150 grömm af kókaíni af Sverri, neytt sjálfur og dreift til tveggja manna, og Geir fý'rir að hafa keypt og móttekið samtals um 5 grömm af kókaíni af Sverri, neytt sjálfur og dreift til vina. Öldruð kona ákærð 1 gær fór fram aöalmeðferð í máli Einars I. Marteinssonar, sem ákærður er fyrir að hafa sumarið 1999 tekið við um það bil 120.000 hollensk gyllini frá Rúnari Ben Maitsland og flutt fyrir hann með flutningaskipinu Helgafelli, sem hann var skip- verji á, til Rotterdam og þaðan landleiðina til Amsterdam þar sem hann afhenti Rúnari pen- ingana, sem ákærði telst hafa vit- að að voru ávinningur af fíkni- efnasölu Rúnars og félaga hans á Islandi og voru ætlaðir til enn frekari kaupa á fíkniefnum. I málapakkanum er einnig að finna ákæru gegn Lárusi B. Jóns- syni fyrir að hafa tekið við og geymt fyrir Sverri Þór yfir 5 millj- ónir króna. Bjarki Þ. Hilmarsson er ákærður fyrir að hafa tekið við liðlega 12 milljónum króna frá Sverri Þór og skipt þessum pcn- ingum fyrir Sverri í erlenda mynt. Þá cru nokkrir aðrir ein- staklingar ákærðir l’yrir peninga- þvætti með móttöku fíkniefna- fjármuna, meðal annars öldruð kona. - FÞG Sól fagnar úrskurði Samtökin SOL í Hvalfirði fagna úrskurði Skipulagsstofnunar um til- lögu aðmatsáætlun vegna stækkunar Norðuráls á Grundartanga. „Mjög mikilvægt er að Skipulagsstofnun tekur undir þá skoðun að það beri að leggja fram til mats í samstæðri heild allar framkvæmdir sem tengjast stækkuninni, svo sem virkjanir, raíh'nur og vegi, eða eins og segir í úrskurðinum," segja samtökin. „Með því að taka tillit til athugasemda þeirra fjömörgu aðila sem athugasemdir gerðu við tillöguna að matsáætluninrii hefur Skipu- Iagsstofnun lyft fram því markmiði með mati á umhverfisáhrifum framkvæmda að almenningur geti haft áhrif á framgang stórfram- kvæmda," segir í ályktun frá samtökunum. - BÞ Engir íslendingar til Salvador Ólíklegt er að noþkrir íslendingar muni koma að hjörgunar- og skipu- lagsstarfi í E1 Salvador í kjölfar gríðarlegs jarðskjálfta sem reið yfir um helgina. Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Lands- björg hefur félagið verið í sambandi við OCHA (Office for Coor- dination of Humanitarian Affairs) í Genf vegna málsins. Hlutverk OCHA er að samræma hjálparstarf alþjóðasamfélagsins á vettangi Sameinuðu þjóðanna og hefur verið boðin björgunarsveit til að leita í húsarústum eins og sú sem send var til Tyrklands í ágúst 1999. Tveir íslendingar hafa hlotið þjálfun til þessa, Sólveig Þorvalds- dóttir, framkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins, og Þorsteinn Þor- kelsson, sviðsstjóri björgunarsviðs Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Að sögn starfsmanna SÞ er ekki talin þörf á aðstoð Islendinganna. - BÞ Kjötið burt úr Nóatúni Vegna umfjöllunar um innflutning á írsku nautakjöti vill Nóatún koma á framfæri að kjötið hefur verið tekið úr verslunum Nóatúns á meðan opinberir aðilar fjalla um málið. Nóatún hcfur sett umrætt nautakjöt í frystigeymslu þar til afstaða yfirvalda liggur fyrir. Verslunin vill ftreka að öll tilskilin hcilbrigðisvottorð voru til stað- ar við innflutning kjötsins og öllum heilbrigðisreglum fylgt út í æsar. Irsku nautgripirnir sem hér um ræðir voru af ósýktu svæði. Þeir voru sérstaldega rannsakaðir lýrir slátrun eins og fram kemur í vottorði írska landbúnaðarráðuneytisins til að ganga úr skugga um að ekki hafi fundist merki um kúariðu í þeim. Það skal sérstaklega tekið fram að nautakjötið frá írlandi kemur eirigöngu frá viðurkenndum kjöt- framleiðendum. - BÞ

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.