Dagur - 16.01.2001, Blaðsíða 4
4 - l'RIDJlin/lGUIi 16. JANllAR 200 1
rD^rnr
FRÉTTIR
Tíu til þrettán ára
í „Háskólaim“
HÍ sér um námsgögn og
kennslu fyrir 10-13 ára
bráðger grunnskólaböm í
Reykjavík sem taka þátt í
tilraunaverkefni á svlði
raunvisinda.
„Upphafið var það, að Pétur Blðndal
kom að máli við okkur hér í haust og
sagðist vilja að við færum til samstarfs
við hóp foreldra um að bjóða svona
verkefni. Eg Iagði til að við Ieituðum
til Háskóla Islands og þannig má segja
að þetta hafi orðið að formlegu sam-
starfi milli Fræðslumiðstöðvar Reykja-
víkur, Raunvísindadeildar HÍ og
Landssamtakanna heimilis og skóla,“
sagði Meyvant Þórólfsson kennsluráð-
gjafi, sem ásamt fleirum frá framan-
greindum stofnunum og samtökum
kynntu samstarf um tilraunaverkefni
um viðfangsefni á sviði raunvísinda
fyrir 10-13 ára grunnskólabörn.
Með 87 100 stig
Haft var samband við forráðamenn
harna sem fengu 87-100 stig í stærð-
fræði og íslensku í 4. og 7. bekk. Jafn-
framt eru foreldrar og skólastjórar sem
vita um önnur börn sem þeir telja að
eigi heima í hópnum hvattir til að hafa
samband við heimili og skóla eða
Fræðslumiðstöðina. Pétur Blöndal
segir bráðgera krakka oft mæta
ákveðnum fordómum svo þau séu jafn-
vel feimin að viðurkenna góðan náms-
árangur. Það sé allt annað að skara
fram úr í fótbolta.
Vonandi framhald
Sigrún Magnúsdóttir sagði Fræðsluráð
Reykjavíkur lengi hafa haft áhuga á
því að koma á verkefnum til að örva
hörn til raunvísindanáms og m.a. aug-
lystum eftir grunnskóluni scm vildu
taka að sér að móta og þróa slík verk-
efni fyrir 4-5 árum. Aðeins einn hafi
sótt um og lítið orðið úr starfi. „Nú má
segja að foreldrar hafi ýtt við okkur.
FR É T TA VIÐTALID
Sigrún Magnúsdóttir formaður Fræðsiuráðs, Jónína Bjartmars formaður Heimilis og
skóia og Pétur Blöndal frumkvöðull, kynntu nýjungar í skólastarfi í gær.
Háskóli Islands hefur tekið að sér að
sjá um námsgögn og kennslu og við
erum afar stolt og ánægð með það. Við
erum líka ánægð að geta boðið bráð-
gerum börnum aukaverkefni við sitt
hæfi, því ég held að við getum sagt það
með sanni að á það hafi almennt skort
á grunnskólum í landinu." Sigrún
sagði þetta tilraun, bæði varðandi
kennslu og val á nemendum, en hún
vonaðist til að framhald verði á þessu.
Og að þessi kennsla yrði þá færð inn
grunnskólana.
Kostar 12.000 krónur
Verkefnið stendur í 3 mánuði og kost-
ar 12.000 kr. á hvert barn. Gert er ráð
fyrir 65-70 nemendum, sem skipt
verður í 5 manna hópa sem vinna sam-
an að verkefnum á sviði stærðfræði,
stjörnufræði, eðlisfræði og skyldum
sviðum. Sum þeirra verða unnin úti
við, önnur á rannsóknastofum og ein-
hver jafnvel heima í stofu hjá kennar-
anum. Hóparnir verða að lokum að
búa verkefnin til kynningar og geta út-
skýrt niðurstöður sínar í töluðu og
myndrænu máli.
Góð að leysa þrautir
Meyvant segir mikinn vitsmunaþroska
og háa greindarvísitölu sameigilegt
einkenni bráðgerra barna. En sömu
börn geti verið misjafnlega á vegi stödd
hvað varðar félagslegan, líkamlegan og
tilfinningalegan þroska. Þeim sé yfir-
Ieitt ekki mjög tamt eða eðlilegt að
vinna rútínuverkefni eins og skólinn
bjóði upp á, en geti hugsað mjög óhlut-
bundið og séu góð að leysa þrautir. Þau
vilji gjarnan fá opin verkefni sem kalli
ekki endilega á eitt rétt svar. Mark-
miðið sé að bjóða börnunum upp á
viðamikil verkefni á sviði raunvísinda,
sem m.a. feli í sér lausnir vandamála
sem lcngjist því sem gerist úti í þjóðfé-
laginu. - HEl
Síaukin áhrif ensktmnar
ltér á landi hafa ekki farið
fram hjá pottverjuin frck-
ar cn öðrum landsmönn-
ti m. Nýjasta dæmiö uin
þetta koni fram á blaðamannafundi sem efnt var
til í gær af opinhcrum aðilum til að kynna nýtt
verkcfni í skólamálum. Þar var lagt fram plagg á
íslensku en með enskum útskýringum innan
sviga! Dæmi: „Hópur bráögerra skólabama (e.
gifted students)“. að hugsa óhlutbundið (e.
abstract)." „... margvíslcgar lausnir vandamála
(e. problcm solving).".hver vinnur tvö verk-
cfni (projckt)." Fundarboðcndur hafa þannig aug-
ljóslega efast um hæfni blaðamanna til að skilja
þessi algengu íslensku orö án þess aó hafa enska
þýðingu til skýringar...
Stuðningsmenn Guöna Ágústssonar til varafor-
mannskjörs eru ekki nema í meðallægi óánægöir
með að málefni innflutnings á írskum nauta-
lundum skuli hafa koniið upp einmitt núna.
Vissulega cru þeir ekki sáttir viö innflutninginn
sem sllkan og eru alfarió á móti honum. Hins veg-
ar sjá þcir að þctta er gott mál íyrir Guðna Ágústs-
son (og framsókn) og vilja að hann notfæri sér
þaö út í ystu æsar. Einn stuöningsmaður land
búnaðarráðherra sagði í pottinnm í gær að Guöni
hefði spilað vel úr þcssu máli og hefði stóraukiö
líkurnar á að hann veröi næsti varaformaöur
Framsóknarflokksins...
Nokkurs pirrings gætti í röðun framsóknarþing-
manna í gær vegna þess „bráðlætis Davíðs“ aö
rjúka upp í pontu og afturkalla tillögu um af-
hrigði vegna meðferöar frumvarps um almanna-
tryggiugalög. Að réttu lagi lieföi Ingibjörg Pálma-
dóttir átt að afturkalla málið vegna þess að það er
hún sem flytur það, en Davíð varð semsé fyrri til.
Á hinn hóginn þykir sú ákvörðun stjómarand-
stööunnar að neita um aflirigði vegna þess að
þctta sé stjómarskrárbrot, benda til þess aó þcgar
frumvarpið loksins verður sainjiykkt á þingi
muni stjómarandstaðan kalla eftir því aö forseti
lýðveldisins staöfesti ekki lögin, líkt og Margrét
Frímannsdóttir taldi h'klcgt þegar hún ræddi við
Dagfyrir lielgi...
V
Jón Ingi
Kristjánsson
á Neskaupstað, nýkjörínnformaður
AFLS, starfsgreinafélags
Austuríands
Um helgina varstofnað nýtt
stéttarfélag, AFL, starfs-
greinafélagAusturlands, með
sameiningu 6 stéttarfélaga
frá Fáskrúðsfirði til
Vopnafjarðar.
Nýtt starfsgreinafélag
- Hvað veldur stofnun nýs stéttarfélags
nú á þessti svæði?
„Það er til þess að gera starfið fyrir verka-
lýðinn skilvirkara og efla sjóði og annað sem
fylgir starfseminni og verður öflugri
málsvari út á við. Slagkrafturinn eykst ef til
vinnudeilna kemur og eins erum við betur
búnir til þess að styðja við atvinnulífið á
Austurlandi. Með stærra félagi getum við
einnig sinnt betur þörfum félagsmanna.
Það er sex félög af sjö sem eru á svæðinu
sem þarna eru sameinuð en áður hefur ver-
ið stofnað félag með félagssvæði frá Stöðv-
arfirði til Hornafjarðar. Því miður er Verka-
lýðsfélag Reyðarfjarðar ekki með í samein-
ingunni, en í almennri atkvæðagreiðslu í fé-
Iaginu var það fellt að taka þátt í þessari
sameiningu. En þeir eru velkomnir til sam-
starfs eða sameiningar við okkur þegar þeim
hugnast það. Félagsmenn eru við stofnun
l 870 talsins."
- Er það ekki miður og veikir jafnframt
nýstofnað starfsgreinafélag?
„Jú, vissulega, og ekki síst vegna þess að
nú eru í sama sveitarfélaginu, Fjarðabyggö,
þ.e. Verkalýðsfélag Norðfirðinga og Verka-
mannafélagið Arvakur á Eskifirði sem ganga
inn f AFL.“
- Hi er verður framtíð Alþýðusambands
Austurlands?
„Það kemur til með að starfa áfram til
þess m.a. að halda utan um þá sérkjara-
samninga sem við erum með hér fyrir aust-
an. En það á sér þar stað ákveðin þróun eins
og annars staðar."
- Talað er um að nýir kjarasamningar
grunnskólakennara og framhaldsskóla-
kennara valdi því að launaliðir kjara-
samninga séu komnir út úr þeim ramma
sem þeim voru settir. Eru forsendur
kjarasaminga brostnir að þínu mati?
„Það þarf að skoða vandlega áhrif kenn-
arasamninganna á okkar kjarasaminga.
Kjarasamningar kennara eru auðvitað fyrir
utan þann ramma sem settur var, enda var
þeim boðin 20% kaupbækkun í upphafi
samingsferlis í byrjun nóvembermánaðar en
fjármálaráðherra, Geir Haarde, hefur sagt
að þeir hafi fengið það, en ekkert umfram
það. En það er bara helber Iygi því kennar-
ar hefðu ekki verið 9 vikur í verkfalli til þess
að fá það sama og þeim var boðið í upphafi.
En það þarf auðvitað að nást víðtæk sam-
staða um það að svo sé, en hagfræðingur
ASÍ hefur sagt að komast þurfi að því hvaða
áhrif kennarakjarasamningar hafa. Lækkun
á bensíni og olíu breytir þessu svolítið varð-
andi verðbólgu."
- Það kann þvt að koma til kasta þessa
nýja verkalýðsfélags í kjaradeilu fyrr en
margan grunar í dag?
„Já, það kemur vel lil greina, enda mun-
um við ekki skorast undan ef það verður
niðurstaðan," segir Jón Ingi Kristjánsson.
- GC