Dagur - 16.01.2001, Blaðsíða 9
Vagur
I’RIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001 - 9
Grótta/KR varð fyrst liða í vetur
til að leggja topplið Hauka að
velli í Nissandeild kvenna í hand-
knattleik, þegar Seltjarnarneslið-
ið vann fimm marka sigur, 22-17,
á Hafnarfjarðarliðinu í íþrótta-
húsinu á Seltjarnarnesi á laugar-
daginn. Handboltalega séð var
leikurinn slakur og lítið fyrir aug-
að og helst að varnir liðanna
stæðu fyrir sínu og þá á kostnað
sóknarleiksins, sem var hálffálm-
kenndur hjá báðum liðum og
mikið um mistök. Skyttum Iið-
anna voru mjög mislagðar hendur
og gekk illa að koma boltanum í
gegnum sterkar varnirnar og
mátti vart á milli sjá hvort liðið
hefði vinninginn, en nýtingin hjá
báðum liðum var undir 50 pró-
sentum.
Haukarnir byrjuðu betur í
leiknum og komust í 2-0 áður en
heimaliðið vaknaði til lífsins, en
þá voru liðnar um tíu mínútur af
leiknum. Síðan var jafnræði með
liðum næstu mínúturnar, eða þar
tíl staðan var 5-6 fyrir Hauka. Þar
með var allur vindur úr Hafnar-
fjarðarliðinu og gengu Gróttu-
stelpunar á lagið og skoruðu
fimm mörk í röð og var staðan
12-7 í hálfleik. Haukarnir brugðu
á það ráð í seinni hálfleik að taka
hesta leikmann Gróttu/KR, ÖIlu
Gorkorian, úr umferð, en það
hefur í vetur reynst öðrum liðum
ágætlega. en þegar það gekk ekki
upp var Agústa Edda Rjörnsdóttir
einnig tekin úr umferð, með svip-
uðum árangri og náðu gestirnir
mest að minnka muninn í fjögur
mörk.
Alla Gorkorian átti eins og áður
sagði bestan leik hjá Gróttu/KR
og var hún einnig markahæst
með 8/1 mörk. Jóna Björk Pálma-
dóttir var næstmarkahæst með 6
mörk, en þurfti til þess ótal til-
raunir. Hjá Haukum áttu þær
Inga Fríða Tryggvadóttir og
Harpa Melsted bestan leik og var
Harpa markahæst með 6/2 mörk
og Inga Fríða næst með 4 mörk
úr jafnmörgum tilraunum. Ann-
ars var Haukaliðið cngan veginn
sannfærandi í leiknum, frekar en
í fyrsta leiknum eftir jólafrí gegn
KA/Þór á miðvikudaginn og virð-
ist hátíðaslenið ennþá há liðinu,
sem nú er með fjögurra stiga for-
skot á Fram í toppsætinu.
Fjórði sigur Fram í röð
Framstelpurnar unnu sinn fjórða
sigur í deildinni f röð þegar þær
lögðu KA/Þór með sex marka
mun, 25-19, í Safamýrinni á
laugardaginn. I fyrri hálfleik
benti þó til annars, því Akureyrar-
liðið hafði þá mest náð þriggja
marka forskoti og hafði yfir 10-12
í leikhlé. Í scinni hálfleik færðist
mikil harka í leikinn og bitnaði
það sérstaklega á ungu og létt-
leikandi liði KA/Þór, sem mátti
sín lítils gegn sterku og leik-
reyndu liði Fram, sem skoraði
fyrstu fimm mörkin í upphafi
seinni hálfleiks. Þar munaði
mestu fyrir KA/Þór að Eyrún
Káradóttir, sem hafði átt bestan
leik norðanliðsins, meiddist strax
í upphafi seinni hálfleiks og við
það riðlaðist leikur liðsins þannig
að Fram náði öruggri forystu sem
var orðin fimm mörk um miðjan
hálíleikinn.
Með sigrinum tryggði Fram sér
tveggja stiga forskot á Víking,
Stjömuna og ÍBV í öðru sæti
deildarinnar og er liðið nú með
16 stig eftir ellefu umferðir. Hjá
þeim bar mest á Marinu Zouevu,
en hún var markahæst með 9/5
mörk og einnig áttu þær Irina
Skorobogatykh Sveinsson og
Svanhildur Þengilsdóttir ágætan
leik og voru þær næstmarkahæst-
ar með 4 mörk hvor. Annars var
það vörnin sem gerði gæfumun-
inn hjá Safamýrarliðinu og að
baki henni varði Hugrún Þor-
steinsdóttir með ágætum, eða alls
16 skot. Hjá KA/Þór var Eyrún
best eins og áður sagði og nokkuð
víst að ef hennar hefði notið við
allan leikinn hefðu úrslit orðið
önnur, en hún var markhæst mcð
6 mörk þrátt fyrir að hafa aðeins
leikið ( rúmar 30 mínútur. Auk
Eyrúnar átti Ásdís Sigurðardóttir
ágætan leik og einnig Sigurbjörg
Hjartardóttir, markvörður, sem
varði alls 1 5 skot.
Stjömuhrap
Stjarnan úr Garðabæ tapaði sín-
um þriðja leik í röð, þegar liðið
mætti Islandsmeisturum IBV í
Eyjum á sunnudagskvöldið og
urðu lokatölur leiksins, 28-21.
Heimaliðið hafði undirtökin mest
allan leikinn og hafði náð þriggja
marka forskoti í leikhlé, 16-13.
Eftir sveiflukenndan fvrri hálfleik
tókst Stjörnunni svo að minnka
muninn í eitt mark í upphafi
seinni hálfleiks, 18-17 og fór þar
fremst í flokki gamla brýnið Guð-
ný Gunnsteinsdóttir, sem átti
bestan leik hjá Garðabæjarliðinu.
En lengra komust þær ckki og var
það hclst fyrir góðan Ieik Vigdísar
Sigurðardóttur, sem hrcinlega sá
til þess að Stjörnustelpunum
tókst ekki að jafna leikinn í upp-
hafi hálfleiksins. Þar með datt
botninn úr leik gestanna og áttu
þær eftir það litla möguleika gegn
sterki vörn Eyjaliðsins, sem tíndi
upp hvert hraðaupphlaupið af
öðru og tryggði sjö marka sigur.
Hjá IBV átti Anita Andreassen
bestan leik og var hún markahæst
með 7 mörk úr 8 tilraunum, en
Tamara Mand/.ic var markahæst
með 10 mörk þar af 8 úr vítum.
Annars var það liðsheildin og
sterkur varnarleikur í seinni hálf-
leik sem skóp sigurinn. Hjá
Stjörnunni var Guðný best eins
og áður hefur komið fram, en
markhæst var Svetlana Tcher-
etchetcha með 7 mörk, öll úr vít-
um. Einnig átlu þær Hrund Grét-
arsdóttir og Halla María Helga-
dóttir ágætan leik, en Halla Mar-
ía var næstmarkahæst ásamt
Guðnýju með 4 mörk.
Helga markvördur langbest
Víkingsstelpurnar byrja nýja árið
með glæsibrag og hafa nú unnið
báða leiki sína á nýja árinu, eftir
misjafnt gengi fý'rir áramót. Um
helgina unnu þær FH í Víkinni
með tveggja marka mun, 25-23,
eftir að hafa leitt allan Ieikinn ef
frá eru taldar fyrstu mínútur
leiksins. Ungt og efnilegt lið FH-
inga komst í 3-4, en skoruðu svo
ekki mark næstu mínúturnar á
meðan Víkingar sölluðu inn fimm
mörkum í röð og breyttu stöð-
unni í 8-4. Þar með datt allur
botn úr leik FH-inga og varð for-
ysta Víkinga mest níu mörk í fvrri
hálfleik, en staðan í leikhlé var
17-10. Það var meira en Hafnar-
fjarðarliðið réði við, en í seinni
hálfleik skoruðu þær þrettán
mörk gegn átta mörkum Víkinga
og tókst þar með að minnka mun-
inn í tvö mörk. Það var fyrst og
fremst góður varnarleikur og frá-
bær lcikur Helgu Torfadóttur,
sem sló FH-liðið út af laginu í
fyrri hálfleik, en í þeim seinni má
segja að liðin hafi haft hlutverka-
skipti. Sigur Víkings var þó aldrei
í hættu, til þess var forskotið of
stórt. Hjá Víkingum var Helga
markvörður Iangbest með 20 var-
in skot og einnig átti Guðbjörg
Guðmannsdóttir frábæran leik í
fý'rri hálfleik, en hún var marka-
hæst ásamt Kristínu Guðmunds-
dóttur með 6 mörk. Hjá FH har
mest á Hafdísi Hinriksdóttur og
var hún markahæst með 10/7
mörk. Dröfn Sæmundsdóttir átti
góða spretti og þar á ferðinni
mikið efni, en hún var næst-
markahæst með 4 mörk. Þá átti
Jolanta Slapikiene, markvörður
FH, góðan leik í seinni hálfleik,
en hún varði alls 17 skot.
Á Hlíðarenda fór síðan frarn
leikur Reykjavíkurliðanna Vals og
IR og lauk honum með tíu marka
sigri Vals 20-10, eftir að staðan
hafði verið 9-3 í leikhlé. Kolbrún
Franklín var markahæst Valsara
með 6/3 mörk, en Anna M. Sig-
urðardóttir hjá ÍR með 3 mörk.
Kvennalið KR-inga og karlaliö
Þórsara frá Akureyri tryggðu sér
um helgina Islandsmeistarartitil-
ana í knattspyrnu innanhúss í
úrslitakeppni Islandsmótsins
sem fram fór í Laugardalshöll á
sunnudaginn.
I 1. deild kvenna var keppt í
tveimur riðlum og komust tvö
efstu liðin í riðlunum í undanúr-
slit, sem voru KR, Valur úr A-
riðli og Stjarnan og Breiðablik úr
B-riðli. 1 undanúrslitum unnu
KR-stelpurnar 8-1 stórsigur á
Stjörnunni á meðan Breiðablik
vann Val 2-1. Urslitaleikurinn
var því milli KR og Breiðabliks
og sigruðu KR-stelpurnar þar 5-
4 eftir að hafa náð 3-0 forystu í
fyrri hálfleik, með mörkum þeir-
ra Guðrúnar Guðmundsdóttur,
Olgu Færseth og Ásthildar
Helgadóttur. Mörkin í fyrri hálf-
leik áttu eftir að verða fleiri, því
Blikum tókst að jafna, með
mörkum þeirra Margrétar Ólafs-
dóttur og Margrétar Ákadóttur,
sem skoraði annað og þriðja
markið, áður en flautað var til
hálfleiks. Mikil spenna færðist í
leikinn í seinni hálfleik, en þá
tókst Guðlaugu Jónsdóttur fljót-
lega að ná for)'stunni aftur fyrir
KR-inga, en Laufey Ólafsdóttir
jafnaði í 4-4 fyrir Breiðablik og
spennan f hámarki. Það var síð-
an markadrottningin Olga Fær-
seth, sem skoraði sigurmark KR-
inga, um það bil þremur rnínút-
um fyrir leikslok og þar við sat
eftir spennandi lokamínútur.
Þetta er limmti innanhússtitill
KR-inga í kvennaflokki, en
Breiðblik hefur oftast unnið titil-
inn, eða alls tólf sinnum.
Logi tróð best
Pepsi-Iið Vals Ingimundarsonar
vann 136-131 sigur á Doritos-
liði Sigurðar Ingimundarsonar
um helgina, í árlegum Stjörnu-
leik KKÍ, sem að þessu sinni fór
fram í Ljónagryfjunni í Njarðvík.
Maður leiksins var kjörinn
Shawn Mayers, en hann var
jafnframt stigahæstur í Pepsi-
liðinu með 26 stig. Kristinn
Friðriksson var stigahæstur í
Doritos-Iiðinu með 25 stig.
I hálfleik fór fram 3ja stiga
keppni og troðslukeppni og sigr-
aði Njarðvíkingurinn Brenton
Birmingham í 3ja stiga keppn-
inni, en félagi hans Logi Gunn-
arsson í troðslukeppninni, eftir
skemmtileg tilþrif.
Sindri og Þó/KA sem urðu í
neðstu sætum riðlakeppninnar
falla í 2. deild.
Öruggur sigur Þórsara
Í 1. deild karla var leikið í fjórum
riðlum og komust tvö efstu liðin
f hverjum riðli áfram í 8-liða úr-
slit. Það voru FH og KR úr A-
riðli, Valur og KA úr B-riðli, ÍA
og Grindavík úr C-riðli og Vík-
ingur og Breiðahlik úr D-riðli.
8-liða úrslit:
Breiðablik - Valur 1-2
FH - KA 2-1
IA - Víkingur 0-2
Grindavík - Þór 2-3
I undanúrslitum unnu Valsar-
ar nauman 5-4 sigur á Vfkingum,
en Þórsarar 5-1 stórsigur á FH-
ingum. Það voru því Þór og Val-
ur sem léku til úrslita og áttu
flestir von á spennandi úrslita-
leik. En það fór á annan veg því
Þórsarar unnu öruggan og verð-
skuldaðan 4-0 sigur, eftir að
staðan hafði verið 1-0 í hálfleik
og skoraði Hlynur Birgisson
markið. Hlynur bætti síðan við
öðru marki í upphafi seinni hálf-
leiks áður en þeir Örlygur Þ.
Helgason og Þórður Halldórsson
gulltryggðu sigurinn með sitt
hvoru markinu.
Það kom virkilega á óvart í
riðlakeppninni að nýkrýndir
Reykjavíkurmeistarar Fylkis skyl-
du lenda í neðsta sæti D-riðils,
en þar með féll liöið niöur í 2.
deild. í A-riðli féll Tindastóll í 2.
deild, Hvöt í B-riðli og Dalvík-
ingar í C-riðli.
Sjá nánari umfjöllun í Aluir-
eyrarblaði.
Logi Gunnarsson treður í körfuna.
IÞROTTIR
Grótta/KR stöðvaði
sigurgöngu Hauka
Haukastelpurnar töp-
uðu síuum fyrsta leik
á keppmstímabilmu,
þegar þær heimsóttu
stöHur sínar úr
Gróttu/KR á Seltjam-
amesið á laugardag-
inn, þar sem heimalið-
ið vanu ömggan fimm
marka sigur.
Alla Gorkorian skorar eitt af átta mörkum sínum gegn toppliði Hauka.
Guðlaug Jónsdóttir og Hlynur Eiríksson, fyriríiðar KR og Þórs, taka við ís-
iandsbikurunum í 7. deild kvenna og karla.
KR og Þór ís-
landsmeistar-
ar mnanhúss