Dagur - 16.01.2001, Side 5

Dagur - 16.01.2001, Side 5
 PRIÐJVD AGV R 1 6. JANÚAR 2 00 1 - S SAMANTEKT Forsætisráðherra dró frumvarpið til haka Stj ómarandstaðan hafnaði í gær að veita afbrigði til að taka fnunvarpið vegna ör- yrkjadómsins á dag- skrá. Alþingi er ekkert færiband, sagði Stein- grímur J. Sigfnsson. Málið tekið til umræðu á morgun. Stjórnarandstaðan á Alþingi hafn- aði því í gær að veita ailirigði til þess að taka mætti frumvarp ríkis- stjórnarinnar vegna öryrkjadóms- ins til umræðu. Þegar mál er lagt fram á Alþingi má umræða um það ekki hefjast fyrr en tveimur nótt- um eftir að það var lagt fram. Hægt er að leita afbrigða um að taka mál fyrr á dagskrá og þarf 2/3 hluta alþingismanna til að sam- þykkja afbrigðið. Helstu rök stjórnarandstöðunnar fyrir því að leyfa ekki afbrigði voru þau að henni var neitað um gögn málsins, frumvarpið og skýrslu lögfræði- nefndarinnar, þegar eftir því var óskað fyrir helgi. I annan stað bentu stjórnarandstæðingar á að þeir teldu ríkisstjórnina vera að brjóta stjórnarskrá með því að, fara ekki eftir dómi Hæstarérttar og að því ætluðu þeir ekki að stuðla. Þegar ríkisstjórnin sá að afbrigð- ið yrði ekki samþykkt ákvað Davíð Oddsson, en ekki Ingibjörg Pálma- dóttir, sent málið hcyrir undir, að láta ekki reyna á það með atkvæða- greiðslu. Þess í stað var frumvarp- ið bara lagt fram og verður tekið til umræðu á miðvikudag. Þarf ekM lög heldur vilja Rannveig Guðmundsdóttir, for- maður þingllokks Samfylkingar- innar, var fyrst til að biðja um orð- ið við upphaf þingfundar í gær. Hún sagði að hér væri á ferðinni mikið átakamál. Ör)Tkjar hefðu fengið stjórnarskrárvarinn rétt sinn fyrir Hæstarétti. „Ríkisstjórnin hefur þann úr- skurð Hæstaréttar að engu. Eg ætla ekld að ræða hér niðurstöðu Hæstaréttar en hún byggir á mannréttindaákvæði stjórnar- skrárinnar, sem Alþingi sameinað- ist um árið 1995. Hér er óskað flýtimeðferðar í dag. En svo ósvíf- in er þessi ríkisstjórn og stjórnar- meirihlutinn, að fulltrúa Samfylk- ingarinnar í heilbrigðis- og trygg- inganefnd var synjað um frumvar- ið og viðeigandi gögn l'yrir helgina. Þetta kemur mér ekki á óvart. Rík- isstjórnin sýnir fádæma valdhroka gagnvart Hæstarétti og ekki síst ör- yrkjum sem neyddust til að sækja sinn rétt með dórni," sagði Rann- veig Guðmundsdóttir. Hún sagði lagaheimild til aö greiða öryrkjum sem hlut eiga að máli 51 þúsund króna inánaðar- í málið, ekki nokkur leið," sagði Davíð Oddsson. Halldór Ásgrímsson, utanríkis- ráðherra sagðist vera undrandi á þessum umræðum. Hann sagði það á valdi stjórnarandstöðunnar hvort hún vilji að umræður hefjist í dag.Hann sagðist ekki hafa orðið var við það síðan þessi dómur féll að stjórnarandstaðan hafi verið í vandræðum með að tjá sig um hann. Aftur á móti hafi stjórnin og stjórnarsinnar ekki treyst sér til að kveða upp úr í málinu fyrr en nið- urstaða lögfræðihópsins lá fvrir. Rætt uiu allt en ekki á þingi „Það er leitt til þess að vita ef stjórnarandstaðan hefur ekki feng- ið aðgang að gögnum. Eg trúi því varla en ef svo er þá er þá er það mjög miður. Ég hef ekki tekið eftir öðru en að stjórnarandstaðan hafi rætt þessi mál undanfarna daga eins og húin væri með gögnin en hún er ekki reiðubúin til þess að ræða þau hér á Alþingi. Það er af- skaplega sérkennilegt að stjórnar- andstaðan skuli tilbúin til að ræða málið út um allt þjóðfélagið en bara ekki hér á Alþingi," sagði Halldór Ásgrímsson. Hann sagði að hægt hefði verið að kalla Alþingi saman fyrir helg- ina til þess að leggja frumvarpið þar fram ef menn hefðu vitað að stjórnarandstaðan vildi ekki veita venjulegt afbrigði til þess að málið kæmist sem íyrst á dagskrá. „Rannveig Guðmundsdóttir sagði hér áðan að það þyrfti engin lög, það þyrfti bara vilja. Það var talað um lítilsvirðingu gagnvart löggjafarsamkomunni. Er það ekki lítilsvirðing við löggjafarsamkom- una að það þurfi ekki að kalla hana saman út af þessu stærsta máli sem komið hefur fram að mínu mati um árabil. Að sjálf- sögðu þurfti að kalla löggjafarsam- komuna saman. Það liggur ljóst fyrir að þessar bætur verða ekki greiddar nema Alþingi setji fram vilja sinn," sagði Halldór Ásgríms- son. Alþingi ekki færibaand Steingrímur J. Sigfússon, formað- ur VG, sagði að ef það biði Alþing- is nú að afgreiða einfalda greiðslu- heimild til þess að grciða þegar í stað óskerta tekjutryggingu og virða dóm Hæstaréttar að fullu og reljalaust, þá væri það einfalt og fljótafgreitt mál. Og urn það yrði full samstaða. En vilja til þessa skorti. „Það er annað sem á að fara að láta Alþingi gera hér, að okkar mati. Það á að framlengja löggjöf sem felur í sér stjórnarskrárbrot, Það er vissulega sjaldgæft að því sé hafnað að taka mál á dagskrá með afbrigðum. Það er þó síður en svo sjálfgefið að afbrigöi séu alltaf veitt. Það ræðst af aðstæðum sem f\TÍr liggja," sagði Steingrímur J. Hann sagði að lögin sem segja til að um tvær nætur skuli líða frá því mál er lagt fram og þar til það er tekið til umræðu, séu ekki sett af ástæðulausu. „Þau er sett til að þingmenn geti kvnnt sér málin og líka til að und- irstrika það að Alþingi er ekki færi- band,“ sagði Steingrímur J. Sigfús- son. SIGURDQR SIGURDÖRS- SON SKRIFAR Öryrkjar og talsmenn þeirra sýndu störfum Alþingis mikinn áhuga í gær, eðli hlutarins samkvæmt. Hér eiga Garðar Sverrisson og Arnþór Helgason orðastað við Jóhönnu Sigurðardóttur. bætur. Ríkisstjórnin væri nú að flytja frumvarp til að lækka þá upphæð í 43 þúsund krónur. Lagaheimild væri til að greiða ör- yrkjum bætur 7 ár aftur í tímann en ríkisstjórnin ætlaði að hafa árin 4. „Þetta eru fáheyrð og gagnrýni- verð vinnubrögð, sem váð í Sam- fylkingunni og stjórnarandstöð- unni allri mótmælum harðlega. Ríkisstjórnin á að draga þetta frumvarp til baka. Það þarf ekki lög til að fara að dómi Hæstaréttar í þágu öryrkja. Það þarf ekki Iög, það þarf bara vilja," sagði Rann- veig Guðmundsdóttir. Vítaverð lítilsvirðmg. Ogmundur Jónasson, formaður þingflokks VG, sagði að hér væri sett á dagskrá stjórnarfrumvarp sem er þannig vaxið að það stríði gegn stjórnarskrá landsins sam- kvæmt dómi sem kveðinn var upp í Hæstarétti. Síðan sagði Og- mundur. „Eg kveð mér hljóðs til að mót- mæla þeim vánnubrögðum sem viðhöfð. eru við málsmeðferðina af hálfu ríkisstjórnarinnar, gagnvart Alþingi og lít ég svo á að þinginu sé sýnd vítaverð lítilsvirðing," sagði ■ Ögmundur. Hann sagði að í stað þess að lýsa því strax yfir að farið yrði að stjórn- arskrá og landslögum og efnt til samráðs við alla þingflokka um álitamál sem kunna að vera uppi hafi komið fram að þingmönnum hafi verið meinað að fá frumvarpið í hendur þegar eftir því var leitað fyrir helgina. Leggjum þessu ekM lid Guðjón A. Kristjánsson, formaður þingflokks Frjálslyndaflokksins sagði sldlaboð Hæstaréttar hafa verið skýr. Þau viðurkenni að óheimilt hafi verið að skerða tekju- tryggingu öryrkja. „Alþingi er nú ætlað að breyta niðurstöðu Hæstaréttar með þeirri málsmeðferð sem hér er lagt upp með. Það er alveg ljóst að hér á að fara frarn, með vilja ríkisstjórnar- innar, og keyra yfir það sem gert hefur verið í dómstólum landsins og byggt hefur verið á stjórnarskrá. Frjálslyndiflokkurinn mun ekki undir nokkrum kringumstæðum leggja þessu máli lið á nokkurn hátt,“ sagði Guðjón A. Kristjáns- son. Davíð Oddsson talaði næstur og ræddi fyrst um afbrigðið sem stjórnarandstaðan hafnaði. Hann sagði að samkvæmt lögfræðinga- hópnum væri útilokað að greiða úr þessu máli nema að lög séu sett. Hann sagði að vissulega hefði stjórnarandstaðan það á valdi sínu að neita um afbrigði. EkM án laga „Eg vil tala sem mest um þetta mál. Eg tcl að það sé margt sem þarf að skýra í þessu máli. Eg tel hins vegar að margir hafi lagt sig fram um að setja fram skýringar sem ckki ganga upp en lyrst og fremst liggur í mínurn huga ótví- rætt við aö þcssu máli verður ekki fram haldið nema lagasetning komi til. Hún hefur verið undirbú- in og hún þarf að afgreiðast til þess að hægt sé að greiða þeim hluta öryrkja, sem er að vísu ekki stór hópur, bætur sem lesa má úr dómi Hæstaréttar. En án þess að gera það með lögum, það er ekki nokkur leið að setja þann skilning Steingrímur J. Sigfússon benti á að Alþingi væri ekki færiband framkvæmdavaldsins. Davíð Oddsson sagði útilokað að leysa úr málinu án lagasetningar.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.