Dagur - 16.01.2001, Síða 7

Dagur - 16.01.2001, Síða 7
ÞRIDJUDAGUR 16. JANÚAR 2 00 1 - 7 ÞJÓÐMÁL Vikaii sem leið Af sérstökum ástæðum þurfti ég að halda kyrru heima fyrir í síð- ustu viku, en eins og alþjóð er kunnugt er þinghlé, og þing- menn á faraldsfæti. Tengingar mínar við umheiminn voru því í gegn um þá nútímamiðla sem al- gengastir eru, síma, daghlöðin, útvarps- og sjónvarpsstöðvar og síðast en ekki síst tölvuna mína sem tengd er internetinu. Allt eru þetta góð tæki fyrir stjórn- málamann, en ekki koma þau í staðinn fyrir að heyra andann í fólki með því að hitta það á vett- vangi. Þar hefði ég væntanlega verið ef ekki hefði staðið svo á sem ég gat um í upphafi. Því fór fjarri að vikan væri fréttalaus og tvö mál hygg ég að hafi gnæft upp úr í vikunni. Fyr- irferðarmestar voru fréttir af við- brögðum ríkisstjórnarinnar við „öryrkjadómnum", og af við- hrögðum við þeim viðbrögðum ef svo má segja. Annað mál sem tók rúm í umræðunni var inn- flutningur á írsku nautakjöti fyr- ir jólin, en verslun ein hér í bæ, hafði selt nautalundir frá því landi í jólaösinni. Þriðja málið sem fluttar voru fréttir af voru málefni skólanna. Öryrkj ailóinurinn Fyrstu viðbrögð við hæstaréttar- dómnum margumtalaða voru á l?.á leið að hálfu forsvarsmanna Öryrkjabandalagsins að ekki væri ástæða til þess að Ifta neitt á dóminn, en greiða út bæturnar og nota sömu útreikninga eins og voru gerðir þegar skert var. Eg hygg að framvindan síðan hafi sýnt það að sú afstaða var ekki raunhæf. Dómurinn var ekki með þeim hætti að hann legði slíkar hreinar Iínur. Ef svo hefði verið hafði málið verið einfalt. Umræðan snýst oftar en ekki á þann veg að ríkisstjórnin ætli ekki að bregðast við dómnum, og gera það þá með vífilengjum. Það er ástæða til þess að undir- strika að málið hefur aldrei snú- ist um það að bregðast ekki við dómnum. Búið er að kalla Al- þingi saman og semja frumvarp vegna hans sem vonandi verður afgreitt á næstu dögum. Hitt er svo annað mál að deila stendur um það hvort nægjanlega langt er gengið. I mínum huga hafa „Það er áríðandi að komast að niðurstöðu um það hvort lágmarksbætur nægja til framfærslu og gera ráðstafanir I samræmi við það. Ég verð að viðurkenna að það mál olli mér meiri heilabrotum við frágang fjárlaga heldur en það hvort afnema bæri tengingu við tekjur maka með öllu, “ segir greinarhöfundur. bætur til öryrkja sérstöðu, sam- anborið við aðrar bæturúr trygg- ingakerfinu til dæmis til aldr- aðra. Aldraðir njóta vaxandi greiðslna frá lífeyrissjóðum, þótt aðstaða ýmissa þjóðfélagshópa sé þar enn misjöfn. Því er ekki til að dreifa um öryrkja sem þurfa að lifa á örorkubótum. Þessi sér- staða er undirstrikuð í niður- stöðukafla hæstaréttardómsins, en þar segir „að staða öryrkja geti því verið að þvíleyti ólík stöðu ellilífeyrisþega að margir þeirra greiða ekki t sama mæli í lífeyris- sjóð og geta því ekki öðlast sams konar réttindi úr lífeyrissjóðum". Endurskoðim almannatryggingalaga Framar öðru kallar niðurstaða Hæstaréttardómsins á endur- skoðun Iaga um almannatrygg- ingar. Aðstæður eru gjörbreyttar í samfélaginu og nýir afgerandi þættir eru komnir til sem þarf að taka mið af. Það er margumtal- aður hæstaréttardómur, og sú viðhorfsbreyting sem í honum felst. I öðru lagi hefur lífeyris- sjóðakerfinu vaxið fiskur um hrygg og spurning er hvort sam- ræma má betur eftirlauna- greiðslur þess og bótagreiðslur ríkissjóðs. Ég viðurkenni það að mér finnst almannatrygginga- kerfið þéttur frumskógur. Það þyrfti að einfalda það og sníða það að nútíma hugmyndum og aðstæðum. „Ég fullyrði að fyrir áratug eða svo iiiuii aði ekki nema hárs- breidd að frjáls inn- ílutiiiiigur væri knú- inn fram. Ég hygg að þátttaka hændasam- takanna í þjóöarsáít inni um kjaramál hafi orðið til þess að svo var ekki gert.“ I öðru Iagi er það staðreynd sem ber að undirstrika að ráð- stafanir í kjölfar dómsins koma ekki nema takmörkuðum hópi öryrkja að gagni. Það er áríðandi að komast að niðurstöðu um það hvort lágmarksbætur nægja til framfærslu og gera ráðstafanir í samræmi við það. Ég verð að við- urkenna að það mál olli mér meiri heilabrotum við frágang fjárlaga heldur en það hvort af- nema bæri tengingu við tekjur maka með öllu. En það er önnur saga. Hæstiréttur hcfur kveðið upp sinn dóm í því efni, og nú er gengið til aðgerða í framhaldi af þeim dómi. írskt nautakjöt Annað mál sem verið hefur til umræðu í vikunni sýnir að við- horfin geta snúist á rnargan veg. Ég hef um árabil tekið þátt í því með Framsóknarflokknum að standa vörð um stuðning við ís- lenskan landbúnað. Það er ekki langt síðan að kröfur um óheftan innflutning á landbúnaðarafurð- um voru eitt heitasta málið í stjórnmálaumræðunni, og það var blásið á ábendingar um sér- stöðu og hreinleika f íslenskum landbúnaði. Nú hafa málin þróast þannig að sjúkdómur hefur komið upp á meginlandinu sem skýtur al- menningi skelk í bringu. Þá sést hvers virði er að hafa varið land- búnaðinn með þeim stuðningi sem við hann hefur verið. Ég fullyrði að fyrir áratug eða svo munaði ekki nema hársbreidd að frjáls innflutningur væri knúinn fram. Ég hygg að þátttaka bændasamtakanna í þjóðarsátt- STJÓRNMÁL Á NETINU inni um kjaramál hafi orðið til þess að svo var ekki gert. Ég er auðvitað sammála því að ítrustu varfærni sé gætt í inn- flutningi landbúnaðarvara og fagna þeirri umræðu sem upp hefur komið um þetta mál. Mér sýnist að skynsamlega sé á því tekið hjá iandbúnaðarráðherra. Mál af þessu tagi sýnir það hversu áríðandi það er fýrir okk- ur að styðja að íslenskum land- búnaði til þess að framleiða góð- ar og heilnæmar afurðir, Framhaldsskólamir Þriðja málið í fréttum vikunnar var það að framhaldsskólarnir fóru í gang aftur, eftir ógnarlangt verkfall, og samið var við grunn- skólakennara í friðsamlegu samningaferli. Þetta er fagnaðar- efni og vonandi verða þessir samningar ekki til þess að setja allt í uppnám á almennum vinnumarkaði. Ég hef ekki frem- ur en aðrir séð þessa samn- inga,eða hvað í þeim felst. Hins vegar er það vitað að í þeim felst kerfisbreyting og verið er að færa margs konar verkefnagreiðslur inn í föst laun. Þetta hlýtur að hækka lífeyrisskuldbindingar rík- issjóðs verulega, þótt ég ætli mér ekki að fara með neinar tölur í því efni nema að betur athuguðu máli. Aukin rikisútgjöld Það er alveg ljóst að mikill þrýst- ingur er á aukin útgjöld úr ríkis- sjóði á næstu misserum og árum. Það er því mikilsvert að tekist hefur að treysta stöðu ríkisfjár- mála á undanförnum árum. Síð- ustu atburðir munu óhjákvæmi- lega kalla á aukin útgjöld til tryggingakerfisins og menrita- kerfisins, og ég er þess fullviss að þau stuðla að betra samfélagi. Til þess að standa undir auknum útgjöldum til frambúðar þarf staða ríkissjóðs að vera traust. Það skeður ekki nema atvinnu- lífið sé öflugt og traust í landinu og geti haldið uppi kaupmætti launafólks. Þetta samhengi má aldrei rofna. Mér finnst umræðan stundum vera á þá leið að ríkis- sjóður sé ótæmandi og það þurfi ekki að hafa ncinar áhyggjur vegna þess að hagnaðurinn á þessu ári sé áætlaður svo mik- ill. Þetta er hættuleg blekking, en hins vegar höfum við íslend- ingar alla möguleika til þess að halda uppi öflugu atvinnu- og efnahagslífi. Til þess verður að nýta þau tækifæri sem bjóðast til atvinnusköpunar. Baráttan á þeim vettvangi er efni f aðra grein. Stjoniin hefur mishoðið fólM Undir framangreindri fyrirsögn fjallar Agúst Einarsson, varaþing- maður Samfylkingarinnar, um ríkisstjórnina og öryrkjadóm Hæstaréttar: „Vatnaskil eru að verða í stjórn- málum. Lagasetning í kjölfar ör- yrkjadómsins er erfiðasta mál rík- isstjórnarinnar. Flestum hefur of- boðið framkoma stjórnarinnar, ekki hvað síst stuðningsfólki hennar. Afleiðingarnar geta orðið alvarlegar fyrir stjórnarllokkana. Framsókn kyngir harðlínustefnu forsætisráðherra umyrðalaust þótt málið sé á forræði Framsókn- arráðherra. Sjaldan hefur ráð- herra verið niðurlægður eins og þegar málið var tekið úr höndum Ingibjargar Pálmadóttur og skip- uð var nefnd á vegum forsætis- ráðuneytis til að meta dóminn og semja frumvarpið. Það lýsir einstökum hroka ráð- herra og þingmanna stjórnarinnar að segja við öryrkja sem eru ekki sammála ríkisstjórninni að þeir geti bara farið í mál. Þótt réttar- kerfið geri ráð fyrir þessari leið er það einstök ósvífni þegar meiri- hluti Alþingis setur umdeild lög að helsti rökstuðningur meiri- hlutans sé að fólk eigi að stefna ríkisvaldinu. Þetta sýnir skort á rökum og misbeitingu valds. Það lýkur valdatíma allra. Tími Thatchers og Kohls var langur en honum lauk og einhvern tímann hófst upphaf endalokanna. Það er ekki ólíklegt að öryrkjamálið verði seinna talið marka upphafið að endalokum ríkisstjórnarforustu núverandi formanns Sjálfstæðis- flokksins en nær engar líkur eru á því að Sjálfstæðis- og Framsókn- arflokkur myndi aftur ríkisstjórn í bráð. Hættulegast núverandi rík- isstjórn er að hún misbjóði fólki eins og hún gerir í öryrkjamál- inu.“

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.