Dagur - 16.01.2001, Síða 20

Dagur - 16.01.2001, Síða 20
20- ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 2001 flkureyi’i-Norðurland Styrkur til kveimaknattspymu Bæjarráð Siglufjarðar samþykkti nýverið að styrkja Knattspyrnufélag Siglufjarðar um 200 þúsund krónur sem sérstakt framlag til nieist- araflokks kvenna í knattspyrnu. Hafnað var umsókn frá Bjarna Mar- inó Þorsteinssyni vegna útgáfu Ijóðabókar. Fyrir liggur erindi frá Listaháskóla Islands þar sem lögð er fram kostnaðaráætlun vegna Hringferðar vorið 2001, en verkefnið felst í sýningum hringinn í kringum landið. Oskað er eftir stuðningi Siglufjarðarkaupstaðar við þetta verkefni með beinum eða óbeinum hætti. Afgreiðslu frestað. Framlag lír Jöfnuuarsjóði Kynnt var úthlutun þjónustuframlaga og viðbótarframlaga úr Jöfn- unarsjóði sveitarfélaga. Siglufjarðarkaupstaður fékk 21 milljón króna í þjónustuframlag á árinu 2000 og um 17 milljónir króna í viðbótar- framlög frá Jöfnunarsjóði. Styrkur vegna besta verðlaunagripsins Bæjarráð fjallaði um erindi Brynjars S. Sigurðssonar, f.h. nefndar sem vinnur að samkeppni um minjagripi, þar sem óskað er eftir framlagi frá Siglufjarðarkaupstað að upphæð 200 þúsund krónur til verðlauna fyrir besta grip Sigluíjarðar í samkeppni um gerð minja- gripa. Bæjarráð samþykkti umbeðna upphæð. Hættumat fyrir Siglufjörð Bæjarstjórn Siglufjarðar hefur samþykkt að óska eftir því við um- hverfisráðuneyti að gert verði hættumat fyrir Siglufjörð og að skipuð verði hættumatsnefnd hið fyrsta í samræmi við ákvæði 3. og 4. gr. reglugerðar um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða og gerð bráðabirgðahættumats nr. 505/2000. Sam- kvæmt sérstöku ákvæði til bráðabirgða í umræddri reglugerð skal hættumatsnefnd hafa lokið við gerð hættumats fyrir Siglufjörð á ár- inu 2001 og telur bæjarstjórn því brýnt að hættumatsnefnd geti haf- ið störf fljótlega." Fjárhagsáætlun 2001 Síðari umræða um fjárhagsáætlun fyrir árið 2001 fór fram skömmu fyrir jól. Fyrir liggur tillaga að fjárhagsáætlun 2001 sem vísað var af bæjarráði til síðari umræðu í bæjarstjórn. Skatttekjur eru áætlaðar 30 milljónir króna, framlag úr Jöfnunarsjóði 36 milljónir króna. Leik- skólagjöld eru áætluð 10 milljónir króna, laun 25 milljónir króna og launatengd gjöld 4 milljónir króna. Til menningarmála fara m.a. 200 þúsund krónur til leikfélagsins, 500 þúsund krónur til þjóðlagahátíð- ar, 50 þúsund til menningardaga og 75 þúsund krónur til Karlakórs Siglufjarðar. GG Aðatsteinn Sigurgeirsson forstöðu- maður Rannsóknastöðvar skógrækt- arinnar á Mógilsá ræsir nýjan búnað Kalstofunnar á Möðruvöllum. 1 « « » * ~ i « < < » • 1 «■«»* * jl < < « * 11 — HLii—- mm gt |p Líf eða dauði imdir frostmarki Milvlll breytileiM í frostpoli trjáplantna. Athyglisverðar rann- sóknir á kali gerðar á Möðruvöllum. Eins dags ráðstefna íslenskra sér- fræðinga í vetrarþoli lífvera var haldin á Akureyri föstudaginn 12. janúar og var viðfangsefnið hvern- ig lífverur geta haldið lífi eða hvernig þær drepast í vetrarkuld- um. Heiti ráðstefnunnar var „Líf eða dauði undir frostmarki - rann- sóknir á þoli lífvera við stýrðar að- stæður“. Flutt voru 10 erindi sem snérust um vetrarþol tijáplantna og tún- gróðurs og einnig frostþol sitkalúsar. Voru þarna kynntar niðurstöður íslenskra rannsókna, sem einkum hafa verið stundaðar á Kalstofunni á Möðruvöllum. Bjarni E. Guðleifsson, ráðunautur á Möðruvölluin segir að fram hafi kornið að breytileiki er mikill í frostþoli trjáplantna og séu miklir möguleikar á að beita ódýru og skjótvirku forvali með frostþols- prófunum á efniviði trjáplantna í stað þess að bíða eftir að náttúran velji réttu einstaklingana. „Einnig var greint frá því hvaða áhrif áburður og skygging hefðu á frost- þol tijáplantna í uppeldi. Þá var fjallað um kalskemmdir í túnum en þar er einkum um að ræða svellkal og voru kynntar rannsókn- ir á þoli vallarfoxgrass og hvít- smára,“ segir Bjarni. Töluverð þekking Svellkal er talsvert flókið íyrirbæri en þegar hefur safnast talsverð þekking á þessu sviði sem ætti að vera mögulegt að beita f baráttu við kalskemmdir. A öðrum svið- um er margt órannsakað og er vonast til að hægt verði að beita nýrri tækni við að draga úr tjóni af vetrarskemmdum. Þar ætti Kal- stofan á Möðruvöllum að koma í góðar þarfir að sögn Bjarna og að loknum erindaflutningi fóru ráð- stefnugestir út í Möðruvelli þar sem Kalstofan var enduropnuð með nýjum og bættum tækjabún- aði. Vetrarþolið mikilvægt Það voru Rannsóknastofnun land- búnaðarins og Mógilsá - rann- sóknastöð skógræktar - sem skipu- lögðu ráðstefnuna og standa þær sameiginlega að uppbyggingu Kal- stofunnar á Möðruvöílum. Má segja að einn þáttur ráðstefnunn- ar hafi verið að leiða saman til samvinnu sérfræðinga í jarðrækt og skógrækt, en á báðum sviðum er vetrarþolið afar mikilvægt til að geta stundað atvinnuveginn með góðum árangri,11 segir Bjarni. BÞ Þorratungl í hásuðri Stjórnandinn sem leiðtoginn á nýrri öld Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar og Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar, í samstarfi við starfsþróunarfyrirtækið Skref fyrir skref, boða til hádegisverðarfundar á Fosshótel KEA fimmtudaginn 18. janúar kl: 12:00 til 13:30. Frummælandi Hansína B. Einarsdóttir forstjóri Skref fyrir skref Stjórnandinn sem leiðtoginn á nýrri öld - Breytingar í starfs- og samkeppnisumhverfi - Leiðtogahugsun - Að glíma við þversagnir - Mikilvægir þættir í fari leiðtoganna - hverjir ná árangri Fundurinn er opinn öllum þeim sem áhuga hafa á stjórnun og stjórnunaraðferðum Verð kr. 1.000 innifalinn léttur hádegisverður Skref fyrir skref ehf er starfsþróunarfyrirtæki sem hefur frá árinu 1989 starfað við j rannsóknir, ráðgjöf, starfsþróun og stjórnun fyrir fyrirtæki og stofnanir um land allt. Skráning hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar (benedikt@afe.is) eða í síma 460-5700 og hjá Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar (simey@simey.is) eða í síma 460-5720 STM Atvinnuþróunarfélag Ey)al)arðar Nokkurrar bjartsýni gætir hjá Veð- urklúbbnum á Dalvík en félags- menn vilja halda sig við það sem sagt er um 3 íyrstu vetrartunglin. Þriðja tunglið endar 24. janúar er þorratungl kviknar, daginn fyrir Pálsmessu í hásuðri. Samkvæmt - því ætti veðrið að verða svipað og verið hefur, umhleypingasamt hvasst, norðlægar áttir og svalt en samt með hléum, það gæti þó orð- ið breyting á að hann verði meira vestanstæður og meiri skafrenn- ingur heldur en verið hefur, þó er ekki búist við miklum snjó eða stórtíðindum. Ef heiðríkt er úti veður á Pálsmessu degi, ársins gróða’ og gæða ineður get ég, að vænta megi. Klúbbfélagar voru ekki alveg vissir á hvort að yrðu einhver umskipti á nýju tungli , fiestir voru á því að svo yrði ekki frek- ar að tíðin yrði svipuð áfram, einhverjir skutu þó að, að þetta tungl í hásuðri gæti boðað norð- anátt og snjókomu. Bjartsýnina byggja samt fiest- ir á að rnjög sjaldgæft er að það komi harður vetur eftir slíku veðri og var hér síðastliðið sum- ar, og út frá því eru menn nokk- uð bjartsýnir fyrir veturinn, enn er samt nokkuð af veðurmerkj- unum óljós og eiga eftir að koma fram þannig að það er ekki gott að segja til um þetta strax. GG SKOÐANIR BRYNJÓLFS Pin númer á glámbekk Nýjar hugmyndir til að stemma stigu við inisnotkun á stolnum greiðslukortum eru þær að handhafi setji pin númer sitt á greiðslunótuna sem hann und- irritar í versluninni. Þetta á að koma í veg fyrir misnotkun. Það átlu myndirnar líka að gera og handritssýnishorn á kortunum. Hvorugt gekk eftir vegna and- varaleysis afgreiðslufólks sem lítur yfirleitt ekki á undirritun eða mynd og þvi' mundi ekkert annað fást út úr þessari nýju hugmynd en að setja pin núm- erin á glámbekk og þá byrjuðu nú fyrir alvöru tækifærin hjá þjófunum. Ég mun aldrei láta mitt pinnúmer af hendi.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.