Dagur - 16.01.2001, Side 21
Dagwr
flkureyri-Norðurland
ÞRIÐJUDAGU R 16. JANÚAR 2001 - 21
Góð vöm færði
Stólimuin sigur
Tindastóll vaim gríð-
arlega mikilvægaii
sigur á Grindavík í úr-
valsdeildinni í
körfuknattleik sl.
föstudag, 103-90,
Tindastóll er nú með 20 stig,
jafnmðrg stig og Njarðvík og
Keflavík, sem tapaði fyrir KR, en
er með Iakari stigamun en Kefla-
vík og Njarðvík. Tindastóll náði
þegar forystu, leiddi 25-20 eftir
fS'rsta leikhluta, 60-46 el’tir ann-
an leikhluta og 70-69 eftir þriðja
leikhluta. Um miðjan síðari hálf-
leik tókst Grindavík að saxa mjög
á forskot Stólanna með því að
raða niður 3ja stiga skotum, en
þá hrökk varnarleikur Tindastóls
heldur betur í gang að
nýju og í lokin munaði
13 stigum í sanngjörn-
um sigri Skagfirðinga.
Kristinn Friðriksson
var stigahæstur Tinda-
stóls með 25 stig og
jafnframt hesti rnaður
leiksins, Shawn
Myers, sem var valinn
leikmaður stjörnuleiks
KKI daginn eftir, skor-
aði 20 stigi og Adonis
Pomonis 17 stig, aðrir
minna. Stigahæstur í
liði Grindvíkinga var
Elentínus Margeirs-
son með 21 stig.
Valur Ingimundar-
son, þjálfari Tindastóls, segir að
fyrirfram hafi verið húist við
hörkuleik, og það gengið eftir, en
síðustu 1 5 mínútur leiksins hafi
Valur Ingimundarson,
þjátfari Tindastóls,
segir aö fyrirfram hafi
verið búist við hörku-
leik, og það gengið
eftir.
vörnin gert útslagið
en þá leiddu Grind-
víkingar með 10 stig-
um.
„Það kom 26 stiga
sveifla í leikinn þar
sem sóknin hrökk
einnig í gang hjá
Tindastóli og þá fóru
menn í alvöru að ætla
sér að innbyrða sigur
í leiknum. Það var
mjög mikilvægt að
vinna þennan leik, en
nánast hver einasti
leikur í úrvalsdeild-
inni er mikilvægur
----- fyrir okkur og svo
verður minni pressa á
okkur eftir því sem við erum
lengra frá liðunum neðar á töfl-
unni. Við eigum næst á spila við
Val á morgun ( í dag, innsk. blm.)
og það verður rosalega erfiður
leikur, Valur er í neðsta sæti
deildarinnar, og því þurfa menn
að mæta með réttu hugarfari í
þann leik. Það hættulegasta í
þessu er að vanmeta andstæðing-
inn en Valsmenn eru neðar með
ágætis lið, en þeir hafa h'tið
sjálfstraust eftir slæmt gengi, en
liðið getur hrokkið í gír, og þá eru
þeir illviðráðanlegir," segir Valur
Ingimundarson.
Tindastóll leikur við Val í kvöld
í' Reykjavík og síðan IR á þeirra
heimavelli en næsti heimaleikur
Tindastóls í „Síkinu“ er 8., febrú-
ar. Heimaleik Þórs gegn Isfirð-
ingum var festað vegna veðurs en
verður næsta fimmtudag, en í
kvöld leikur Þór gegn Haukum í
Hafnarfirði.
GG
Þór innaiiliús smeistari
Þórsliðið varð Islandsmeistari í
innanhússknattspyrnu 2001 um
helgina. Þetta er í annað sinn
sem Þórsarar verða lslandsmeist-
arar í innanhússknattspyrnu en
1993 unnu þeir Skagamenn í
fjörugum úrslitaleik.
Þór vann sinn riðil með fullu
húsi stiga, unnu ÍBV 1-0, Fylki
3-2 og Víking 1-0. í 8-liða úrslit-
um unnu þeir Grindavík 3-2,
mættu FH í undanúrslitum og
unnu þá sannfærandi 5-1. Ur-
slitaleikurinn var svo gegn Val, og
þann leik unnu Þórsarar 4-0 og
var sá sigur mjög sannfærandi.
Hlynur Birgisson gerði fvrstu tvö
mörk Þórsara í úrslitaleiknum,
Örlygur Þór Helgason það þriðja
og Þórður Halldórsson það
fjórða. Þetta er glæsilegur árang-
ur, ekki síst þar sem ekki var bú-
ist við þessum árangri fyrirfram,
en margir þeir sem fygldust með
mótinu voru sammála um að
besta liðið vann sigur á því, bar-
átta Ieikmanna var allsráðandi.
Innanhússknattspyrna er allt
önnur íþrótt en knattspyrna ut-
anhúss, en samt er þessi sigur
gott veganesti fyrir íslandsmótið
utanhúss, en Þórsarar leika þar
að nýju í 1. deild eftir glæsilegan
sigur í 2. deildinni á sl. sumri.
KA vann einnig sinn riðil og
voru Akureyrarliðin einu liðin
sem voru með fullt hús stiga eft-
ir riðlakeppnina. KA vann fyrst
Val 3-2, síðan Þrótt 1-0 og loks
Hvöt 7-0. 1\A tapaði svo fyrir FH
í 8-Iiða úrslitum. Arangur annara
norðlenskra liða var dapur.
Tindastóll, Hvöt á Blönduósi og
Dalvík féllu í 2. deild, en úr 3.
deild komst Nökkvi á Akureyri
upp í 2. dcild. Siglfirðingar féílu
í 4. deild. Það vakti athygli að ný-
bakaðir Reykjavíkurmeistarar,
Fylkir, féllu í 2. deild.
„Þetta var alveg indælt, góð til-
finning að koma aftur til baka til
síns gamla félags, Þórs frá Dal-
vík, og vinna með þeim Islands-
meistaratitil. Við vorum ekki
nema hæfilega bjartsýnir þegar
við fórum suður því við vorum í
Glaðbeittir íslandsmeistarar Þórs í innanhússknattspyrnu með sigurlaunin.
erfiðum riðli, m.a. með Fylki sem
var nýbúin að vinna Rcykjavíkur-
meistaratitil og Vestmannaeying-
um og innst inni vorum við bara
að hugsa um að halda okkur
uppi. Það var svaka góð stemning
í liðinu, allir innstilltir að gera
sitt besta. Erfiðustu leikirnir
voru gegn Fylki í riðlakeppninni
og síðan FH í 8-liða úrslitum en
þar vorum við einum færri í 4
nn'nútur og 5 mínútur eftir í
stöðunni 2-2. Við náðum að
þrauka og skora síðan sigurmark-
ið með algjörum „grís“ rétt fyrir
leikslok, markmaður þeirra mis-
sti boltann í markið þegar hann
ætlaði að henda honum fram. I
úrslitaleiknum gegn Val bökkuð-
um við ekki, heldur héldum
pressunni og uppskárum sam-
kvæmt því," segir Atli Már Rún-
arsson, markvörður Þórs.
GG
Þór hefur sagt
samningi við Þor-
vald Þorvaldsson,
Hnumann, upp.
Þórí
3. sætinu
Þór er í 3. sæti
2. deildarinnar
í handbolta eft-
ir 7 umferðir
og leikur næsta
leik gegn Vík-
ingi á föstudag
í Víkinni.
Næsti heima-
leikur er ekki
fyrr en 26. jan-
úar gegn Sel-
fossi. Selfyss-
ingar eru í
efsta sæti
deildarinnar
með 11 stig og
markatöluna 204-166, Víkingur í
2. sæti ineð 10 stig og markatöl-
una 159-155 og Þór með 7 stig
og markatöluna 187-177. Síðan
kemur Fjölnir með 6 stig og Fylk-
ir án stiga.
Þór átti að leika við lR-b síðasta
föstudag en daginn áður drógu
IR-ingar lið sitt úr mótinu, töldu
sig ekki hafa efni á því að ferðast
norður, enda ódýrara að borga
HSI 30 þúsund króna sekt en að
ferðast norður eina ferð að vetrin-
um. 2. deildin hefur verið bálf-
gerð „huldudeild" í vetur, leikir
verið færðir til án þess að þess
hafi verið getið fyrirfram, og því
stundum erfitt að fylgjast þar
með gangi mála. Það að aðeins 5
lið skuli leika 2. deildinni sýnir
betur en margt annað að hand-
boltinn á íslandi er í mikilli Iægð
og því þarf handboltafoiy'stan að
taka á áður en illa fer.
Þór hefur sagt samningi við
Þorvald Þorvaldsson, línumann,
upp, og mun ástæðan vera sú að
hann hefur ekki sinnt æfingasókn
sem skyldi auk þess að vera ekki í
formi. GG
Steinn Viðar
Gunnarsson
tilKA
Steinn Viðar Gunnarsson hefur
tjlkynnt félagsskipti úr Leiftri í
IvA og leikur því með Akureyrar-
liðinu næsta sumar í 1. deildinni
í knattspyrnu. Steinn hefur leik-
ið sem miðvörður og þótt öflug-
ur í þeirri stöðu. Hann er Ijöl-
hæfur leikmaður sem getur leik-
ið bæði í vörn og á miðjunni.
Steinn Viðar, sem er 24 ára, er
KA-mönnum ekki ókunnugur
þar sem hann lék með liðinu fyr-
ir nokkrum árum. Samningur
KA við Stein er til cins árs.
Keflvíkingurinn Jóhann Stein-
arsson hefur tilkynnt félags-
skipti úr KA í Tindastól, en
Tindastóll leikur einnig í 1.
deildinni. GG
Tapaði gegn Fram í slagsmálaleik
KA/Þór lék á laugardaginn við
Frain í 1. deild kvenna og um
tírna leit út fyrir að KA/Þór ynni
Fram, voru yfir 12-10 í hálfleik,
en kannski voru möguleikarnir
úti eftir að Fram-valkytjurnar sko-
rðu fyrstu fimm mörkin í síðari
hálfleik. Lokatölur urðu 25-19
fyrir Frarn. Einn besti Ieikmaður
KA/Þórs, Eyrún Káradóttir,
meiddist í upphafi síðari hálfleiks,
en þá hafði hún skorað 6 mörk,
og þá fjarlægðust möguleikarnir.
Leikurinn var mjög harður, sér-
staklega varnarleikur Fram, og
undarlegt að dómararnir skyldu
ekki taka á því og Hlynur Jó-
hannsson, þjálfari KA/Þórs, segir
að hann hafi aldrei Ient í öðru
eins, dómararnir hafi tekið af
þeim sigurinn með hörmulegri
dómgæslu. „Liðið spilaði fantavel
og þar er raunar synd að hafa ekki
unnið leikinn. Þetta er einn allra
besti Ieikurinn hjá liðinu frá því
ég tók við sem þjálfari," sagði
Hlynur. Hh'iiur fékk að líta rauða
spjaldið frá dómurunum fyrir að
spvrja, „höfum við gert vkkur eitt-
hvað" þegar honum hlöskraði
dómgæsla dómaranna. Sigurbjörg
Hjartardóttir átti stórleik i inark-
inu hjá KA, varði 14 skot, og var
besti maður liðsins í leiknum
ásamt Eyrúnu Káradóttur. Mörk
KA gerðu Eyrún Káradóttir, 6; As-
dís Sigurðardóttir, 5; Elsa Birgis-
dóttir, 2; Asa Gunnarsdóttir, 2;
Inga Dís Sigurðardóttir, 2;
Martha Hermannsdóttir, 1 og
Þórhildur Björnsdóttir, 1.
KA/Þór lék gegn toppliði
Hauka á miðvikudag og töpuðu
26-20 en Haukar höfðu vfir, 12-
10, í hálfleik. KA/Þórs-Iiðið var
seint í gang og spilaði illa fyrstu
15 mínúturnar en þá komust
Haukar í 8-2, en síðan fór liðið að
spila sem heild og hélt í við Hauk-
ana. Markahæst KA/Þórs stúlkna
var Inga Dís Sigurðardóttir með 6
mörk, þar af 3 úr vítum, Asdís
Sigurðardóttir með 5 þrátt fyrir
að vera tekin úr umferð, Eyrún
Káradóttir með 4, Elsa Birgisdótt-
ir nreð 3 og Asa Gunnarsdóttir og
Guðrún Linda Guðmundsdóttir
með sitt markið hvor.
GG