Dagur - 03.02.2001, Blaðsíða 1

Dagur - 03.02.2001, Blaðsíða 1
I A Nesið Longusker? Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar telur sterkar líkur á því að Löngusker í Skerja- firði séu í eigu bæjarins. Sem kunnugt er þá hafa þessi sker komið mikið við sögu um framtíð flugvallar á höfuðborgarsvæðinu og m.a. í frægri sjónvarpsmynd Hrafns Gunnlaugssonar. Máli sínu til stuðnings bendir bæjarstjórinn meðal annars á að Nesjarðirnar voru með öll hlunnindi af skerjunum. Þar á meðal sölvatekju, selveiðar og allt sem því tilheyrði. Hann vill þó ekki slá eign sinni á öll skerin að óathuguðu máli og m.a. vegna þess að þau heita einum sex til átta nöfnum. Sjálfur segist hann fljótt á litið vera hrifinari af þeirri tillögu sem gerir ráð fyrir að stytta NS- brautina og leggja nýja AV-braut á uppfyllingu á sjó til vesturs í Skerjafirði, en velli á Liingu- skerjum. — GRH Sjá nm flugvöllinn bls. 32-33. Nýir Eyftrðingar Tímamót urðu í Dalvíkurbyggð í gær þegar formleg starfsemi hófst í nýju kjúklingabúi. Sjá bls. 28. Alvarlegt ástand í fiskviimsluimi Forsvarsmeim fisk- viimslufólks hyggjast taka alvarlega stöðu upp á fundi með ríkis- stjóm eftir helgiua. Um 200 manus að hætast á atvinuuLeys- isskrá um þessar mundir. Atvinnuöryggi fiskverkafólks á Islandi fer ört þverrandi þessar fý'rstu vikur þessa árs. Atvinnu- leysi fer vaxandi og segir Aðal- steinn Baldursson, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur, að benda megi á staði eins og Bol- ungarvík vegna gjaldþrots, Vest- mannaeyjar vegna stórbruna, A Eskifirði sé búið að segja upp starfsfólki í rækjunni, fækkað hafi starfsfólki á Húsavík um 20 manns og engin rækjuvinnsla á Kópaskeri hafi farið af stað á þessu ári. Ollum starfsmönnum hefur verið sagt upp hjá rækju- verksmiðjunni Pólum á Siglu- firði, og segir Aðalsteinn að búast megi við fleiri ótíðindum í þessa veru á næstu vikum. Aðalsteinn Baldursson: Vill fund með ríkisstjórninni. Atvinnuleysi „Þetta gætu verið um 200 manns sem eru að koma inn á atvinnu- leysisskrá á næstunni. Þetta er það alvarlegt ástand sem er að skapast í fiskvinnslunni um allt land og forystumenn Starfs- greinasambands Islands munu funda á þriðju- dag um ástandið og síðan mun- um við taka þetta mál upp í viðræðum við ríkisstjórnina á miðvikudag ef við fáum fund með henni,“ segir Aðalsteinn Baldursson. Erfittí rækjuimi Arnar Sigur- --------- mundsson, for- maður Samtaka fiskvinnslustöðva, segir að rekja megi þetta ástand nú til þess að hluta, að nú sé sá tími sem ininnst aflist og vertíð ekki kom- in í gang, en erfiðleikarnir í rækjuvinnslu hafi haft það í för með sér að þar hafi störfum fækkað, m.a. vegna þess að fjór- ar rækjuvinnslur séu lokaðar í dag, en ástandið sé væntanlega tímabundið misjafnt eftir lands- hlutum. Einnig séu erfiðleikar í mjöl- og lýsisvinnslu og þá hafi áhrif að á þessu fiskveiðiári dragi heldur úr þorskaflanum, en ein- nig miðist öll þróun og tækni í greininni við það að störfum fækki heldur jafnvel þótt afla- mark geti verið svipað á milli ára. Söltun hefur hins vegar gengið vel og frysting hefur oft staðið Iakar að vígi. „Þetta ástand bitnar fyrst á út- lendingum og þeim sem eru lausráðnir. Launahlutfallið er hæst í bolfiskfrystingunni og þar er flest fólkið í úrvinnslunni, en mun færra fólk þarf til að vinna sama magn í saltfisk. Einnig hef- ur tæknin fækkað fólki geysilega í mjöl- og lýsisvinnslunni." — GG Meiri ábyrgð -minnilaim Áfangastjóri Framhaldsskólans á Húsavík er afar ósáttur við hluta hins nýja kjarasamnings fram- haldsskólakennara og ríkisins sem nú hefur verið samþykktur. Sú sér- kennilega staða er upp að hann fær nú greidd minni laun vegna meiri ábyrgðar. Ef áfangastjórinn myndi segja upp starfi sínu og ger- ast óbreyttur kennari, fengi hann meiri laun fyrir minni ábyrgð. Launamál áfangastjórans eru með þeim hætti að hann raðast í flokk sem veitir honum kr. 197.609 á mánuði. Ef hann segði upp og gerðist óbreyttur kennari fengi hann hins vegar kr. 216.075 á mánuði í grunnlaun. „Þetta er niðurstaða samninganna eftir tveggja mánaða verkfall. Þeir sömdu af sér gagnvart Iitlu fram- haldsskólunum," segir áfangastjór- inn, Björgvin R. Leifsson. Að sögn Björgvins voru búnir til þrír launarammar í nýju samning- unum; a-rammi fyrir byrjendur og réttindalausa, b-rammi fýrir rétt- indakennara og c-rammi fyrir stjórnendur. Allir stjórnendur eru sjálfkrafa settir í lægsta Iaunaflokk en síðan geta þeir hækkað í laun- um eftir stærð skóla, allt að hund- rað þúsund krónum á mánuði. „Okkar skóli er svo lítill að ég hækka nánast ekki neitt," segir Björgvin. Björgvin er með hámarksaldurs- réttindi eftir margra ára kennslu og hann tekur dæmi um einkenni- lega stöðu. „Ef Birldr skólastjóri myndi reka mig eins og hann ætti sjálfsagt að gera og ráða bara mann inn af götunni sem hefði aldrei komið nálægt kennslu, þá fengi hann sjálfkrafa sömu laun og ég. Masterinn minn er einskis metinn sem stjórnanda og ekki heldur kennslureynsla eða aldur. Eg er mjög fúll vegna þessa." Áfangastjórinn hefur ritað at- hugasemd til félags stjórnenda en svar formanns er hvorki fugl né fiskur að sögn Björgvins. Dagur náði ekki í það fólk sem veitt gætu viðbrögð við upplýsing- um áfangastjórans. — Bt> Rusl í Skagafirði - sjá íslendinga- þætti Ráðgáta Seðla bankans bls. 29 Áróðursstríð umReykja- víkurflugvöll bls. 32 33

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.