Alþýðublaðið - 26.02.1967, Side 2
2
26. febrúar 1967 - Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐID
Guðbjartur Gunnarsson:
SJÓNVARPSSPJALL
Tilraunir ineð litsjónvarp
hafa staðið lengi yjir. Litsjón-
varp hefur verið í fullum
gangi um nokkurt árabil, t. d.
I Bandaríkjunum. Litsjónvarp
hefur verið notað við kennslu,
til dæmis við læknaháskóla í
París og Marseilles, þar sem
lokað kerfi tengir kennslustof-
urnar við skurðstofur spítal-
anna. Flest gömlu stiidióin í
Hollywood eiga nú alla afkomu
sína undir framleiðslu dag-
skrárefnis fyrir sjónvarp — og
sl. ár var meira en helming-
ur allrar framleiðslunnar í lit-
um. Hollywood Palace-dagskrá-
in í Keflavikursjónvarpi er
tekin í litum, enda þótt lítið
fari fyrir þeim í svart-hvítri
útsendingu. Litajafnvægi í
þeirri útsendingu er þó býsna
gott. Þvi nefni ég þetta atriði,
að hér er komið inn á grund-
vallaratriði í sarnbandi við lit-
sjónvarp, hvort sem efnið er
tekið upp á myndsegulband eða
filmu: litajafnvægi innan svart
hvíta stigans er býsna erfitt að
■halda, þegar unnið er með
svart-hvítt, en vandinn marg-
faldast, þagar unnið er með
lit.
Litsjónvarp þarf að vera
liægt að senda út bæði fyrir
svart-hvítt móttökutæki og lit-
móttökutæki. Það væri því verr
farið en heirna setið, ef litirn-
ir breyttust svo í hinum elec-
tronisíza búningi, að í sv/hv
tæki greindust aðeins svartir
og hvítir tónar, en millitónar
hyrfu, en í litsjónvarpinu væru
litirnir meira og minna mtlaus-
ir. En einmitt á þessu sviði hef-
ur vandinn legið, vegna þess,
hve sumir litir eru varasamir
í lýsingu, jafnvel grár litur,
sem oft tekur á sig furðuleg-
ustu blæbrigði, ef lýsingin er
ekki hárnákvæm. Litkvikmynd-
un fyrir sjónvarp lýtur sérstök-
um lögmálum varðandi lýs-
ingu: filman þarf að vera
„þynnri” en t. d. fyrir bíó-
sýningar.
Það þarf fjórum sinnum öfl-
ugri lýsingu við litsjónvarp en
svart-hvitt og styrkleiki „hvíta
Ijössins” í litrófinu er þar höf-
uðatriði (color temperature).
Nægir hér að minna á hvernig
litirnir breytast á litfílmu, þeg
ar myndir eru teknar t. d. hálf-
tíma fyrir sólarlag. Rauða slikj-
an, sem kemur á myndina er
vegna þess, að styrkleiki hvíta
Ijóssins í litrófinu er kominn
niður' fyrir þau mörk, sem lita-
jafnvægi filmunnar er reiknað
fyrir (color balance). Svíðs-
bygging, málning oog andlits-
förðun, verður því að byggj-
ast á vísindalegri nákvæmni,
ekki síður en lýsingin. Kostnað-
ur við litsjónvarp' er gróflega
áætlaður þrefaldur kostnaður
sv/hv. sjónvarps og fellur að-
allega á hina tæknilegu hlið.
HÚSBYGGJENDUR
Hjá okkur getið þér fengið næstum allt efni í bygginguna á ernum stað. Góð bílastæði og auðvelt að komast að. Góðfúslega kynnið yður verð og
vöruval hjá okkur. — Það sparar yður sem vöruvalið er mest. tíma og fyrirhöfn að verzla þar
Timbur, járn o.fl. þungavörur sími 41010
Verzlúnin sími 41849
Skrifstofan sími 40729
Byggingavöruverzlun Kópavogs
Kársnesbraut 2 — Kópavogi.
Trésmiðir — JHúsgagnasmiðir — Bólstrarar
Á rshátíð
félaganna verður haldin að Hótel Borg
föstudaginn 17. marz. — Nánar í bréfi.
Skemmtinefndir.
Vön vélritunarstúlka,
óskast strax til byggingafyrirtækis. Þarf að
kunna þýzku og/eða ensku. Góð laun. Umsækj
endur komi til viðtals nk. mánudag eftir há-
j degi.
Strabag Bau A/G
c/o Sigurður Hannesson & Co. hf.,
Hagamel 42
Símar 2231« og 1718«.
SERVÍETTU-
PRENTUN
SfMX S240L
Koparpípur og
Rennilokar.
Fittings.
Ofnkranar,
Tengikranar,
Slöngukranar,
Blöndunartæki.
Burstafell
bysrgingavöruverzlun
Réttarholtsvegi 3.
Simi 3 88 40.
TILKYNNING
FRÁ HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN RÍKISINS
Húsnæðismálastofnun ríkisins vill hér með
benda umsækjendum/væntanlegum umsækj
endum um íbúðL;rJán á neðangreind atriði:
1. Einstaklingar og sveitarfélög, sem hyggjast
hefja byggingu íbúða á árinu 1967 svo og
einstaklingar, sem ætla að festa kaup á í-
búðum, og sem koma vilja til greina ,við
veitingu lánsloforða húsnæðismálastjórnar
árið 1967, sbr. 7. gr. A., laga nr. 19/1965
um Húsnæðismálastofnun ríkisins, skulu
senda umsóknir sínar, ásamt tilskildum
gögnum og vottorðum, til Húsnæðismála-
stofnunar rílíisins eigi síðar en 15. marz
1967. Umsóknir, sem síðar kunna að ber-
ast verða ekki teknar til greina við veit-
ingu lánsloforða á árinu 1967.
2. Þeir, sem þegar eiga umsóknir hjá Hús-
næðismálastofnuninni og fengið hafa skrif
lega viðurkenningu fyrir að umsókn
þeirra sé lánshæf, ÞURFA EKKI að endur
nýja umsóknir.
3. Umsóknir um viðbótarlán verða að hafa
borizt stofnuninni eigi síðar en 15. marz
n.k.
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN RÍKISINS
Þjóðdansafélag
Reykjavíkur -
ÁRSHÁTIÐ
Þjóðdansafélags Reykjavíkur iverður í Lind
arbæ föstudaginn 3. marz kl. 19,30.
Þorramatur — Skemmtiatriði.
— Komið í þjóðbúningum. —
Aðgöngumiðar seldir í Úra- og skartgripa
verzluninni Skólavörðustíg 21, mánudaginn
27. febrúar og í Alþýðuhúsinu sama dag kl.
20—23.
Skemmtinefndin.
Krísuvík
Jörðin Krísuvík Hafnarfirði ásamt gróðurhús
um er til leigu.
Tilboð um leigu á jörðinni í heild eða
einstökum hlutum hennar skulu send Bæjar
skrifstofunum fyrir 20. marz nk.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði.