Alþýðublaðið - 26.02.1967, Qupperneq 13
Sunnudags AIÞÝÐUBLAÐIÐ -• 26. febrúar 1967
13
sæISbíP
, siml 5018«.
GYDINGAR - TONLISTARMENN
Þreyttur
eiginmaSur
ítölsk-frijnsk djörf gamanmynd.
Sýnd kl. 7 og 9_
Bönnuð börnum.
BÓFA
- SKIPIÐ
Amerísk gamanmynd.
Sýnd kl. 5.
VENUSARFERÐ
BAKKABRÆÐRA —
Sýnd kl. 3.
Synir Kötu Elder.
Víðfræg amerísk litmynd.
íslenzkur texti.
John Wayne
Sýnd kl. 9.
KONUMORÐINGJARNIR
Hin bráðskemmtilega mynd
með Peter Seller.
Sýnd kl. 5 og 7.
PÉTUR í FULLU FJÖRl
með Ole Neiímann...
Sýnd kl. 3.
ÞAÐ ER almenn skoðun, að hæfileikar
ýmsir og eiginleikar séu einkennandi með
þjóðum, svo sem það, að Englendingar séu
þrautseigir, Frakkar örir, Þjóðverjar ná-
kvæmir, Grikkir gáfaðir og námfúsir, ein
þjóð sé hagari en önnur. Sumar þjóðir
skara fram úr öðrum í sérhæfðum atvinnu-
greinum, vísindum eða listum, nefna má
ítalska fiðlusmiði, tékkneska glerblásara,
finnska arkitekta og fer þetta mjög eftir
aðstæðum á hverjum tíma.
Mörg lönd geta státað af þróttmiklu tón-
listarlífi, en séu þeir skoðaðir ofan í kjöl-
inn, sem víða hafa náð lengst bæði í sköp-
un og túlkun, kemur í ljós, að undramarg-
ir eru Gyðingar, þótt lífið hafi síður en
svo leikið við þá þjóð um aldir. Hvað það
er, sem gerir ótrúlega marga Gyðinga fjár-
jnálasnillinga, eðlisfræðinga og tónlistar-
menn, skal látið ósagt, en hinu er ekki að
neita, að tónlistargáfa virðist leggjast í
ættir eins og glöggt má sjá í landi persónu-
sögunnar, íslandi. Tónlistarhæfileikinn er
„eitthvað extra”, sem ekki er öllum gefið.
Pétur eða Páll getur ekki tekið sig til og
ákveðið, að nú skuli hann læra að verða tón-
snillingur, jafnvel þótt hann hafi góðar
almennar gáfur og geti lært nóturnar, ef
hann vantar neistann. Hins vegar verður
undrabarnið það oft fyrirhafnarlítið að vísu
með ögun og aðhlynningu. Suma snertir
tónlistin alls ekki, verkar aðeins sem hvim-
leiður hávaði, jafnvel þótt þeir leggi sig
eftir henni, en aðra hrífur hún ósjálfrátt,
jafnvel kornabörn.
Til sönnunar því, hve tónlistarhæfileik-
inn er ríkur í Gyðingum, skal tekinn fróð-
legur kafli úr bókinni The Oxford Com-
panion to Music eftir Scholes. Við íslend-
ingar höfum reyndar notið góðs af starfi
margra Gyðinga og er þáttur sá, sem þeir
STÉTTARFÉLAG VERKFRÆÐINGA
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Stéttarfélags verkfræðinga verð
ur haldinn í Tjarnarbúð, uppi, þriðjudaginn
28. þ.m. kl. 20,30.
Fundarefni samkvæmt félagslögum.
Félagsmenn fjölmennið.
Stjórnin.
KÓPAVOGUR
Alþýðublaðið vantar blaðburðarbörn í Aust-
urbæ.
Upplýsingar í síma 40753.
Mjög ódýr frímerki frá Austurríki
2800 vel með farin frímerki og minningarmerki að sannvirði
320 mörk fást af sérstökum ástæðum fyrir aðeins 300 mörk.
Hægt er að greiða með íslenzkum krónum meðan birgðir
endast. Utanáskriftin er: MARKENZENTRALE, Dempscher-
gasse 20, 1180 Wien.
Tilboð óskast í sölu á:
Eldhúsinnréttingum.
Eldhúsvöskum.
Þakefni.
í byggingar Framkvæmdanefndar byggingar
áætlunar í Breiðholtshverfi.
Útboðsgagna-má vitja á skrifstofu vora gegn
Kr. 2000,- skilatryggingu.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 10140
POSTULÍNSVEGGFLÍSAR
Ensku postulínsflisarnar komnar aftur
Stærð: 7J/>xl5 og 15x15 cm. — Gott verð.
LITAVER
Grensávegi 22 og 24.
eiga í uppbyggingu tónlistarlífs hér á þess-
ari öld, óskráður enn.
„Meðal tónskálda af Gyðingaættum má
nefna Ferdinand Ries, Meyerbeer, Halévy,
Mendelssohn, Ferdinand Hiller, Moscheles,
Offenbach,- Ferdinand David, Rubinstein,
Goldmark, Bruch, Cowen Moszkowski,
Korngold, Mahler, Dukas, Sehönberg,
Schreker, Ornstein, Milhaud, Kurt Weill,
Lourié, Eisler, Toch, Frankel, Jacobi, Will-
iam Schuman, Diamond, Lukas Foss, Le-
onard Bemstein, Gruenberg, Blitzstein,
Alexander, Julian og Gregory Krein, Max-
imilian Steinberg, Castelnuovo-Tedesco,
Morton Gould, Bernard Hermann, Zopatni-
kof, Schillinger, Elie Siegmeister, Wein-
berger, Gniessin, Tausman, Saminsky,
Achron, Copland, Bloch, Irving Berlin og
George Gershwin.
Fiðlan virðist hafa sterkt aðdráttarafl á
Gyðinga. Meðal frægra fiðlusnillinga þeirra
eru: Reményi, Joaehim, Auer, Kreisler,
Huberman, Heifetz, Elman, ' Zimbalist,
Seidel, Menuhin. Nýir og nýir fiðluleikar-
ar koma fram og er stór hluti þeirra af
Gyðingaættum.
Af frægum selloleikurum má nefna Pop-
per og Feuermann.
Píanóleikarar: Anton og Nicholas Rubin-
stein, Godonsky, Bauer, Moritz Rosental,
Fanny Bloomfield Zeisler, Sauer, Ignaz
Friedman, Arthur Rubinstein, Schnabel,
Serkin, Lhevinne, Solomon, Moiseiwitseh,
Harold Samuel, Horowitz, Myra Hess, Ir-
ene Scharrer og Harriet Cohen.
Söngvarar eru fjölmargir: Pasta Brham,
Schorr, Selma Kurz, Kipnis, Tauber, Hen-
schel o. fl. í öllum tónlistarskólum um allan
heim er fjöldi Gyðinga við nám.
Hljómsveitarstjórar: Damrosch, Hertz,
Bruno Walter, Klemperer, Leo Blech, Ron-
ald Koussevitzky, Szell, Monteux og Do-
browen.
Tónlistarfræðingar og gagnrýnendur sömu
þjóðar eru margir, einkanlqga í Þýzkalandi.
Nokkur nöfn mætti nefna. í Þýzkalandi og
Austurríki: Adler, Alfred Einstein, Curt
Sachs, Paul J. Bekker, Hornbostel, Idel-
sohn, Eric Werner og Robert Lachmann,
sérfræðingur í Austurlandatónlist, í Eng-
landi Kalissh.
Mjög margir fyrirgreiðendur tónlistar-
manna og stjórnendur hljómleikahúsa eru
Gyðingar, svo og útgefendur tónverka."
Eins og kunnugt er, stendur tónlistarlíf
í ísrael með miklum blóma. Árið 1948 var
stofnaður tónlistarskóli með hundrað nem-
endum; — 1950 voru þeir orðnir átta
hundruð. Árið 1936 var Palestínu-symfóníu-
hljómsveitin í Tel Aviv stofnsett og vígð af
sjálfum Toscanini.
Þrátt fyrir smæð landsins og ýmsa erfið-
leika hefur framgangur tónlistar verið með
ólíkindum í landi hörpuleikarans, Davíðs
konungs.