Alþýðublaðið - 26.02.1967, Síða 14
14
26. febrúar 1967 - Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐfO
Greiðslujöfnuður
Framhaia áí i. siOu.
aðstæðna í sjávarútveginum fóru
að koma fram. Þannig var inn-
flutningsaukningin á fyrsta árs-
fjórðungi 1966 31% miðað við
sama tíma árið áður, en aðeins
7% síðasta ársfjórðunginn. í
þessum samanburði er frá talinn
innflutningur skipa og flugvéla,
svo og innflutningur vegna Búr-
fellsvirkjunar, en þetta Ihvort
tveggja nam um 780 millj. á ár-
inu. Fyrir árið í heild nam inn-
flutningsaukningin um 16%.
Sú þróun útflutnings og inn-
flutnings, sem nú hefur verið rak
in, hlaut að ‘hafa í för með sér
allverulega rýrnun greiðslujafn-
aðarins miðað við 'árið 1965.
Samkvæmt skýrslum Hagstofunn
ar var heildarhallinn á 'vöru-
skiptum við útlönd um 806 millj.
kr. á árinu 1966, en þá er inn-
flutningur reiknaður cif. þ.e.a.s.
að meðtöldum flutningsgjöldum,
tryggingum og öðrum innflutn-
ingskostnaði. Sé bæði innflutn-
ingur og útflutningur reiknaður
á sama grundvelli, eins og eðli-
legt er að gera í greiðslujafnað-
aryfirliti, og sé einnig við inn-
flutningstölur Hagstofunnar bætt
100 millj. kr. vegna kostnaðar
við lengingar á flugvélum og
skipum, sem áttu sér stað á ár-
inu, verður heildarniðurstaðan
sú, að vöruskiptajöfnuðurinn
hafi verið óhagstæður um nálægt
250 millj. kr. á árinu 1966. Eru
þá með taldar í innflutningi þær
780 millj., sem varið var á ár-
inu til innflutnings skipa og flug
véla og til Búrfellsvirkjunar.
Einnig er litlit fyrir, að nokk-
ur halli hafi orðið á duldum
greiðslum á árinu, en með þeim
Færeyingum tryggð
aukin sjálfstjórn?
teljast gjöld vegna skipa og flug-
véla, ferðalaga, tekjur af varn-
arliðinu, vaxtagjöld o.fl. Sam-
kvæmt bráðabirgðaáætlun Seðla
bankans virðist hæfilegt að á-
ætla, að um 350 millj. kr. halli
hafi verið á viðskiptajöfnuðinum
í heild, þ.e.a.s. á viðskiptum
bæði með vörur og þjónustu á
árinu 1966. Er þetta svipaður
halli og á árinu 1964, en mun
lakari afkoma en 1965, en þá
varð rúmlega 200 millj. kr. hag-
stæður jöfnuður.
Á móti hallanum á viðskipta-
jöfnuði ársins 1966 komu ýms-
ar fjármagnshreyfingar, er námu
nettó 'svipaðri fjárhæð. Var hér
einkum um að ræða lán til langs
tíma, bæði vegna skipa- og flug-
véiakaupa og þeirra virkjana-
framkvæmda, sem þá hófust.
Niðurstaðan varð því sú, að
heildargreiðslujöfnuðurinn, eins
og hann kemur fram í gjaldeyr-
isviðskiptum bankanná, var í
jafnvægi á árinu, sem kom -fram
í því, að nettógjakleyriseign
bankanna hélzt svo til óbreytt,
ef frá eru taldar árstíðasveiflur.
Nam hún í árslok 1966 1915
millj. í árslok 1965. Er þctta í
fyrsta skipti síðan 1959, sem ekki
hefur orðið teljandi aukning á
gjaldeyrisforða þjóðarinnar.
♦Kaupmannahöfn 25. 3. (NTB-RB)
Jens Otto Krag forsætisráð-
herra hefur tjáð sig fúsan til að
ræða við yfirvöld á Færeyjum um
liugsanlegar breytingar á lieima-
stjórnarlögunum, að því er frá
var skýrt í morgun.
Krag hefur sagt í viðtali við
færeyska útvarpið, að stjórninni
sé kunnugt um afstöðu Færeyj
inga og að það hljóti að vera
grundvöllur fyrir árangursríkum
samningaviðræðum um lausn á
vandamálum Færeyinga, m.a. um
breytingar á heimastjórnarlögun
um »
Verkakvenna-
•félagið Framsóknj
Aðalfundur félagsins verð-
ur haldinn þriðjudaginn 27;
febrúar kl. 8,30 s.d.
Konur f jölmennið og mæt-
ið stundvíslega.
SMURSTÖÐIN
Sætúni 4— Sími 16-2-27
BDUnn er smurður íljótt cg Vd.
Stéjam allar teguaair srf tftnurollú
Maximlíian
Framhald úr opnu.
Umsátrið um Queretaro varði þó í þrjá
mánuði. Keisarinn og herforingjar lians gerðu
sér vonir um að fá liðsstyrk frá höfuðborg-
inni, en þær vonir virtust ekki ætla að ræt-
ast. 1. apríl sendi Escobedo, hershöfðingi lýð-
veldismanna, tilboð um uppgjöf og lofaði þar
að Maximilian fengi að fara frjáls ferða
sinna. Þessu tilboði hafnaði keisarinn, enn í
þeirri von að liðsauki væri væntanlegur. En
þessi liðsauki kom ekki, og um miðjan maí
féllst Maximilian á tilmæli Tómasar Mejia
hershöfðingja, að þeir reyndu að brjótast út
úr kvínni. Undirbúningur var hafinn undir
gagnárás á lýðveldismenn, og var ráðgert að
aðgerðin færi fram aðfaranótt 16. maí. Af
þessu varð þó ekki, því að nóttina áður fór
liðsforingi að nafni Lopez á laun á fund F.s-
cobedos, og samþykkti að leiðbeina hersveit-
um hans inn í borgina fyrir 7 þúsund peseta
borgun Þessi svik heppnuðust svo vel, að fyr
ir dögun hafði Escokedo náð mestallri borg-
inni á sitt vald og Maximilian og Mejia voru
teknir höndum. Maximilian krafðist þess að
með liann væri farið sem stríðsfanga, og
féllt Escokedo á það.
En þrátt fyrir loforð Escokedos, var Maximil
ian samkvæmt skipun Juarez leiddur fyrir
herrétt, og sömuleiðis yfirhershöfðingjar hans
tveir, Miramon og Mejia. Þeir voru báðir
bornir ýmsum sökum, sem nálguðust land-
ráð sumar, og 15. júní voru þeir dæmdir til
dauða. Þegar fregnir bárust út um dóminn,
rigndi yfir Juarez tilmælum og áskorunum
um náðun fyrir Maximilian, en fórsetinn var
óhagganlcgur. Aftökurnar skyldu fara fram 19.
júní. Síðustu vikur ævinnar komu eðliskostir
Maximilians veí í ljós. Þegar lýðveldisherirn
ir brutust inn í Queretaro var honum boðið
að leita skjóls, en hann svaraði stoltur að
hann færi'ekki í felur Áður en herréttur
inn kæmi' saman var undankoma úr fangelsinu
skipulögð fyrir hann, en hann neitaði í fyrstu
að lítillækka sig til að flýja. Þegar hann síð
ar féllst á að reyna þetta, neitaði hann þó
að fara nema félagar hans, Mejia og Miramon
færu með honum, en því var ekki unnt að
koma í kring. Og eftir að dómur var fall-
inn fór hann án árangurs fram á að liers-
höfðingjunum tveimur væri þyrmt, en hann
einn tekinn af lífi.
19. júní var farið með hann og hershöfð-
ingjana til aftökustaðarins. Þegar hann steig
út úr vagninum mælti hann: — Ákaflega er
veðrið gott. Mig hefur alltaf langað til að
deyja í svona veðri. Er þeir voru leiddir upp
að aftökuveggnum krafðist hann þess að Mir
amon tæki heiðurssessinn í miðjunni og við
foringja aftökusveitarinnar, sem táraðist og
bað hann fyrirgefningar sagði hann: „Þú ert
hermaður og verður að gera skyldu þína!“
Hann skipti því fé, sem hann hafði meðferðis,
milli hermannanna í aftökusveitinni og bað
þá að miða á hjartastað, og hrópaði síðan:
„Ég dey fyrir réttlátan málstað, frelsi og
sjálfstæði Mexikó. Megi blóð mitt binda enda
á ógæfu míns nýja föðurlands. Lifi Mexikó!“
NÝ TILRAUN hefur ekki verið gerð til að
koma keisarastjórn á í Mexíkó eða annars
staðar í Ameríku Þótt lýðræði hafi þar oft
verið af skornum skammti, hefur engum dott
ið í hug að koma þar á öðru stjórnarformi.
en lýðveldi. Juarez ríkti sem einvaldur yfir
Mexíkó eftir fall Maximilians, og um margt;
var stjórn hans ábekk þeirri stjórn sem erki‘
hertoginn austurríski hafði viljað koma á
hinni köínm'A sMó>'nartíð sinni.
KÓPAVOGUR
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
vantar blaðburðarbörn í Austurbæ.
Upplýsingar í síma 40753.
Glæsilegur og traustur einkabíll með frábæra
ökuhæfileika. Innifalið í verði m.a. 74 HA.
VÉL — SÓFASTÓLAR — ALTERNATOR
GÓÐ MIÐSTÖÐ — TOYOTA RYÐVÖRN
ÞYKK TEPPI — BAKKLJÓS — RÚÐU-
SPRAUTA.
Japanska bifreiðasalan hf.
Ármúla 7 — Sími 34470.
TOYOTA CORONA
Faðir okkar og fósturfaðir,
BERGUR PÁLSSON, SKIPSTJÓRI
Bergrstaðastræti 57,
andaðist í Landakotsspítala 24. þ.m.
GUÐRÚN J. BERGSDÓTTIR, JÓN Þ. BERGSSON.
LÁRA BERGSDÓTTIR, HELGI BERGSSON
ÓLAFUR H_ GUÐMUNDSSON.
Við þökkum innilega öllum, er sýndu okkur samúð og
vináttu í veikindum, við andlát og útför okkar ástkæra
eiginmanns, föður, stjúpföður. tengdaföður og afa,
INGIMARS MAGNÚSAR BJÖRNSSONAR
MARÍA HANNESDÓTTIR,
JÓHANNA Þ. INGIMARSDÓTTIR, HERDÍS JÓNSDÓTTIR
HANNES JÓNSSON, KARIN W. JÓNSSON
OG BARNABÖRN.
Innilegar þakkir viljum við færa þeim einstaklhigum, félög-
um og starfsmannaliópum, sem auðsýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og jarðarför inannsins míns og föður
okkar
INGÓLFS JÓNSSONAR,
loftskeytamanns,
Sérstakar þakkir viljum við færa Póst- og símamálastjórn.
inni, fyrir virðingu þá, sem hún sýndi hinum látna.
PETRA ÞÓRLINDSDÓTTIR OG BÖRNIN.
/