Alþýðublaðið - 26.02.1967, Qupperneq 16
Frelsisskeröing og fleira
Frétta-
yfirlit
vikunnar
ÞEGAR þetta
kemur á þrykk
verður búið að
frumsýna
Rauðu skikkj-
una í einum
tveimur kvik-
myndahúsum
her á landi.
Um síðustu helgi .bárust þær
fregnir frá Kaupmannahöfn, að
íslenzki textinn, sem settur var
inn í myndina til þess að Reyk-
víkingar skildu hana, hefði bætt
myndina til mikilla muna. Dönsk-
um gagnrýnendum kom saman
um það, að danska útgáfan af
myndinni væri harla klén, en
hins vegar þykir þeim íslenzka
útgáfan vera hið ágætasta verk.
Ástæðan getur tæpast verið
önnur en sú, að í íslenzku útgáf-
unni hafa þeir ekki skilið, hvað
sagt var!
Snemma í vikunni setti ís-
lenzkur togari heimsmet í afla-
sölu, en þess ber að gæta í því
sambandi að þar er um að ræða
skip, sem er að berjast fyrir
lífi sínu. Hafa verið uppi ráða-
gerðir um að selja þetta skip
úr landi, en skipin vita sínu
viti, eins og alkunnugt er, og
hefur því lagt sig allt fram um
að fiska sem mest, svipað og
hundur eða hestur, sem gerir
sér far um að þóknast húsbónda
sínum, er hann heyrir að til
standi að fella sig. Hins vegar
er engan veginn víst, að þetta
dugi skipinu, því að þeir sem
vilja selja, hafa bitið það í sig
og það eru aðilar, sem skipta
ekki um skoðun fyrr en í fulla
hnefana. Þeir eru á sinn hátt
methafar, eins og skiþið; þeir
eiga sjálfsagt heimsmet í þver-
móðsku.
Deilur hafa verið með eðli-
legu móti í vikunni. Trúmála-
deiluna er að vísu nokkuð farið
að lægja, en niður við Austur-
völl kveðast þingmenn á, og út-
varpsráð brá á leik í vikunni.
Þar var talsvert deilt um það,
hvort sjónvarpið væri tilrauna-
sjónvarp áfram eða orðið alvöru
sjónvarp. Var meirihlutinri á
að það væri tilraunasjónvarp
enn, en minni hlutinn vildi
ekki viðurkenna að þar væru
*
gerðar neinar tilraunir og hlyti
það því að vera alvörusjónvarp.
Þetta er sjálfsagt mikið alvöru-
mál, en þó sýnist sumum að
ekki þurfi að skipta svo ýkja
miklu máli, hvort sjónvarpið sé
tilraunastofnun eða ekki; hitt er
meira um vert, að það verði
ekki hálfgerð raunastofnun áð-
■■■■■■aa
■■■■■■■■
■■■■■■■■■■
!■■■■■■■■■■
!!■■■■■■■■■■■■
Orðabók háðskólans
METVEIÐI: Áfall fyrir sumar útgerðir.
BÓKAMARKAÐUR: Staður þar sem fólk rífur út bækur, sem það lít
ur ekki við í bókabúðum.
FULLBJARTUR: Heiti á þeim sem hefur verið á Fulbright-styrk í
Ameríku.
HRINGBORÐSRÁÐSTEFNA: Samkunda, þar sem alvarlegir menn tala
af ábúðarmiklum þunga um mál, sem
þeir hafa hvorki áhuga né þekkingu á.
Sá spaki segir...
Auðvitað eiga menn
að að fá skattfrá-
drátt fyrir kostnaði
við andlitssnyrtingu
eiginkvenna sinna.
Það er eðlilegast að
bóka það sem viðgerð
arkostnað.
Skopmynd
vikunnar
V estur-Þýzkaland
tók sem kunnugt
er nýlega upp
aukin viðskipti
við Austur-Evr-
ópu. Þessi mynd
birtist í þvi sam-
bandi nýlega í
þýzku blaði, og
textinn undir
henni var: Kurt
Moses Kiesinger
fer yfir Rauða
hafið.
ur en vanr.
Enn hefur blossað upp deila
um hægrihandaraksturinn, sem
búið er að lögleiða og á að koma
til framkvæmda á næsta ári.
Þetta er eitt af þeim deilumál-
um, sem aldrei getur lokið, en
merkilegast við þessa deilu er
þó ekki að sumir skuli vilja aka
vinstra megin á veginum, en
aðrir hægra megin (þótt raun-
ar væri kannski rétt að byrja á
því að kenna sumum að halda
sig á veginum), heldur hitt, að
allir skuli vera sammála .um að
setja reglur um að" menn aki
öðrum hvorum megin. Hvar er
nú öll einstaklingshyggjan og
frelsisástin, sem íslendingar
eru taldir eiga til að bera í rík-
ari mæli en aðrar þjóðir? Það
er fullkomið brot á persónulegu
frelsi einstaklingsins, að menn
skuli ekki fá að aka hvar sem
þeim sýnist sjálfum. Sannir
frelsisvinir hljóta þess vegna
að mótmæla hægrihandarakst-
urslögunum, ekki af því að það
sé neitt verra að aka ' á hærgri
kanti en þeim vinstri, heldur af
hinu að slík lög eru fjötur á
heilbrig[t einstaklingsframták
og frelslsskerðing af því tagi,
sem enginn frjálsborinn og stór
huga maður getur þolað.
Á ÚTMÁNUÐUM
Dagana lengir; liðið er talsvert á góu;
Iéttist brúnin á fólki, því von er á nógu
skemmtanalífi á komandi kosningavori,
er kjördæmin fyllast af atkvæðasmölum og mori
af frambjóðendum, sem kyssa og umfaðma alla,
en eiga flestir það hlutskipti í vændum að falla.
Og gleðilegra er ekkert en einmitt það,
að allir skuli ekki þurfa að komast að.
SÍRA SIGMUNDUR
S P A U G
.• ._.*s
Guðmundur er alltaf svo geysilega hræddur við vatnavexti.