Dagur - Tíminn Akureyri - 14.02.1997, Page 1

Dagur - Tíminn Akureyri - 14.02.1997, Page 1
Cagur-ÍEmrótn Föstudagur 14. febrúar 1997 - 80. og 81. árgangur - 31. tölublað Verið viðbúin vinningU/Ém MyndS RÁÐGEGN TIMBURMÖN NUM Rannsóknir sýna að skap fólks þegar það drekkur áfengi hefur afgerandi áhrif á þynnku og timburmenn og í raun meiri áhrif en sjálft drykkjumagnið, samkvæmt nýj- asta hefti læknablaðsins British Medical Journals, BMJ. Sá sem er í góðu skapi og brosir þegar hann fær sér í glas fær miklu síður þorsta, höfuðverk og skjálfta en sá sem er í vondu skapi. Það er þess vegna betra að reyna á sig og fara til dæmis að skokka frekar en að fara að drekka þegar skapið er ekki upp á það besta. Þrjóskan skiptir máli Segja má að Einar Thoroddsen læknir sé sérfræðingur í vín- menningu íslendinga enda hef- ur hann skrifað bækurnar Vínið í Ríkinu. Hann segist hafa vissa trú á því að maður sem sé þrjóskur og ætli sér ekki að fá neina timburmenn takist það að hluta til þrátt fyrir drykkju- magnið. Einar segist „oft hafa séð mannflök, sem hafi verið glöð daginn áður“ en séu að sálast úr timburmönnum dag- inn eftir. Menn, sem vakni þunnir segi oft: „Ég vissi þetta,“ og svo: „Ég hefði ekki átt að...“ Það sé því viss fyrirfram upp- gjöf í gangi hjá sumum. „Það þarf ábyggilega gaum- gæfilega rannsókn til að slá einhverju föstu um þetta,“ segir Einar og reiknar með að BMJ slái ekki neinni vitleysu fram. „Sumir segja að það megi ekki blanda saman vínum. Mér finnst það vitleysa. Ég hef ekki Gott skap dregur iír líkum á timbur- mönnum og þynnku eftir drykkju meðan hœttan á slœmri líðan daginn eftir er meiri ef maður er í vondu skapi þegar maður drekkur. trú á því,“ segir Einar og miðar þá við sjálfan sig enda bendir hann á að það sé eina viðmið- unin sem hver og einn hafi. „Sumir segja að timburmenn fáist af útþurrkun og þess vegna eigi að drekka vökva áð- ur en farið er að sofa. Aðrir segja að maður eigi að bíða með að sofna meðan áhrifin renna af manni,“ segir hann. Lítið vitað um timburmenn Læknar og vínáhugamenn eru sammála um að frekar lítið sé vitað um timburmenn og engin ein lækning við þeim enda mjög einstaklingsbundið hvaða áhrif áfengisdrykkja hefur. Það skipt- ir þó talsverðu máli hvað er drukkið enda séu „viss eitur- efni“ í sumu áfengi sem valdi höfuðverk daginn eftir. Læknar segja að vodka og hreinn spírit- us hafi til dæmis betri áhrif á líðan manna eftir á heldur en rauðvín og koníak enda séu minni eiturefni í þeim fyrr- nefndu. „Þetta er það sem maður hefur lesið," segir Einar og mælir einna helst með því að menn forðist sterka drykki og drekki minna magn vilji þeir forðast timburmenn daginn eft- ir. -GHS

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.