Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Blaðsíða 1

Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Blaðsíða 1
\ 1 I Verið m viðbúin vinnmgi! J)agur-®mtmn Verið viðbuin <0* vinmngi! //777/} Góða helgi! Laugardagur 15. febrúar 1997 - 80. og 81. árgangur - 32. tölublað Hann með bindi, hún í spariblússunni. „Við vild um vera fín fyrir ykkur,“ segja þau og brosa sínu blíðasta. ÁSTFANGIN UPP FYRIR HAUS MENN VIKUNNAR Hver er munurinn á Húnvetningum og Vestmannaeyingum? Húnvetningar myndu aldrei reyna að koma Hallbirni Hjartar- syni inn á þing! Af því tilefni útnefnir Dagur-Tíminn Húnvetninga sem menn vikunnar. / gær héldu Ameríkanar upp á dag ástarinnar. En hjá þeim Hólmfríði og Óla í Borgarhlíðinni á Akureyri lifir ástin alla daga árs- ins. Þau hafa verið saman í rúm fimmtán ár en staðfestu sambúðina á þessu ári með því að gifta sig. Hólmfríður Ósk Jónsdóttir og Ólafur Snæ- björn Bjarnason eru bæði með Down Syndrome. Fötlun þeirra kemur þó á eng- an hátt í veg fyrir að ást þeirra fái að blómstra og raunar fátítt að sjá hjón sem eru svo greinilega hamingjusöm með hvort annað. „Hvernig finnst ykkur íbúðin okkar,“ spyr Óli tíðindamenn blaðsins og horfir stoltur í kring um sig. „Mér finnst hún nú svolítið lítil,“ skýtur Hólmfríður inn í og upplýsir að þau hafi von um að komast fljótlega í stærri. Þau búa ein í íbúð- inni en fá manneskju í nokkra klukkutíma á hverjum degi sem er þeim innan handar. Ekki þó við hússtörfin. „Við tökum til sjálf,“ segir Hólm- fríður ákveðin og leggur mikla áherslu á að þau séu dugleg við að bjarga sér upp á eigin spýtur. í vinnu og skóla Bæði Hólmfríður og Óli eru í vinnu. Hún vinnur hjá Brauðgerð KEA og hann á vernduðum vinnu- stað við Iðjulund. „Svo er ég líka í skóla. Þannig að það er rosalega mikið að gera,“ upplýsir Hólmfríður, en hún sækir tíma í Hvammshlíðar- skóla. „Ég var einmitt að læra áðan, bæði stærð- fræði og skrift," bætir hún við. En hvernig ætli þau hafi kynnst? Jú, það var árið 1980 eða 81 þegar Óli hætti með fyrri kær- ustu sinni. Hólmfríði leist vel á manninn og greip tækifærið þegar hann var orðin laus og liðugur. Og ekki er annað að sjá en Óli sé ánægður með ráðahaginn. Hann er í það minnsta duglegur við að kyssa og knúsa elskuna sína. Þegar spurt er hvort þau séu alltaf jafnástfangin svara þau engu í orðum heldur líta þau á hvort annað, brosa og fallast í faðma. Spyrjendur velkjast ekki í vafa um að svarið sé játandi. En hvað með giftinguna, breytti hún miklu? „Já, nú erum við orðin heiðvirð," segir Hólm- fríður brosandi og bæði rétta fram hendurnar til að sýna glóandi gullhringana sem þau bera nú á baugfingri. AI

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.