Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Blaðsíða 9

Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Blaðsíða 9
|Dagitr-®TOtimt Laugardagur 15. febrúar 1997 - 21 „Það gengur ekkert smurt þarna. Þegar ég teiknaði fyrsta planið sendi ég ritarann minn til að láta Ijósrita það. Eftir 3ja daga leit að Ijósritunarvél í bœnum þá fundum við eina en þegar ritarinn kom til baka þá var búið að skera frumplanið niður ÍA4 blöð, afþví að það er miklu ódýrara, sögðu þeir, að prenta það svona. Þar var mánaðarvinna skorinn niður. Það vœri áreiðanlega góður bisness aðfara til Moskvu og setja upp Ijósritunarstofu. “ Erfitt er að fá teikningar samþykktar til byggingar hjá borgararkítekt Moskvu. Eftir- litsmennirnir útbjuggu því nýj- ar teikningar upp úr hönnun Hlédísar og fengu byggingar- leyfið út á þær. Rússnesku teikningar voru hins vegar gjör- samlega ónothæfar, í þeim var t.d. gert ráð fyrir byggingarefni sem ekki hafði verið fáanlegt í um 50 ár. En með þessu fyrir- komulagi, þ.e. að leyfið fæst út á aðrar teikningar en byggt verður eftir, opnast glufa fyrir borgararkítektinn til að koma „og kría út sínar prósentur." Trekk í trekk urðu tafir af þessu tagi. „í febrúar urðu inn- byrðis deilur þar sem einhverjir menn hurfu af sjónarsviðinu. Svo voru verktakarnir alltaf að stoppa líka því Rússarnir drógu það svo að borga. Undir eðlileg- um kringumstæðum hefði bygg- ingin átt að vera full af mönn- um frá morgni til kvölds að vinna 7 daga vikunnar. En í margar vikur voru bara 2-3 menn að væflast þarna um,“ segir Hlédís og giskar á að verkið í heild sinni hefði tekið helmingi styttri tíma hér á landi. Iðnaðar-gotneskur næturklúbbur Tískubreytingar eru örar meðal arkítekta í LA. Að sögn Hlédísar bjuggust Rússarnir við því ný- tískulegasta en hún taldi þó rótt að fara einhvern meðalveg. „Ég hreifst mjög af ný-gotnesku byggingunum frá Stalín-tíman- um, 7 vígalegum byggingum sem eru oft kallaðar rjómatert- urnar.“ Hlédís ákvað þannig að hafa staðinn í iðnaðar-gotnesk- um stíl. Gestir klúbbsins fara á milli rýma í gegnum dularfull og dökklituð göng og var ætlun- in að staðurinn hefði yfir sér goðsagnakenndan blæ. „Dýr- ustu efni sem fást, t.d. svart granít með glitrandi steinum, þekur öll gólf á 1. hæð og mynda mótvægi við hrátt stál í innganginum. Á vissan hátt endurspeglar arkítektúrinn ástandið í landinu. Annars veg- ar nýríku Rússana með alla peningana og glingrið og hins vegar blásnauða verkamennina og hráan iðnaðinn.“ Hlédís hafði frjálsar hendur til að innrétta rýmið sem varð til þegar búið var að hreinsa allt út úr neðstu hæðum bygg- ingarinnar - nema burðarsúlur og -veggi, svo lengi sem hún gætti þess að hafa allar græjur þær dýrustu og flottustu á markaðnum. „Yfirmaðurinn kom þarna mikið og spókaði sig um. Þegar það var búið að setja eitthvað nýtt upp þá kom hann með fjölskykluna til að sýna henni græjmnar. Hann vildi allar helstu tækninýjungar. Eldhúsið t.d. var eins og verk- smiðja. Það var meira horft í aurinn en krón- una. Þegar kom að matnmn á skrifstofunni þá var sparað að- eins.“ Aðalhöfuð- verkur arkítekts- ins varð loft- ræstikerfið sem var svo íburðar- mikið að það tók 1/3 af lofthæð- inni og hefði fremur átt heima í verksmiðju en skemmtistað. „Maður ímyndaði sér að allir í byggingunni fykju út í fyrsta skipti sem kveikt væri á því.“ Tveir heimar Moskvu Eðli málsins samkvæmt hafði Hlédís einkum afskipti af hinum nýríku Rússum sem eðlilega vildu óbreytt pólitískt ástand, og voru ákaflega hræddir um að Jeltsín félli í síðustu kosning- um. Hins vegar tilheyrði starfs- lið skrifstofunnar gamla kerf- inu. „Þjóðfélagið skiptist í tvennt, hina nýríku sem eru á launum sem vart þekkjast á ís- landi og svo þá sem hafa setið eftir í gamla kerfinu og eru með um 50 dollara [3500 kr.] á mán- uði og standa frammi fyrir því að miðinn á skemmtistaði kost- ar um 100 dollara. Það er tvö ósamrýmanleg kerfi í gangi þarna.“ Tvenns konar verðlagning er einnig við lýði. í htt sýnilegum rússneskiun búðum eru hræ- ódýrar vörur á okkar mæli- kvarða „en svo getur maður farið í súpermarkaði þar sem verðið er helmingi hærra en hér heima." Af fréttamyndum frá Rúss- landi að dæma er lífið þar óskaplega grátt yfirlitum. Klisja, en þó sönn að nokkru leyti, segir Hlédís. „Það er ein- hvern veginn mökkur yfir borg- inni. Maður sér varla liti. Auð- vitað er þetta að breytast. En maður finnur ofsalega fyrir þessu. Loftslagið er grámyglu- legt og ef byggingar eru málað- ar þá er það yfirleitt í svona ryklitum, þó liturinn sé grænn þá er það rykgrænn. Mamma sendi mér t.d. rauða kápu, eldrauða. Ég labbaði um í henni í tvo daga og svo lagði ég henni bara því það voru bíl- ar að stoppa.“ Jafnréttið Matráðskonan á skrifstofunni hjá Hlédísi var menntaður verkfræðingur en fékk um tífalt hærra kaup við að elda mat fyr- ir útlendingana. Hlédís segir kvenréttindabaráttuna eiga langt í land í Rússlandi. „Það er mjög óvenjulegt að kvenfólk sé í háum stöðum þarna. Þær eru menntaðar en virðast ekki fá mikil tækifæri eða hafa þetta frumkvæði í sér.“ Algert stjórnleysi Þegar verkinu var lokið hafði Hlédís fengið sig fullsadda þrátt fyrir spennandi hönnunarverk- efni sem voru framundan í Moskvu. „Það er erfitt að standa í þessu þegar svona stjórnleysi ríkir. En óneitanlega kitlar það mann að fara aftur.“ Hlédís segir að ef hægt væri að stofna fyrirtæki sem tæki að sér verk, allt frá hönnun og undir- búningi til verktöku, þá væru mikhr möguleikar í Moskvu- borg. „Bara ef maður þarf ekki að hafa of mikil samskipti við Rússana og yfirvöld.“ lóa Skemmtistaðurinn er á tveimur neðstu hæðum 20 hæða skrifstofublokkar sem er í þessari sambyggðu blokkaröð á Novy Arbat, í miðborg Moskvu. Mikill mósaíkveggur prýðir veitingastaðinn. Aðalfundur Félags járniðnaðarmanna verður haldinn laugardaginn 22. febrúar 1997 kl. 13.15 að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð. Dagskrá Venjuleg aðalfundarstörf Breytingar á reglugerðum sjóða Kaffiveitingar Félagsfundur um samningamál hefst að loknum aðalfundi um kl. 15.00. Ath. Reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofunni milli kl. 15.00 og 18.00 miðvikudag 19. fimmtudag 20. og föstudag 21. febrúar n.k. Mætið stundvíslega. Stjórnin Kaffihlaðborð - Söngur Kaffisala verður í Lóni v/Hrísalund nk. sunnudag frá kl. 15. Kórinn syngrn nokkur létt lög kl. 16. Glæsilegt kaffihlaðborð og söngur á kr. 700 fyrir fullorðna, hálft gjald fyrir börn. Karlakór Akureyrar-Geysir - Kvennaklúbburinn. Borgarskipulag Reykjavíkur Borgartún 3,105 Reykjavík, sími 563 2340, myndsendir 562 3219 Landakot og næsta nágrenni Kynning á deiliskipulagi Landakotsreits fer fram í sýningarsal Borgarskipulags og byggingarfulltrúa, Borgartúni 3, 1. hæð, kl. 9-16 virka daga, og stendurtil 17. mars 1997. Byggðastofnun Engjateigi 3 ■ P6sthólf5410 ■ 125 Reykjavík ■ Sími 560 5400 ■ Bréfsími 560 5499 • Grcent númer 800 6600 Strandgötu 29 • Pósthólf240 • 602 Akureyri • Sími 461 2730 • Bréfsími 461 2729 Hafnarstrœti 1 • Pósthólf2Il • 400 ísafirði • Sími 456 4633 • Bréfsími 456 4622 Miðvangi 2-4 • 700 Egilsstöðum • Sími 471 2400 ■ Bréfsími 471 2089 Skagfirðingabraut 17-21 ■ 550 Sauðárkróki • Sími 453 6220 • Bréfsími 453 6221 Á árinu 1997 er ákveðið að Byggðastofnun veiti styrki vegna próunar atvinnulífs á landsbyggðinni. Áætlað er að styrkirnir verði afgreiddir af stjórn Byggðastofnunar í apríl og maí. Umsóknarfrestur um styrki er til 1 5. mars og ber að skila umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum sem fást á skrifstof- um stofnunarinnar. Til ráðstöfunar eru allt að 50 millj. króna. Styrkir verða einungis veittir til verkefna á svæðum sem skilgreind hafa verið sem starfssvæði Byggða- stofnunar. Svæði sem eru sérstaklega háð sauðfjár- rækt og þar sem byggð er í hættu munu njóta for- gangs um styrkveitingar. Lögð er áhersla á vand- aðan undirbúning umsókna. Styrkveitingar Byggðastofnunar eru að jafnaði frá 200 þúsundum til 3 millj. króna. Einungis er greitt fyrir hluta af kostnaði við hvert verkefni. Hlutur oþ- inberra aðila samtals má ekki vera hærri en 45% sé um fjárfestingu að ræða en 50% í verkefnum sem hafa almennara gildi. Umsækjendur geta verið einstaklingar, fyrirtæki, samtök, atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og sam- tök þeirra. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofum Byggðastofnunar og ber að skila umsóknum þangað.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.