Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Blaðsíða 18

Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Blaðsíða 18
30 - Laugardagur 15. febrúar 1997 Jktgur-'ðltOTÍmt S K Á IC Grétarsdóttir Astin leynist víða og sam- kvæmt ýmsum gömlum sögnum er hana ekki síst að finna yfir skákborðinu. Sir John Bourchier lýsir því til dæmis í bók sinni „Bókin um greifann Huon de Boudeaux" frá árinu 1534, hvernig kven- hetja sögunnar, dóttir konungs, tapar af ásettu ráði fyrir and- stæðingi sínum sem hún ber girndarhug til. Prinsessan veit að ef hún sigrar þá verður andstæðingur hennar höfuðhögginn, en ef hún tapar fær hann að „hafa hana í rúmi sínu alla nóttina til að njóta unaðar". Þar sem prinsessu líst á kauða ákveður hún náttúrulega að tapa, þrátt fyrir að vera betri skákmaður og geta auðveldlega unnið. Konur hafa alltaf kunnað að setja hlutina í rétta forgangs- röð, ekki satt? Hvers virði er sigur í skák þegar ástir og un- aður eru annars vegar?! Það vill þó ekki betur til en svo að andstæðingurinn þykist vera heiðursmaður og segir konungi að prinsessan geti leikið sér með sjálfri sér! Hann muni láta hana algjörlega í friði og ekki svipta hana sakleysinu hvað sem tautar og raular. Prinsessa verður skiljanlega öskuill og iðrast þess sáran að hafa ekki mátað svikarann og gert hann höfuðlausan, gagnslausan manninn... Önnur útgáfa þessarar sögu segir frá ljóði frá 13. öld, eftir þennan sama Huon de Bordea- ux, þar sem hann fer fyrir hirð aðmír- álsins Yv- ariusar og reynir að koma sér í mjúkinn hjá honum með því að lýsa afrekum sínum. Afrekin fela meðal ann- ars í sér mikla skákhæfileika og til að ganga úr skugga um að Hu- on sé að segja satt býður aðmírállinn honum að tefla við dóttur sína. Huon getur ekki slitið augun af stúlkunni fögru á meðan á skákinni stendur og teflir af- spyrnu illa. Af umhyggjusemi varar stúlkan hann við og segir hann munu tapa ef svo haldi áfram sem horfi. Huon svarar með því að hrópa upp yfir sig: „Skákin er ekki búin enn, og svo mikið er víst að þú endar í örmum rnínum!" Það er ekki orðum að skipta, stúlkan verð- ur frá sér numin af hrifningu, Tapað af ásettu ráði Til eru fjölmargar slíkar gamlar sagnir og kvæði þar sem konur tapa af ásettu ráði vegna ástar og umhyggju fyrir andstæðingnum. Þannig segir til dæmis í skáldsögu eftir Thomas Hardy, „A Pair of Blue Eyes“ sem gefin var út 1877, frá því hvernig sögupersónan Elfride tapar af ráðnum hug fyrir Stephen, manninum sem hún laðast að. Eftir að hafa mátað Elfride tvisvar í röð grunar Stephen hana um græsku og finnst hann gerður að háði og spotti. Elfride fær missir alla einbeitingu og tapar í fámn leikjum. Aðmírállinn býður Huon peninga í stað elsku dóttur sixmar, en dóttirin bregst ókvæða við slík- um málaum- leitunum og heimt- ar að fá að njóta sigurveg- arans... Áfram kon- ur og kyn- frelsi! Látið þá ekki sleppa! samviskubit og biður hann fyr- irgefningar, en segist ekki hafa getað hugsað sér að sigra elsk- una sína, sem hún segir hafa „barist svo minni háttar og þó svo karlmannlega". Forráðamenn hafa og í gegn- um tíðina gert sér grein fyrir þeim hættum freistinga og ást- aratlota sem skáklistin býður upp á. í bók sinni frá árinu 1693, „Persónuleiki Elísabetar drottningar", segir Edmund Bo- hun að Elísabet hafi haldið mik- ið upp á skák, en samt sem áð- ur bannað tengdadóttur sinni, greifynjunni af Albany, að ráða til sín skákkennara. „Það er ekkert að því að þú lærir að tefla," sagði drottningin, „en það kemur ekki til greina að ókunnugur maður sitji svo þægilega til móts við þig og ekkert skilji ykkur að nema skákborð." Það væri hægt að skrifa heila bók með hugmyndaríkum túlk- unum á öllum þeim sögnum og Ijóðum þar sem leyndir ástar- leikir eiga sér stað yfir skák- borðinu. Hér er ekki nóg pláss í bili, en við skulum enda á því að líta á tvær skákir tefldar af ungu núlifandi „skákpari". Ætli Ivantschuk, fimmti stigahæsti skákmaður heims, hafi óvart hugsað til Galliamovu sinnar í miðri skák og því leikið af sér í 22. leik á móti Topalov á dög- unum? Og ætli Galliamova-Iv- antschuk, hafi talið sér óhætt að berjast til sigurs þar sem hún var að tefla við aðra konu, en ekki viðkvæma karlmennsku - karlmennsku og sjálfsmynd sem hættir til að hrynja til grunna við tap? Nóg af slíku óviðeigandi hjali! Hér eru skákirnar: Hvítt: V. Ivantschuk Svart: V. Topalov Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cx4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e6 7. g4 h6 8. f4 b5 9. Bg2 Bb7 10. g5 hxg5 11. fxg5 b4 12. Ra4 Rh5 13. 0-0 Rd7 14. g6 Rhf6 15. c3 Re5 16. gxf7+Kxf7 17. cxb4 Hh4 18. Db3 De8 19. Hacl Bxe4 20. Hc7+Kg8 21. Rxe6 Hg4 22. Hxf6? Hxg2+ 23. Kfl Db5+ 0-1 Ilvítt: A. Galliamova-Ivant Svart: Litinskaya 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 Bb4+ 4. Rbd2 b6 5. e3 Bb7 6. Bd3 0-0 7. a3 Bxd2+ 8. Bxd2 Re4 9. Bb4 d6 10. Dc2 f5 11. 0- 0-0 Rd7 12. Hhgl a5 13. Bel c5 14. g4 cxd4 15. gxf5 Rdc5 16. Rxd4 Rxd3+ 17. Hxd3 Rc5 18. Rxe6 19. fxe6 Be4 20. Dc3 Ha7 21. Hd4 Bf5 22. e4 Bxe6 23. Dg3 Hff7 24. Hxd6 Dc8 25. Hxe6 Hfc7 26. De5 1-0 Þorláksson Bridgehátíð er hafin eins og flestum mun kunnugt og eru nú 132 pör að keppa í tvímenningnum. Alla bestu íslensku spilarana er að finna þar á meðal og af erlend- um nöfnum ber e.t.v. hæst komu Sontags og Feldmans frá Bandaríkjunum sem og stór- sveit Frakka og sveit Indónesa. Sontag og Feldman mynda sveit með Akureyringnum Magnúsi Magnússyni, Siglfirðingnum Steinari Jónssyni og Reykvík- ingnum Jónasi P. Erlingssyni. Verður fróðlegt að sjá útkom- una. Þá má nefna að Hjördís Eyþórsdóttir og eiginmaður hennar, Curtis Carter, munu spila með Ásmundi Pálssyni og Sigurði Sverrissyni. Tvímenningnum lýkur í kvöld og skal ekki reynt að spá fyrir um úrslit, en á morgun hefla liðlega 100 sveitir þátt- töku í sveitakeppninni sem lýk- ur á mánudagskvöld. Verð- Iaunafé er veglegt alls á mót- inu, eða 20.000 dollarar og skiptist þannig: Tvímenningur: 1. verðlaun 3.400 dalir 2. v. 2.400 - 3. v. 1.600 - 4. v. 1.200 - 5. v. 800 - 6. v. 500 - 7. v. 350 - 8. v. 300 - 9. v. 250 - 10. v. 200 - 11. v. 150 - 12. v. 150 - 13. v. 100 - 14. v. 100 - 15. v. 100 - Sveitakeppni: 1. verðlaun 3000 dalir 2. v. 2000 - 3. v. 1.200 - 4. v. 800 - 5. v. 400 - 6. v. 400 - 7. v. 200 - 8. v. 200 - Valdir leikir úr Flugleiðamót- inu verða sýndir á sýningar- töílu. Tilkynnt verður jafnfóð- um hvaða sveitir eigast við í töfluleikjum og fer það eftir stöðu í mótinu. Áhorfendum er einnig heimilt að horfa á við spilborðin í opnum sal en þeir eru vinsamlegast beðnir um að fara eftir settum reglum. Keppnisstjórar á Bridgehátíð eru Jakob Kristinsson, Sveinn R. Eiríksson og Stefán Jóhanns- son. Reiknimeistarar eru Stein- grímur G. Kristjánsson og Sveiim R. Eiríksson. Mótsstjóri er Elín Baldursdóttir. Stálin stinn Bridgesveitin Júlli hefur átt góðu gengi að fagna í vetur. Má þar nefna silfurverðlaun á Reykjavíkurmótinu og efsta sætið í aðalsveitakeppni BR sem nú stendur yfir. f sveitinni eru bræðurnir Ilermann og Ól- afur Lárussynir, Stefán Jó- hannsson, Jakob Kristinsson, Ilrannar Erlingsson að ógleymdum Júlíusi Sigurjóns- syni. Hann er sögumaður í spili vikunnar: Spilið kom upp í Reykjavík- urmótinu og eru söguhetjurnar Júlíus og Guðmundur Sveins- son. „Þetta er blaðaspil bæði í sókn og vörn," eru orð Júlíusar: Sagnir: Suður Vestur Norður Austur lspaði 5tíglar 5hjörtu dobl allir pass Sontag (lengst til hægri) á góðri stund með bridgefélögum. 4 D987643 ^D74 ♦ ÁG * 5 4 ÁK52 V 65 ♦ 43 * KDG76 4 T V ÁGT932 ♦ 8 * ÁT983 Hraustlega sagt en útspilið var tígulkóngur. Guðmundur drap á ás og mat á líkum að svörtu lit- irnir brotnuðu illa. Hann fann lykilspilamennskuna með því að spila spaðadrottningunni í öðr- um slag. Hrannar í austur drap og spilaði litlum spaða. Guð- mundur stakk upp hjartagosan- um en Júlíus dúkkaði réttilega og henti laufi. Þá spilaði Guð- rnundur hjartatíu og enn dúkk- aði Júlíus, enda vinnst spilið ef hann drepur. Hjartatapslagur- inn hvarf hjá sagnhafa en á móti kom að hann skorti inn- komu í blindan til að gera sér mat úr spaðalitnum. Tveir nið- ur.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.