Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Blaðsíða 8

Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Blaðsíða 8
20 - Laugardagur 15. febrúar 1997 Jlagur-®mTOm Hlédís Sveinsdóttir, við teikniborðið. ,j\lgert stj ómleysi í Moskvu“ Hún œtlaði að skreppa til Moskvu í 5 vikur en ílentist í 18 mánuði og á þeim tíma hannaði hún allt frá pípu- lögnum til mósaíkverka á nœturklúbbi þar sem dúndrandi jjör verður keyrt á flottustu fáanlegu hljóm- tœkjum í nafni Styrktarfé- lags heyrnarlausra. Ekki er nóg með að andrúmsloftið allt sé grámyglulegt í Moskvu, segir Hlédís, heldur er fólkið margt afskaplega þungt á svip. Hlédís Sveinsdóttir er þrí- tugur Reykvíkingur og fyrir um þremur árum útskrifaðist hún með meistara- gráðu í byggingarlist frá há- skóla í Kaliforníu. Hún vann um tíma hjá arkítekt í Los Angeles og hafði m.a. umsjón með hönnun veitingastaðar. Nokkrir Rússar sáu veitingastaðinn, höfðu samband við hana og báðu hana um að gera tillögu að endurhönnun ca. 2000 fm. rýmis sem nýta átti undir skemmtistað í Moskvu. Rúss- arnir kynntu tillöguna fyrir eig- endum byggingarinnar sem eru í forsvari fyrir Styrktarfélag heyrnleysingja í Moskvu. „Það er eitt af fjórum styrktaríélög- um sem fá niðurfellingu á toll- um í gegnum stjórnvöld. Þannig að það er þeim mikið í hag að ráða aðila frá öðrum löndum til verksins og kaupa efni utan að því þeir geta flutt allt efni inn tollfrjálst.“ En hvernig fór Styrktarfélag heyrnleysingja að því að fjár- magna bygginguna? „Þeir selja þennan ómælda kvóta og hagn- ast þannig á tollfrjálsum inn- flutningi. Þeir sem hafa ítök hjá stjórnvöldum geta sett upp svona dæmi. Það er ótrúlegt peningaflæði þarna hjá þeim sem notfæra sér ástandið." Endalausar tafir Hlédís var ráðin og drifln til Moskvu, upphaflega til að koma verkinu af stað en svo fór að hún hannaði bygginguna frá grunni, raflagnir, pípulagnir o.s.frv. Fyrstu vikurnar fóru í að koma upp skrifstofu og ráða arkítekta. „Og það gekk á ýmsu, Rússarnir voru að koma fullir og ég fann engan sem gat unnið með mér. Ekki það að þeir hafi ekki hæfileikana held- ur er drifkrafturinn í þjóðinni niður úr öllu valdi.“ Á endanum varð hún að ráða Nígeríumann sem vann með henni í 4 mánuði „en þá var hann orðinn ansi erfiður, farinn að mæta fullur o.s.frv." Hann var rekinn. „í lok september fékk ég loksins að- stoðararkítektinn minn. Halla Haraldsdóttir Ilamar, kom til Moskvu í 2ja vikna heimsókn en endaði með því að vinna með mér í 8 mánuði." Verkið var boðið út í júní 1995 og fékk ítalskt fyrirtæki vorkið. „Þeim voru greiddir um 400.000 dollarar og stungu af daginn eftir.“ Þar fóru nokkrar vikur í súginn og í kjölfarið fékk Hlédís málið í sínar hendur og róð hún íslending, Ólaf Auðuns- son, sem hafði bæði sænska og íslenska undirverktaka. Undir borðið Vinna við bygginguna hófst í des. 1995 en hún hélst ekki á fullum dampi allan byggingar- tímann. „Það er gífurlegt ófremdarástand í Moskvu núna, algert stjórnleysi." Borga þurfti ýmsum aðilum undir borðið á ílestum byggingarstigum til að komast yflr nauðsynleg leyfi. „Ekki það að þetta væri ólöglegt hjá okkur heldur er þetta þara venjan." Styrktarfélagið réð t.d. fyrir- tæki sem átti að afla allra leyfa. Frá fyrirtækinu komu eftirlits- menn „sem lágu stöðugt í teikn- ingunum til að flnna skekkjur. Ef þeir fundu eitthvað settu þeir upp prís sem rann í þeirra eigin vasa. Ég veit að nokkrir þeirra voru ekki á kaupi hjá eftirlits- fyrirtækinu heldur var gert ráð fyrir að þeir næðu sínu kaupi á þennan hátt.“ „Rússarnir eru haldnir ofboðslegum fordómum í garð út- lendinga. Erlendum fyrirtœkjum er boðið gull og grœnir skóg- ar en svo endar það gjarnan á því að út- lendingunum er sparkað út og oft án þess að geta tekið nokkuð með sér. Það var t.d. Ameríkani sem hafði jjárfest í Moskvu fyrir millj- ónir dollara. Einn daginn kom rúss- neskur embœttis- maður heim til hans og leist svo ansi vel á íbúðina. Nœsta dag þegar Amerík- aninn kemur heim er búið að brjótast inn, skipta um lœs- ingu og hann mátti þakka fyrir að kom- ast lífs til Banda- ríkjanna, eftir að hafa verið ífelum í sendiráðinu í nokk- urn tíma. “

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.