Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Blaðsíða 14

Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Blaðsíða 14
Bleikt og barbílegt Bleikt er í tísku! Bleikir augnskugg- ar, sem þekja ekki bara augnlokin heldur lika svæðið þar fyrir ofan og jafnvel fyrir neðan augun. Smart? Sjálf- sagt fer tvennum sögum af því. Kannski líka erfitt að hafa skoðun á málinu þegar við sjáum myndirnar bara í svart-hvítu. En hvað sem fegurðartilfinningin segir okkur breytir það ekki að þeirri stað- reynd að tískublöðin keppast um þessar mundir við að birta flennistórar myndir af rauðeygðum fyrirsætum. Förðimarfræðingar erlendu stórblað- anna segja að bleiki liturinn sé óskaplega fallegur og kynþokkafullur, sé honum beitt á réttan hátt. En það er eins gott að vanda sig, annars gæti einhver vaðið í þeirri villu að konurnar hafi verið að gráta. Sem er auðvitað hið versta mál. Hér koma nokkrar ráðleggingar fyrh þær sem langar til að prófa hið „nýja“ út- lit. Mest bleikt innst og síðan lýsist liturinn smám saman þar til hann rennur saman við húðlitinn. • Forðastu svartan maskara með bleika augnskugganum. Andstæðurnar verða of miklar. Betra er að nota t.d. blá- an maskara. • Til að bleika útlitið virki á réttan hátt er bráðnauðsynlegt að varirnar líti út fyrh að vera silkimjúkar. Þessu er að sjálfsögðu hægt að bjarga á einfaldan hátt. Settu á þig svolítinn varasalva og burstaðu síðan yfir varirnar með göml- rnn tannbursta til að losna við gamlar, dauðar húðfrumur. • Ef þú ert með lítil augu, varastu þá að nota augnblýant undir augun því allar línur hafa þau áhrif að augun virðast minni, ekki stærri. • Rétt eins og svartur maskari er ekki æskilegur þýðir ekki að maka augnabrýr út í dökkum lit. Augnabrýmar eiga að vera snyrtilegar, vel plokkaðar en jafn- framt náttúrulegar. Hér kemur gamii tannburstinn aftur að góðum notum. Passið bara að hann sé hreinn. • Kinnaliturinn á að vera í sama tón og augnskugginn, en ljósari, og ekki nota of mikið. Ef þú ert með rauðleita húð er spurning hvort borgar sig ekki að sleppa bara kinnalitnum? Skugginn í kring um augun á þessum fögru fljóðum stafar ekki af svefnleysi. Þær eru málaðar svona viljandi. Og ef myndin væri í lit, sæuð þið bleika litinn í öllu sínu veldi. piparsveinar Stelpur, hvað fmnst ykkur um þessa? Þetta munu vera tveir af fimmtíu boðleg- ustu piparsveinum Bret- lands. Svolítið ungir, en með flotta brjóskassa. Fatastíllinn er umdeilan- legur. Þó þeir séu stæltir er kannski fuilmikið að vera berir að ofan, a.m.k. á miðjum vetri. Þessi vinstra megin er tvítugur og heitir Sean Long. Hann mun vera mikill íþróttakappi, er leikmaður með rugby liði og segist. þrífast best í mikilli samkeppni. Draumakonan hans verð- ur að vera í góðu formi og að hafa bein í nefinu. „Einhver sem lætur mig ekki komast upp með hvað sem er,“ segir Sean. Sá hægra megin er nokkrum árum eldri, eða 27 ára. Hann heitir Leslie Gibson og vinnur fyrir sér sem grínisti. Þegar hann er ekki að segja brandara lyftir hann lóðum eða glápir á sjónvarp. „Ég horfi á allar amerísku sápurn- ar, lögguþætti og MTV vegna þess að þar fæ ég mik- ið af efni sem ég nota í vinnunni,“ segir hann. Leslie heillast helst af glanspíum sem klæða sig eftir nýjustu tísku. En það er ekki nóg að þær séu vel vaxnar og ílottar í tauinu. Þær þurfa líka að hafa húmor, vera félagslyndar og finn- ast gott að kela. tískan í Hollywood Vándamál vetrarins eru mörg. Lát- um vera þó bfllinn festist í ófærð- inni, við rennum til á svellinu eða þurfum að borga himinháan hitaveitu- reikning. En þegar hárið fer allt í klessu í þokkabót þá er nóg komið. Fínu og frægu frúrnar í útlöndunum kunna ráð við þessu eins og öðru. Til að hattar og húfur eyðileggi ekki flottu hárgreiðsluna velja þær sér greiðslu sem þola hvað sem er. T.d. er hægt að setja hárið í stert, flétta það eða spenna upp. Hug- myndin er að finna greiðslu sem lítur eins út, með eða án höfuðfats. Lítum á nokkur dæmi. Strandvarðastíll Gena Lee Nolan, leikkona sem ílestir kannast við úr þáttunum um Strandverði, vill að fallega hárið njóti sín í skíðabrekkunni sem og á strönd- inni. Hún velur því frekar eyrnaband en húfu og Ieyfir hárinu að flæða frjálsu um axlirnar. Smart stfll en kannski ekki mjög hentug- ur í stórhríð! Frjálsleg og flott Leikkonan Sally Field bregst ekki frekar en fyrri daginn. Þá hún líti hálfdruslu- lega út með rytjulega fléttu og hafnarbolta- hatt er hún samt algjört krútt. Frjálslegt og flott hjá Sally. Feluleikur Hárvandamálið leyst á einfaldan hátt. Angela Bassett felur það einfaldlega und- ir húfunni. Hatt- urinn er töff, brosið fallegt og eyrnalokkarnir gera útslagið. Henni gæti þó orðið kalt á eyr- unum í miklu frosti en að öðru leyti ekkert út á stflinn að setja. Hvað er nú þetta? Elle MacPher- son, yfirstrump- ur, er með allt of stóra húfu og rétt tyllir henni á hausinn. Kannski tímir hún ekki að hylja hið fagra hár sem hún er fræg fyrir. En þegar hún brosir sætt og lætur augun tindra, eins og á þessari mynd, hverjum er þá ekki sama um húfuna?

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.