Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Blaðsíða 12

Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Blaðsíða 12
24 - Laugardagur 15. febrúar 1997 Jktgur-®tmrtm -Þýskt ebalmerki ■©- ÍBSV Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar Óseyri 5 - Sími 461 2960 Erla Ágústsdóttir. Mynd: JHF |DaguX'®tmímt Opel sýning um helgina á Akureyri Frá kl. 14-17 'lvlatarkrókur Uppskriftirnar að þessu sinni koma frá Erlu Ágústsdóttur, bónda á Árskógsströnd. „Hér hef ég búið í 20 ár en er vestan af Ströndum, “ segir Erla. Um uppskriftirnar segir Erla m.a. aðLauf léttur forréttur sé líka ágœtur sem aðalréttur, sérstaklega þegar verið sé að passa upp á lín- urnar. Og karfanum vildi hún endilega koma að þar sem henni finnst of lítið um að matreitt sé úr öðrum fiski en ýsu og þorsk Erla skorar á vinkonu sína á Árskógssandi, Helgu Finnboga- dóttur, í nœsta Matarkrók Laufléttur forréttur / höfuð kínakál 1 gul paprika ‘á gúrka 2 stk. mandarínur 2 harðsoðin egg 200 g rœkjur Sósa: 'á dós sýrður rjómi safi úr 1 appelsínu salt Grófsaxið kínakálið og fín- saxið paprikuna og gúrkuna. Takið mandarínurnar og eggin í sundur í báta. Blandið öllu saman í skál nema nokkrum eggjabátum sem raðað er ofan á til skrauts. Sósan er búin til með því að blanda saman sýrðum rjóma, safa úr einni appelsínu og ör- litlu salti. Karfaréttur 600-700 g karfaflök 2-3 msk. sítrónusafi 1 tsk. fiskikrydd 1 tsk. dill 1 tsk. season all 1 tsk. aromat krydd Blanda: / bolli rúgmjöl 1 tsk. salt 1 tsk. aromat Flökin sett á fat og safinn kreistur yfir. Kryddinu blandað saman og dreift yfir flökin. Geymt í ísskáp í 1/2-1 sólar- hring (passa að breiða filmu yf- ir, það er sterk lykt af krydd- inu.) Karfaflökin skorin í hæfilega bita og velt uppúr rúgmjöls- blöndunni. Steikt fallega brún á pönnu í smá smjörlíki. 4-5 dl vatn settir á pönnuna ásamt 1 tsk. graslauk og 'A tsk. sítrónu- pipar. Soðið smástimd, fiskur- inn færður upp og soðið þykkt með sósujafnara. Salti og kryddi sem notað var í marin- eringuna bætt í eftir smekk. Borið fram með soðnum kartöflum og gulrótum. Marengs 4 eggjahvítur 100gsykur 100 g púðursykur (dökkur) / tsk. lyftiduft 50 g hakkaðar hesilhnetur þeyttur rjómi 20 rommkúlur Ferskir ávextir Hvíturnar þeyttar vel, sykur og lyftiduft sett í og hrœrt vel saman. Hnetunum blandað var- lega saman við. Gerið tvo botna á bökunarpappír (24 cm), bakið við 150°C í 45-50 mínútur. Botnarnir settir saman með 3/ dl þeyttum rjóma sem i er blandað 20 smátt söxuðum rommkúlum. Skreytt með ferskum ávöxt- um, s.s. kíwí, vínberjurn, eða öðru eftir smekk. Látið bíða í 4-5 tíma áður en borið er fram. 100.000.- kr. afsláttur á sérútbúnum Opel Astra Extreme Handhöfum Eurocard og Visa býðst nú að greiða tyrir öll flugfargjöld og pakkaferðir með raðgreiðslum til allt að 24 mánaða. • X • Flugleiða útíheim FLUGLEIÐIR Traustur islenskur ferðafélagi

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.