Dagur - Tíminn Akureyri - 15.02.1997, Page 12
24 - Laugardagur 15. febrúar 1997
Jktgur-®tmrtm
-Þýskt ebalmerki
■©- ÍBSV
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar Valdimarssonar
Óseyri 5 - Sími 461 2960
Erla Ágústsdóttir.
Mynd: JHF
|DaguX'®tmímt
Opel sýning um helgina á Akureyri
Frá kl. 14-17
'lvlatarkrókur
Uppskriftirnar að þessu sinni koma frá Erlu
Ágústsdóttur, bónda á Árskógsströnd. „Hér hef
ég búið í 20 ár en er vestan af Ströndum, “ segir
Erla. Um uppskriftirnar segir Erla m.a. aðLauf
léttur forréttur sé líka ágœtur sem aðalréttur,
sérstaklega þegar verið sé að passa upp á lín-
urnar. Og karfanum vildi hún endilega koma að
þar sem henni finnst of lítið um að matreitt sé
úr öðrum fiski en ýsu og þorsk Erla skorar á
vinkonu sína á Árskógssandi, Helgu Finnboga-
dóttur, í nœsta Matarkrók
Laufléttur forréttur
/ höfuð kínakál
1 gul paprika
‘á gúrka
2 stk. mandarínur
2 harðsoðin egg
200 g rœkjur
Sósa:
'á dós sýrður rjómi
safi úr 1 appelsínu
salt
Grófsaxið kínakálið og fín-
saxið paprikuna og gúrkuna.
Takið mandarínurnar og eggin í
sundur í báta. Blandið öllu
saman í skál nema nokkrum
eggjabátum sem raðað er ofan
á til skrauts.
Sósan er búin til með því að
blanda saman sýrðum rjóma,
safa úr einni appelsínu og ör-
litlu salti.
Karfaréttur
600-700 g karfaflök
2-3 msk. sítrónusafi
1 tsk. fiskikrydd
1 tsk. dill
1 tsk. season all
1 tsk. aromat krydd
Blanda:
/ bolli rúgmjöl
1 tsk. salt
1 tsk. aromat
Flökin sett á fat og safinn
kreistur yfir. Kryddinu blandað
saman og dreift yfir flökin.
Geymt í ísskáp í 1/2-1 sólar-
hring (passa að breiða filmu yf-
ir, það er sterk lykt af krydd-
inu.)
Karfaflökin skorin í hæfilega
bita og velt uppúr rúgmjöls-
blöndunni. Steikt fallega brún á
pönnu í smá smjörlíki. 4-5 dl
vatn settir á pönnuna ásamt 1
tsk. graslauk og 'A tsk. sítrónu-
pipar. Soðið smástimd, fiskur-
inn færður upp og soðið þykkt
með sósujafnara. Salti og
kryddi sem notað var í marin-
eringuna bætt í eftir smekk.
Borið fram með soðnum
kartöflum og gulrótum.
Marengs
4 eggjahvítur
100gsykur
100 g púðursykur (dökkur)
/ tsk. lyftiduft
50 g hakkaðar hesilhnetur
þeyttur rjómi
20 rommkúlur
Ferskir ávextir
Hvíturnar þeyttar vel, sykur
og lyftiduft sett í og hrœrt vel
saman. Hnetunum blandað var-
lega saman við. Gerið tvo botna
á bökunarpappír (24 cm), bakið
við 150°C í 45-50 mínútur.
Botnarnir settir saman með
3/ dl þeyttum rjóma sem i er
blandað 20 smátt söxuðum
rommkúlum.
Skreytt með ferskum ávöxt-
um, s.s. kíwí, vínberjurn, eða
öðru eftir smekk.
Látið bíða í 4-5 tíma áður en
borið er fram.
100.000.- kr.
afsláttur
á sérútbúnum Opel Astra Extreme
Handhöfum Eurocard og Visa
býðst nú að greiða tyrir öll
flugfargjöld og pakkaferðir
með raðgreiðslum til allt að
24 mánaða.
• X •
Flugleiða
útíheim
FLUGLEIÐIR
Traustur islenskur ferðafélagi