Dagur - Tíminn Akureyri - 04.04.1997, Blaðsíða 5
Jkgur-®mtmn
Föstudagur 4. apríl 1997 -17
VIÐTAL DAGSINS
„Var andlega
blankur
borgarstarfs
maður, þegar
ég tók þá
ákvörðun að
hœtta í
slökkviliðinu og
einbeita mér að
listinni, “ segir
Teddi
listamaður.
SkúlptúrUst í skipinu
að gefst enginn tími hér
um borð til listiðkana.
Sautján manns eru hér
um borð, sem allir borða mikið.
Að fara öðru hvoru til sjós er
góð tilbreyting og gefur mér
tækifæri til að efla mig af and-
legri dáð,“ segir Magnús Theó-
dór Magnússon trélistamaður
og afleysingabryti á ms. Stuðla-
fossi, gjarnan nefndur Teddi.
Hann bauð tíðindamönnum
Dags-Tímans að skoða lista-
verkasafn sitt um borð þegar
skipið lá á dögunum við kaja í
Akureyrarhöfn. Þá voru skip-
verjar að koma úr freðfiskflutn-
ingum frá nyrstu byggðum Nor-
egs. Frá Akureyri var ferðinni
fram haldið vestur um haf -
með enn fleiri ferðýsur.
Andlega uppþornaður
brunavörður
Teddi er rúmlega sextugur.
Lengi framan af ævi starfaði
hann við offsetprentun og síðar
sem brunarvörður hjá Slökkvi-
liði Reykjavíkur, þar til fyrir tólf
árum - en þá ákvað hann að
snúa sér að listgyðjunni. Það
hefur hann haft sem aðalstarf
síðustu árin. „Ég var andlega
blankur borgarstarfsmaður,
þegar ég tók þá ákvörðun að
hætta í slökkviliðinu og einbeita
mér að listinni. Mér linnst ákaf-
lega gaman að vinna listaverk
úr tré. Á sjónum fæ ég hug-
myndir að mörgum listaverkum
og skúlptúrum. Ég hef víða
fengið viði sem ég nota í þessi
verk, meðal annars úr svokall-
aðri Edinborgarbryggju á ísa-
firði sem reist var snemma á
öldinni og rifin 1966. Kjörviðina
úr bryggjunni fékk ég fyrir
nokkrum árum og hef síðustu
árin mikið smíðað úr þeim,“
segir viðmælandi okkar.
Sýningar í erlendum
höfnum
Þegar vel liggur á listamannin-
um Tedda efnir hann stundum
til sýninga um borð í þeim skip-
um Eimskipa sem hann er á
hverju sinni. Þannig lá Stuðla-
foss fyrir tæpum mánuði við
kajann vestur í Boston í Banda-
ríkjunum og þá var þar efnt til
listaverkasýningar um borð -
sem var fjölsótt, þó kannski
ekki á vísu þarlendra.
Theódór hefur á sínum ferli
haldið tvær stórar einkasýning-
ar. Sú fyrri var í Perlunni 1992 Tedda að komast, fram hjá öll-
og hin síðari í
Ráðhúsi
Reykjavíkur
1994. Auk þess
sem hann hef-
ur haldið ýmsar
smærri einka-
sýningar. - Þá
er listaverk
þessa sæbarða
manns í eigu
ýmissa aðila;
þar á meðal
Landsbankans,
ýmissa borgar-
fyrirtækja, Eim-
skipafélagsins
sem og eitt slíkt
Trélistamaðurinn
Teddi fer stundum
einn og einn túr á
Fossum Eimskipa.
Hann er með fjölda
trélistaverka um
borð og efnir stund-
um til sýninga í er-
lendum höfnum.
prýðir kammes
Ilr. Richard Won Weizacker, fv.
forseta þýska sambandslýðveld-
isins. Inn á skrifstofu hans tókst
um oryggis-
kerfum. For-
setinn hreifst
af hstaverkum
þessa snjalla
listamanns frá
eyjunni í
Dumbshafi - og
ekki stóðst
hann mátið og
keypti eitt slíkt.
Af þessum
góðu viðskipt-
um er Theódór
býsna stoltur -
enda hefur
hann efni á
því.
sbs.
BREF FRA AKUREYRI
Gróska á Norðurlandi!
Jón Hrói
Finnsson
skrifar
Allir vita að samkeppni er
holl. Hún stuðlar að betri
þjónustu og árvekni sam-
keppnisaðila. Skortur á sam-
keppni leiðir hinsvegar til hins
gagnstæða.
Það er síðarnefnda ástandið
sem við búum við á vettvangi
íslenskra stjórnmála í dag.
Samkeppnin við Sjálfstæð-
isflokkinn um kjósendur er allt
of lítil, mest vegna smæðar og
Qölda þeirra flokka og samtaka
sem ættu að skapa eðlilegt mót-
vægi. Þessir flokkar berjast um
Gróska er stofn-
uð afungu
fólki, fólki sem
gerir krófur um
athafnir, fólki
sem gerir kröfur
um breytingar
til hins betra.
atkvæðin innbyrðis, meðan
sjálfstæðismenn sigla nokkuð
lygnan sjó og geta treyst því að
halda sínu án mikillar fyrir-
hafnar. Þetta er ekki af hinu
góða.
Þjónusta Sjálfstæðisflokksins
við almenning í landinu er fyrir
löngu farin að bera merki fá-
keppni og sofandaháttar.
Skammsýni og fyrirhyggjuleysi
eru ráðandi og blindnin fyrir
hagsmunum venjulegs fólks er
alger. Landinu er stjórnað af
sérhagsmunaaðilum og þrýsti-
hópum sem ráða taktinum í
dansi ríkisstjórnarinnar. Þessu
þarf að breyta.
Valdahlutföllin þarf að jafna
og það verður aðeins gert á
einn veg, með sameiningu
vinstri- og jafnaðarmanna,
flokksbundinna sem óflokks-
bundinna, í eina samstæða
heild.
Gróska, samtök jafnaðar- og
félagshyggjufólks var stofnuð til
að stuðla að slíkri sameiningu
og til að vera samstarfsvett-
vangur hinna fjölmörgu sem
finna nauðsyn þess að fram
komi eitt sterkt vinstra afl sem
getur beitt sér af einhverju viti.
Það er fyrir löngu orðið tíma-
bært að leggja til hliðar gamlar
væringar og raða baráttumál-
unum í nýja forgangsröð. Við
verðum að spýta í lófana og
heijast handa því öðruvísi get-
um við ekki lagað það sem af-
laga hefur farið í áhrifatíð Sjálf-
stæðisflokksins.
Við erum sammála um svo
margt að það eina sem kemur í
veg fyrir sameiningu er þrjóska
og afturhaldssemi. Við þurfum
'ekki að vera sammála um allt,
við þurfum bara að vera sam-
mála um það sem skiptir máli
fyrir lífsafkomu íslenskra íjöl-
skyldna því lífvænlegt þjóðfélag
hlýtur að ganga fyrir öllu öðru.
Gróska er stofnuð af ungu
fólki, fólki sem gerir kröfur um
athafnir, fólki sem gerir kröfur
um breytingar til hins betra.
Fólki sem vill ekki líða fyrir
gömul ágreiningsefni vinstri-
flokkanna og venjur sem eru
fyrir löngu úr sér gegnar.
Nú hefur Gróska teygt anga
sína hingað norður fyrir heiðar.
Hópur ungs fólks úr A-flokkn-
um, Kvennalista og Þjóðvaka
ásamt óflokksbundnu áhuga-
fólki um bætt þjóðfélag undir-
býr þessa dagana stofnun norð-
lenskrar deildar Grósku. Þörfin
fyrir þessi samtök er mikil.
Gróska er það sem við höfum
lengi beðið eftir, fyrsta skrefið á
leið til betra þjóðfélags.