Dagur - Tíminn Akureyri - 12.04.1997, Blaðsíða 1
HELGARUTGAFA
Verð í lausasölu 200 kr.
fflanur- QLímíxm
Laugardagur 12. apríl 1997 - 80. og 81. árgangur 69. tölublað Blað
1
Fréttir og þjóðmál
Akureyri
Framhaldsskólar
Varnarliðið
Sakamál
Sjá einstætt viðtal við 19 ára sakamann sem bíður dóms fyrir að hafa ban-
að sambýlismanni móður sinnar. Bls. 6 Mynd:E.úi.
Vorið er komið
„Eigum við ekki að segja að vorið sé kornið," sögðu þeir á Veðurstofunni í gær en þá var heitasti dagur ársins til
þessa. Löggiltir mælar sýndu 14 gráður á Akureyri um miðjan gærdag en íbúar þóttust sjá ívið hærri tölur á sín-
um mælum eins og gengur. Á Egilsstöðum var 13 stiga hiti. Áframhaldandi hlýindi eru í kortunum allt fram á
fimmtudag. BÞ/Mynd jhf
Kennarar saka
Bjöm um svik
Slakað á kröfum um
nám í kennslu- og upp-
eldisfræði til að öðlast
starfsheiti sem fram-
haldsskólakennari.
Kennarar eru mjög reiðir
út í þá ákvörðun
menntamálaráðherra að
kennari með mikla fagmenntun
þurfl aðeins að taka 15 eining-
ar í kennslufræði í
stað 30 til að geta
fengið lögverndað
starfsheiti sem
framhaldsskóla-
kennari. Kennarar
telja að með þess-
ari ákvörðun ráð-
herra hafl verið
gengið á svig við
það sem áður hafði
verið ákveðið í
þessum efnum.
í frumvarpi til laga um lög-
verndun á starfsheiti og starfs-
réttindum kennara og skóla-
stjóra er þessi breyting rökstudd
með því að nauðsynlegt sé að
auðvelda samskipti atvinnulífs
og skóla. Þessi breyting gildir
líka um kennara í iðngreinum
sem að mati ráðuneytisins búa
yfir dýrmætri reynslu og sér-
þekkingu á sínu sviði. Peir sem
uppfylla ekki þessi skilyrði verða
hinsvegar að taka 30 einingar í
kennslufræði eins og verið hefur.
„Við vildum ekki að það yrði
dregið úr kröfum um nám og
kunnáttu í kennslu- og uppeld-
isfræði. Við vissum ekki betur
en það væri orðið samkomulag
um það í nefndinni. Þannig að
þetta kom okkur algjörlega í
opna skjöldu og við erum mjög
ósátt við það,“ segir Guðrún
Ebba Ólafsdóttir, varaformaður
KÍ. Hún var annar af tveimur
fulltrúum kennara í starfshópi
ráðuneytisins sem vann að end-
urskoðun gildandi laga. Guðrún
Ebba segir að öðru leyti séu
kennarar að mestu leyti sáttir
við efni frumvarpsins.
Meðal annarra nýmæla í
frumvarpinu er að skólastjórum
verður heimilt að ráða sérfræð-
ing til kennslu í sinni starfsgrein
þótt hann sé löggiltur fram-
haldsskólakennari. Þessi heim-
ild miðast við að ekki sé kennt
meira en sex tíma á viku. Þá
verður heimilt að meta kennslu-
reynslu sem hluta af kennslu-
fræði til kennsluréttinda. -grh
Guðrún Ebba Ólafsdóttir
varaformaður KÍ
„Kemur okkur í
opna skjöldu. “
Ráðuneytið hund-
skanunar herinn
Samráð um lögreglurann-
sókn vegna meintrar vöru-
rýrnunar í verslun Varnar-
liðsins á Keflavíkurflugvelli var
ekki með þeim hætti sem skyldi,
segir í bréfi varnarmálaskrif-
stofu utanríkisráðuneytisins til
Verslunarmannafélags Suður-
nesja. Ráðuneytið harmar óþæg-
indi sem myndavélaeftirlit hefur
valdið verslunarfólki á Vellinum.
í bréfinu setur það ofan í við
Varnarliðið og embætti sýslu-
manns á Vellinum. Þórður Ægir
Óskarsson hjá varnarmálaskrif-
stofu segir sérlega gagnrýnivert
hvernig staðið var að leynilegu
myndavélaeftirliti í verslun
Varnarliðsins.
„Varnarliðinu hefur verið
tilkynnt um að slíku eftirliti séu
mjög þröngar skorður settar í
íslenskum lögum og að í flest-
um tilfellum þurfi atbeini dóm-
ara,“ segir í bréfinu. Þá var það
ítrekað við Varnarliðið að sam-
ráð við íslensk stjórnvöld þarf
um svonalagað. Einnig er þess
kraflst að allar upplýsingar um
myndavélaeftirlitið verði sendar
sýslumanninum.
Varnarmálaskrifstofa sendi
sýslumanni einnig áminningu
og ítrekaði að formlega rétt
samráð yrði að hafa um svona
lögregluaðgerðir. Þá er hann
minntur á þá skyldu sína að til-
kynna íslenskum starfsmönnum
Navy Exchange- verslunarinnar
um niðurstöður rannsóknar,
umfang eftirlitsins og fleira.
Jóhann Geirdal, formaður
Verslunarmannafélagsins,
kvaðst ánægður með áminning-
arbréfið, en hann vill nánari
skýringar.
„Eftir upplýsingum, sem ég
hef reyndar ekki fengið stað-
festar ennþá, er
komið í ljós að það
var ekki um neina
rýrnun að ræða,
heldur mistök í
bókhaldi úti í Nor-
folk. Ég vil fá það
mjög skýrt fram frá
yfirvöldum hór að
þessari rannsókn
sé lokið og að það
hafi ekki verið neitt
sem kallaði á grun-
semdir gagnvart íslenska starfs-
fólkinu. Það verður að hreinsa
mannorð fólksins." -JBP
Sjá bls.5
Jóhann Geirdal
form. Verslunarmannafél Suðurnesja
Utanríkisráðuneytið átelur
Varnarliðið fyrir leynilegt eftirlit
með íslenskum starfsmönnum.
Þeir voru grunaðir um þjófnað og
vilja afsökunarbeiðni
Lífið í landinu
Jóhannes
með nýjan
pistil
fylgja
blaðinu
dag
Neysluvfltnsdælur
SINDRI
-sterkur í verki
222 • BREFASIMI S62 1024