Dagur - Tíminn Akureyri - 29.05.1997, Page 3
Eflaust þrýst á „sátta“
Verkfall
Sauðárkrókur
Afgreiðslu-
stjóri Flug-
leiða til fs-
landsflugs
Miðstjórn ASÍ fordæmdi á fundi sínum í gær tilraunir atvinnurekenda til að brjóta niður verkfall á Vestfjörðum.
Mynd: E.ÓI.
Ríkissáttasemjari
ieggur í dag fram
miðlunartillögu í
kjaradeilunni á
Vestfjörðum.
Mér llnnst ekkert um
það,“ sagði Pétur Sig-
urðsson, forseti Alþýðu-
sambands Vestfjarðar, þegar
Dagur-Tnninn spurði hann í
gær um miðlunartillögu ríkis-
sáttasemjara. Hún verður lögð
fram í dag og atkvæði greidd
um hana á morgun. „Þetta er
auðvitað hans réttur samkvæmt
lögum. Hann hefur sjálfsagt
orðið fyrir þrýstingi einhvers
staðar frá að gera þetta. Við
getum ekkert við því gert. Við
verðum bara að bíða og vona
að hún innihaldi eitthvað," seg-
ir Pétur og vill ekki kannast við
að miðlunartillaga sé eini
möguleikinn í stöðunni.
„Okkar tilgangur hefur alltaf
verið sá að reyna að fá vinnu-
veitendur til þess að ræða við
okkur í fullri alvöru en það hafa
þeir aldrei gert. Þeir eru eins
strengjabrúður hjá Vinnuveit-
endasambandinu. “
Pétur vill engu spá um
hvernig tillögu ríkissáttasemj-
ara verði tekið. „Þetta er víst
orðið eitt lengsta verkfall sög-
unnar og hefur verið erlitt. Það
virðast vera opnar allar gáttir
fyrir útgerðina til að stunda
sína starfsemi óáreitt. Félagar
okkar hafa ekki hjálpað okkur
við þetta og við ekki nógu mörg
til að stöðva þetta.“
Miðstjórn Alþýðusambands
íslands fordæmir tilraunir at-
vinnurekenda til að brjóta á
bak aftur löglega boðað verkfall
verkafólks á Vestfjörðum með
verkfallsbrotum. Hún telur að
samningaviðræður séu vænlegri
til lausnar en ögranir og verk-
fallsbrot.
í ályktun miðstjórnarfundar
ASÍ er jafnframt lýst yfir furðu
að samtök atvinnurekenda
skuli véfengja rétt stéttarfélaga
til að grípa til samúðaraðgerða
með verkfólki í vinnudeilum.
-vj/grh
Sjá einnig bls.6
Kristján
Blön-
dal, af-
greiðslu-
stjóri á
ílugstöð-
inni á
Sauðár-
króki, og
eiginkona
hans, sem
einnig
starfar við Kristján Blöndal.
flugið,
hafa sagt upp störfum hjá Flug-
leiðum og ætla að færa sig yfir
til keppinautarins íslandsflugs,
sem hefur áætlunarflug til
Sauðárkóks í júní nk. Kristján
sagði í samtali við Dag-Tímann
í gær að hann teldi atvinnuör-
yggi sínu betur borgið hjá ís-
landsflugi en Flugleiðum í
framtíðinni. „Þetta er ekki
spurning um yfirborgun eða
óánægju heldur tel ég einfald-
lega ljóst að aðeins annar aðil-
inn muni lifa þessa samkeppni
af og þá líst mór betur á ís-
landsflug. Það verður betri
þjónusta veitt fyrir Sauðkræk-
inga hjá Islandsflugi samkvæmt
sumaráætlunum þessara
tveggja ílugfélaga."
Kristján lætur væntanlega af
störfum 15. júní nk. en hann
hefur verið að störfum hjá
Flugleiðum frá árinu 1991. BÞ
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Á ársfundi fjórðungssjúkrahússins á Akureyri í gær gátu menn
fylgst með gallblöðruaðgerð sem gerð var á Landspítalanum í
Reykjavík, með aðstoð nýjustu tækni. Mynaas
Bullandi
hallarekstur
Mun meiri halli er á
rekstri Fjórðungs-
sjúkrahússins það
sem af er árinu, en
áætlað var.
Hallinn á rekstri Fjórð-
ungssjúkrahússins á
Akureyri var 18
milljónir króna á fyrstu 4
mánuðum ársins, en gert
var ráð fyrir að liann yrði
rúmar 6 milljónir á árinu
öllu. Þetta kom fram á árs-
fundi sjúkrahússins í gær.
Fjárveitingar nema 1,5
milljarði króna, og sjúkra-
húsið stendur frammi fyrir
Ijárvöntun, segir Halldór
Jónsson, framkvæmdastjóri
FSA.
I fyrra var hallinn 13,8
milljónir, eða tæpt prósent
af heildarrekstrargjöldum
ársins. Rúmlega 5000 sjúk-
lingar voru lagðir inn og
Qölgaði um tæp 8 prósent.
Legudögum fækkaði hins
vegar um nærri 2 prósent.
GG
Vatnsendi
Hápólitískt
sumarhús
Nýtt hús ríkissaksóknara á fyrrum bannsvæði.
Ríkissaksóknari reisir
sumarhús þar sem
áður hefur ríkt bann
við slíku. „Smá slök-
un,“ segja bæjaryfir-
völd Kópavogs.
Nýrisinn er sumarbústað-
ur í landi Vatnsenda við
Elliðavatn þar sem áður
hefur verið blátt bann við ný-
framkvæmdum. Það er Hall-
varður Einvarðsson ríkissak-
sóknari sem hefur fengið náð
fyrir augum bæjarstjórnar á
„hápólitísku" svæði eins og Gísli
Nordahl, byggingarfulltrúi bæj-
arins, kallar það. Gísli segir að
„smá siökun" sé í gangi þarna
við Elliðavatn eftir áralanga
harðlínustefnu gegn þeim sem
vildu byggja, endurnýja eða
bæta við bústaði sína sem
standa í hvamminum við vatn-
ið. „Það hefur ekki mátt reisa
kamar hérna,“ sagði sumarbú-
staðaeigandi við vatnið í vor
þegar menn uppgötvuðu nýja
bústaðinn sem reis í vetur.
Frægasta dæmið um hörku bæj-
aryfirvalda var þegar nýr bú-
staður Þorsteins Ö. Stephensen
heitins leikara var Qarlægður
örstutt frá þar sem bústaður
Ilallvarðs stendur nú. „Það hef-
ur margt breyst á 20 árurn,"
segir byggingarfulltrúi. Hann
segir þó að það sé ekki stefna
bæjaryfirvalda að þarna rísi
sumarbústaðabyggð, en nýja
húsið rúmist innan þeirra slök-
unarstefnu sem gætt hafi að
undanförnu. „Þetta eru alltaf
hápólitískar ákvarðanir þarna
uppfrá," segir Gísli og bendir á
að sjálf bæjarstjórn hafi leyft
nýja bústaðinn. Margir gamlir
bústaðir standa á leiguskikum
við vatnið og hefur hin nýja
slökunarstefna vakið mikla at-
hygli.