Dagur - Tíminn Akureyri - 19.06.1997, Page 7

Dagur - Tíminn Akureyri - 19.06.1997, Page 7
JDagurÁIImrám Fimmtudagur 19. júní 1997 -19 MENNING OG LISTIR Textinn skilst fremur illa í söng Andreu Gylfadóttur í hlutverki Evu Perón. en hún syngur með glæsibrag. Egill Ólafsson er skýrmæltur Perón. Sigurður Steindórsson skrifar Ekki er annað hægt en Ijúka lofsorði á sýningu Pé- leikhópsins á söng- leiknum Evítu í íslensku óper- unni, svo vel er hún útfærð. Eins og allir vita, íjallar söngleikurinn um Evu Perón, forsetafrú í Argentínu og dýrling litla mannsins þar í landi. Eins kon- ar yfirskrift söngleiksins er tilvitnun í Jorge Luis Borges, rithöfund, landsbókavörð og prófessor sem Juan Per- ón gerði að hænsnahirði: Perón var ekki Perón og Eva var ekki Eva. Þau voru Sýningin er ótrú- lega vel fram- kvœmd tœknilega, hún er keyró áfram með hraða og há- vaða svo sjaldan verður Idt d fyrr en rétt undir lokin, því síðustu 10 mínúturnar eða svo eru nokkuð lang- dregnar. dularfullt, nafnlaust fólk og við þekkjum hvorki þeirra réttu ásýnd né nöfn. En í söngleiknum er fátt dularfullt við þetta fólk, þau hófust til valda á öldufaldi áróðurs og lýðhylli eins og aðrir fasistar og létu sitthvað gott af sér leiða, ekki sízt fyrir tilstilli Evu, en að henni látinni riðlað- ist stjórn Peróns, hann hrökkl- aðist úr landi en herforingjar tóku yfir. Sýningin er ótrúlega vel framkvæmd tæknilega, hún er keyrð áfram með hraða og há- vaða svo sjaldan verður lát á fyrr en rétt undir lokin, því síð- ustu 10 mínúturnar eða svo eru nokkuð lang- dregnar. Ljós- um er beitt af miklu hugviti, átta manna hljómsveit heldur uppi rafeindamögn- uðum glaumi (og raunar hljóta sum at- riðin að vera af segulböndum), einsöngvarar eru sömuleiðis allir með út- varpshljóð- nema svo Bjöggi, Egill og Andrea gefa Kristni Sig- mundssyni og Sigrúnu Hjálm- týsdóttur ekk- ert eftir í radd- styrknema síð- ur sé. Og flest hinna fjöl- mörgu hóp- og dansatriða eru frábærlega vel útfærð. Og þarna er alveg ljómandi góður kór, órafmagnaður og ættaður úr Langholtskirkju. Að öðrum ólöstuðum slær mest í gegn Baldur Trausti Hreinsson, nýútskrifaður leikari að því er sagt var, fyrir leik, söng, skýran framburð og glæsilegt útlit hann er sögu- maður í söngleiknum. Andrea Gylfadóttir syngur og leikur Evu Perón með glæsibrag, en text- inn er oft torskilinn í munni hennar. Egill Ólafsson er ágæt- ur og skýrmæltur Perón og Björgvin Halldórsson prýðilegur Magaldi. Vigdís Hrefna Páls- dóttir söng laglega fyrrum ást- konu Peróns, en samkvæmt út- liti hennar hefði það samband varðað við barnaverndarlög. Og þarna er fjöldi annarra söngv- ara og dansara, 40 alls, sem hver um sig fara með mörg hlutverk. Þýðinguna gerði Jón- as Friðrik Guðnason, vel söng- hæfa en þó með óþarflega óeðlilegri orðaröð á köflum. Og andinn sem öllu stýrir og allt samhæfir í þessa hraðskreiðu og tæknifylltu sýningu er Andr- és Sigurvinsson. Allir einstak- lingar standa sig vel, en þó er það heildarsvipurinn sem mest ber af. En það er eins með þennan söngleik þeirra Tims Rice og Andrews Lloyd Webber og með Perón-hjónin, að í honum er holur hljómur þetta snertir mann aldrei. Viðkvæmnin verð- ur að væmni, ástir og örlög manna að hávaðasömu hjómi. Ástæðan er auðvitað sú að frá höfundanna hendi er þetta dægurlist, brauð og leikir. Við því er ekkert að segja, enda er þetta prýðileg skemmtun sem margir eiga vonandi eftir að hafa gaman af. Sumar- leikhúsið á Akureyri sýnir Sumarið sem aldrei kom Höfundur: Valgarður Stefánsson og Sumarferð með Sólon Höfundur: Öm Ingi Sjáið reynda áhuga- leikara víðsvegar af land- inu fara á kostum. Frumsýning föstudaginn 20. júní kl. 20.30 Önnur sýning föstudaginn 20. júní kl. 23.30 (Miðnætursýning). Þriðja sýning laugardaginn 21. júní kl. 20.30 Fjórða sýning laugardag- inn 21. júní kl. 23.30 (Miðnætursýning). Fimmta sýning sunnudag- inn 22. júní kl. 17 Sýningarstaður: Renni- verkstæðið við Strandgötu Leikstjórn: Örn Ingi Miðasala í Bókval Miðaverð kr. 1.200,- Upplýsingar um miðasölu fást á renniverkstæðinu 2 klst. fyrir sýningu í síma 461 3690. Athugið: Takmarkaður fjöldi sýninga ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Stóra sviðið kl. 20.00 FIÐLARINN Á ÞAKINU eftir Boch/Stein/Harnick 20. sýn. í kvöld, fimmtud. 19. júní. Uppselt. 21. sýn. föstud. 20. júní. Nokkur sæti laus. 23. sýn. laugard. 21. júní. Nokkur sæti laus. 23. sýn. föstud. 27. júní. 23. sýn. laugard. 28. júní. Síðustu sýningar leikársins Litla sviðið kl. 20.30 LISTA- VERKIÐ eftir Yazmina Reza Fimmtud. 19. júní. Uppselt. Föstud. 20. júní. Örfá sæti laus. Laugard. 21. júní. Nokkur sæti laus. Fimmtud. 26. júní. Föstud. 27. júní. Síðustu sýningar ieikársins Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 13-18, frá miðvikudegi til sunnudags kl. 13-20 og til 20.30 þegar sýningar eru á þeim tíma. Einnig er tekið á móti símaþöntunum frá kl. 10virkadaga.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.