Dagur - Tíminn Akureyri - 19.06.1997, Qupperneq 9

Dagur - Tíminn Akureyri - 19.06.1997, Qupperneq 9
®ctgur-®tmtrm Fimmtudagur 19. júní 1997 - 21 secja. fólkið Ekkí „bara sæt“ Claudia Schiffer fékk löngun til að gera eitthvað fleira en hara „að vera sœt“. Og fékk hlutverk í bíó- mynd. Bara nefna það. Myndin heitir The Blackout og var frum- sýnd á Cannes í síðasta mánuði. Hefur myndin eflaust fallið mörgum vel í geð þó ekki væri nema vegna aðalleikar- anna sem standa Schiffer ekki að baki í glæsileika, þau Matt- hew Modine og Béatrice Dalle. Þrjú saman mynda þau ástar- þríhyrning. Að sögn leikkonunnar sem var fyrirsæta hófust afskipti hennar af kvikmyndum á Can- nes-hátíðinni í fyrra þar sem hún fékk margfalt meira klapp og meiri athygli en leikkonur og leikarar á staðnum. „Þetta var ekki réttlátt," segir þessi 26 ára gamla stúlka. „Þá gerði ég mér grein fyrir að þótt klappið hafl látið vel í eyrum þá átti ég það ekki skilið. Strax sama kvöld sagði ég umboðsmanni mínum að setja fyrirsætuferilinn minn í salt á meðan ég færi í bíómynd- ir.“ Tilboðin streymdu og Claud- ia, þessi hreinlynda, sápu- þvegna stúlka, valdi hlutverk kærustu dópista. „Við komum saman áður en tökur hófust og samþykktum að ég myndi ekki leika með farða. Það hljómar kannski fáránlega en ég hef aldrei unnið með andlitið „nak- ið“.“ Hún fór ekki auðveldustu leiðina til að sanna sig á hvíta tjaldinu. Hún valdi erfiðan leikstjóra, umdeilanlegan söguþráð og notaði ekki farða! Claudia segir að fyrirsætustarfið og leiklistin séu ekki svo víðsfjarri hvort öðru og fór því aðeins á stutt leiklistar- námskeið áður en tökur hófust. Claudia Schiffer og Béatrice Dalle (Betty Blue) unnu vel saman meðan á tökum stóð. Nýju beibin hlaðast upp - Nú eru að hefjast tökur á áttundu þáttaröð Strandvarða og þótt eðalbeibið frægasta, Pamela Anderson Lee, hafi afklæðst appelsínuskæra sundbolnum og komin á aðrar vígstöðvar, þá eru nægar til að fylla skarðið og ekki síð- ur brjóstgóðar stúlkur eins og sjá má. Traci Bingham (önnur frá hægri) hefur að vísu áður sprangað um renni- sléttar strandirnar en hinar þrjár eru að stíga þar sín fyrstu spor og nefnast, frá vinstri, Kelly Packard, Marliece Andrada og Angelica Bridges.

x

Dagur - Tíminn Akureyri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Akureyri
https://timarit.is/publication/252

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.