Dagur - Tíminn Akureyri - 28.06.1997, Qupperneq 15
Uagur-'ðlímmn
Laugardagur 28. júní 1997 - 27
Gallabuxumar
- alltaf bestar!
í stuttermabol og Ber-
múdabuxum og ekkert
kalt í sumarsólinni á
„Mér finnst
það hræðilegt
ef ég á ekki
skó sem passa
við það sem
ég ætla að fara
í,“ segir Por-
gerður.
Þorgerður Þórðardóttir, fegurðar-
drottning Austurlands, er krabbi
og mikil fatafrík. Hún kaupir sér
alltaf eitthvað nýtt í hverjum
mánuði.
Véistu - ég er krabbi og ég þarf að kaupa mér
þrjú pör af skóm á mánuði. Það er sagt um
krabba að þeir séu skósjúklingar. Ég er algjör
skófrík og þarf að eiga skó við nánast hverja flík
sem ég á. Mér finnst það hræðilegt ef ég á ekki
skó sem passa við það sem ég ætla að fara í en
skór eru dýrir og ég reyni að kaupa skó sem ég
get notað mikið,“ segir Þorgerður Þórðardóttir,
21 árs Vopnfirðingur.
Þorgerður er dóttir Kristínar Steingríms-
dóttur og Þórðar Helgasonar verktaka. Hún
vinnur í tískuversluninni Centrum í Kringi-
unni og tekur kvöldvaktir við og við á veit-
ingastaðnum Mirabelle. Hún var kjörin feg-
urðardrottning Austurfands í vetur og lenti í
flmmta sæti Fegurðarsamkeppni Isiands
auk þess sem hún var ljósmyndafyrirsæta
keppninnar.
Vandað og töff
Þorgerður er algjör fatafrík, á mikið af fötum,
skóm og töskum, og kaupir sér alltaf eitthvað nýtt í
hverjum mánuði. Hún spáir heilmikið í tískuna og
finnst fatnaður skipta nokkru máli enda gerðar kröfur
til þess að hún líti vel út í vinnunni. Hún segist velja
„klassísk, vönduð og töff föt“ og klæðist gjarnan
einhverju þægilegu og stflhreinu. Hún veltir fata-
merkjum talsvert fyrir sér án þess þó að eltast
við einhver ákveðin merki. Hún verslar mikið í
Centrum „sem er ekkert skrítið en ég gerði
það líka áður en ég byrjaði að vinna hér,“
segir hún.
Þorgerður er mikið fyrir kjóla enda á hún
marga og þá helst opna kjóla. „Ég vinn hér
allan daginn og þarf að vera vel til höfð. Við
stelpurnar sem vinnum
hérna förum mikið saman
út á kvöldin og þá er um
að gera að drífa sig í sæta
kjóla,“ segir hún. Litirnir
eru dökkir, grænn, brúnn,
dökkblár og svartur, sér-
staklega yflr veturinn, og
svo kryddar hún með
ljósu. Grænn og
brúnn eru í sér-
stöku uppáhaldi.
Hún segir að
flauel sé mikið í
tísku og verði
það áfram.
í síðum
eða stutt-
um kjól
\ „Gallabuxurnar
eru samt alltaf best-
ar - gallabuxur og
bolur. Maður er allt-
af kominn í það þeg-
ar maður er kominn
heim á kvöldin. En
þegar ég fer út að
skemmta mér finnst
mér alltaf mjög gaman
að fara í fínum og sætum
kjól, síðum eða stuttum.
Ég fer lflca alltaf vel til höfð
í vinnuna og þá finnst manni
ágætt að koma heim og fara í
gallabuxur," segir hún. -GHS
Þorgerður Þórðardóttir, fegurðardrottning Austurlands, hefur gaman af að
klæða sig upp í kjól, sérstaklega þegar hún fer út á kvöldin. Hún er mikið
fyrir skó og töskur. Myndir: Hilmar Þór
Þorgerður er mikið fyrir dökka liti, sérstaklega brúnt og grænt. Flauel er í
tísku núna og brúni flauelsjakkinn því mikið notaður.
Ti"r"ri:,v