Dagur - Tíminn Reykjavík - 04.01.1997, Blaðsíða 1
\
Ólafsfjörður
Fjórðimgur
atvinnulaus
Það setur mark sitt á bæj-
arlífið í liðlega 1.000
manna bæjarfélagi þegar
nær 70 manns verða atvinnu-
laus sama daginn. Reikna má
með að það sé nærri ijórði hver
vinnufær maður í byggðarlag-
inu, sem hlýtur að vera reiðar-
slag fyrir atvinnulífið. Þessi
staða birtist Ólafsfirðingum í
sinni bláköldu staðreynd um
áramótin þegar starfsfólk Hrað-
frystihúss Ólafsfjarðar hf. fór á
atvinnuleysisskrá þar sem
rekstrinum hefur verið hætt,
a.m.k. tímabundið. Þetta er
mesta atvinnuleysi sem dunið
hefur yfir Ólafsfirðinga allt síð-
an Hraðfrystihús Magnúsar
Gamalíessonar hf. hætti starf-
semi og sameinaðist Hraðfrysti-
húsi Ólafsflarðar hf. Þá var
mikið atvinnuleysi í sex mánuði
en síðan birti yfir að nýju og
bjarsýnin tók völdin í Ólafsfirði,
en ekki nú. Þegar Ólafsfjarðar-
bær selur Sæbergi hf. sinn hlut
í Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar
hvarf áhrifamáttur bæjarfélags-
ins á reksturinn og jafnframt
virðast nýir eigendur ekki hafa
lagt neitt nýtt fé til hans. GG
Jólin boða birtu og hamingju. Sú gleði ríkti ekki í hugum margra Ólafsfirðinga um þessi áramót vegna atvinnuleysisvofunnar. Dapur svipur Sigríðar Rut-
ar Pálsdóttur, formanns Ólafsfjarðardeildar Verkalýðsfélagsins Einingar, er þó dæmigerður fyrir það ástand sem ríkir í atvinnumálum Ólafsfirðinga í upp
hafi ársins 1997. Sjá nánari umfjöllun á bls. 6 Mynd;G
Matvöruverslun
Bylgja verðlækkana
á landsbyggðinni
Aukin samkeppni í mat-
vöruverslun samhhða
stofnun innkaupa- og
dreifingarfyrirtækja og tækni-
framfara hefur m.a. leitt til þess
að verðmismunur í stórum mat-
vöruverslunum í helstu þéttbýl-
isstöðum landsins hefur minnk-
að á undanförnum misserum.
Hinsvegar hefur þessi býlgja
verðlækkana í vöruverði ekki
enn náð til Vestfjarða og jaðar-
byggða í öðrum landshlutum.
Þessi þróun hófst fyrst á höf-
uðborgarsvæðinu og síðan í ná-
grannabyggðum þess og síðar á
Norðurlandi í framhaldi af til-
komu svonefndra lágverðsversl-
ana og stórmarkaða. Á síðasta
ári varð síðan vart við
verðlækkanir á Austurlandi auk
þess sem miklar verðlækkanir
hafa orðið í nágrannabyggðum
Akureyrar á síð-
asta ári, þ.e. á
Húsavík og Sauð-
árkróki svo nokkuð
sé nefnt.
Þetta kemur
m.a. fram í saman-
tekt sem Guð-
mundur Gylfi Guð-
mundsson hag-
fræðingur ASÍ
vann í tengslum
við starf nefndar
sem forsætisráðherra skipaði til
að kanna vöruverð á lands-
byggðinni. Auk þess var nefnd-
inni falið að gera tillögur um
leiðir til að lækka framfærslu-
kostnað heimilanna. En auk
matvöruverðs er hlutur raf-
magnsverðs og húshitunar-
kostnaðar meðal þeirra þátta
sem vega einna þyngst í fram-
færslukostnaði heimila. Skýrsla
nefndarinnar verður kynnt n.k.
mánudag, 6. janúar.
„Vöruverð á þéttbýlisstöðum
úti á landi hefur lækkað um
nokkur prósent, eða allt að 5%
en þó mismunandi eftir versl-
unum. Þetta hefur verið að ger-
ast á síðustu einum til tveimur
árum og á eftir að þróast frek-
ar,“ segir Guðmundur Gylfi.
Hann telur að brýnt að halda
áfram gerð verðkannana sem á
síðustu árum hafa aðallega ver-
ið í höndum verkalýðsfélaga og
Neytendasamtakanna. Aftur á
móti hefur minna farið fyrir
verðkönnunum af hálfu hins
opinbera eftir að Samkeppnis-
stofnun leysti Verðstofmm af
hólmi. -grh
Fjölmiðlar
Hræringar á
blaðamarkaði
Víkurblaðið á Húsavík og
Dagur-Tíminn hafa átt í við-
ræðum um samstarf og þá hafa
farið fram umræður um framtíð
Alþýðublaðsins og Vikublaðsins.
Víkurblaðið var auglýst til
sölu fyrir skömmu og óskaði
Dagur-Tíminn eftir viðræðum
um samstarf. Miklar líkur eru á
að það heíjist innan tíðar.
Þá hafa farið fram viðræður
forráðamanna Dags-Tímans og
Alþýðublaðsins. Alþýðublaðið
stríðir við rekstrarerfiðleika.
Ákvörðun um framtíð þess Ugg-
ur fyrir síðar í þessum mánuði.
Vegna þessarra hræringa og
endurskoðunar sem staðið hef-
ur fyrir dyrum á rekstri Viku-
blaðsins hefur verið velt upp
óformlega hvort það kynni að
eiga samleið með þeim blöðum
sem hugsanlega ganga til sam-
starfs við Dag-Tímann. Þær
hugmyndir eru ómótaðar.
Sjá leiðara Dags-Tímans
bls. 8.
Guðmundur Gylfi Guðmundsson
hagfræðingur ASÍ
Vöruverð á þéttbýl-
mf ■ ) \. 1 isstöðum úti á landi
v t hefur lœkkað um þó
nokkur prósent, eða
C allt að 5%.
m. m _a_ IW
Bls. 5
Kosninga-
skuldir enn
áhyggjuefni
íslendingaþættir
fylgja
blaðinu
í dag
VELDU
BIUM
OGVjS
IANARÞER
Með Bílaláni VÍS
getur þú keypt nýjan
eða notaðan bh á
staðgreiðsluverði