Dagur - Tíminn Reykjavík - 04.01.1997, Qupperneq 2
2 - Laugardagur 4. janúar 1997
íDagur-©tnmn
Heiti Potturinn
Onefndur pottormur fór
með eftirfarandi vísur
í gær í tilefni þess að bisk-
up bað presta fyrir jólin að
biðja fyrir fátækum. For-
sætisráðherra kannast hins
vegar ekki við neina fátækt,
sbr. áramótaávarpið.
Nú sultarólin samanhert
særir kirkjugestinn,
mun það vera mest um vert
ef messan friðar prestinn.
Auðvitaó er ekkert svar
inn íkirkju að ganga,
það borðar ekki bænirnar
blessað fólkið svanga.
IÓIafsfirði heyrðist fleygt í
gær að Fiskverkun Sæ-
unnar Axels velti nú upp
þeim möguleika að taka
Hraðfrystihús Ólafsfjarðar á
leigu sem hefur verið lokað
vegna rekstarörðugleika
eins og kunnugt er. Til-
gangurinn mun vera að
verka bolfisk í salt og
þurrka m.a. á Brasilíumark-
að.
Töluvert annríki var í
gær í bókabúðum og
þá aðallega vegna skila
fólks og skipta á jólabók-
unum. Án þess að heimild-
armenn heita þottsins séu
öruggir í þessu efni mun
töluvert mikið hafa komið
inn af bók Benjamíns H. Ei-
ríkssonar sem Hannes
Hólmsteinn ritaði.
F R E T T I R
Geislaplötur
Emilíana á toppnum
Merman seldist í 12
þúsund eintökum.
Strumpar, Pottþétt
jól, Bubbi og Páll
Óskar á topp fimm.
Emilíana Torrini er tví-
mælalaust skærasta
stjarnan í íslenska popp-
heiminum ef marka má sölutöl-
ur, en geislaplata hennar, Mer-
man, seldist alls í 12 þúsund
eintökum á nýliðnu ári. Álíka
sala hefur ekki sést síðan árið
1993 en þá seldust um 14 þús-
und eintök af plötu Bubba, Líflð
er ljúft.
I öðru sæti var Strumpaplat-
an sem seldist í 10 þúsund ein-
tökum og í þriðja sæti var safn-
platan Pottþétt jól í 9500 ein-
tökum. í íjórða sæti er svo
Bubbi Morthens, en platan
hans Allar áttir seldist í 8 þús-
und eintökum. Páll Óskar er
síðan í ílmmta sæti með plötu
sína Seif sem fór í um 7 þúsund
eintökum.
Þessar sölutölur eru þó háð-
ar þeim fyrirvara að skilatími á
geislaplötum stendur enn yfir í
plötubúðum landsins. Endan-
Sölutölur segja Emilíönu Torrini skærustu stjörnuna á plötumarkaði.
legt uppgjör verður birt í næsta
mánuði þegar íslensku tónlist-
arverðlaunin verða afhent.
Þeir Aðalsteinn Magnússon
kynningarstjóri Skffunnar og
Jónatan Garðarsson hjá Spor
hf. eru ánægðir með heildarsöl-
una á síðastliðnu ári og telja að
um verulega aukningu sé að
ræða frá fyrra ári. Það helgast
aðallega af hagstæðu verðlagi á
geislaplötum sem hefur lítið
Mynd: GS
breyst á undanförnum árum.
En á fyrstu þremur ársijórð-
ungum 1996 jókst heildarplötu-
salan um 12,5% í verðmætum
að undanskildri aðalvertíðinni
sem alla jafna fer fram á síð-
asta ársfjórðungi hvers árs.
Samkvæmt því er ekki óvarlegt
að áætla að aukningin geti
numið allt að 20% ef ekki meir
þegar árið verður gert upp.
-grh
Akureyri
Dýr áramótaskemmtun
Við látum þetta ekki af-
skiptalaust, enda fara ár-
lega miklir peningar í
skemmdir á jólaskreytingum.
Sem dæmi má nefna að fyrir ári
voru 730 perur eyðilagðar og
hver pera kostar um 90 kr,“
segir Eiríkur Bóasson, verk-
stjóri hjá umhverfisdeild Akur-
eyrarbæjar. Bærinn hyggst
höfða bótakröfu á hendur
manninum sem olli töluverðum
skemmdum með því að klifra
upp í jólatréð á Ráðhústorgi á
nýársnótt og einnig verður
hann látinn greiða fyrir kostnað
slökkviliðs og rafveitu. Hann
hefur lýst sig fúsan til að greiða
fyrir tjónið en heildaríjárhæö
gæti numið mörgum tugum
þúsunda og jafnvel iilaupið á
annað hundrað þúsund.
Maðurinn sem fór upp í tréð
á nýársnótt var 23ja ára gam-
all. í hitteðfyrra var einnig farið
upp í jólatréð og segir Eiríkur
alvarlegt að fullorðið fólk standi
í þessari skemmdarstarfsemi.
Baldur Dýrfjörð bæjarlögmaður
upplýsti að ekki væri búið að
ganga frá bótakröfunni en það
yrði von bráðar. BÞ
Samningar
Erfitt um vik
fyrir sjómenn
Svo kann að fara að það verði
erfitt fyrir vélstjóra og aðra
sjómenn að gera samninga við
einstök útgerðarfyrirtæki, svo-
nefnda fyrirtækjasamninga eða
vinnustaðasamninga. Það helg-
ast m.a. af því að í lögum LÍÚ er
félögum útvegsmanna og ein-
staka útgerðarmanni óheimilt
að gera kjarasamninga við sam-
tök sjómanna eða við einstakar
skipsáhafnir nema með samráði
og samþykki stjórnar LÍÚ.
„Svo eru menn að gera lítið
úr verkalýðshreyfingunni sem
vill vera með í gerð kjarasamn-
inga við einstök fyrirtæki. Með-
al annars hefur framkvæmda-
stjóri VSÍ haft um það mörg orð
og stór,“ segir Helgi Laxdal for-
maður Vélstjórafélags íslands.
Hann segir að áðurnefnd
ákvæði í lögum LÍÚ séu einkar
athyglisverð og þá sérstaklega
vegna þess að þar er að finna
stærstu atvinnufyrirtæki í sjáv-
arútvegi. -grh
Náttúruvernd
Aðalheiður
forstjóri
Umhverfísráðherra hefur
skipað Aðalheiði Jóhanns-
dóttur lögfræðing forstjóra
Náttúruverndar ríkisins til
næstu fimm ára. Aðalheiður
gegndi áður starfi fram-
kvæmdastjóra Náttúruverndar-
ráðs. Kristján Geirsson mun
hins vegar gegna stöðu for-
stjóra til 11. maf n.k. í orlofi
Aðalheiðar.
Náttúruvernd ríkisins tók til
starfa um áramótin á grund-
velli nýrra laga um náttúru-
vernd sem samþykkt voru á Al-
þingi sl. vor. Samkvæmt þeim
tekur Náttúruverndin við flest-
um verkefnum Náttúruverndar-
ráðs og daglegum rekstri. -grh
VEÐUR O G FÆRÐ
Reykjavík
Akureyri
,1-^
Mán
Þri
Mið
g Sm? Mán
SSA2 SSV4 SSV5 SSV4 NA 3
S 3 SSV5 SSV 5 VSV4
Þri
Mið mm
VSV3 SSV3 SV4 SSV4 NNA3
SV3 SSV4 SV4 SV3
Stykkishólmur
Egilsstaðir
■v
0
-5-
Sun
Mán
Þri
Mið mm
---- -15
S3 SSV4 SSV6 SSV5 NA4
S 3 SSV5 SSV5 VNV3
VNV 3 VSV2 SV3
VNV2 VSV3 SV 5
JBML 0
SV3 N3
Bolungarvík
Kirkjubæjarklaustur
10. Sun
Mán
Þri
Mið
Þri
— — -15 5- -10 0- ■
■B Bra\ -5 -5- - 0 -10- mM fiw'
SV3 SSV4 SV5 SV4 NA3
SSV2 SSV4 SSV4 NNA3
NV2 VSV2 SV3 SSV3 NV 2
NNV3 SV4 SV4 SV4
Blönduós
Stórhöfði
Sun
Mán
Þrí
Mið mm
— .—- l«:
iíSun
5-
0
Mán
Þri
SV2 SSV3 SV4 SSV4 NA3
SSV3 SSV4 SSV4 NV 2
Mlð mm
-10
- 5
0
NNV2 SSV4 SV6 SSV6 N4
S 3 SV6 SSV7 SV7
Björn S.
Einarsson
veðurfrœðingur
Áfram rólegt veður.
Dálítil súld á vestanverðu
landinu. Frostlaust um
allt land nema á Suð-
austurlandi. Þar verður
léttskýjað og vægt frost
og eflaust gott að skoða
ummerki hlaupsins.
Línuritin sýna íjögurra
daga veðurhorfur á
hverjum stað. Línan sýnir
hitastig, súluritið 12 tíma
úrkomu en vindáttir og
vindstig eru tilgreind
fyrir neðan.
Færð á vegum
Allir helstu þjóðvegir landsins eru færir en víða
er hálka.