Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.01.1997, Blaðsíða 14

Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.01.1997, Blaðsíða 14
26 - Laugardagur 25. janúar 1997 ^EUtgur-SIínttrat Diskódrottning Einhver á leiðinni til Bret- lands? Þá er eins gott að útvega sér einn svona áð- ur en dansgólfin eru könnuð. Samkvæmt bresku tískublaði eru þröngir, stuttir kjólar úr glansandi efni það alheitasta á næturklúbbunum um þessar mundir. Þú getur því verið viss um að vekja athygli ef þú klæð- ir þig eitthvað í líkingu við döm- una á myndinni hér til hliðar. Svona kjóll hentar þó sennilega illa hér á Fróni, a.m.k. yfir vetr- armánuðina! Best og verst Myndir: JHF Tískufrömuður eyða yfirleitt heilmiklum tíma í að velta sér upp úr klæðaburði frægra leikkvenna. Um áramót er t.d. hefð fyrir því að líta yfir árið og benda á hverjar voru smekklegar og hverjar ekki. Við skulum skoða aðeins hvað tískublaðið Vouge segir um stílinn hjá stjörnunum á síðasta ári. Hárgreiðsla Óskarsverðalaunin Haldi einhverjir að ástæða þess að allir bíði spenntir eft- ir Óskarsverðlaunaafhend- ingunni sé sú að þeir vilji vita hvaða mynd verði valin best, hafa þeir hinir sömu rangt fyrir sér. Stóra spurningin er: Hver verður í hvaða kjól? í ár voru það stöllurnar Elisabeth Shue og Winona Ryder sem slógu í gegn í einföldum, en smekklegum kjólum. Susan Sarandon þótti hins- vegar ekki neitt sérstök í risastóra gullkjólnum sínum. Er hárið eins og það á að vera? Aðalhártísk- an var að setja hárið upp en greinilegt að misvel tókst til. Hér eru tvö dæmi, annað vel heppnað en hitt alveg ómögulegt, segja tísku- spekúlantar. Gwyneth Paltrow er rómantxsk og glæsileg með sína greiðlu en Rene Russo, sem er bara með helming hársins upp- settan, lítur út eins og reytt hæna. Stutta hár- ið var líka í tísku, en það var eins með það og uppsetta hárið, sumum fór það vel en öðrum ekki. Amanda de Cadenet vakti t.d. mikla lukku en sömu sögu er ekki að segja af Demi Moore. Svona lítur tækið út. Of þurrt, of matt, of feitt. Fallegt hár fæst ekki áreynslulaust. Rétt eins og húðin okkar, þarfnast hár- ið líka næringar og umhirðu. En þó vilj- inn sé fyrir hendi vitum við ekki alltaf hvað er að eða hvað á að gera. Konur eða karlar, sem í þessum vandræðum standa, verða því eflaust glöð að heyra að til er lausn: hárgreiningartæki. Tæki sem segir til um ástand hársins og mælir með leiðum til úrbóta. Og greiningin er ókeypis! „Oft notum við tækið til að staðfesta mat,“ segir Aldís Axelsdóttir starfsmað- ur Redkenumboðsins, en það er sama fyrirtæki og framleiðir Redken hárvörur sem þróaði þetta hárgreiningartæki. En hvernig skyldi hárgreining í tækinu fara fram? Aldís segir að tekin séu 4-6 hár af mismunandi svæðum. Tækið mælir um- mál hársins, rakainnihald og prótein- hlutfall. Út frá niðurstöðum gefi tækið síðan upplýsingar um hverskonar efni (sjampó, næring og djúpnæring) væri æskilegt að nota til að bæta heilbrigði hársins. Einnig hvort hárið þoli t.d. að í það sé sett permanett. „Þetta er alveg frábært hjálpartæki fyrir okkur,“ segir Aldís en 3-4 ár eru síðan farið var að nota þetta tæki. Næring nauð- synleg Aldís segir að almennt sé ástand hárs á ís- lenskum hausum nokk- uð gott. Gott geti þó alltaf orðið betra og nauðsynlegt sé að næra hárið þar sem litun, permanett, sól og vind- ar ræni hárið næringu. „Við verðum að gefa því eitthvað á móti því sem við tökum,“ segir hún. „Fólk er að verða með- vitaðra um þetta nú en áður,“ bætir hún við og nefnir að oft kveiki við- skiptavinir t.d. þegar hún bendir á að hárið þurfi að næra rétt eins og húðina. En það er ekki nóg að setja næringu í hár- ið, heldur þarf næringin að vera rétt saman sett. Og þar kemur hárgrein- ingartækið til góða. Næringar eru misjafnlega uppbyggðar og Redken framleiðir t.d. 7-8 mismun- andi tegundir djúpnæringar. Sumar fyrir þá sem þurfa að byggja upp prótein, aðrar ef vandamálið er of mikill eða lítill raki og áfram mætti telja. Aldís Axelsdóttir, frá Redkenumboðinu, plokkar hár úr höfði Huldu Hafsteinsdóttur til að setja í hárgreiningartækið. Reykjavík, Hveragerði, Akureyri... Sex stofur á landinu hafa íjárfest í hár- greiningartæki frá Redkin. Fjórar þeirra eru í Reykjavík, ein í Hveragerði og ein á Akureyri. í Reykjavík eru það stofurnar: Jói og félagar á Rauðarárstíg, Prima- donna og Salon Ver (2 stofur). Á lands- byggðinni eru það stofurnar Ópus í Hveragerði og Medúlla á Akureyri. AI Námskeið í myndlist og skapandi yogadansi Hagnýt litafræði og litameðferð, sem nýtist vel í daglegu lífi, einnig er áhersla lögð á að nemendur læri um tjáningarmögluleika litanna. Námskeiðið varir 3 kennslustundir í senn í 10 skipti. Efniskostnaður er innifalinn. Námskeiðið er haldið á þriðjudagskvöldum kl. 18.30 - 20.40. Verð 9.000 sé allt námskeíðið greitt samtímis í byrjun, annars 10.800 ef greitt er mánaðarlega. Yogadansnámskeiðið stendur í 8 vikur og er á mánu- dögum kl. 17.00 - 18.00. Verð 2.400. Leiðbeinandi: Pálína Guðmundsdóttir listmálari. Upp- lýsingar og skráning í síma 462 4481.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.