Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.01.1997, Blaðsíða 18

Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.01.1997, Blaðsíða 18
 30 - Laugardagur 25. janúar 1997 Guðfríður Lilja Grétarsdóttir skrifar um skák títítttft íTFí - ,-n>. |Dagur-'ð!«ntrat S IC Á K Bréfskákin lifír s msir hafa haldið því fram að með síaukinni fjar- skiptatækni, ekki síst tölvupósti, muni bréfskák senn líða undir lok. Spurt er: Hvers vegna ætti fólk að bíða í marga daga eftir einstaka leikjum sem koma og fara með hægfara, gamaldags póstburðarmanni þegar hægt er að tefla á „Alnet- inu“? Er ekki betra að fá leikina um leið í gegnum tölvu? Og hvað með allan sparnaðinn í frfmerkjakaupum?! Sem betur fer virðist bréf- skák þó enn lifa góðu lífí, þótt ef til vill sé hún við betri heilsu á meðal eldri kynslóðarinnar en þeirrar yngri. Víst er að ef bréf- skák legðist af myndi „skák- menning" heimsins verða fá- tækari fyrir vikið. Er ekki ein- mitt svo ágætt að hafa nægan tíma til að hugsa um hvern leik án þess að taugatitringur og fljótfærni flækist fyrir? Er ekki einmitt svo notalegt að senda næsta leik með póstinum upp á gamia mátann, og vita að nú fær maöur dálitla hvíld frá erf- iðum útreikningum, eða jafnvel hugljómun eftir góðan svefn í miðri skák?! Hvað svo sem segja má um gildi bréfskákarinnar virðast þeir sem hafa lýst yfir yfirvof- andi dauðsfalli hennar hafa rangt fyrir sér, að minnsta kosti enn sem komið er. Alþjóðabréfskáksambandið, ICCF, ætlar sér í öllu falli ekki að leggja upp laupana á næst- unni. í stað þess hefur það blás- ið til sóknar og byrjað að nýta sér tæknina í eigin þágu. Fyrir tveimur árum afréð sambandið að halda sitt fyrsta alþjóðlega „fax-“ eða „brefsímaskákmót". Þrjátíu úrvals bréfskákmönnum var boðið að taka þátt í mótinu og var þeim öllum fengið fax- tæki að gjöf frá mótshaldara. Þann 15. september 1994 lék Mostert, forseti ICCF, fyrsta leiknum í keppninni, og ekki alls fyrir löngu, heilum tveimur árum síðar, er henni loks lokið. Keppt var samkvæmt alþjóðleg- um reglum ICCF með fáeinum undantekningum. Umhugsunartími var lengdur úr 3 dögum fyrir hvern leik upp í 5 daga, enda ekki vanþörf á þar sem hver keppandi tefldi margar skákir í einu og svar- leikir bárust með meiri hraða en vanalega. Eins og allir vita sem nokkuð hafa með hin ágætu faxtæki að gera, er aldrei fyrir þeim flóar- friður. Keppendur þurftu því að venjast „símbréfum" sem bár- ust á öllum tímum sólarhrings. „Faxtækið mitt var á sömu línu og síminn svo að í hvert skipti sem mér barst leikur hringdi síminn hjá mér,“ segir enski bréfskákmeistarinn Michael Prizant, í viðtali við þýska tíma- ritið „Skák“ um reynslu sína af mótinu. „Evrópsku andstæðing- ar mínir virtu enskan nætur- frið, en skákfélagar mínir í Hong Kong og Argentínu héldu stöðugt fyrir mér vöku! Að nóttu til þegar ég vaknaði við hringingarnar réði ég hreinlega ekki við mig og fór á fætur til að skoða svarleikinn. Oft sat ég langt fram undir morgun við skákborðið út af þessu...“ Priz- ant var ekki einn um slíkt næt- urbrölt að sögn „Skákar“. Nokkrir keppendur sögðust hafa setið sem fastast við nýju faxtækin sín þau kvöld sem um- hugsunartími andstæðingsins var að renna út, og beðið óþreyjufullir eftir hringingu sem boðaði svarleik! Úrslit í mótinu urðu þau að í A-riðli sigraði Finninn T. Kokk- ila með 11,5 vinninga af 14 mögulegum. næstur varð Ilol- lendingurinn R. Maliangkay með 11 vinninga og þriðji varð hinn enski M. Prizant með 9,5 vinninga. í B-riðli urðu þeir jafnir og efstir Þjóðverjinn K. Engel og Belginn J. Boey með 9,5 vinninga af 14, og í 3.-6. sæti með 9 vinninga urðu þeir H. Nielsen, Danmörku, W. Haufe, Þýskalandi, og M. Rufenacht, Sviss. Við skulum líta á eina skák úr þessu nýstárlega og vel heppnaða móti, og öðru hvoru vitna Jauslega í skákskýringar Prizant, en hann er fyrsti skák- maðurinn sem nær sér í stór- meistaraáfanga í bréfskák í gegnum fax: Hvítt: M. Prizant, Englandi Svart: II. Rittner, Þýskalandi Frönsk vörn I. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 Re7 5. Bd2 c5 6. dxc5 Rbc6 7. Dg4 0-0 8. 0-0-0 f5 9. exf6 Hxf6 10. Bd3 Bxc3 11. Bxc3 e5 12. De2 Dc7 13. Bb5 Be6 14. Rf3 d4 15. Bd2 h6 16. Bc4 Dd7 17. Hhel e4 18. c3! Kh8 Hvítur er peði yfir og hefur auk þess grafið undan miðborðs- peðum svarts. Nú er erfitt fyrir svartan að byggja upp mótspil. 19. Bxe6 Hxe6 20. Dc4? Skjótt skipast veður í lofti! Með þessum afleik á hvítur á hættu að missa frumkvæðið. Betra hefði verið 20. Rxd4 Rxd4 21. cxd4 Dxd4 og annaðhvort 22. Be3 til að tryggja peðið sem hann hefur yfir, eða 22. Bc3 Dc5 23. Dg4. 20.. .Rd5 21. Rxd4 Re5! Svartur hefur komið auga á leiðina til mótspils. 22. Dn Rd3+ 23. Kbl Hee8? Rétti leikurinn er 23...Hf6 þar sem hrókurinn leikur virkt hlut- verk á 6. reitaröðinni og getur léttilega vippað sér yfir á a-lín- una þegar þannig stendur á. 24. He2 Rxc5 25. Be3 Had8 26. f3 Da4 27. Bcl e3 28. Rc2! Hd6 29. Del Da6 30. Rxe3 Rf4 31. Hxd6 Dxd6 32. Hc2 Rfd3 33. Ddl De5 34. Rg4 Del 35. Rf2! Ef hvítur fer strax í drottning- arkaup gefur hann svörtum of mikið mólspil. Með þessum sterka leik tryggir hann sér töglin og hagldirnar. 35.. .Rxf2 36. Dxel Ilxel 37. Hxf2 Rd3 38. Hc2 Ilhl 39. c4! Rxcl 40. Ilxcl IIxh2 41. Hgl Kg8 42. Kc2 KÍ7 43. Kd3 Ke6 44. b4 b6 45. a4 Kd6 46. f4! a5 47. c5+ bxc5 48. bxa5 Kc6 49. a6 Kb6 50. Kc4 Kxa6 51. Kxc5 Hh4 52. g4 h5 53. gxh5! Hxh5+ 54. Hg5 Hh4 55. f5 He4 56. Kd6 og svartur gaf, 1-0. Jón Baldursson Reykjavíkurmeistari í 12. skipti gpf' Björn |||r~' I Þorláksson Jón Baldursson og félagar í Landsbréfum urðu um síð- ustu helgi Reykjavíkur- meistarar í sveitakeppni þegar sveitin sigraði sveit Júlla örugg- lega, 111- 173. Síðasta lotan var einstefna Landsbréfa en fram að því hafði leikurinn ver- ið í jafnvægi, Landsbréfamenn þó ávallt yfir. Þetta er í 12. sinn sem Jón vinnur þennan titil og geri aðrir betur. Með honum spiluðu: Sævar Þorbjörnsson, Sverrir Ármannsson, Björn Ey- steinsson og Ragnar Hermanns- son. f undanúrslitum sigraði sveit Júlla Hjólbarðahöllina og Landsbréf sigraði VÍB sem um- sjónarmaður hafði spáð sigri. VÍB varð í þriðja sæti. Ragnar T. Jónasson, Neon og Héðinn Schindler komust áfram í undankeppni fslandsmótsins í sérstöku millispili sem fór fram um helgina. BR spilar tvisvar í viku Sú breyting verður á starfsemi Bridgefélags Reykjavíkur í vet- ur að spilamennska verður tvisvar í viku, bæði þriðjudaga og miðvikudaga. Á þriðjudögum verður boðið upp á eins kvölds tvímenninga, ýmist Monrad eða Mitchell, og verða alltaf forgefin spil og tölvuútreikningur. Keppnisstjóri verður Sveinn Rúnar Eiríksson. Sú nýbreytni verður tekin upp að spilarar undir tvítugu spila alltaf frítt á þriðjudögum og er það gert til að örva þátt- töku ungs fólks í keppnisbridge. Einnig geta spilapör lagt 500 kr. á parið í púkk og rennur féð til verðlauna 3ja efstu paranna það spilakvöld. Tilskilið er að hafa lagt í púkkið til að hljóta vinning. Á miðvikudögum verða hald- in þrjú lengri mót. Það fyrsta hófst sl. miðvikudag og stendur til miðvikudagsins 26. febrúar. Um ræðir aðalsveitakeppni fé- lagsins, 6 kvöld. Miðvikudagana 5., 12.,' og 19. mars verður Butler-tvímenningur. Til verð- launa telja tvö hæstu skor af þremur. Loks lýkur keppnis- tímabilinu með 6-kvölda aðal- tvímenningi frá 9. apríl til ver- tíðarloka, 14. maí. Stjórn BR vill benda félögum á að dagana 17.-22. mars verð- ur Evrópumótið í tvímenningi haldið í Haag, Hollandi. Þetta er firnasterkt og áhugavert mót og er þátttaka í því kjörin til að afla sér reynslu í alþjóðabridgelíf- inu. Þátttöku skal tilkynna til Bridgesam- bandsins og geta skuldlausir BR- félagar sótt um fjárstyrk. Jón Baldursson dregur löngum að sér áhorfendur við spilaborðið og stundum ekki ómerk- ari menn en forætisráðherra, Davíð Oddsson. Fjórir þekktir akureyrskir spilarar eru einnig á myndinni. Mynd: BÞ Svæðamót Nl. eystra Svæðamót Norð- urlands eystra, úrtökumótið fyr- ir undanúrslit ís- landsmótsins í sveitakeppni, verður haldið á Húsavík 1. og 2. febrúar nk. Fimm efstu sveitir vinna sér rétt til þátttöku. Spilað verður á Hótel Húsavík og hefst mótið kl. 10.00 á laug- ardag. Þátttökugjald er kr. 10.000 á sveit. Þátttökutilkynn- ingar berist Sveini Aðalgeirs- syni hs. 464-2026, vs. 464-1510 eða Stefáni Vilhjálmssyni hs. 462-2468, vs. 463-0363. Skrán- ingu lýkur kl. 19.00 nk. fimmtu- dag, 30. jan. Sveinn og Stefán veita nánari upplýsingar. Anton leiðir Að loknum tveimur kvöldum í Akureyrarmótinu í sveitakeppni er staða efstu sveita þannig: 1. Sv. Antons Haraldssonar 119 2. Sv. Stefáns G. Pálssonar 118 3. Sv. Sveins Pálssonar 100 4. Sv. Páls Pálssonar 95 5. Sv. Strýtu hf. 92 6. Sv. Stefáns Vilhjálmss. 85 Alls taka 10 sveitir þátt í mótinu. Spiluð er þriggja kvölda forkeppni, einföld um- ferð, 10 spila leikir. Fjórar efstu sveitirnar spila síðan þrjú kvöld á a-úrslitum (32-spila leikir) um verðlaunasæti en 5.-10. sveit spila jafnhliða í b-úrslitum (16 spila leikir). Það verður ef- laust mikill darraðardans næsta þriðjudagskvöld í baráttunni um a- sæti í úrslitunum.

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.