Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.01.1997, Blaðsíða 15
3Dagur-®tmtrat
Laugardagur 25. janúar 1997 - 27
ICONUNGLEGA SÍÐAN
Til hamingju með afmælið Karólína!
BÚBBA segir ykkur
nú í máli og myndum
frá Karólínu Mónakó-
prinsessu sem varð
ferlug í fyrradag.
Frændi minn kom að máli
við mig í íjölskylduboði
um daginn og kvartaði yf-
ir því að síðustu tvær greinar
mínar hefðu verið of fræðilegar,
hann hefði miklu frekar áhuga
á hinum léttvægari hliðum
kóngafólksins, einkamálum,
klæðaburði, framhjáhöldum og
öðru shku. - Ég verð víst að játa
að það hafa ekki allir jafn djúp-
stæðan og alvarlegan áhuga á
kóngafólki og ég (því miður!).
En nú ætla ég að gleðja þennan
frænda minn svo um munar og
segja honum frá hinni stór-
glæsilegu Karólínu af Mónakó. -
Að mínu mati er hún glæsileg-
asta prinsessa Evrópu. - Og ég
verð bara að segja það eins og
það er, (þótt ég beri hlýhug til
kóngafólks í Svíþjóð og Noregi),
að þær Viktoría hin sænska og
Marta Lúísa hin norska eru
bara eins og þýskar skellur úr
Ölpunum við hliðina á henni
Karólínu, en þetta er kannski
ekki sanngjarnt af mér, þær
eiga jú eftir að eldast og þrosk-
ast. Svo flnnst mér hún Díana
prinsessa alls ekki hafa til að
bera þann meðfædda „elegans"
sem Karólína hefur. - En það er
nú önnur saga.
í fyrradag, þ.e. 23. janúar,
hélt Karólína upp á fertugsaf-
mæhð. Af því tilefni ætla ég að
stikla á stóru í lífi hennar, sem
hefur alls ekki verið neinn dans
á rósum. - Það er nefnUega eins
og maðurinn sagði; það fer ekki
alltaf saman gæfa og gjörvileiki.
Að morgni þess 23. janúar 1957, fæddist frumburður þeirra Grace og Rainers, fjórum dögum og
níu mánuðum eftir giftingu þeirra. Það mátti bara ekki tæpara standa.
1996. Árið var erfitt fyrir Karólínu. Upp komu sögusagnir um
ástarsamband hennar og Ernst prins af Hannover og vegna
sjúkdóms missti hún hárið. - En hún mætir þeirri raun með
reisn og er ófeimin við að koma fram opinberlega þrátt fyrir
hárleysið. Nú er hún fertug - með örlagríka ævi að baki og
óráðna framtíð.
1983. 29. desember giftist Karólína í annað sinn og í þetta skipti í trássi
við kaþólsku kirkjuna sem hafði neitað henni um að ógilda hjónabandið
með Junot. Seinni eiginmaður hennar var ítalinn Stefano Casiraghi sem
var þremur árum yngri en Karólína.
1960: Bara þriggja ára og strax búin
að ná tökum á hinu konunglega vinki.
Uprennandi efni í slúðurdálka, og
ekki að ósekju. Hvílík örlagasaga
beið þessarar litlu hnátu!
1990. Karólína missir eiginmann sinn í slysi. Stefano hafði gaman af því að ________
keppa í hraðbátasiglingum. Hann missti stjórn á bátnum sínum. Þetta var 1978. Fyrsta brúðkaup Karólínu hinn 29. júní. í trássi við vilja foreldra sinna giftist hún franska glaumgosanum
hræðileg kaldhæðni örlaganna: Stefano hafði ákveðið að þetta yrði sín Philippe Junot sem var 17 árum eldri. Þau skildu 2. október 1980. Tveimur árum eftir skilnaðinn lést hin dáða
síðasta keppni, fjölskyldunnar vegna. Kraólína dró sig í hlé. móðir hennar, Grace, og Karólína varð föður sínum stoð og stytta.