Dagur - Tíminn Reykjavík - 01.03.1997, Blaðsíða 2
14 - Laugardagur 1. mars 1997
jDagur-CEmttrat
9-i
Fyrir smáfólkið
Enn ein helgin er runnin upp. Hvað
með að drífa sig í leikhús? Nú eða þá
baka með börnunum og fá kannski að
launum eins og eitt stykki barnareið-
hjól og brauðvél!
Minnsta tröliið
Sögusvimtan verður með brúðuleiksýn-
inguna Minnsta tröll í heimi í Ævin-
týra-Kringlunni á 3. hæð Kringlunnar í
dag kl. 14.30. Sýningin segir frá trölla-
stelpu sem er svo k'tið tröllvaxin að
hún sést varla með berum augum og
lendir þess vegna í vandræðum og
m.a.s. h'fsháska. Sýningin tekur 30
mín. og kostar 500 kr. inn.
Snillingar í Snotraskógi
Möguleikhúsið við Hlemm frumsýnir
um helgina barnaleikritið Snillingar í
Snotraskógi eftir Björgvin E. Björgvins-
son. Aðalsöguhetjurnar eru skógar-
mýsla og íkornastrákur. Sú fyrrnefnda
er nýbúi en íkorninn er fæddur og upp-
alinn í skóginum. Saman lenda þau í
ýmsum ævintýrum. Fyrsta sýning er í
dagkl. 14.
Herman í Norræna
Það var árið 1961 þegar Zorro var að-
alhetjan í bíó að Herman hinn norski
var 11 ára og átti mömmu sem vann í
búð og pabba sem keyrði vörubíl. Svo
veikist Herman og missti hárið og lffið
snarbreyttist. Um þetta íjallar myndin
Herman (102 mín.) sem sýnd verður í
Norræna húsinu kl.14 á morgun. Allir
eru velkomnir og enginn þarf að borga.
Bakað með börnunum
Nú er rétti tíminn til að
baka með börnunum.
Reynið að finna í samein-
ingu einhverja sniðuga rétti í
barnaafmælið og sendið í
uppskriftarsamkeppni um eftirlæt-
isafmælisrétt barnanna. Hver veit
nema þið dettið í lukkupottinn. Sjá
nánari umijöllun á síðunni.
Skautar og skíði
Á Akureyri eru daður- og dekurdag-
arnir í algleymingi. Líf og fjör í íjallinu
og nógur er snjórinn. Opið milli 10 og
17 og sérstakur leikjagarður fyrir
börnin. Ef börnin vilja ekki á skíði eða
leika sér í snjónum þá er spurningin
um að drífa sig á skauta. Þar verður
opið milli 13 og 16.
Eiga börnin einhverjar uppáhaldsuppskriftir sem notaðar hafa verið í afmælum
ár eftir ár. Því ekki að taka þátt í uppskriftakeppni um eftirlætisafmælisrétt
barnanna?
Matreiðsluklúbbiu-inn „Nýir eftirlætis-
réttir“ stendur fyrir uppskriftasam-
keppni um eftirlætisafmælisrétti
barnanna. Nú er tækifærið fyrir foreldra
og börn að gefa hugmyndafluginu lausan
tauminn, búa saman til uppskrift eða
senda inn inn uppskrift að uppáhaldsrétt-
inum sem hefur verið ómissandi í afmælum barnanna
jafnvel ár eftir ár.
Eftirlætisafmælisdrykkurinn getur verið ís, pítsa,
heimagert sælgæti, heitur eða kaldur réttur, smábiti,
drykkur, kaka eða annað skemmtilegt sem borið er
fram í barnaafmælum. Eina skilyrðið er að uppskriftin
hafi ekki birst á prenti áður. Margir luma á góðum og
skemmtilegum réttum í barnaafmæli og nú er því til-
valið tækifæri að leyfa öðrum að njóta þeirra auk þess
sem vegleg verðlaxm eru í boði.
Hjól, brauðvél og Andrés önd
Það er til mikils að vinna, bæði fyrir börn og foreldra,
í þessari skemmtilegu samkeppni. Fyrstu verðlaun
eru glæsilegt 18 gíra Wheeler barnareiðhjól frá Fálk-
anum og Melissa brauðvél frá Fálkanum. Önnur verð-
laun eru bókapakki frá Vöku-Helgafelli og ársáskrift
að Andrésar andar blöðum með möppu. Þriðju til
fimmtu verðlaun eru áráskrif að Andrésar andar
blöðum með pöppu. Að auki verður veitt sérstök við-
urkenning fyrir frumlegasta réttinn sem berst í
keppnina.
í dómnefnd sitja Björg Sigurðardóttir, ritstjóri mat-
aruppskrifta Nýrra eftirlætisrétta, Valgerður Bene-
diktsdóttir klúbbfélagi, Thelma Bergmann Árnadóttir,
sem verður fulltrúi barnanna, Hjörtur Þór Grjetarsson
frá Fálkanum og Guðrún Gyða Árnadóttir, blaðamað-
ur.
Uppskriftir skal senda undir dulnefni og láta nafn
foreldris og barns fylgja með í lokuðu umslagi. Skila-
frestur rennur út 7. mars. Utanáskrifin er Eftirlætis-
afmælisréttur barnanna, Vaka-Helgafell, Síðumúla
6,108 Reykjavík.
Kolfínna á Dillidögum
- nnnt rt liíí n mrráí l-,
„Heföi einhver viljað
sjá konu í hlutverki
Gauja litla?“
Svokallaðir Dillidagar hafa
staðið yfir hjá Framhaldsskól-
anum á Húsavík s.l. viku, fulbr
með fróðleik og skemmtan.
M.a. hefur verið keppt um Dilli-
bikarinn í ýmsum ótrúlegum
greinum, söngvakeppni mikil
var haldin, ræðukeppni fór
fram milli nemenda og kennara
(nemendur unnu, nema hvað!),
og góðir gestir sóttu skólann
heim. í gestahópnum var m.a.
Kolfinna Baldvinsdóttir, sem
brá sér úr Dagsljósinu og norð-
ur yfir heiðar.
Kolfinna ræddi á léttu nót-
uniun við nemendur og kenn-
ara um konur í fjölmiðlum,
einkum konur á skjánum, og
raunar almennt um stöðu
kvenna. Hún fjallaði m.a. um
útlitskröfur sem gerðar væru til
skjákvenna, kröfur sem ekki
væru gerðar til kollega þeirra
karlkyns, menn á borð við Ólaf
Sigurðsson og Boga Ágústsson,
án þess hún væri nokkuð að
setja út á þeirra útlit. Þó væri
ástandið hér betra en víðast er-
lendis, þar sem konur á skján-
um væru yfirleitt brúkaðar upp
á punt. Og hún sagði að það
væri auðvitað óþolandi þegar
hún væri búin að leggja mikla
vinnu í sjónvarpsefni, mjög
stolt yfir árangrinum og vongóð
um jákvæð viðbrögð, þegar svo
helstu viðbrögð væru þau að
hneykslast væri á dragtinni
sem hún var í eða tígrisbuxun-
um. Og Kolfinna viðurkenndi
reyndar, eftir fyrirspurn úr sal,
að slík viðbrögð kæmu yfirleitt
frá öðrum konum. „Konur eru
konum verstar,“ sagði Kolfinna.
Fjörlegar umræður spunnust
í framhaldi af fyrirlestri Kol-
finnu og tókst henni að fá við-
stadda til að tjá sig og skiptast
á skoðunum. Margir voru for-
vitnir um vinsæla samstarfs-
menn Kolfinnnu s.s. Heiðar
snyrti, Gauja litla, Loga og Jón
Viðar. í því sambandi fullyrti
Kolfinna, og kom þá aftur inn á
konur á skjánum, að enginn
kona í þyngdarflokki Gauja
litla, hefði nokkurn tímann
fengist til að gera það sem
hann hefur gert á skjánum í
vetur, og raunar ólíklegt að
áhorfendur hefðu kært sig um
að sjá shka konu á skjánum. js
Kolfinna Baldvinsdóttir kann
greinilega vel við sig á kennara-
borðinu, svartklædd í stíl við nafn-
ið, eins og grímulaus feminískur
Zorró. Mynd: js
á Húsavík