Dagur - Tíminn Reykjavík - 01.03.1997, Blaðsíða 18
30 - Laugardagur 1. mars 1997
Jlagi*r-®múrat
S K Á IC
Guðfríður
Lilja
Grétarsdóttir
skrifar
Það er ekM á hverjum degi
sem Gary Kasparov verð-
ur að játa sig sigraðan, en
til þess kom á dögunum þegar
Vassily Ivanchuk hristi af sér
slenið á stórmótinu í Linares,
Spáni, sem lauk nú fyrir stuttu.
Ivanchuk hafði rétt fyrir mótið
reynt að hætta við þátttöku til
að hvílast og vinna sig upp úr
þeirri lægð sem hann er nú í,
en sMpuleggjandi mótsins, Luis
Rentero, sýndi harðfylgi og
neitaði að láta hann sleppa. Það
kom á daginn að Ivanchuk gekk
illa á mótinu og var langt frá
sínu besta, rétt eins og í Las
Palmas í desember. Allir urðu
því orðlausir þegar hann allt í
einu tók sig til í 8. umferð móts-
ins og sigraði sjálfan Kasparov.
Ivanchuk var eini þátttakand-
inn sem gat stært sig af því af-
reM.
Skjótt skipast
veður í lofti
Mótið var ægisterkt og spenn-
andi. Meðal ELO-skákstig þátt-
takenda töldust vera 2700 og
því fellur mótið í 18. styrkleika-
flokk, en aðeins eitt ELO-stig
vantaði upp á meðaltalið til að
19. styrMeikaflokki væri náð.
Til að byrja með stal Judith
Polgar, sem einnig hefur verið í
lægð síðustu mánuði og vikur,
senunni frá Kasparov með því
að tróna alein í efsta sæti eftir
5. umferðir. Eftir sigur gegn Ni-
kolic, Ivanchuk og Drejev og
Hasar í Linares
jafntefli gegn Topalov og Adams
var hún ein efst með 4 vinninga
af 5, á meðan Kasparov,
Kramnik og Adams fylgdu
henni á eftir með 3/2 vinning. í
6. umferð skutust svo Kasparov
og Kramnik upp að hliðinni á
Polgar. Þeir deildu í fyrstu vina-
lega með henni efsta sætinu, en
ýttu henni í næstu umferðum
harkalega niður á bóginn: hún
tapaði þremur skákum í röð,
fyrst fyrir Kramnik í 7. umferð,
þá fyrir Anand og svo fyrir
Kasparov. Þrátt fyrir þessa
ósæmilegu meðferð náði Polgar
þó að rétta sig við í loMn og
endaði í 5. sæti, sem er góður
árangur. Svona eins og til að
bæta upp fyrir þetta þrefalda
tap Polgar, þríefldist Kasparov
eftir óvænt tap sitt gegn Ivan-
chuk og sýndi gífurlegan styrk
með því að sigra þrjár næstu
skákir í röð. Kasparov gerði
þannig sigurvonir Kramnik,
sem fyrir tvær síðustu umferðir
mótsins var einn efstur, að
engu. Kasparov sigraði Kramn-
ik örugglega í síðustu umferð
og endaði þannig heilum vinn-
ingi á undan næsta manni. At-
hygh vekur að Anand, sem eins
og er kunnugt er nú annar
stigahæsti skákmaður heims,
blandaði sér ekki í toppbarátt-
una og lenti fyrir miðju. Hinn
ungi Englendingur Michael Ad-
ams stóð sig hins vegar með
prýði og skaut sér stigahærri
mönnum ref fyrir rass með því
að lenda í þriðja sæti.
Það er sem sagt greini-
legt að þeir sem eru fyrir
hasar og sápuóperur
œttu ekki að láta pólitík-
ina í skákheiminum
framhjá sérfara
Karpov í stjórnmálum
Anatoly Karpov var að þessu
sinni fjarri góðu gamni þar sem
hann var uppteMnn við að
sinna stjórnmálaframa sínum í
Rússlandi. Fjarvera Karpovs
vakti mikla reiði mótshaldarans
í Linares, Rentero, sem taldi sig
hafa vilyrði Karpovs fyrir því að
hann yrði á meðal þátttakenda.
Karpov bauð sig fram til pólit-
ískra kosninga í rússnesku
borginni Tula, sem fóru fram á
meðan á mótinu í Linares stóð.
Karpov fékk um 16% atkvæða,
en Alexander Korschakov, sem
er sakaður um að vera ná-
tengdur glæpsamlegum mafíum
í Rússlandi, sigraði með um
26% atkvæða. Framboð Kors-
chakovs var stutt af Alexander
Lebed, og ef til vill þætti
einhverjum lesendum fróðlegt
að vita að einn af dyggustu
flokksmönnum Lebeds ber
nafnið Gary Kasparov. Það er
sem sagt greinilegt að þeir sem
eru fyrir hasar og sápuóperur
ættu ekM að láta pólitíkina í
skákheiminum framhjá sér
fara. Við skulum sjá hvernig
Kasparov tapaði fyrir Ivanchuk
í Linares á meðan Karpov tap-
aði fyrir Korschakov í Tula:
Hvítt: V. Ivanchuk
Svart: G. Kasparov
Kóngs-indversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3
Bg7 4. e4 d6 5. f3 0-0 6. Bg5
a6 7. Dd2 c5 8. d5 b5 9. cxb5
Rbd7 10. a4 Da5 11. Rge2 Rb6
12. Rcl axb5 13. Bxb5 Ba6 14.
Rla2 Bxb5 15. axb5 Rh5 16.
Hbl Bd4 17. Bh6 Hfe8 18. b3
e6 19. dxe6 Hxe6 20. Be3 Bxe3
21. Dxe3 d5 22. b4 Da3 23.
bxc5 Rc4 24. Dd4 Rf4 25. 0-0
25...Dxa2 26. Hf2 Da3 27.
Rxd5 Dd3 28. Dxd3 Rxd3 29.
Hc2 Ra3 30. Ha2 Rxc5 31.
Hbal f5 32. Rc7 He5 33. Rxa8
Rxb5 34. exf5 gxf5 35. Rb6
Rc3 36. Hc2 og Kasparov féll á
tfma, 1-0.
Þrautin:
♦ 765
V KG963
♦ K63
♦ Á9
N
S
é K82
VÁ72
♦ ÁDG872
* 4
Suður spilar 5 tígla í sveita-
keppni eftir að vestur hefur
opnað á spaða. Útspilið er lauf-
kóngur. Hvernig er best að
spila?
Allt spilið:
4 765
V KG963
♦ K63
* Á9
♦ ÁDG43
* 54
♦ T
* KDG32
N
V A
S
* T9
V DT8
* 954
* T8765
* K82
VÁ72
* ÁDG872
* 4
Þorláksson
Lausnin er fólgin í að dúkka
útspilið! Nú er hægt að kasta
hjarta í laufásinn og fría litinn
með trompun. Fyrst tekur sagn-
hafi einu sinni tromp.
Frá Bridgefélagi
Akureyrar
Sveit Stefáns G. Stefánssonar
sigraði í aðalsveitakeppni BA
sem lauk sl. þriðjudag. Með
Stefáni spiluðu Hróðmar Sigur-
björnsson, Skúli Skúlason, Jón-
as Róbertsson og Stefán Ragn-
arsson.
Lokastaða íjögurra efstu sveita
f lokakeppninni:
1. Stefán G. 61
2. Anton Haraldsson 59
3. Páll Pálsson 39
4. Sveinn Pálsson 20
Næsta keppni félagsins er
tveggja kvölda tvímenningur af
barómeterætt. ÆsMlegt er að
skráningu hafi lokið á mánu-
dagskvöld. Óli Ágústsson tekur
við skráningu í síma 462-4120.
íslandsmót kvenna og
yngri spilara
Islandsmót kvenna og yngri
spilara í sveita-
keppni fer fram
um helgina og
hefst spila-
mennska M.
11.00 í dag. Spil-
uð verða 100-120
spil og ræðst það
af þátttöku. Yngri
spilarar eru þeir
sem fæddir eru
1972 og síðar.
Öllum er heimill
aðgangur og er
spilað að Þöngla-
bakka 1.
Sigurbjörn Haraldsson, hinn kornungi og efnilegi spilari frá Akureyri, á eflaust eftir að
blanda sér í baráttuna um efstu sætin á Islandsmóti yngri spilara í sveitakeppni. Sigur-
björn er aðeins 17 ára og á því framtíðina fyrir sér. Myndin er tekin árið 1993 þegar
„undrabarnið" sigraði í fjölmennu afmælismóti Soffíu Guðmundsdóttur á Akureyri, aðeins
14 ára gamall, ásamt Reyni Helgasyni. Gestgjafinn er fyrir miðju.
Frá Bridge-
félagi
Reykjavíkur
Aðalsveitakeppni
Bridgefélags
Reykjavíkur lauk
sl. miðvikudags-
kvöld en þó liggja
úrsht ekM fyrir.
Ástæðan er kæru-
mál sem ekM er
búið að afgreiða í innbyrðis við-
ureign sveit Gylfa Baldurssonar
og Eurocard. Sem stendur er
Iokastaðan þannig:
Gylfi 215
Eurocard 214
Samvinnuferðir 213
VÍB 204
Roche 201
Marvin 201
Símon 200
Frá Bridgefélagi SÁÁ
Bridgefélag SÁÁ spilar mitchell
tvímenning öll þriðjudagskvöld
í Ármúla 40. Þriðjudaginn 18.
febrúar sl. spiluðu 19 pör og
varð meðalskor 216. Efstu pör:
NS
1. Guðbrandur Guðjohnsen 262
2. Guðlaugur Sveinsson-
Unnsteinn Jónsson 239
3. Bjarni Bjarnason-
Guðmundur Þórðarson 231
AV
1. Halldór Ármannsson-
Gísli Sigurkarlsson 286
2. María Ásmundsdóttir-
Steindór Ingimundarson 234
3. Jón Stefánsson-
Sveinn Sigurgeirsson 233.