Dagur - Tíminn Reykjavík - 01.03.1997, Page 9
íDagur-Œmttrm
Laugardagur 1. mars 1997 - 21
' mt
Fjölmiðlamaðurinn
landskunni, Þorgeir Ást-
valdsson, segir að smœð
sín, 172 cm, hafi ótvírœtt
verið kostur, sérstaklega
í bernsku því að þá haji
hann verið á kafi í íþrótt-
um og þessir lágvöxnu
hafi verið sneggri „og
bara betri“ en þeir há-
vöxnu. í áhyggjuflœkjum
unglingsáranna hafi
stœrðin svo verið hluti af
sjálfsmyndinni „rétt eins
og eyrun og nefið, “ eink-
anlega í samskiptum við
kvenfólk, en smám sam-
an hafi það elst af sér.
,
Mynd: QVA
Betrien
þeir stórn
Hins vegar hafði ég alltaf
meiri áhyggjur af að
verða of feitur þó að ég
viti ekki af hverju,“ segir Por-
geir. Einhvern tímann kveðst
hann hafa heyrt af könnun sem
hafi sýnt að lágvaxið fólk velji
sér frekar hfsstarf þar sem ekki
reyni á samanburð hvað lík-
amsstærðina varði. „Ef svo er
þá er ég á alrangri hillu því að
ég er oft til sýnis í mínu starfi,"
segir hann.
Styttra niður
Þorgeir kveðst hafa orðið var
við að fjölmiðlarnir gefi stund-
um skekkta mynd. Þannig hafi
margir sem hafi kynnst sér
gegnum sjónvarp og útvarp tal-
ið sig tveggja metra rum og því
orðið bilt við þegar hann hafi
mætt á svæðið, aðeins 172 cm á
hæð.
„í góðra manna hópi hefur
maður líka gert grín að þessu
því að það hefur ótvíræða kosti
að vera lágvaxinn. Það er tfi
dæmis styttra niður ef maður
dettur eða þarf að beygja sig,“
segir hann.
Þorgeir á aldrei í vandræð-
um með að fá á sig klæðnað í
réttu númeri enda notar hann
meðalnúmer. Hann bendir góð-
látlega á að lágvaxnir karlmenn
séu mjög hagkvæm viðskipta-
eining en beittir órétti því að
fötin séu ekkert ódýrari þó að
miklu minna efni sé notað í flík-
urnar. -GHS
Hef aldrei
spáð í þetta
*
g hef aldrei spáð neitt í
þetta og hef aldrei litið á
mig sem neitt sérstaklega
lágvaxinn, ekki þannig að það
hafi neitt háð mér,“ segir Hjört-
ur og neitar því að hæðin hafi
nokkurn tímann skipt máli. „Jú.
Auðvitað heyrir maður einhver
skot en ég tek það ekki til mín,“
segir hann. - GHS
Hjörtur Svavarsson, tœknimaður hjá Ríkisútvarpinu, er
1,73 sentimetrar á hœð og hlýtur því að teljast karlmaður
í lœgri kantinum. Hjörtur segist aldrei hafa litið á sjálfan
sig sem neitt sérstaklega lágvaxinn karlmann og aldrei
lent í því að horfa upp til kvenna. Hann segir að hœðin
hafi aldrei valdið sér neinum áhyggjum, ekki einu sinni á
unglingsárunum, og hœðin hafi aldrei háð sér.
Aurora
MiAaö vitl 10 kætta
10(R
100 stk.
462 4166
PONTUNARSIMI
Svart
Þjónustuaóili í
ODDA á
Akureyri
LÍMMIÐAR NORÐURLANDS
Strandgötu 31 • 600 Akureyri
Sími: 462 4166 • Fax 461 3035
Vasadagbok
Disklirtgar 10 stk.
forsniðnir fyrir PC
Pilot Expiorer
kúlutusspenni
3,5 HD
Samsung SF 4000
Bleksprautufaxtæki
Blekhylki 51626A
Gatapokar 0,06 mm
Fjöinotapappír
A4 80 g
2500 blöð
20 stk. leiðréttingar-
lakk + rakvél