Dagur - Tíminn Reykjavík - 01.03.1997, Page 14
26 - Laugardagur 1. mars 1997
iDagur-®mtimT
■■■
Gagnsæir
kjólar
Leikkonur á hvers
••
manns vo
Snyrtivörufyrirtœki beita ýmsum brellum til að velga at-
hygli á vörum sínum, Hið nýjasta meðal þeirra sem
framleiða varaliti er að nefna ákveðnar tegundir í
höfuðið á frœgum konum.
í>:
annig eiga t.d. þær Demi Moore, Madonna, Julia Louis-Dreyfus
rag Rosie 0’ Donnell nöfnur í formi varalitategundar og er litur
hverrar tegundar valinn með það í huga að hann passi vel kon-
unni sem hann er nefndur eftir.
„Fólki finnst þetta sniðugt," segir Carol Shaw, forðurnarfræðingur í
Los Angeles en hún hóf fyrir þremiu- árum að þróa varaliti með sérstak-
ar leikkonur í huga. Línan sem Shaw hannar fyrir heitir Lorac en fleiri
fyrirtæki hafa fylgt í kjölfarið og nefnt varaliti í höfuðið á stjörnunum.
•Þeirra á meðal eru t.d. Elizabeth Arden og 0’ Loréal sem teljast í hópi
risanna á þessum markaði.
Leikkonurnar sem ljáð hafa varalitum nöfn sín fá ekkert borgað fyrir
en fá hinsvegar sendar prufur ásamt boði um að koma með athuga-
semdir l£ki þeim ekki liturinn.
Alberta Ferretti
Hátískan í Evrópu virðist oft vera í
litlum tengslum við raunveruleik-
ann. Nú eru það gegnsæir kjólar
sem tröllríða tískuheiminum og varla að
fyrirsæta stígi á svið án þess að brjóstin
og nærbuxur sjáist í gegnum kjólinn.
„Öskaplega kvenlegir en því miður
ómögulegir fyrir konur að klæðast í hinu
daglega lífi,“ er einkunnin sem Vouge
gefur þessum kjólum. Lítum á sýnishorn
frá nokkrum frægum hönnuðum.
Antonio Berardi
Höfuðið vel varið gegn veðri og vindum
en varla
hægt að
segja hið
sama um
líkamann.
Kjóll
Antonio
Berardi
hylur
hvorki vel
né mikið
og því litlar
líkur á að
við sjáum
íslenska
kvenmenn
spóka sig í
þessum á
Laugaveginum.
Karl Lagarfeld
Prjónakjóll tísku-
kóngsins Karls Lager-
feld hylur álíka mikið
og fiskinet. Svolítið
klæðilegri en sá fyrir
ofan en samt...!
Ann Demaule-
meester
Frumlegheitin eru
greinilega í góðu lagi
hjá þessum hönnuði
en hvað með fegurð-
arskynið? Dæmi nú
hver fyrir sig.
ar í huga heldur
einnig sölu. „Ég set
svart fóður undir
hvíta, gagnsæja efnið,
svo kjólarnir séu
klæðilegri í hinu dag-
lega h'fi,“ segir hann.
Þessi var valinn sá
klæðilegasti enda
hönnuðurinn, Al-
berta Ferretti ekki
aðeins með sýning-
Húðin og skammdegið
afið tekið eftir að húðin er oft
leiðinlegri yfir kaldasta tíma árs-
ins? Kuldinn og sólarleysið hafa
þau áhrif að húðin verður ójöfn, hrjúf og
með bólu hér og þar eða jafnvel allsstað-
ar. Ein leiðin er auðvitað sú að bíða bara
eftir sumrinu en
sem betur fer eru
þó ýmsar aðrar
leiðir færar til að
ráða bót á vanda-
málinu enda ár-
angur af fyrst-
nefndu leiðinni
ákaflega ótryggur.
Ekki dugar að
farða yfir öll her-
legheitin því þá
skapast vítahring-
ur sem erfitt er að
rjúfa. En hvað er
þá til ráða? „Fyrst
og fremst þarf að
haga mataræðinu
þannig að líkam-
inn, og þar með
húðin, fái næg
vítamín og bæti-
efni sem eru henni
nauðsynleg. Græn-
meti og ávexti til
að tryggja nógar
trefjar fyrir melt-
inguna og að
drekka mikið vatn
til að hreinsikerfi líkamans fái nægan
vökva,“ segir Inga Þyrí Kjartansdóttir,
sem er snyrtifræðingur.
Hún bendir á að hreyfing geri einnig
kraftaverk fyrir húðina. „Sund og skokk
kostar ekki mikið og geta jafnvel þeir
blönkustu leyft sér það. Líkamsrækt svo
sem leikfimi eða önnur þjálfun er einnig
af hinu góða til að bæta súrefnisupptöku
líkamans, styrkja hjartað og æðakerfið."
Hreinsun mikilvæg
Inga Þyrí leggur einnig áherslu á mikil-
vægi þess að hreinsa og næra húðina
utanfrá. Nauðsynlegt sé að hreinsa hana
á hverju kvöldi með því að bera á hana
hreinsimjólk eða milda andlitssápu.
Nuddið létt yfir andlitið allt og ekki
gleyma hálsinum. Þurrkið síðan með
rakri bómull eða hreinum þvottapoka yf-
ir allt andlitið þar til öll hreinsimjólkin
er farin og óhreinindin þar með. Jafnvel
þó ekki sé mikill farði er ótrúlegt hvað
andrúmsloftið og sviti geta framkallað
mikil óhreinindi.
Þegar húðin hefur verið hreinsuð þarf
að næra hana með næturkremi sem
hentar viðkomandi húðgerð. Þegar húð-
in fer að eldast segir Inga Þyrí að gott sé
að nota einnig sérstakt augnkrem eða
gel og hálskrem þar sem hálsinn megi
ekki líta út fyrir að vera eldri en andlitið.
Góð fæða og líkamsrækt hafa
jákvæð áhrif á húðina en
hreinsun og næring utanfrá
skiptir einníg máli.