Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.03.1997, Qupperneq 2

Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.03.1997, Qupperneq 2
2 - Þriðjudagur 11. mars 1997 |Ditgur-®mmm Heiti Potturinn Eftir skattaútspil ríkis- stjórnarinnar verða pólitískir reiknimeistarar að draga fram vasatölvuna. Hversu mikið er raunveru- lega nýtt og hversu mikið gamalt og gott? Davíð lof- aði skattalækkunum í ára- mótaávarpinu. Þá var hann búinn að „taka til hliðar" hækkun persónuaf- sláttar og ýmislegt annað til að hafa í handraðanum. Þá er spurningin: Hversu mikið af útspili stjórnarinn- ar eru gömul loforð, hversu mikið framlag skattborgara sjálfra, og hversu stór er þá afgang- urinn: framlag Doddson- ar? Frumsýning á nýjum fréttaþul Stöðvar 2 (við hlið þess gamla með ein- falda smekkinn) heppnað- ist vel. Skýrmælt og ör- ugg, gömlu kellurnar á RÚV hafa fengið keppi- naut. w Ipottinum voru menn að dásama afrek Jóns Arnars um helgina. Æfir á Sauðárkróki á veturna og nær 3ja sæti á heims- meistaramóti? Hér eftir verður „aðstöðuleysi" ekki gild afsökun í íþróttum! Og ekki klikkar Þórar- inn V; spurður um nýju samningana svaraði hann að bragði: „Þetta eru náttúrulega meiri kaup- hækkanir en við vonuö- um.“ Okkar maður í eldlín- unni. F R É T T I R Kjaramál VR Hriktir í ASÍ Samið fyrir rúmlega fjórðung féiags- manna ASÍ. Atkvæði greidd um boðun alls- herjarverkfalls hjá Dagsbrún. að hriktir í og málið er fullkomlega í uppnámi í augnablikinu,“ sagði for- ystumaður innan verkalýðs- hreyfingarinnar um miðjan dag í gær. Hann vildi engu spá um framhaldið hjá öðrum innan ASÍ að öðru leyti en því að það yrði erfitt fyrir Landssamband íslenskra verslunarmanna að semja á öðrum nótum en VR. Um 80% félagsmanna LÍV eru í VR. Með kjarasamningum VR, Landssambands iðnverkafólks og Rafiðnaðarsambandsins í gærmorgun hefur verið gengið frá kjarasamningum við rúm- lega fjórðung félagsmanna ASÍ. Þá um morguninn hófst t.d. allsherjaratkvæðagreiðsla hjá Dagsbrún-Framsókn og fleirum um allsherjarverkfall þann 23. mars hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma. „Ég veit að sumir eru óánægðir og hefðu viljað fara aðrar leiðir,“ segir Guðmundur Þ. Jónsson, formaður Lands- sambands iðnverkafólks. Hann óttast ekki að samningur þess við VSÍ um 11,7% launahækkun muni hafa einhver alvarleg áhrif á samskipti landssam- banda ASÍ. Gildistími samnings- ins er frá 1. mars 1997 til 15. október 1999. f samningnum er taxti færð- ur að greiddu kaupi með því að ýmsar aukagreiðslur eru settar inní taxtana. Þetta getur þýtt allt að 27% hækkun fyrir suma. Þá verður 70 þúsund króna lág- markslaunum náð 1. janúar 1999, auk þess sem yfirvinnu- álag er óbreytt. Aftur á móti féllst iðnverkafólk á kröfu VSÍ um sveigjanlega dagvinnutíma frá 7-19. Hinsvegar eru engar tryggingar eða opnunarákvæði í samningnum. Þó var ætlunin að koma með bókun þess efnis að iðnverkafólk fái sambærilegar hækkanir ef aðrir fá talsvert meira í sínum samningum. Kjarasamningur VR og VSÍ er í stórum dráttum hliðstæður samningi VR við stórkaupmenn. í samningi Rafiðn- aðarsambandsins við VSÍ hækka laun um tæp 14% til 15. febrúar árið 2000. Lágmarkslaun sveina verða við upphaf samnings- ins 88.719 krónur á mánuði. í samn- ingi RSÍ við borg- ina hækka laun um liðlega 14%, lág- markslaun um 20% og orlof lengist um 3 daga. Verkfalli raf- iðnaðarmanna var frestað en samningurinn verður borinn undir atkvæði kl. 15 í dag. -grh Guðmundur Þ. Jónsson form. Landssambands / „Ég veit að sumir innan ASÍ eru óánœgðir. “ ðnverkafólks SL íMi Raunsæ kröfugerð Við lögðum fram vel röddstudda kröfugerð sem stóðst fullkom- lega alla gagn- rýni. Ég held að það hafi ráðið úrslitum," segir Magnús L. Sveinsson, formaður VR, um ástæðuna fyrir afköstum félags- ins við samningaborðið. Hann segir að í pípunum séu viðræður um gerð fyrirtækja- samninga við Húsasmiðjuna og einnig sé byrjað að skoða málið gagnvart fyrirtæki ársins hjá VR, Ingvari Helgasyni hf. Þá eru samningar við Bónus enn inm' myndinni. Um helgina skrifaði félagið undir kjara- samning við 10-11 búðirnar en áður hafði félagið samið við stórkaupmenn, Regn efh. og ís- lenska útvarpsfélagið. Formaður VR vísar því hins- vegar alfarið á bug að forsætis- ráðherra eða aðrir samflokks- menn hans hafi eitthvað haft puttanna í kjarastefnu félags- ins. Hann segist jafnframt ekki hafa neina trú á því að pólitísk- ur htur hans og samflokks- manna í röðum viðsemjenda hafi haft einhver úrslitaáhrif á gang viðræðna VR við hin ýmsu fyrirtæki. -grh Skinnaiðnaður Aðalfundur Aðalfundur Skinnaiðnaðar hf. á Akureyri verður hald- inn á Hótel KEA á Akureyri í dag klukkan 16.30. Hlutafé Skinnaiðnaðar hf. nam í árslok 1996 rúmum 70 milljónum króna og hluthafar voru 255 talsins. Þar er stærstur Sam- vinnulífeyrissjóðurinn með 16,49%. Rekstur Skinnaiðnaðar hf. skilaði 77,6 milljóna króna hagnaði á sl. ári, sem er 8% af veltu félagsins. GG FRÉTTAVIÐTALIÐ ______________I ■ „Hef ekki trú á nútíma þrælahaldi" Aðalsteinn Árni Baldursson form. VerkalýðsféL Húsavíkur og Fiskvinnsludeildar Verkamannasambandsins Ákvörðun stjórnar ÚA að segja upp öllum bónussamn- ingum við starfsmenn og bjóða starfsfólki endurráðn- ingu hefur vakið töluverða athygli hjá fiskverkafólki. „Ég hef alltaf verið meira fylgjandi hóplaunakerfi ef á annað borð á að hafa bónuskerfi en ég er þó þeirrar skoðunar að bónuskerfi eigi að afleggja með öllu. Fiskverkafólk á að vera á mannsæmandi launum en sums staðar hefur verið hætt við bónuskerfið og tekinn upp fastur kaupauki, og það hefur komið ágætlega út. Aðgerðir vinnuveitenda í þessa vegu miða að því ná meiru út úr starfsfólkinu en auðvit- að er það aðeins nútíma þrælahald. Einstaklingsbónus hefur aldrei heillað mig en innan raða fiskverkafólks eru mjög skiptar skoðanir um þessi af- kastahvetjandi launakerfi. Það fólk sem er á besta aldri og afkastar miklu telur eðilega best að taka upp einstak- lingsbónuskerfi enda dregur það vagn- inn fyrir hitt fólkið. Aðrir eru hrifnari af hóplaunakerfinu en það eru mjög skiptar skoðanir um kerfin,“ sagði Að- alsteinn Baldursson. Er vaktavinnukerfi í boljiskvinnslu þá ekki líka angi af nútíma þrœla- haldi? „Ég leggst ekki gegn vaktavinnu í fiskvinnslu ef greitt er fyrir það mann- sæmandi laun. Það er vaktavinna t.d. í rækjuvinnslum víðs vegar og hefur gengið mjög vel, en aðalmálið er að það sé eitthvað borgað fyrir þá vinnu. Fiskvinnslustöðvar eru með dýran búnað og dýr tæki, en við í verkalýðs- hreyfingunni höfum brosað út í annað munnvikið þegar rætt er um vakta- vinnu í bolfiski því annan daginn er rætt um að ekki sé til neitt hráefni til að vinna og erfitt að halda úti 40 stunda vinnuviku, en hinn daginn er verið að tala um að taka upp vakta- vinnu. Það er mjög slæmt fyrir fisk- verkafólk, sem og aðra launþega, að þurfa að búa við mjög sveiflukennar tekjur og þannig óöryggi. Vaktavinna kann að vera nauðsynleg þegar mikið magn berst að Iandi á skömmum tíma. Það er stöðugleikinn sem þarf að vera í þessari atvinnugrein." Mundir þú leggja niður bónuskerf- ið ef þú fengir einhverju ráðið þar um? „Ef ég fengi að ráða í einn dag, sem ég er að bíða eftir, þá mundi ég af- nema alla bónusa, færa þetta allt inn í launataxta fólks þannig að fólk hefði almennileg laun fyrir 8 stunda vinnu- dag. Ég hef ekki trú á að nútíma þrælahald, öðru nafni bónuskerfi, verði tekið út í komandi kjarasaming- um. Það er verið að tala um að taka hluta af bónusnum inn í kaupið. Ég verð var við að frystihúsin eru að þrýsta á að tekinn verði upp einstak- lingsbónus í stað hópbónus, og það er skref afturábak. Með því næst meira út úr hverjum starfsmanni án þess að borga fyrir það.“ GG

x

Dagur - Tíminn Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur - Tíminn Reykjavík
https://timarit.is/publication/253

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.