Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.03.1997, Side 5
JDagur-'SRmum
-.- ------------
Þriðjudagur 11. mars 1997 - 5
I F R É T T I R
Vikartindur
Byrjað að dæla
upp olíu í dag
Byrjað verður að
dæla 340 tonnum af
olíu, 300 tonnum af
svartolíu og 40 tonn-
um af gasolíu, upp úr
Vikartindi í dag ef
veður leyfir.
Starfsmenn umhverfisráðu-
neytisins áttu í gær fund
með eigendum flutninga-
skipsins Vikartinds þar sem far-
ið var yfir stöðu málsins og eig-
endum gerð grein fyrir lögum
og kröfum um frágang og
mengunarvarnir vegna strands-
ins. Eigendur skipsins eiga að
grípa til neyðaraðgerða, dæla
olíu upp úr skipinu og sjá um
meðferð á hættulegum varningi
án þess að hætta skapist fyrir
menn.
„Þetta er ekki aðgerð sem er
alveg hættulaus og fer dálítið
anna voru mjög jákvæð. Þeir
gerðu ekki athugasemdir við
þessar kröfur," segir Magnús
Jóhannesson, ráðuneytisstjóri í
umhverfisráðxmeytinu.
Á næstunni verður svo farið
að losa farminn úr skipinu og
mun það taka
nokkurn tíma. Þá
er verið að hreinsa
Qöruna af hættu-
legum varningi, til
dæmis tréspíritusi
úr gámum sem
hafa fallið í sjóinn.
í dag verður
fundur með full-
trúum Heilbrigðis-
eftirlitsins á Suður-
landi og heima-
mönnum þar sem nánar verður
rætt um hreinsun á landi. -GHS
Magnús Jóhannesson
ráðuneytisstjóri
„Þetta er ekki aðgerð
sem er alveg hœttu-
laus ogfer dálítið
eftir aðstœðum og
veðri á svœðinu, “
eftir aðstæðum og veðri á svæð-
inu. Viðbrögð tryggingafélag-
Vikartindur
Áhöfnin farin lir landi
Fulltrúi Alþjóðaflutninga-
mannasambandsins á ís-
landi, Borgþór Kjærne-
sted, greip í tómt er hann fór til
fundar við skiphöfnina á Vikar-
tindi á Hótel Selfossi í gærdag.
Hann hafði mælt sér mót við
áhöfnina en þegar til kom voru
mennirnir á bak og burt og
Borgþór fékk þær fréttir að
mennirnir væru á leið til Kefla-
víkurflugvallar upp í flugvél tif
Þýskalands sem var á áætlun
kl. 16:45. í för með Borgþóri
voru tveir kaþólskir prestar og
formaður Sjómannasambands-
ins.
Borgþór hafði fengið sam-
þykki útgerðarfélagsins að
ræða við mennina og átti að
hitta áhöfnina að máli klukkan
þrjú. Hann taldi ástæðu til þess
að þeir fengju tækifæri til að
ræða sín mál við prest og full-
trúa frá sambandinu sem gætir
hagsmuna áhafna um allan
heim. Eftir miklar símhringing-
ar fékk hann þær upplýsingar
að mennirnir væru á leið úr
landi, fyrst til Þýskalands og í
framhaldi af því til Filippseyja.
Borgþór var að vonum ósáttur
við þessa þróun mála.
Friðjón Guðröðarson, sýslu-
maður í Rangárvallasýslu, segir
að mennirnir hafi ekki verið
boðaðir til yfirheyrslu í sjópróf-
um sem haldin voru vegna
strandsins og því hafi þeim ver-
ið frjálst að fara úr Iandi. -hþ.
Bróðir okkar og mágur,
SNORRI GUÐJÓNSSON
frá Lækjarbakka,
Glerárhverfi, Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri laugardaginn 8.
mars.
Birna Guðjónsdóttir, Þóroddur Sæmundsson,
Bragi Heiðberg.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
BJÖRG HARALDSDÓTTIR,
fyrrum húsfreyja,
Mýri, Bárðardal,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 14. mars kl.
13.30.
Sigríður Karlsdóttir,
Jón Karlsson, Hólmfríður Friðriksdóttir,
Hildur Svava Karlsdóttir,
Aðalbjörg Karlsdóttir, Bjargmundur Ingólfsson
og fjölskyldur.
Alþingi
Endurskoða verði reglur
um björgunarlaun
Mörg dæmi um að
skipstjórar veigri
sér við aðstoð
Gæslunnar vegna
björgunarlauna.
Hjálmar Árnason, alþ.mað-
ur og fulltrúi í sjávarút-
vegsnefnd, telur brýnt að
skoða ákvörðunarvald skipstjóra
Landhelgisgæslunnar til að
bregðast við í neyðartilvikum.
„Ég dreg í efa raunverulegt
ákvörðunarvald skipstjóra sem
lendir í nauðum vegna þrýst-
ings frá sínum eigendum og
tryggingafélögum. Síðan er
einnig ástæða til að endurskoða
þá kvöð að Landhelgisgæslan
taki björgunarlaun. Vitað er um
mörg dæmi þess að menn veigri
sér við að kalla eftir aðstoð
vegna þessa ákvæðis. Hér er ég
þó ekki að gera lítið út fræki-
legum björgunarafrekum Gæsl-
unnar,“ segir Hjálmar.
Hann segir mörg dæmi um
að útgerðir hafi fengið net í
skrúfuna, kalli eftir eigin skip-
um og bíði jafnvel á íjarlægum
miðum dögum saman. Ég get
nefnt sem dæmi þegar skip
strandaði út frá Suðurlandi árið
1981. Þá vildi útgerðin kalla á
skip úr eigin hópi þrátt fyrir að
Gæslan hafi verið nærri. Þetta
er kjarni málsins í öllu því sem
gerðist fyrir helgina. Björgun-
arlaun og þrýstingur trygginga-
félaga." BÞ
Alþingi
Víða pottur brotinn
Steingrímur J. Sigfússon,
formaður sjávarútvegs-
nefndar, segir að sjóslysa-
hamfarirnar síðustu daga sýni
að víða sé pottur brotinn í ís-
lenska stjórnsýslukerfinu. Ekki
sé ljóst hvernig farið sé með mál
ef skip stranda og reki berst á
land og alvarlegust sé staða um-
hverfismála - mengunarhættan.
„Það þarf að skipa e.k. yfir-
stjórn af hálfu Almannavarna
eða annars aðila í svona málum.
Menn gleyma því oft að þessi
stóru og glæstu skip sem sigla
hér við Islandsstrendur geta ver-
ið mengunarsprengjur ef illa fer.
Það vakna þá upp spurningar
hvort setja þurfi strangari reglur
um að þau sigli fjær ströndinni.
Sérstaklega ef farmurinn er af
tilteknum toga. Óhuggulegast er
í þessu sambandi ef stjórnvöld
eru í raun máttlaus gagnvart
valdi skipstjóra eða viðkomandi
útgerð. Þótt sú ákvörðun geti
snúist um öryggi sjómanna og
björgunaraðila eða hvort stór-
kostlegt mengunarslys verði eða
ekki,“ segir Steingrímur.
Annað er ljóst, að mál af
þessu tagi eru mjög flókin við-
ureignar: „Þetta er mál sem
snertir mörg ráðuneyti. Ég
þekki það sem fyrrverandi ráð-
herra að þau skarast líka. Hlut-
verk sjávarútvegsráðherra,
yfirmanns siglingamála annars
vegar og dómsmálaráðherra og
Gæslunnar hins vegar. Um-
hverfisráðuneytið er með um-
hverfismál, samgönguráðuneyt-
ið með siglingalögin. Þetta þarf
að hafa í huga þegar fjallað er
um hlut hvers og eins.“ BÞ
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ANNA BERGÞÓRSDÓTTIR,
Lindasíðu 4,
Akureyri,
sem lést að heimili sínu föstudaginn 7. mars síðastliðinn,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 17. mars
kl. 13.30.
Guðni Friðriksson,
Olga Guðnadóttir, Kristján Halldórsson,
Agnes Guðnadóttir, Konráð Alfreðsson,
Þorbjörg Guðnadóttir,
Steinunn Guðnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.