Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.03.1997, Side 7
Hagur-íEmmm
B J
Þriðjudagur 11. mars 1997 - 7
ÖRGUNARAFREK
Alþingi Samskip n Dísarfell
Þingmenn minnast
• *
sjomanna sem
Olafur G. Einarsson, for-
seti Alþingis, minntist í
gær þeirra sem fórust
þegar Dísarfell sökk aðfaranótt
Ólafur G Einarsson.
sunnudags og varðskipsmanns-
ins sem tók út af Ægi þegar
reynt var að bjarga Vikartindi
frá strandi á miðvikudaginn.
Þingmenn vottuðu ætt-
ingjunum samúð sína,
með því að rísa úr
sætum við upphaf
þingfundar á Alþingi í
gær.
„Svo hörmulega
tókst til þegar varð-
skipið Ægir reyndi að
forða Vikartindi frá að
reka á land að einn
skipverja Varðskips-
ins tók útbyrðis í ham-
förum sjávarins. Hins
vegar vann áhöfnin á
þyrlunni Líf það afrek
að bjarga skipshöfn-
inni á Vikartindi á
land til björgunar-
sveita þar. Áhöfninni
á þyrlunni Líf tókst
einnig að bjarga 10
manns af skipshöfn-
fórust
inni á Dísarfelli, en harmsefni
er að tveir skipverjanna létust.
Við þessa atburði reyndi mikið
á björgunarlið á sjó, landi og í
lofti. Varðskipsmenn á Ægi
lögðu sig í lífshættu við björg-
unartilraun. Björgunarsveitir
biðu lengi viðbúnar í óveðrinu á
ströndinni. Þyrluáhöfnin hafði
farartæki sem dugði til björg-
unar mannslífa í óveðri og hafði
áræði, þrek og kunnáttu til að
bjarga giftusamlega 29 manns
úr sjávarháska. Allt þetta
björgunarlið á skildar þakkir og
aðdáun og aðstandendum
hinna þriggja látnu eru sendar
samúðarkveðjur," sagði Ólafur
G. Einarson og þingmenn tóku
undir með því að rísa úr sæt-
um.
Þjónusta
raskast ekki
Viðskiptavinir Samskipa
verða ekki fyrir röskun á
flutningum eða þjónustu þrátt
fyrir slysið hörmulega. Ákveðið
hafði verið að leigja Dísarfell í
önnur verkefni en leiguskipið
Arctic Morning verður í Evr-
ópusiglingum Samskipa frá og
með deginum í dag. Síðar fær
félagið afhent systurskip Arnar-
fells, Heidi, 8. aprfl. Verða Arn-
arfell og Heidi þá stærstu
gámaskip í flota Samskipa. BÞ
Með 1/100 af
ársútflutningi
Verðmæti farmsins í Dísar-
fellinu nam næstum 1%
af heildarverðmæti allra
útfluttra sjávarafurða á heilu
ári. Áætlað útflutningsverðmæti
þeirra 4.100 tonna af sjávaraf-
urðum sem skipið fluttu var
kringurn 800 miUjónir. Heildar-
verðmæti útfluttra sjávarafurða
á síðasta ári svaraði til rösklega
110 samsvarandi farma, en
rúmlega 100 farma árið 1995.
Landhelgisgæslan
Skothríð á gámana
var ekki lausnin
Reynt var í gærdag að
skjóta niður gáma úr Dís-
arfelli með fallbyssuskot-
um frá varðskipinu Tý. Þær til-
raunir báru engan árangur eft-
ir því sem næst var komist í
gærkvöldi. Gámar eru nú á reki
á allstóru svæði á venjubund-
inni siglingaleið til og frá land-
inu til Evrópu, og ógna þeir ör-
yggi sæfarenda.
Landhelgisgæslan var að
vinna að því að senda út aðvör-
un til sjófarenda auk þess sem
rætt var um aðgerðir til að
losna við gámana. Mikil hætta
er á árekstrum á svæðinu, ef
ekki er farið með mikilli gát.
Varðskipið Týr var í gærdag
á slysstaðnum um 100 sjómílur
suður af Hornafirði. - JBP