Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.03.1997, Page 10
rr
10 - Þriðjudagur 11. mars 1997 jDagur-(Eínítun
FA BIKARINN
8-liða úrslit
Chesterfield-Wrexham 1:0
(Beaumont 58)
Portsmouth-Chelsea 1:4
(Burton 82) (Hughes 25,
Wise 43, 86, Zola 56)
SheíT. Wed.-Wimbledon 0:2
(Earle 75, Holdsworth 90)
Derby-Middlesbrough 0:2
(Juninho 39, Ravanelli 90)
Dráttur í undanúrslit
Wimbledon - Chelsea
Middlesbrough - Chesterfield
Leikirnir fara fram 13. apríl.
Úrvalsdeild
Úrslit
Arsenal-Nottm. Forest 2:0
(Bergkamp 50, víti 79)
Coventry-Leicester 0:0
Leeds-Everton 1:0
(Molenaar 28)
Sunderland-Man. Utd. 2:1
(Gray 52, Mullin 76)
(Melvilie sjm. 78)
Slaðan
Man. Utd. 29 16
Arsenal 3015
Livcrpool 28 15
Newcastle 2714
Aston Villa 2913
Shcff.Wed. 28 1112
Wimbledon 2712 8
Chelsea 27 1110
Leeds 29 11
Leicester 2810
Tottcnham
Everton
Blackburn
Derby
Sunderland 29
Coventry 30
Nottm. For. 29
Southampt. 27
West Ham 27
Middlcsbr. 27
4 57:33 57
6 49:26 54
5 46:21 53
7 51:31 48
9 35:27 46
5 37:32 45
7 39:32 44
6 42:38 43
6 12 24:31 39
7 11 33:38 37
28 10
29 8
27
29
5 13 34:38 35
9 12 36:43 33
711 9 28:26 32
711 11 31:44 32
8 813 25:39 32
61212 26:39 30
6 914 24:45 27
6 7 14 37:46 25
6 7 14 24:37 25
6 714 37:49 22
• 3 stig tekin af Middlesbrough
fyrir að mæta ekki til leiks.
ATH! leik Newcastle og Liverpool
var ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun.
1. deild
Úrslit
Birmingham-Southend
Bolton-Swindon
Bradford-Grimsby
Charlton-C. Palace
Man. City-Oldham
Norwich-Port Vale
Oxford-West Brom
QPR-IIuddersfield
Stokc-Ipswich
Wolves-Tranmere
Barnsley-Sheff. Utd.
Staðan
Bolton
Wolves
Barnsley
ShelT. Utd.
Norwich
Ipswich
C. Palace
Port Vale
Stoke
Tranmere
Portsmouth
Swindon
QPR
Oxford
Charlton
Man. City
West Brom
Huddersf.
37 21
3619
35 17
3616
37 15
3614
35 14
37 12
3514
35 14
35 14
3714
3612
3613
35 13
3413
37 10
37 11
12 4
8 9
11 7
1010
1012
13 9
11 10
1510
912
8 13
8 13
7 16
11 13
7 16
7 15
6 15
1413
11 15
2:1
7:0
3:4
2:1
1:0
1:1
1:0
2:0
0:1
3:2
2:0
80:46 75
52:35 65
59:42 62
61:42 58
55:56 55
51:44 55
65:38 53
44:43 51
43:45 51
48:46 50
42:39 50
50:54 49
47:48 47
48:48 46
43:50 46
44:45 45
58:62 44
41:52 44
Hamar
félagsheimili Þórs:
Líkamsrækt og tækjasalur
Ljósabekkir
Vatnsgufubað
Nuddpottur
Salir til leigu
Beinar útsendingar
Getraunaþjónusta
Hamar
sími 461 2080
KNATTSPYRNA • England
Óvænt tap hjá
Man. United
Dennis Bergkamp, sem er til hægri á myndinni, skoraði bæði mörk
Arsenal gegn Nottingham Forest.
Manchester United tapaði
óvænt fyrir Sunderland
á útivelli um helgina og
missti þar af dýrmætum stigum.
Leikið var í 8 liða úrslitum FA
bikarsins og þar tryggðu Midd-
lesbrough, Chelsea, Wimbledon
og Chesterfield, sér sæti í und-
anúrslitum.
Manchester United er enn
efst í úrvalsdeildinni en spenn-
an jókst til muna á toppnum.
Leik Newcastle og Liverpool var
ekki lokið þegar blaðið fór í
prentun. Alex Fe’rguson, stjóri
United, ákvað að hvíla nokkra
lykilmenn eftir Evrópuleikinn
gegn Portó og það var honum
dýrkeypt. Gary Pallister var
ekki í hópnum og Andy Cole,
Ryan Giggs og Ole Gunnar
Solskjær fengu að verma bekk-
inn en í þeirra stað komu Phil
Neville, Karel Poborsky og
Jordi Cruyff. Leikmenn tóku
þennan hroka sem hvatningu
og lögðu sig alla í leikinn og
sigurinn var sanngjarn, 2:1.
Þess má geta að United hefur
fengið ísraelska varnarmann-
inn Gadi Bromer (23) til reynslu
en félag hans, Maccabi Tel Aviv
metur hann á 2 milljónir
punda.
Arsenal sigraði Nottingham
Forest auðveldlega með tveim-
ur mörkum frá Dennis Berg-
kamp. Forest er í vondum mál-
um og um helgina samdi félagið
við Celtic um kaup á hollenska
markahróknum Pierre van
Hooijdonk fyrir 4,5 milljónir
punda en búist var við að hann
skrifaði undir samninga í gær.
Leeds lagði Everton á Elland
Road með marki frá hollenska
miðverðinum Robert Molenaar,
sem skallaði inn eftir horn-
spyrnu. Everton verður að fara
að stoppa í gatið í vörninni og
um helgina stóðu yfir samn-
ingaviðræður við Slaven Bilic,
miðvörð West Ham, og talið að
kaupverðið verði um 5 milljónir
punda.
í 1. deild er Bolton langefst
eins og áður og liðið var aldeilis
á skotskónum gegn Swindon.
Bolton sigraði 7:0 og Guðni
Bergsson skoraði tvö markanna
á síðustu tíu mínútunum.
Landsliðsfyrirliðinn brá sér í
sóknina og skoraði tvö glæsileg
mörk, hvorugt með skalla.
Wimbledon þjösnast
áfram
í FA bikarnum var leikið í 8-liða
úrshtum og var mesta spennan
í kringum leik Sheffield Wed-
nesday og Wimbledon. Leik-
mönnum liðann gekk illa fram-
an við mörkin og allt virtist
stefna í markalaust jafntefli
þegar Robbie Earle sýndi enn
og aftur hversu lunkinn hann
er í vítateignum. Dean Holdsw-
orth bætti síðan öðru marki við
í lokin og Wimbledon leikur
gegn nágrönnum sínum í
Chelsea í undanúrslitum.
Chelsea heimsótti Port-
smouth og vann auðveldan sig-
ur, 4:1. Mark Hughes fékk
óblíðar viðtökur af varnar-
mönnum en hann kann að
svara fyrir sig og kom Chelsea
á bragðið. Dennis Wise (2) og
ítalski snillingurinn Gianfranco
Zola gulltryggðu sigurinn en
Deon Burton náði að klóra í
bakkann. Chelsea þykir nú sig-
urstranglegast í bikarnum.
Middlesbrough gengur afleit-
lega í deildinni en liðið er á
miklu skriði í bikarkeppnunum
og á laugardag lagði Boro
heimamenn í Derby í síðasta
bikarleiknum á Baseball Gro-
und en Derby flytur á nýjan völl
á næsta tímabili. Brasilíski
töframaðurinn Juninho var
maðurinn á bakvið sigurinn en
hann skoraði fyrra markið og
lagði upp það síðara sem Ra-
vanelli skoraði.
Mótherji Middlesbrough í
undanúrslitum verður 2. deild-
arlið Chesterfield, sem sigraði
Wrexham 1:0 með marki frá
Chris Beaumont.
HANDBOLTI
Drammen vill fá
Þorbjöm til sin
Norska liðið Drammen,
sem um helgina tryggði
sér Noregsmeistaratitil-
inn, hefur lýst yfir áhuga á því
að fá Þorbjörn Jensson, lands-
liðsþjálfara, sem þjálfara á
næsta keppnistímabili. Tæpur
mánuður er síðan norska liðið
setti sig fyrst í samband við
Þorbjörn, en hann segist ætla
að hugsa málið.
„Pað eru mörg spennandi
verkefni framundan hjá norska
liðinu, en mér finnst það heið-
arlegast að HSÍ fái tækifæri til
að ræða við mig á undan. Ég
geri ráð fyrir því að gefa for-
ráðamönnum Drammen svar,
um hvort ég telji vera grundvöll
fyrir samningagerð í lok þess-
arar viku, eða í byrjun þeirrar
næstu," sagði Þorbjörn þegar
rætt var við hann um helgina.
Engar formlegar samninga-
viðræður hafa farið fram á milli
aðilanna, en norska liðið mun
hafa fjögurra ára samning í
huga. Tveggja ára samningur
Þorbjörns við HSÍ rennur út 26.
maí og hann mun að minnsta
kosti stýra hðinu framyfir HM í
Japan.
HANDBOLTI
Stjarnan og
Fram áfram
Stjarnan og Fram tryggðu sér
um helgina þátttökuréttinn í 4-
liða úrslitum íslandsmótsins.
Stjarnan lagði ÍBV í síðari leik Uð-
anna í Eyjum, 24:30, á laugar-
daginn og Fram vann þriðju við-
ureign sína gegn Víkingi, í Víkinni
20:22. FH og Haukar mætast í
undanúrslitum keppninnar og
Stjarnan leikur við Fram.
KNATTSPYRNA
TapgegnDönum
s
Islenska kvennalandsliðið mátti
þola tap gegn Dönum, 4:1 þegar
liðin mættust á Alþjóðlegu móti
sem nú stendur yfir í Algarve í
Portúgal. Sigrún Óttarsdóttir
skoraði mark íslands.
Þorbjörn Jensson hefur undanfarið
átt í viðræðum við Noregsmeistar-
ana, Drammen.
BLAK • 1. deild karla
Þróttur deildarmeistari
Fjórir leikir fóru fram um
helgina og úrslit réðust
bæði á toppi og botni.
Þróttur Reykjavík sigraði KA,
3:1, í hörkuleik á föstudags-
kvöldið og þá var ljóst að Þrótt-
ur úr Reykjavík stæði uppi sem
deildarmeistari, eftir 3:0 sigur
Stúdenta á Þrótti Neskaupstað,
en viðureignin tók aðeins 50
mínútur.
Norðanmenn úr KA mættu til
leiks eftir átta tíma ferðalag
með langferðabfl, en það virtist
ekki hafa nein áhrif á leik iiðs-
ins og Sigurður Arnar Ólafsson,
þjálfari liðsins, sagði að líklega
hefði Akureyrarliðið leikið sinn
besta leik í vetur, gegn Þrótti.
Það dugði KA-mönnum þó ekki
til sigurs, en þeir stóðu svo
sannarlega uppi í hárinu á
Þrótturum.
„Við áttum að vinna þennan
leik, við vorum yfir 10:3 og 12:8
í þriðju hrinunni og í þeirri
fjórðu vorum við komnir í 14:3
en töpuðum samt. Það má
kannski segja að við höfum
hálfbrætt úr okkur í þessum
leik, því við vorum ekki nándar
nærri eins öflugir gegn Stjörn-
unni,“ sagði Sigurður Arnar, en
Akureyrarliðið mátti þola 3:0
tap í Garðabænum og Stjarnan
tryggði sér þar með fjórða sætið
og pláss í úrslitakeppninni.
Leikmenn 1. deildarinnar í
blaki héldu lokahóf sitt um
helgina. Stigahæsti maður 1.
deildarinnar, Áki Thoroddsen,
sem leikur sem miðjumaður
með Þrótti Reykjavík, var val-
inn besti leikmaður deildarinn-
ar og Róbert Hlöðvarsson,
kantsmassari úr Stjörnunni var
valinn sá efnilegasti.
Úrslit leikja um helgina:
Þróttur R-KA 3:1
(16:14,11:15,15:13,16:14).
ÍS-Þróttur N 3:0
(15:2, 17:16, 15:0).
Stjarnan-KA 3:0
(15:10, 15:13, 15:7).
Þróttur R-Þróttur N 3:0
(15:7, 15:6, 15:10).
Lokastaðan:
Þróttur R 1613 3 42:17 42
Þróttur N 1611 5 34:22 34
ÍS 16 6 10 28:36 28
Stjarnan 16 5 11 26:37 26
KA 16 5 11 21:39 21
Stúdentar tryggðu sér deildar-
meistaratitilinn í kvennafiokki,
með 3:0 sigri í uppgjörinu gegn
Þrótti Neskaupstað. Hrinunum
lyktaði 15:7, 15:10 og 15:10. ÍS
hlaut 33 stig, Þróttur N hlaut 31
stig, Víkingur var með 17 stig og
KA með 3 stig.