Dagur - Tíminn Reykjavík - 11.03.1997, Qupperneq 12
Þriðjudagur 11. mars 1997
Reykjavík
°j?_ Mið Fim FÖS
J- o
VNV 4 NA3 ASA 4 A5 SSA4
NNA 3 ANA 4 ASA 4 A5
Stykkishólmur
-15
-10 - 5 - 0 FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR • HM innanhúss í París
NNV4 NA 3 SA3 A 5 SA5
NA4 A4 ASA 4 A5
Bolungarvík
NA3 NNA2 SSV3 ANA 3 ANA 4
ANA 3 VSV2 SA2 ANA 4
Blönduós
°9 Mið Fim Fös Lau mm
0-1----------- ----------- ----------- -----------»-15
NNA 3 N2 S 2 A2 A3
NNA3 VSV2 S 2 A3
Akureyrí
N3 NNV3 SSV3 ASA 3 ASA 3
NNV4 VNV2 SSV3 ASA 3
Egilsstaðir
C Mið Fim Fös Lau mm^_
NV3 NNV3 NV2 ASA 2 ASA 3
NNV5 NNV4 VSV3 ASA 4
Kirkjubæjarklaustur
°9 Mið Fim Fös Lau mm
5 ---- ---- ---- ----KI5
V 3 NNA2 ASA 2 ASA 2 ASA 2
NNV3 ANA 3 SA3 ASA 4
Stórhöfði
Mið Fim Fös Lau mm
V 6 NNA5 ASA 6 ASA8 SSA 5
N5 ANA 6 SA7 ASA9
lllsala
á Candy
heimilistækjum
Línuritin sýna fjögurra
daga veðurhorfur á
hverjum stað. Línan sýnir
hitastig, súluritið 12 tíma
úrkomu en vindáttir og
vindstig eru tilgreind fyr-
ir neðan.
Hörður
Þórðarson
veðurfrœðingur
Suðvestan stinningskaldi í
fyrstu en síðan minnkandi,
suðvestan og vestan gola eða
kaldi síðdegis. Um landið
vestanvert verða él en
léttskýjað austan til. Hiti verður
nálægt frostmarki sunnan til en
vægt frost um landið
norðanvert.
KAUPLAND
KAUPANGI
Sími 462 3565 • Fax 461 1829
Frábært hjá Jóni Arnari
„Ég er farinn að
keppa með öðru
hugarfari. Ég er
hættur að horfa á
andstæðingana og
dást að þeim, nú
hugsar maður um
að sýna andstæð-
ingunum hvað mað-
ur getur gert
sjálfur.“
Það kemur alltaf skemmti-
lega á óvart þegar vel
gengur. Ég er mjög
ánægður með fyrri daginn,
þetta er þriðji besti fyrri dagur-
inn frá því að byrjað var að
keppa í sjöþraut og þó ég hafi
reynt að hugsa sem minnst um
það, get ég ekki neitað því að
ég var nokkuð stressaður fyrir
síðari daginn. í heildina get ég
ekki verið annað en ánægðm-
og það var ógleymanlegt að sjá
íslenska fánann dreginn að
húni í verðlaunaafhending-
unni,“ sagði Jón Arnar Magnús-
son, sem náði 3. sætinu í sjö-
þraut á heimsmeistaramótinu í
París, sem lauk í Bercy-höllinni
í París á sunnudag. Jón Arnar
fékk 6145 stig, sem er nýtt ís-
lands- og Norðurlandamet í
greininni.
Með forystu eftir fyrri
daginn
Það gekk ílestallt upp hjá mér
fyrri daginn. Þetta var ágætis-
byrjun í 60 metra hlaupinu, þar
sem ég var tveimur sekúndu-
brotum frá mínum besta ár-
angri og langstökkið var þokka-
legt. Ég var frekar í efri kantin-
um og á réttu róli. Kúluvarpið
var mjög gott og það sama er
hægt að segja um hástökkið,"
sagði Jón, þegar hann fer í hug-
anum yfir fyrri daginn. Þær
greinar gáfu honum 3594 stig,
47 stigum fleiri en Chris Huffins
sem var í 2. sæti.
Þrátt fyrir að Jón Arnar hafi
misst af forystusætinu á sunnu-
daginn, þegar keppt var í síðari
þremur greinunum, segir hann
að hann geti ekki verið óánægð-
ur með árangurinn. „Síðari
dagurinn hefur alltaf verið lak-
ari hjá mér. Ég byrjaði þó vel og
var aðeins 3/100 frá íslands-
metinu og bætti mig um eina
sekúndu, frá því í þrautinni í
Stokkhólmi fyrra. Stangar-
stökkið gekk kannski ekki sem
best, ég á að geta gert mun bet-
ur í því, þó ég eigi mikið eftir
ólært. Þessir strákar hafa
margir mun meiri reynslu, því
ég byrjaði ekki í þessari grein
fyrr en ég var átján ára. Þá var
Érki Nool til að mynda búinn að
stökkva 5,30. Ég var hins vegar
orðinn nokkuð stxfur í síðustu
greininm, þúsund metrunum og
það hafði sitt að segja,“ segir
Jón Arnar, sem hefur skipað sér
í allra fremstu röð í sjöþraut
með árangri sínum.
Jón Arnar sagði að mótið í
París ætti eftir að nýtast honum
sem góð reynsla fyrir framtíð-
ina. „Ég er farinn að keppa
með öðru hugarfari. Ég er
hættur að horfa á andstæðing-
ana og dást að þeim, nú hugsar
maður um að sýna andstæðing-
unum hvað maður getur gert
sjálfur.“
ÚRSLIT í SJÖÞRAUTINNI
FYRRIDAGUR
60 METRA HLAUP
1. Chris Huffins, 6,61 1026
2. Jón A. Magnúss., 6,85 936
3. Erki Nool, 6,86 933
Tími Hxiffins er sá besti sem
náðst hefur í greimxmi í sjö-
þraut, en Jón Arnar sem hljóp í
sama riðli var aðeins 2/100 frá
árangri sínum í Gautaborg á síð-
asta ári.
LANGSTÖKK
1. Tomas Dvorak, 7,69 982
2. Christian Plaziat, 7,58 955
3. Jón A. Magnúss., 7,56 950
Jón tók forystuna í þrautinni,
en aðeins þremur stigum mun-
aði á honum og Huffins.
KÚLUVARP
1. Jón A. Magnúss., 16,27 868
2. Tomas Dvorak, 16,25 867
Jón Arnar með bronsverðlaunin, við heimkomuna á Keflavíkurflugvelli.
3. Chris Huífins, 15,55 824
Besti árangur Jóns Arnar í kúlu-
varpi í þraut og jafnframt
lengsta kast í sjöþraut á HM.
HÁSTÖKK
1. Sebastian Chmara, 2,10 896
2. Christian Plaziat, 2,04 840
4. Jón A. Magnúss., 2,04 840
SÍÐARIDAGUR
60 METRA GRINDARHLAUP
1. Chris Huffins, 7,80 1033
2. Tomas Dvorak, 7,87 1015
6. Jón A. Magnúss., 8,02 977
STANGARSTÖKK
1. Sebastien Levicq, 5,40 1035
2. Erki Nool, 5,30 1004
7. Jón A. Magnúss., 4,60 790
1000 METRA HLAUP
1. ErkiNool, 2:40,75 865
2. Robert Zmelik 2:42,41 847
6. Jón A. Magnúss., 2:48,24 784
mm
LOKASTAÐAN iSJOÞRAUTINNI
1. Robert Zmelik, Tékklandi 6.228
2. Erki Nool, Eistlandi 6.213
3. Jón Arnar Magnússon, íslandi 6.145
4. Chris Huflins, Bandaríkjunum 6.128
5. Christian Plaziat, Frakklandi 6.106
6. Steve Fritz, Bandaríkjunum 6.008
7. Sebastian Levicq, Frakklandi 5.865
Vala fór yfir
fjóra metra
Vala Flosadóttir var nokk-
uð frá sínu besta í stang-
arstökkskeppninni. Hún fór
yfir íjóra metra í úrshta-
keppninni í stangarstökki á
sunnudaginn og varð í 8.
sæti. Bandaríska stúlkan
Stacy Dragila sigraði í grein-
inni með því að stökkva yfir
4,40 metra.
Góð peninga-
verðlaun í
boði í París
Jón Arnar fékk 20 þúsund
bandaríkjadali fyrir
bronsverðlaunin í tugþraut,
eða sem samsvarar 1,4
milljónum íslenskra króna.
Sigurvegarar í greinunum á
HM fengu 100 þúsund dali,
eða sem samsvarar sjö millj-
ónum og sama upphæð var
veitt fyrir heimsmet.