Dagur - Tíminn Reykjavík - 25.03.1997, Síða 8
Jlagur-Βrtmtn
DAGBÆICUR LÖGREGLUNNAR
Reykjavík
Akureyri
Um helgina var tilkynnt um 6
líkamsmeiðingar, 11 innbrot, 12
þjófnaði og 16 eignarspjöll. Af-
skipti voru höfð af 28 manns
vegna ölvunarháttsemi á al-
mannafæri og vista þurfti 35 í
fangageymslu vegna ýmissa
mála. Tólf ökumenn, sem af-
skipti voru höfð af um helgina,
eru grunaðir um ölvunarakst-
urs, 13 ökumenn voru kærðir
fyrir of hraðan akstur og 21
ökumaður og tveir farþegar
voru kærðir fyrir að nota ekki
bflbelti.
Átján ára piltur var gripinn
við sölu á landa í Mosfellsbæ. í
bifreið hans fundust 7 lítrar af
þeim vökva. Pilturinn var færð-
ur á lögreglustöð til skýrslu-
töku.
18 ára og máttu ekki
fara um borð
Um miðnætti á föstudag var
tilkynnt um mann sem átti að
hafa stolið veskjum af gestum á
veitingastað við Hafnarstræti.
Maðurinn, sem margsinnis hef-
ur komið við sögu mála hjá lög-
reglu, var handtekinn og færð-
ur í fangageymslu. Á honum
fundust m.a. peningar, sem
hann hafði stolið af einum gest-
anna og var þeim komið til
hans aftur.
Þremur stúlkum á átjánda
ári var vísað frá borði flutn-
ingaskiptsins Serenu, sem lá í
Sundahöfn.
Logaði glatt á
Bræðraborgarstíg
Á laugardagsmorgun voru tveir
menn handteknir í Fróðengi við
að reyna að stela bensíni af bif-
reiðum. Fimm menn voru
handteknir á Eiðistorgi og færð-
ir á stöð eftir að athygli hafði
verið vakin á einkennilegu hátt-
arlagi þeirra. Við leit í bifreið
þeirra fundust 9 ávísanir. Tveir
aðilanna voru í framhaldi af því
færðir til yfirheyrslu, grunaðir
um tékkafals.
Síðdegis var tilkynnt umeld í
þriggja hæða timburhúsi við
Bræðraborgarstíg. Miklar
skemmdir urðu á miðhæð húss-
ins af völdum elds. Á efri hæð
urðu skemmdir á gólfefni og
talsverðar sótskemmdir. Elds-
upptök eru ókunn.
Hræddur við áhrifin
Á laugardag var tilkynnt um
neyslu LSD í húsi í Ásunum. Sá,
sem neytt hafði efnisins,
hringdi sjálfur á aðstoð þar sem
hann varð hræddur þegar
áhrifanna fór að gæta. Engin
slík efni fundust við leit á heim-
ih hans. Viðkomandi var fluttur
á slysadeild með sjúkrabifreið.
Ekið á reiðmann og
bensínstuldur
Ekið var á hest og mann á
Heiðmerkurvegi við Rauðhóla.
Ökumaðurinn ók af vett-
vangi, en fljótlega
Ökun
^V:
tókst
tókst
að
hafa
upp á
hon-
um.
Hest-
urinn
var
það
illa
farinn
að
ástæða þótti til að slá hann af.
Á laugardagskvöld var
tilkynnt um að dökkhærður
maður með skegghíung í svört-
um buxum og svörtum jakka
með svarta húfu hefði angrað 6
ára gamla stúlku í Fellunum.
Leit var gerð að manninum en
hann fannst ekki. Eftir miðnætti
vár tilkynnt um pilt vera að
reyna að stela bensíni af bifreið
við Tryggvagötu. Hann var
handtekinn með stóran kaffi-
brúsa og tveggja metra langa
slöngu í fórum sínum. Piltur var
færður á lögeglustöð og sóttur
þangað af foreldri sínu.
Tennurnar fuku og
Star Wars byssa
Á sunnudag sprakk loftpressa í
Úr dagbók lögreglunnar í Reykjavík 21.-24. mars
fyrirtæki við Mýrargötu. Heddið
sprakk af og gengu stimplarnir
út. Rúður brotnuðu í húsinu, en
svo heppilega vildi til að ekkert
fólk var nálægt. Tennur voru
slegnar úr manni á veitingastað
við Laugaveg.
Vel byrgur
Kvartað var yfir bensínlykt á
stigagangi húss við Bolholt.
Einn íbúinn hafði byrgt sig vel
upp af bensíni og komið ben-
síntunnu fyrir á fyrstu hæð
hússins með þeim afleiðingum
að gufur frá því lagði um allt
hús. Um kvöldið var tilkynnt
um að byssu með „leysermiði"
hefði verið beint inn um stofu-
glugga húss í Hólunum. Við at-
hugun kom í ljós að einn ná-
grannanna hafði nýlega eignast
penna með sterku rauðu
punktaljósi og hafði hann verið
að leika sér að því að miða því
á næsta umhverfi sitt.
Smygl að nóttu
Aðfaranótt mánudags var vöru-
bifreið stöðvuð á leið tií borgar-
innar. Á palli hennar voru 2
fiskikör, 9 lambaskrokkar og
hluti tveggja nauta ásamt bens-
ínbrúsum. Ökumaðurinn var að
koma að vestan með matar-
forða fyrir fjölskylduna.
Lögreglan óskar landsmönn-
um öllum gleðilegra páska. Ó.
Dala-Brie er hreint fráhœr ostur, Ijúffengur einn sér eða með ávöxtum,
grænmeti og kexi.
Veisla, teiti, saumaklúhhur eða róleg stund, kvert sem tilefnið er fá
getur Jdú alltaf treyst á Dala-Brie. Og svo getur Dala-Brie verið tilefni
út affyrir sig...
ÍSLENSKIR *
OSTAR -v,}
Úr dagbók lögreglunnar á Akureyri
dagana 17.-23. mars
Segja má að síðastliðin vika
hafi verið mjög umhleypinga-
söm, frost og þýða til skiptis,
rigning, slydda og snjókoma. Þó
viðraði vel til útivistar síðustu
daga vikunnar er sólin lét sjá
sig. Eins og svo oft er þegar
svona viðrar þá eru aksturs-
skilyrði í lakara lagi á götum
bæjarins.
Vafalaust má rekja þau 15
umferðaróhöpp, sem tilkynnt
voru til lögreglunnar, til
slæmra akstursskilyrða þó
ávallt sé einnig um að kenna
óaðgæslu ökumanna. Um slys á
fólki var að ræða í tveimur til-
vikum.
Ekið á stúlku
Þriðjudaginn 18. mars varð
árekstur tveggja ökutækja á
Mímisbraut við Verkmennta- .
skólann og var farþegi úr öðru
þeirra fluttur á slysadeild FSA
vegna hálsmeiðsla. Þá var ekið
á stúlku laugardaginn 22. mars
sem var á leið norðiu- yfir
Kaupvangsstræti móts við hús
númer 24. Stúlkan sem er 4 ára
var flutt á slysadeild FSA með
sjúkrabifreið en betur fór en á
horfðist og reyndust meiðsl
hennar minniháttar.
Talsvert hefur borið á of
hröðum akstri ökumanna og
voru 21 ökumenn kærðir fyrir
að virða ekki almennar hraða-
takmarkanir. Hrósa má bæjar-
búum fyrir að færa ökutæki sín
til aðal- og endurskoðunar á
réttum tíma.
Tvær líkamsárásir
í vikunni voru tvær líkamsárás-
ir kærðar. Þær gerðust aðfara-
nótt laugardagisns, önnur í
heimahúsi en hin í miðbænum.
Um minniháttar meiðsl var að
ræða í fyrra tilvikinu en um
viðbeinsbrot í því seinna. Fimm
þjófnaðarmál voru kærð í vik-
unni. Farið var inn í hús á
brekkunni og þaðan teknir
tveir sparibaukar
sem fullir voru
af smámynt. Einnig
var farið inn í hús á
Eyrinni og þaðan stolið um kr.
8.000.- í peningum úr peninga-
kassa. Tilkynnt var um tvö inn-
brot, annað í endurhæfingar-
stöðina við Skógarlund þar sem
litlar skemmdir voru unnar og
líklega engu stolið, hitt í íbúðar-
hús á brekkunni, þar sem litlu
var stolið. Þá var einnig
tilkynnt um tilraun til innbrots í
leikskólann Iðavelli við Gránu-
félagsgötu. Þeir sem einhverjar
upplýsingar geta gefið um inn-
brot þessi eru vinsamlegast
beðnir um að hafa samband
við lögregluna.
Stinga bara af!
Borið hefur á fjársvikamálum
að undanförnu og komu þrjú
slík inn á borð hjá lögreglu.
Um er að ræða fólk sem stingur
af frá ógreiddum reikningum
svo sem á hóteli og fyrir akstur
í leigubifreiðum. Þá komu fflcni-
efni við
um tilfellum
í vikunni. Má
þar nefna að tveir
menn í vímuástandi voru hand-
teknir í íbúð á miðbæjarsvæð-
inu. Aðstæður þar-bentu-til að
menn þessir hefðu verið í
neyslu fíkniefna. Eru allir
hvattir til að kom upplýsingum
sem þeir kynnu að buk yfir um
neyslu, sölu og dreifingu slíkra
efna til lögreglunnar. Hægt er
að hringja í símsvara og lesa
upplýsingar inn á hann. Fullum
trúnaði er heitið. Símanúmerið
er 462-1881. M.A.